Tíminn Sunnudagsblað - 15.02.1970, Page 15

Tíminn Sunnudagsblað - 15.02.1970, Page 15
Skápur Katrínar Stefánsdóttur. dráttlist o. 11. — í tréskurði hjá C. B. Hansen, ágætum lista- manni í þeirri grein. (Vel má vera, að Stefán hafi stundað dráttlistarnám annarsstaðar, síðustu mánuði ársins 1889, því ekki telur hann sig hefja tré- skurðarnám hjá C. B. Hansen fyrr en 10. janúar 1890). Stefán hlaut bronz-medalíu fyrir próf- smíði sína í K.höfn, er hann varð fullnuma þar. Að loknu tréskurðarnámi ferð- ast Stefán suður til Berlínar og naut þar tilsagnar Ferdinands nokkurs Fogt. Árið eftir heldur hann suður til Leipzig og þaðan suður til Sviss. Dvaldist hann I Ztirich í þrjá mánuði. Síðar ferð- aðist hann suður í Dresden og Vín með 450 kr. styrk af „dánar- gjöf Larsens og konu hans“ (i Khöfn). Stefán hverfur aftur heim til íslands 1896, til Vopnafjarðar. Dvaldist hann þar eitt ár. Þar kvæntist hann ungfrú Sigrúnu Gestsdóttur frá Fossi í Vopna- firði, sem var komin af Njarð- víkurætt hinni yngri. Haustið 1897 fluttist Stefán til Reykjavíkur og átti þar síðan heima til dánardægurs. Tíma sínum varði hann að mestu leyti til að hafa ofan af fyrir sér, með tilsögn í dráttlist í skólum bæj- arins (Kvennaskóla, Barnaskóla, Iðnaðarmannaskóla o. s. frv.) Hafði auk þess heimaskóla hjá sér til þeirrar kennslu, með nokkrum landssjóðsstyrk síðari árin, — með 40—50 nemendum hvern vetur, í 3—4 deildum. Tré- skurð hefur hann auk þess kennt alls átta nemendum, í þeirri röð sem hér greinir: Ríkarði Jónssyni, Gunnlaugi Blöndal, Jóhannesi Helgasyni, Guðmundi frá Mosdal, Geir Þormar, Halldóri Einarssyni, Soffíu Stefánsdóttur og Ágústi Sigurmundssyni. Þegar hinn síð- astnefndi var að ljúka námi, var Stefán lagstur banaleguna. Varð því Soffía, dóttir Stefáns, að út- skrifa Ágúst. Vegna hinnar hörðu lífsbar- áttu, liggur minna eftir Stefán en efni stóðu til. Þó má líta teikningar eftir Stefán á út- skurði þeim, er prýðir salarkynni Eimskipafélags íslands, ásamt teikningum af umgerð hluta- bréfa félagsins. Auk þessa fylgja grein þessari nokkrar myndir af listaverkum Stefáns. í Sunnanfara (árin 1901 og 1902) eru þrjár myndir af lista- verkum eftir Stefán, hin fyrsta árið 1901, af aski þeim, er smíð- aður var handa íslandsvininum P. Feilberg, sem nokkrir vinir hans sendu honum. Árið 1902 birtir Sunnanfari tvær myndir af smíðisgripum Stefáns, önnur er af hörpu þeirri, er skólapiltar gáfu yfirkennara Steingrími Thorsteinssyni á sjö- tugsafmæli hans 31. maí 1891. Hún er öll gerð úr filsbeini. Hin er skorin í peruvið og er skjöldur á ljósmyndabók, er nokkrir ís- lendingar sendu ekkjufrú Mol- bech í Kaupmannahöfn, systur dr. Har. Krabbe. Niðurlag greinar Sunnanfara um Stefán Eiríksson, er á þessa leið: „St. E. er mjög yfirlætislaust lipurmenni, einkarvel látinn af lærisveinum sínum og öftrum, er kynni hafa af honum. Hann ætti að fá fleiri verkefni og meiriháttar en gerzt hefur til þessa, og vera svo háttað högum hans, að hann gæti varið tíma og kröftum til þeirra. Það kemur vonandi, þegar hér fjölgar meiri- háttar stórhýsum og fólki lærist að meta, meir en nú gerist, vönd- uð listaverk, til híbýlaprýðis m. fl.“ Á sextugs-afmæli Stefáns Ei- ríkssonar, 4. ágúst 1922, 6r hans TÍ M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 111

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.