Tíminn Sunnudagsblað - 02.11.1969, Síða 2

Tíminn Sunnudagsblað - 02.11.1969, Síða 2
BRÉF TIL BJARGAR Fyrir nokkrum vikum sagði prestur við mig eftirminnilega setningu: Ef gengið verður af djöflinum dauðum, fer hinn sömu leiðina. Allt hefur tvo póla, sagði hann, og fær ekki staðizt án þess, trúarbrögðin ekki fremur en annað. Þetta rökræði ég ékki. Hitt höfum við fyrir augunum í okk- ar skynjanlega heimi og áþreif- anlegu tilveru, að sífellt er verið að ala og fita djöfla, — magna þá og gera sem hræðilegasta, til þess að hefja annað goð hærra á stall. Þetta gerist að meira eða minna lejdi í hinum smæstu samfélögum, og þetta gerist í taflinu um máttinn og dýrðina í veröldinni. Kalda stríð- ið, sem svo hefur verið nefnt, var siík uppmögnun djöfulsins, til þess gerð að slá ljóma á guð- inn og treysta virki hans. Við þekkjum þetta frá okkar hlið, frá sjónarhæðum hins svo- nefnda lýðræðis, en engin skynsamleg ástæða er til þess að ætla, að þetta horfi svo mjög við á annan veg frá hinum pólnum. Þegar djöfullinn er orðinn nógu ægilegur, þarf guðinn ekki að vera neinn engill. Hann er heilagur samt. Hann getur leyft sér að vera grimmur, ranglátur og miskunnarlaus, og sú gern ingahríð, sem á skellur, þegar geittoéðninum hefur verið veif- að nógu lengi, knýr hann jafn- vel til þess. Og þeir, sem á hann trúa, verða að dansa með, klappa öllu lof í lófa, leggja hönd á plóg, meðvitandi eða ómeðvit- andi, nauðugir, ef ekki viljugir. Fyrir nokkrum hundruðum ára toafði kristin kirkja gert djöful sinn að ægilegum óvini, sem alls staðar hafði klær sínar úti — jafnraunverulegan nátt- úruöflunum. Gegn slíkum óvini varð að berjast. Grimmdin og mannvonzka var hið óhjákvæmi- lega svar. Milljónir manna tróðu dansinn kring um gálgana og galdrabálin og pyndingarklef- ana. Þeir gerðu það í nafni hins góða guðs, og þess verður ekki vart, að þeim hafi fundizt at- ferli sitt slá neinum fölskva á ljóma hans, síður en svo. . Enn lifa trúarbrögð af þessu tagi í mesta gengi. Munurinn er sá einn, að þeir eiga sér báðir ríki af þessum heimi, guðinn og andskotinn. Djöfullinn er ekki málaður lengur á kirkju- hvelfingar, heldur á síður dag- blaða og myndflöt sjónvarps. Það er svo sem sjálfsagt mál, að íslenzkir menn eru reiðubún- ir til þess að vitna með sínum guði og Iofa órannsakanlegan vísdóm hans, og hafi hann tii dæmis dundað við að myrða varnarlitla og frumstæða þjóð í svo sem áratug, þá er það af þvá, að hann er bara að berjast gegn þeim vonda. Eins og áður í mannkynssög- unni verður heilbrigð skynsemi og eðlilegt mat á verknaði að víkja um set fyrir þjónusiu- seminni við svo blendna día, að þeir geta verið guðinn eða andskotinn að vild, allt eftir því hvernig hlutverkaskiptingin er þá og þar. Með þessum hætti verður allt gott og loflegt, ef réttur flugnahöfðingi er að verki eða hans legátar, því að tiltæki þeirra eru hafin yfir allt siðrænt mat. J. H. HEYRT MEÐ ÖÐRU EYRANU f síðasta hefH Náttúrufræðingsins skýrir Guttormur Sigbjarnar- son frá rannsóknum sinum á jarðvegseyðingu á Haukadalsheiði. Rannsóknarsvæðið er um 250 ferkílómetrar og mun allt hafa verlð gróið á landnámsöld, nema um tuttugu ferkilómetrar og jarðvegsbykkt verlð um einn metrl. Guttormur telur jarðvegs- eyðinguna þar hafa orðið um 270 milijónir teningsmetra — 245 þúsund teningsmetra á ári. Nú er þetta svæði mjög illa farið, og þó heldur eyðingin áfram. Á ári hverju frá upphafi fslands- byggðar hafa vindur og vatn flutt burt um tvö hundruð þúsund teningsmetra, því að dálítill hluti jarðvegs þess ,sem upp blés, hefur ekki borizt út af svæðinu. Þaðan hafa með öðrum orðum um átta hundruð teningsmetrar jarðvegs horfið burt af hverjum ferkílómetra tll jafnaðar á árl. — Svlpuð saga hefur gerzt víða um lanti. ^ lceiand, baatkm of the North, heltir ferðabók, sem kom út árið 1952. í henni er svo sagt, að rabarbarí vaxi á torfþökum húsa ó Biönduósl. Höfundur þessarar bókar er bandarísk kona, Agnes Rothery. 866 ItHINN — SUNNVDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.