Tíminn Sunnudagsblað - 19.04.1970, Page 6

Tíminn Sunnudagsblað - 19.04.1970, Page 6
SÉRA SVERRlR HARALDSSON: Ég sigidi úr Ég sigidi úr höfn á sumardegi, er segiin vindurinn þandi, og hirti lítiö um hrakspár þeirra, sem hímdu eftir í landi. Hvað varðaði mig um veslings fólkið, sem vildi svo gjarnan frétta, að ég hefði loksins bátinn brotið í brimi við Svörtukletta. Ég ætlaði að fara um heiminn hálfan, hamingju mína finna, eignast svo gull og græna skóga, glæsileg afrek vinna. Síðarmeir heim ég svifi aftur, svo að menn skyldu frétta, að ekki hefði ég bátinn brotið í brimi við Svörtukletta. Alls staðar mætti ég illgjörnu brosi og augum, sem lýstu háði. Hver einasti maður, sem eitthvað sagði, ógæfu minni spáði: Þér væri nær að hanga heima og hugsa minna um þetta. Þú mundir aðeins bátinn brjóta í brimi við Svörtukletta. Dagarnir liðu einn af öðrum. Aldrei sá ég til landa. Þau voru hulin mistri og móðu og myrkri til beggja handa. Áttu að rætast óskir þeirra allra, sem vildu frétta, að ég hefði villzt og bátinn brotið í brimi við Svörtukletta? Báturinn minn var brothætt glingur sem byltist á trylltum öldum. Straumurinn æddi, stórar bylgjur stigu með hvítum föidum. Illgjarnir menn, sem hímdu heima, höfðu gaman að frétta, að flakið af bátnum fannst i morgun á fjöru við Svörtukletta. Þið, sem að jafnan furðu fúsir, fleygðuð að manni steini, hrakspár ykkar og ólánsóskir urðu mér loks að meini. Vel máttu una, vesæll lýður, vildirðu ekki þetta? Á morgun finnur þú lík mitt liðið iiggja við Svörtukletta. 1 lögreglustöðina fyrir kvöldið“. „Það ferðalag skaltu sjálfur fá að borga“, sagði Jói. „Ég segi þér það í síðasta skipti, að lærið keypti ég i búðinni“. „Ójá, en gleymdir kannski að borga það eins og þegar þú keypt- ir hanann forðum“, sagði lög-reglu þjónninn háðslega. Hænsna-Jói skotraði augum til konu sinnar í kimilegra lagi um leið og hann reis upþ. Þegar út kom, fór hann að dunda við að spenna hestinn fyrir gamlan og laslegan léttivagn. Lögregluiþjónn inn stóð álengdar, ábúðarmi'kill og strangur á svip. Þegar hesturinn var kominn fyrir vagninn, lagði hann Iærið aftan við sætin og sett- ist sjálfur við hliðina á Jóa. „Ég fæ einhvern íil pess að fara heim með hest og vagn ‘, kallaði hann til konunnar, sem fylgt hafði þeim eftir út á htfrAJf. . Bóndann verð ég að hýsa fyrst um sinn“. „Sjóddu kartöflur, svo að þær verði til, þegar ég kem aftur með lærið“, 'Sagði Jói eins og ekkert væri. Og konan kinkaöi kolli til hans. Verzlunarstjórinn var í þann veginn að loka búðinni, þegar lög regluþjónninn rak svínslærið eins og kylfu í bakið á Jóa og stjakaði honum með því inn um dyrnar. Honum varð sýnilega órótt, er hann sá þessar aðfarir. „Hvað gengur á út af þessu læri?“ spurði hann. „Er eitthvað að því?“ „Ekki svo ég viti,‘, svaraði Jói. „Nema lögreglan virðist hafa á- girnd á því“. . „Borgaði hann lærið spurði lögregluþjónninn opinmynntur. „Vitaskuld. Hér er staðgreiðsla, afsláttur 2%“. „Þú . . . djöfuls óþokkinn - , hlökti í lögregl'uiþjóninum. „Þú it „Fáðu mér lærið, og fimm krón ur tek ég fyrir aksturinn“, greip Hænsna Jói fram i fyrir hónum. „Nema þú viljir beldur, að við komum á lögreglustöðina til þess að jafna þessar sakir þar“. Lögregluþjóninum varð lí'kt og bilt við. „Ætli ég þurfi að fata með þig þangað“, sagði hann loks. „Ég borga þetta sjálfur í bili. Og get ir þú svo þagað, væri ég vis til - að sjá það við þig í einhverju seinna meir“. Jói ók heim með lærið í létti- vagninum. „Haninn, strákar!“ var hrópað niðri við ána. En Jói lét sér hvergi bregða. Hann pírði augunum á kvöld roðann og glotti i kampinn. J.H. þýddi. 294 T f M I N N - S1TNN1JDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.