Tíminn Sunnudagsblað - 15.02.1970, Blaðsíða 11

Tíminn Sunnudagsblað - 15.02.1970, Blaðsíða 11
af platínu, gimsteinum og pening- um. Þessir menn fundust aldrei, en kunnugt er, að bæði Þjóðverj- ar og bandarískir hermenn voru við þetta riðnir. Gegn þessum þrjótum hæfir að tefla grandvörum manni — at vinnulausum Svertingja, Douglas Johnston. Árið 1961 fann hann eitthvað tó'lf eða fjórtán milljónir króna í góðum og gildum dollara- seðlum á götu í Los Ange’es. Hann fór með þetta beint til lögreglunn- ar, og ætla menn, að aldrei hafi verið afhentur á lögregiiistöð jafn verðmætur fundur. Svertinginn varð af þessu nafnkunnur maður, sem fékk mikinn sæg bréfa. En í fjórða hverju bréfi, sem hann fékk var gefið í skyn eða sagt berum orðum, að hann kynni líklega ekki með peninga að fara. Varla hefur nokkur málari ráð- izt í að mála stærra málverk en Bandaríkjamaðurinn John Ban- vards á síðari hluta nítjándu ald- ar. Það var hálfur fjórði metri á hæð og hálfur fimmti kilómetri á lengd. Þarna þjappaði hann líka saman mestöllu Missisippifljótinu. Það ráð var tekið að klippa mál- verkið sundur á nokkrum stöðum og geyma það síðan í stórum ströngum. En því miður brunnu strangarnir árið 1891, og stærsta málverkið, sem nú er til, er ekki nema fimmtán sinnum hundrað og tuttugu metrar að stærð. Á sviði ritlistarinnar kveður einna mest að Englendingnum Charles Hamilton, og eru engir hans jafnokar að afköstum. Snemma á þessari öld, þegar hann var í blóma lífsins, skrifaði hann ium áttatíu þúsund orð á viku. Með því móti þurfti hann sem næst tvo imánuði til þess að skrifa bók af isvipaðri stærð og ritninguna. Alls er talið, að sjötíu milljónir orða séu í bókum hans. Sé þetta allt gott, þá hefur maðurinn ekki lifað til einskis. Ekki er fyrir það að sverja, að fram á sjónarsviðið komi einhver, sem yfirstígur Hamilton. En aldrei inun neinn komast fjær allri mælgi en Viktor Hugo og útgefandi hans. Vesalingarnir voru nýkomnir út, og skáidið langaði til þess að vita, hvernig salan gengi. Hann skrifaðl því útgefandanum og texti bréfs- ins var: ? — eitt spurningarmerki og annað ekki. Nú hafði salan gengið prýðilega, og útgefandinn þreíf pennanm glaður og svaraði skáldinu. En hann komst lika af með lítið: ! — það var nægjaniegt svar. Þannig er lífið: Ósegjanlega fjöl breytilegt og stundum fjarstæðu- kennt. Eitt afkastamesta sálma- skáld heimsins — höfundur átta þúsund sálma — var kvenríkast- ur manna, ög átti 62 eiginkonur samtímis. Þýzkur matmaður var fjörutíu og tvo daga að éta væn- an uxa einn síns liðs árið 1880. Tyrknesk kona í Adnahéraði átti árið 1961 barn, sem var rúmlega fjörutíu og þrjár merkur að þyngd. Sjónleikurinn Drykkjuþrjóturinn, saminn árið 1843, var sýndur í Los Angeles linnulaust á hverju kvöldi frá því árið 1937 til 17. október 1959. Malajahjón, Temúlji Nari- man og kona hans, voru 86 ár sam- an í hjónabandi. En þau voru bæði fimm ára, þegar þau voru gefin saman. í löndum, þar sem barna- giftingar eru bannaðar, vita menn ekki dæmi þess, að hjón hafi búið lengur saman en 82 ár. Ferjumað- urinn Abraham MoLean í Durham á Englandi vann fram til ársins 1956 frá klukkan sex að morgni til klukkan tíu að kvöldi fimm daga vikunnar, frá sex til ellefu á laugardögum og frá níu til ellefu á sunnudögum, hvort tveggja að kvöldlagi. Fastur vinnutími hans var því hundrað og ellefu klukku- stundir á viku. Maður nokk- ur í Houston í Texas, James Henry Brett, var skorinn upp við meini í mjöðm 111 ára og þriggja mán- aða gamall — og komst til heilsu. Róbert Earl Hughes, Illinoisbúi, var um skeið 962 pund að þynvd Þá var hann 310 sentimetrar um mittið. En þvx miður dó þessi fá- gæti maður í blóma lífsins árið 1958, aðeins þrjátíu og tveggja ára gamall. Skipstjóri einn á Nýfun-ip landi, Kettle, dó 102 ára árið 1963 Þá átti hann á lífi þrettán börn, 65 barnabörn, 201 barnabarna- barn og 305 barnabarnabarnabörn. Niðjarnir voru því 584 á lífi. Líf- seigastur allra skipbrotsmanna ar kannski enski brytinn Poon Lim. Skipið, sem hann var á, varð 'fvr- ir tundurskeyti á Atlantshafi 23 nóvember 1942. Hann komst á björgunarfleka, sem rak um haíið 133 daga. Maðurinn fánnst 5. apri! 1943 og hafði dregið fram lífið á fiski og regnvatni. Þannig mætti lengi halda áfram að rekja furður. Skemmsta stríð veraldarsöyunnar var háð í Zanzi- bar árið 1896. Klukkan tvær mín- útur yfir níu 27. ágúst rann út frestur, sem Englendingar höfðu sett furstanum, og vopnaviðskipti hófust. Klukkan fjörutíu mínútur gengin í tíu gafst furstinn upp. í Bahia Felix í Chile voru 348 rign- ingardagar árið 1916. Möltegund ein er svo þefnæm, að karldýrið finnur lykt af kvendýri í ellefu kílómetra fjarlægð. Stærsta frí- merki, sem sögur fara af, var gef- ið út i Kína árið 1913, sjö sinn- um 25 sentimetrar að stærð. Páfa- gaukur einn í Bournemouth í Eng- Iandi kunni 531 orð. Meira viljum við ekki leggja á lesenduma af þessu. Það væri ekki víst að þeir tryðu því. it Þú neldur kannskl, að englapfkurnar héma uppl séu elna og jxessar kanínur á jörðinnl. T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 107

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.