Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 28.09.1969, Qupperneq 9

Tíminn Sunnudagsblað - 28.09.1969, Qupperneq 9
REFUR BÓNDl: Sveitarríma um bændur á Ströndum Kveðin í Fellshreppi haustið 1967 Fells í hreppi hafa lengi, höldar margir búið vel. Þekki ég alla þessa drengi, þeirra heiti upp nú tel. Út við sjóinn sumir búa, sízt þeir óttast þrautaél, og á moldarmátt þeir trúa meira en bæði kofu og sel. Allt í kringum Kollafjörðinn kjarnaland er talið æ, því mun feit og falleg hjörðin finnast þar á hverjum bæ. Þó á vetrum vonzkuhríðar vilji tíðum geysa þar, sól og ylur sumartíðar seggi gleður alls staðar. Broddadals á áimi eru orkuslyngir bændur þrír. Rausnarmenn í raun og veru, rekkur hver að sínu býr. Brynjólfur er borinu Jóni, bróðir Halldórs, mörgum kær Gunnar úti á Isafróni allra lof og hrósið fær. Broddanesi bændur f jórir búa í og f jölga hjörð, eðlisgreindir, orkustórir yrkja þessa góðu jörð. Annarra hagi ef að þrengir, allra vilja gera bón. Eru þekktir afbragðsdrengir, Einar, Stefán, Guðbjörn, Jón. Eykst þeim nú með árum gróði, auðnudís þeim veitir lið. Þeirra jafnan þyngir sjóði þegar nógan rekur við. Stóra-Fjarðarhornið hirðir hreppstjórinn að nafni Jón. Sveitarmengi sífellt virðir sveitarinnar dygga þjón. Jón sér reisti fjárhús fögur, frægð sem hljóta í lengd og bráð. Af þeim fara ótal sögur endilangt um Strandaláð. þórður yrkir Undralandið, orðin nú sú jörð er góð. Hans er líf ei beizkjublandið, býr hann þar með hringaslóð. Aðra jörð hann yrkir líka, er það Þrúðardalurinn. Kjarnalandið kostaríka kemur þrótt í bústofninn. Sigurður á Felli frægur fyrir góðan búskap er. Greindur, prúður, gætinn, hægur, gæfuleiðir jafnan fer. Miðhúsanna mætur gætir merkisbóndinn Finnbogi. Efnahag sinn alltaf bætir ásamt honum Guðfinui. Stýrir traustur Steinadalnum stilltur jafnan Gústi Jón. Þar í fögrum f jallasalnum fær hann heill en ekki tjón. Líti ég að Ljúfustöðum, löngum margt þar gott ég sé. Þórður beitir höndum hröðum, hagur vel á járn og tré. Þegar eitthvað þarf að laga, Þórðar til menn leita skjótt. Bætir úr því höndin haga hjálpar bæði vel og fljótt. Flestir þeir, sem þurfa að ríða, Þórðar leita oft á fund. Söðla gerir seggur smíða, sitt í jörð ei grefur pund. Þekkt er víða Þórðar snilli, þarf ei um að hafa orð. Enda fær hann allra hylli, cndilanga Fróns um storð. Fjarðarhorni litla lifað lengi Þórður hefur í. Símans gætt og skýrslur skrifað, skörulegur æ og sí. Jónatan fær háan hróður, Hlíðarland hann yrkir nú. Á hans ráði einn er Ijóður að hann skuli vanta frú. Taldir eru allir bændur, er í hreppnum búa nú. Munu vera flestir frændur, fullkomin er vissa sú. íslands bænda eflist gengi, allra bæði fjær og nær. Orni þeim og lýsi lengi lukkusunna hlý og skær. Úr mér dregur óðar máttinn, enda ég því braginn skjótt. Fýsir mig að fara í háttinn fyrðum býð því góða nótt. Nafn mitt hatar hópur ýta, hef ég aldrei von um frið. Kænn í skapi, kann að bíta, kannast flestir heitið við. J f fMlNN SUNNUDAGSBLAÐ 753

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.