Tíminn Sunnudagsblað - 15.02.1970, Side 10
I
Hver ódæmLn eru
það, sem ég heyri!
Margt er undartegt í náttúrunn-
ar ríki — það eru orð að sönnu.
Eitt var það með yfirskegg Ind-
verjans Masúrija Díns: Það var
225 sentimetrar að lengd brodda á
milli. Hvergi í heiminum vita
menn til, að verið hafi maður með
þvílíkt yfirskegg. Aftur á móti hét
sá Jóhann Husslinger, er taliun er
hafa verið þolnastur allra manna
að ganga á höndunum. Árið 1900
fór hann með þeim hætti frá Vín-
arborg til Parísar. Hann var fimm-
tíu og fimm daga á leiðinni,
„gekk“ tíu tíma dag hvern og var
Því meðalhraðinn tæpir þrír kíló-
metrar á klukkustund. Á þeim
sjötíu árum, sem liðin eru síðan
Jóhann Husslinger fór Parísarferð-
ina, hefur engum tekizt að gera
betur.
Lesandanum ofbýður kannski
ekki allt. Vel má vera, að honum
íinnist lítið til um svona kúnstir.
Þess vegna skulum við tefla fram
binni góðu konu og frjósömu, frú
Vassilet. Hún var upp á sitt bezta
á síðustu öld, þegn Rússakeisara.
Hún ól samtals 69 börn (barnahf-
eyri og fjölskyldubætur höfðu
menn ekki spurnir af í ríki sars-
ins). Hún átti sextán sinnum tví-
bura, sj'ö sinnum þrfbura og fjór-
um sinnum fjórbura. Öll fæddust
börnin lifandi, en allmörg dóu í
bernsku eins og þá henti oft, þótt
fcærri væru. Ókunnugt er fram á
þennan dag um nokkra konu, sem
átt háfi nándarnærri eins mörg
feÖrn og jþessí rússneska húsfreyja.
Áftur á móti hafa veríð til kon-
S, sem hafa legið miklu oftar á
ng. Etnsk kona, sem dó árið
1883, fæddi þrjátíu og átta sinn-
um, og einu sinni átti hún tvíbura.
Börn hennar urðu því þrjátíu og
níu. Og kannski merkilegast af
öllu: Þau komust öll á legg, Ensk
var líka sú kona, sem fæddi barn
fullorðnust. Hún er nefnd frú
Gosney og átti heima í Jórvikur-
ríki. Hún eignaðist dreng árið
1906, og þá var hún 53 ára sjö
mánaða og tíu daga gömul.
Að vísu eru til sögur um kon-
ur, sem áttu börn miklum mun
eldri. Öllu rosknari var til dæmis
Sara heitin, kona Abrahams
bónda í Mamrelundi. En það er
langt austur í Mamrelund, óvíst
um bæjarstæðið og ár og dagur
síðan þetta fólk dó, og þess vegna
er sú saga látin lönd og leið. Hér
er einungis vitnað til dæmis, sem
sannanleg teljast. Gamla testa-
mentið verður að dæmast hæpíð
sönnunargagn.
Franskur skósmiður í Kanada,
Pétur Joubert, varð 113 ára og
124 daga gamall, þegar hann dó
árið 1814. Þá hafði enginn maður
náð jafnháum aldri, svo að sönn-
un yrði við komið. Síðan hafa
margir menn náð miklu hærri
aldri. Einkum eru Þeir í Kákasus-
héruðum Sovétríkjanna, þar sem
ekki færri en tuttugu menn eru
taldir hafa orðið 130—130 ára
gamlir. Yfir allt gnæfir þó Kínverj
inn Lí Sjúng-jún, Pekingbúi, sem
dó árið 1933. Hann var þá talinn
256 ára. Þess er þó skylt að geta,
að mjög þykir vafasamt og raun-
ar æði ótrúlegt, að aldur hans hafi
verið rétt tíundaður.
Stöku menn hafa náð furðuleg-
um vexti. Oft er þetta samt ýkt
í frásögum. Þó verða sönnur færð-
ar á, að átta menn hafa verið
hærri en 243 sentimetrar. Hæstur
allra var Arabinn Said Múhamm-
eð Ghiza, sem dó árið 1937. Hann
var 270 sentimetrar á hæð. Smá-
vöxnust allra manna, sem komizt
hafa til aldurs, er aftur á móti
talin kona ein í Mexikó, sem dó
árið 1889. Hún var aðeins 66 senti-
metrar á hæð á bezta skeiði, og
það, sem enn er fáheyrðara: Hún
var ekki nema fimm pund á
þyngd. Með aldrinum -'seig hún
svo saman, að hún varð ekki nema
fimmtíu sentimetrar á hæð, en
það er sem næst meðallengd ný-
fæddra barna norður hér.
Ýmsurn mönnum tekst að koma
ár sinni vel fyrir borð (og ekki
sjaldan umfram þa$ sem verð-
skuldað er). Árið 1962 var Japan-
inn Kónósúke Matasúsjíta ráðinn
forstjóri rafmagnshrings þar í
landi. Árslaun hans voru ákvörð-
uð 85 milljónir króna á ári, og
munu engin dæmi um jafnhátt
kaup. Það kann vel að vera, að
Kónósúke sé hinn mesti heiðurs-
maður, þótt einhverjum verði ef
til vill á að draga það í efa, þegar
hann heyrir nefnd laun hans. En
þeir, sem ekki skeyta um meðöl*
in, hafa stundum hremmt meira
fé með skjótari hætti. Mesta rán,
sem um getur í glæpasögu verald-
arinnar, var framið í Bæjaralandi
rétt áður en veldi Hitlers hrundi
árið 1945. Ræningjarnir komust á
burt með gullstengur, sem voru
sjö hundruð milljón króna virði,
en auk þess náðu þeir talsverðu
106
TÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ