Tíminn Sunnudagsblað - 19.04.1970, Blaðsíða 15

Tíminn Sunnudagsblað - 19.04.1970, Blaðsíða 15
Kópasker. Ljósmynd: Snorri Snorrason. SÉRA PÁLL ÞORLElFSSON: Kauptún á eyðiströnd Myndir úr hálfrar aldar sögu Kópaskers NorðU'r-Þingeyj arsýsla er viðáttu imikil og á margan hátt torveld yfirferðar, var það einkum fyrr meir. Fjaltgarður gengur firá Hóls fjölliuim til Melrakkasléttu og klýf- ur hana í tvennt. Samband milli hinna fjarlægu sýsluhluta hefur því ætíð verið minna en skyldi. Og Jökulsá í Öxarfirði steypist í gljúfraþröng af hásléttunni nið ur í byggðina, óreið alla tírna árs, eitthvert mesta foraðsvatnsfall á landi hér — því vondur farartálmi áður en brúin kom, og enn er hún ferjuvatnsfall, þar sem hún flákar sig um undirlendið. Til viðskipta leituðu bændur í vesturhluta sýslunnar áður fyrr í ýmsair áttir. Fjallabændur héldu gjarnan með ullarlestir sínar um Hauig til Vopnafjarðar. Núpasveit og Slétta skiptu við Raufarhö'fn eft- ir að verlun hófst þar. Þeir aust an Jökulsár, sem verzluðu við Húsavík, þurftu fyrst að ferja sig á lítilli bátskel yfir ána, slógust svo í fylgd með Kelduhverfungum, sem auðvitað höfðu öll viðskipti sín þar. Slí'kt viðskiptaástand. dró dilk á eftir sér, skapaði lítil tengsl sveita millum og jók ekki á samstöðu í framfara- og félagsmálum. Allir hagnaður af verzlun rann út úr héraðinu, varð undirstaða margs ko-nar uppbyggingar á fjarlægum stöðum, meðan allt hjakkaði í sama fari heirna fyrir. Kópasker var löggiltur verzlun arstaður 1877. Eftir það tóku skip lau'sakaupmanna að venja komur sínar þangað um skeið. Komu þeirra var eðlilega vel fagn að. Þessi fárra daga fljót- andi markaðstorg voru vel sótt, þeim fyigdi líf, rnargur- taldi sig gera þar góð kaup. Og þótt skipin létu í haf, vöruðu áhrif in frá þeim áfram. Óskin um að varanleg verlun hæfist á Kópa- skeri fékk byr undir væng. Loks kom þar, að bréf barst úr Núpasveit í Gautlönd, þar sem beðið var um hjálp við stofnun kaupfélags. Jón Jónsson var þá sendur út af örkinni til að rann- saka viðhorf og athuga um félags stofnun. Samtök hófust um mynd un félags og Jón Gauti var ráðinn forstöðumaður. Mikil voru þau tímamót er skip kom loks af hafi með vörur til félagsins og varpaði akkerum við Kópasker. Fyrstir um borð urðu eflaust Brekkubræður, miklir um herðar, kraftalegir og hló nú hug ur í brjósti yfir, að slíkt ævintýri heíði gerzt. Sáu þeir sem aðrir að skíma af nýrri dögun var óðfluga að færast nær, þáttaskil hafin í verzlunar- og siglingarmálum hér aðsins. Erfiðleikar urðu ' samt miklir, skakkaföllin mörg á vegi félagsins, svo stappaði nærri upplausn. En úthaldið bilaði ekki, haldið var í horfi þótt hægt færi, bryggja byggð til bráðabirgða og byggingar smá auknar og loks hafin slátrun en sölubúð vár lengi vel aðeins opin í kauptíð. Um 1912 freistuðu Árni Ingi mundarson og kona hans Ástfríð ur Árnadóttir fyrst allra landnáms T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 303

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.