Tíminn Sunnudagsblað - 28.09.1969, Síða 9
REFUR BÓNDl:
Sveitarríma um
bændur á Ströndum
Kveðin í Fellshreppi haustið 1967
Fells í hreppi hafa lengi,
höldar margir búið vel.
Þekki ég alla þessa drengi,
þeirra heiti upp nú tel.
Út við sjóinn sumir búa,
sízt þeir óttast þrautaél,
og á moldarmátt þeir trúa
meira en bæði kofu og sel.
Allt í kringum Kollafjörðinn
kjarnaland er talið æ,
því mun feit og falleg hjörðin
finnast þar á hverjum bæ.
Þó á vetrum vonzkuhríðar
vilji tíðum geysa þar,
sól og ylur sumartíðar
seggi gleður alls staðar.
Broddadals á áimi eru
orkuslyngir bændur þrír.
Rausnarmenn í raun og veru,
rekkur hver að sínu býr.
Brynjólfur er borinu Jóni,
bróðir Halldórs, mörgum kær
Gunnar úti á Isafróni
allra lof og hrósið fær.
Broddanesi bændur f jórir
búa í og f jölga hjörð,
eðlisgreindir, orkustórir
yrkja þessa góðu jörð.
Annarra hagi ef að þrengir,
allra vilja gera bón.
Eru þekktir afbragðsdrengir,
Einar, Stefán, Guðbjörn, Jón.
Eykst þeim nú með árum
gróði,
auðnudís þeim veitir lið.
Þeirra jafnan þyngir sjóði
þegar nógan rekur við.
Stóra-Fjarðarhornið hirðir
hreppstjórinn að nafni Jón.
Sveitarmengi sífellt virðir
sveitarinnar dygga þjón.
Jón sér reisti fjárhús fögur,
frægð sem hljóta í lengd og
bráð.
Af þeim fara ótal sögur
endilangt um Strandaláð.
þórður yrkir Undralandið,
orðin nú sú jörð er góð.
Hans er líf ei beizkjublandið,
býr hann þar með hringaslóð.
Aðra jörð hann yrkir líka,
er það Þrúðardalurinn.
Kjarnalandið kostaríka
kemur þrótt í bústofninn.
Sigurður á Felli frægur
fyrir góðan búskap er.
Greindur, prúður, gætinn,
hægur,
gæfuleiðir jafnan fer.
Miðhúsanna mætur gætir
merkisbóndinn Finnbogi.
Efnahag sinn alltaf bætir
ásamt honum Guðfinui.
Stýrir traustur Steinadalnum
stilltur jafnan Gústi Jón.
Þar í fögrum f jallasalnum
fær hann heill en ekki tjón.
Líti ég að Ljúfustöðum,
löngum margt þar gott ég sé.
Þórður beitir höndum
hröðum,
hagur vel á járn og tré.
Þegar eitthvað þarf að laga,
Þórðar til menn leita skjótt.
Bætir úr því höndin haga
hjálpar bæði vel og fljótt.
Flestir þeir, sem þurfa að ríða,
Þórðar leita oft á fund.
Söðla gerir seggur smíða,
sitt í jörð ei grefur pund.
Þekkt er víða Þórðar snilli,
þarf ei um að hafa orð.
Enda fær hann allra hylli,
cndilanga Fróns um storð.
Fjarðarhorni litla lifað
lengi Þórður hefur í.
Símans gætt og skýrslur
skrifað,
skörulegur æ og sí.
Jónatan fær háan hróður,
Hlíðarland hann yrkir nú.
Á hans ráði einn er Ijóður
að hann skuli vanta frú.
Taldir eru allir bændur,
er í hreppnum búa nú.
Munu vera flestir frændur,
fullkomin er vissa sú.
íslands bænda eflist gengi,
allra bæði fjær og nær.
Orni þeim og lýsi lengi
lukkusunna hlý og skær.
Úr mér dregur óðar
máttinn,
enda ég því braginn skjótt.
Fýsir mig að fara í háttinn
fyrðum býð því góða nótt.
Nafn mitt hatar hópur ýta,
hef ég aldrei von um frið.
Kænn í skapi, kann að bíta,
kannast flestir heitið við.
J
f fMlNN
SUNNUDAGSBLAÐ
753