Tíminn Sunnudagsblað - 19.04.1970, Page 20

Tíminn Sunnudagsblað - 19.04.1970, Page 20
Jurtir og Fólk ber í .garðirn sinn. iælur úða hann og þrífur hann. Þrátt fyrir alla umhirðu kann samt svo að bera við, að uppskeran verður minni en vonir stóðu tfl. Orsökin getur verið etnhver veirusjúkdómur. Allir vita. að veirur geta valdið sjúkdómum í mönnum og dýrum. Færri leiða hugann að þvi, að hið sama giidir um jurtir. Þetta eru þó engan veginn ný sannindi, því að hinar fyrstu veirur, sem fundust, lögð ust einmitt á jurt. Það gerðist ár- ið 1892, er veirur uppgötvuðust i tóbaksjurt. Nú er það kunnugt, að til er mesti sægur veirutegunda, sem hrjá jurtir, sumar beinlínis sótt- næmar, og eru til dæmis funda- ar eigi færri en sextíu veiruteg undir, sem leggjast á grös og korn tegundir einvörðungu. í Danmörku er talið, að um það bil helmingur allra meina, sem AgnaHftlll bitl er numinn af brodcll á kartöfluEpíru og settur I nnrlng- arvökva f tilraunaglasi. Me5 natn! og nákvæmni tekst a5 koma lífi I þetta, unz upp spretta kartöflugrös, Á einnl slíkri iurt, sem svo er tff komin, hetdur maSur á myndinni. veirur hrjá blóm, matjurtir, runna og tré í görðum, séu af völdum ein- hverrar veiru. Þar við bætist, að miklum vandkvæðum er bundið að ráða niðurlögum þessara veiruteg- unda. Eitur það, sem úðað er á gróðurinn í því skyni að halda í skefjum skordýrum og sveppum ýmsum, vinnur veirunum ekki grand. Nú eru þó að verða þáttaskil, og á þessu ári má vænta, að Danir geti hafið sókn gegn veirunum. Þetta er að þakka nýrri aðferð, sem fundizt liefur til þess að ala upp einstaklinga, sem lausir eru við veirur. Þetta er ávöxtur af uppeldi plantna í tilraunaglösum. Örlítil ögn af kímblaði jurtar er numin af vaxtarbroddi henna'r og síðan sett í tilraunaglas, þar sem hún þroskast í næringarvökva á ekki óhóflega iöngum tíma, un« feng in er ný kynslóð, sem laus er við veirur og gefur mun nieiri upp- skeru en sýktar jurtir, jafnvel þótt engin ódöngun verði séð með þvj að virða þær fyrir sór. Vísinda mennirnir, sem að þessu vinna, hafa auðvitað ekki aiið upp f.jölda jurta imeð þessu lagi og vandi »á, sem þeir hafa leyst er mlnni en yfirstíga þyrfti tll þess að þroska fóstur spehdýrs. til dæniis manns, í tilraunaglösum. Þó þykir sigur þeitTa merkilegur. Hagnýta þýðingu þessarar uppgötv unar geta menn ef til vill gert sór í hugarlund, ef tekið er dæmi af kartöftum. Urn þrjátíu veirutegundir, leggj- ast mest á kartöflur, og útbreidd ust er x-veiran. Upp úr 1950 var farið að rækta kartöflur, sem laus- ar voru við þessa veirutegund. Valdar voru hraustar, veirulausar kartöflur með svipuðum aðferðuon og notaðar eru við ákvörðun blóð flokka í mönnum, og nú er til dæmis til ein alkunn kartöfluteg- und, Bintje, sem er svo að segia laus við x-veirur. Kartöflutegund sú. sem mest var notuð til iðnaðar i Danmöiku, bæði við gerð kartöflumjöls og bruggun áfengis, nefnist Dianella. Illt þótti í efni, er alls ekki tókst að finna nokkra kartöflu af þess ari tegund, sem laus var við x- veirur. Tegundin var gersýkt og sala útsæðis bönnuð. Þá var hafizt handa í jurtatil raunastöð danska ríkisins í Lyng- by. Fyrst var reynt að vinna bug á veirunni með efnurn ýmsum og miklum hita utn langan tírna. Við þessar tilraunir kom í ljós. að halda mátti veirunum í skefjum,, ef hitinn var liafður 37 stig dag og nótt. Á sþírum þeim, sem á kartöflunum uxu, var þá vzti broddurinn heilbrigður. Nú var látið til skarar skríða. Kartöflurnar voru fluttar í her bergi, þar sem loft var dauð- hreinsað, og við útfjólubláa geisla, sem eyða svömpum og sýklurn, var spíran sett undir smásjá. Með örfínum tækjum var numin lítil ögn af sjálfum vaxtarbroddinum, um einn tíunda úr millimetra í þvermál. Þessir örlitlu kímbitar voru settir í tilraunaglös í næiing arvökva, sem meðal annars voru i fjörefni, hormónar og snefiiefni. Með þessum hætti tókst að halda lifi í kímbitunum og fá þá til ið vaxa, svo að þeir voru orðnir á stærð við títuprjónshaus eftir einn Danskir vísindamenn að starfi: 308 T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.