Tíminn Sunnudagsblað - 15.02.1970, Blaðsíða 13
1494—5. Þegar hann spurði til
plágunnar, flutti hann vestur á
öræfi, að svo kallaðri Dyngju í
Arnardal. Byggði þar bæ og bjó
þar í tvö ár. Meðan plágan stóð
sendi hann tvo menn til byggða,
sitt árið hvorn, og kom hvorugur
aftur. Þriðja árið sendi hann son
sinn. Hann sá bláa móðu yfir
dalnum en engar mannaferðir.
Þá flutti Þorsteinn að Netseli við
Ánavatn í Eiríksstaðaheiði og
bjó þar eitt ár. En næsta ár flutti
hann aftur að Brú og bjó þar til
elli. Sögnin hefur nú að vísu
sagt, að Þorsteinn hafi flúið frá
Brú undan Svartadauða 1402, en
eftir því sem ættir hafa verið
raktar frá honum, hefur hann
eigi getað verið uppi svo
snemma. Gat auðveldlega verið
blandað saman plágunum í
munnmælunum, þegar tímar
liðu, einkum þar sem nafnið
Svartidauði var miklu kunnugra
nafn, þegar frá leið en plágan
síðari. Það gerir og tiltæki Þor-
steins, að flytja sig inn til jökla
undan plágunni, enn eðlilegra,
þegar honum var kunn orðin öll
sú mikla eyðilegging, sem Svarti-
dauði olli á sinum tíma.“
Þótt ekki sé fullkunnugt um
framætt Þorsteins, höfðu lengi
verið við liði á Jökuldal blöð,
meðal afkomenda hans. Þar er
hann talinn sonur Magnúsar
bónda í Skriðu í Reykjadal Þor-
kelssonar prests í Laufási, Guð-
bjartssonar. Guðbjartur var
prestur á Bægisá. Hann var tal-
inn afkomandi Helgu vænu,
dóttur Þorsteins á Borg, Egils-
sonar Skallagrímssonar. (Tíma-
rit J. Péturssonar, 4. b. bls. 29).
— Magnús í Skriðu varð sýslu-
maður í Eyjafirði 1482. Hann er,
samkvæmt Ættum Austfirðinga,
talinn á llfi 1534, en Einar
Bjarnason ættfræðingur telur að
Magnús muni hafa dáið 1518.
Timans vegna geti Þorsteinn þó
hafa verið sonur hans. Niðjatöl
séu ekki til frá Magnúsi Þorkels-
syni, heldur frá Jóni syni hans
& Svalbarði (sem Svalbarðsætt
er frá). Hinsvegar telur Einar
Bjarnason arfsögnina um það,
að Þorsteinn á Brú hafi verið
Bonur Magnúsar, svo óljósa, að
ekki verði mark á henni tekið.
Magnús er talinn kvæntur
1477, en ekki er kunnugt hversu
löngu fyrr hann kann að hafa
kvænzt. Kona hans var Kristín
dóttir Eyjólfs riddara Arnfinns-
sonar. Margrét systir hennar
giftist Hrafni lögmanni Brands-
syni 1467.
Séra Einar Jónsson á Hofi,
höfundur Ætta Austfirðinga,
segir m. a. um ætt Þorstelns
jökuls:
„Hafi Þorsteinn jökull ekki
verið nema 25—30 ára, þegar
Harpa Steingrlms Thorsteinssonar.
plágan síðari kom, gæti hann
vel, tímans vegna, verið senur
Magnúsar í Skriðu og Kristínar,
fæddur um 1465—1470. En ekki
veit ég aðrar heimildir fyrir þess-
ari ættfærslu Þorsteins, en áður
nefnd ættartölublöð hjá afkom-
endum hans á Jökuldal, því að
ekki er Þorsteinn nefndur meðal
barna Magnúsar í gömlum ættar-
RitfangasfœSI Jóns ÞórSarsonar.
T í M 1 N^ — 8UNNUDAGSBLAÐ
109