Tíminn Sunnudagsblað - 13.06.1971, Blaðsíða 10

Tíminn Sunnudagsblað - 13.06.1971, Blaðsíða 10
Jóhann Mát Guðmundsson: - Laugardagur fyrir hvítasunnu i. Þetta var á laugardaginn fyrir hvítasunnu, og það var auðséð, að það ætluðu margir að fara úr borg inni. Upp úr hádeginu fóru bílarn- ir að streyma inn Suðurlands- brautina, og margir þeirra voru með háa stafla á farangursgrind- unum, en löngu áður hafði ferða- fólkið tekið að safnast saman á .ngstéttunum í Austurstræti. Það hallaði sér kæruleysislega upp að steinbrúninni á Landsbankanum og settist á tröppur verzlunarhús- anna og sleikti sólskinið. Rútubíl- arnir komu einn og einn og stopp- uðu við hægri gangstéttarbrúnina, og bifreiðastiórarnir fóru upp á bílana til að taka á móti farangr- inum. Þeir skildu bílana eftir opna, og óskalögin bergmáluðu í húsunum og yfirgnæfðu skvaldur ferðalanganna. Þeir, sem áttu leið um götuna, héldu sig ósjálfrátt á hinni gang- stéttinni eða á akbrautinni handan bílanna og skotruðu augunum flóttalega til hinna, sem voru að fara í ævintýrarík ferðalög í vor- blíðunni, en á áfangastað undir háu fjalli stígur heit gufa hveranna til lofts í kvöldkyrrðinni og byrgir útsýnið. Hinn vanabundni dynur strætis- ins þagnaði smátt og smátt, og í íbúðarhverfunum, þar sem venju- lega er bíll við bíl, var nú ekkert að sjá nema auð strætin, sem voru afmörkuð hvítum strikum svo menn sólunduðu ekki plássinu. Kaffihúsin í miðbænum voru mannlaus, og sums staðar höfðu þjónustustúlkur með hvíta klúta á handleggjunum setzt við eitt borð ið, af því að þær áttu ekki von á rieinum. Á götunum voru fáir á ferli, að- eins einn og einn vegfarandi, og flestir gáfu sér nægan tíma og hor'fðu rólegir í búðargluggana, og við læstar dyr á kvikmyndahúsi stóðu nokkrir erlendir sjómenn, dokuðu við til að fullvissa sig, en gengu síðan í veg fyrir einhvern, sem átti leið um götuna, og spurðu hikandi, hvort ekki væru kvik- myndasýningar í dag. _ Með kvöldinu var skýjafar, og síðar fór að rigna. Ég kom snemma heim af vaktinni, því okk ur var gefið frí eins og venjulega fyrir hvítasunnuna. Ég ætlaði að lesa, en .gat það ekki. Ég var allur í uppnámi og vissi ekki, hvað ég átti að taka fyrir. Inn um opinn gluggann bárust raddir kvennanna í hverfinu, sem voru að tilkynna börnum sínum, að þau mættu ekki vera lengur úti í viðsjálu götulífinu, og síðan var ómur af samningaumleitunum, aðeins kortér eða tíu mínútur. Ég gekk í hinn endann á her- berginu og opnaði vínskápinn. Ég var vel birgur, jafnvel þó ég þyrfti að hjálpa einhverjum, og ég hafði gaman af að virða fyrir mér flösk- urnar í skápnum og fór mér að engu óðslega. Vegna spegilsins sýndust þær helmingi fleiri en þær voru í raun og veru, og þeir, sem komu mikið undir áhrifum, voru oft seinir að taka eftir því, og ég vissi að þeim miklaðist þetta, og ég var ánægður með það. Ég ákvað að fá mér af konjak- inu, af því að þetta átti ekki að verða neitt, og gott að drekka það, ef maður fær sér eitt staup fyrir matinn. Ég tók eitt litla staupið og hellti í það og saup úr því í einu, og ég fann, að mér hitnaði. Ég ætlaði að hlusta á eitt lag, og ég spilaði plötuna, sem var á fóninum, því mér var alveg sama, hvað ég spilaði. Ég hellti aftur í staupdð úr flösk unni og drakk strax úr því, og af því að ég var ekki farinn að borða, þá verkaði þetta dálítið á mig, og ég fór að vona, að einhver símaði, af því að mig fór að langa í fé- lagsskap og að spjalla við ein- hvern. Ég lét fóninn ganga á meðan ég fór fram og rakaði mig, og þegar ég kom inn aftur, hélt ég áfram að fá mér úr flöskunni og drakk það óblandað og tók alltaf út úr staupinu, og ég fór að sjá eftir að hafa drukkið konjakið fyrst þetta ætlaði að verða eitthvað. Mér var hætt að finnast það mjög sterkt, og ég fann ekki lengur til sviða í hálsinum, og mér var farið að líða mjög vel, en ég fann, að ég var svangur og mundi ekki þola mikið og þyrfti að fá mér eitt- hvað, því ég vonaði, að ég lenti í einhverju og það stæði fram eft- ir. Það var ekki lengur matartími, svo að ég lét bílstjórann aka á ís- barinn og bað hann að bíða á með- an ég færi inn að borða. Ég pantaði hamborgara, og ég var órólegur að þurfa að bíða eft- ir honum. Nokkrir unglingar sátu í uppháum stólum við gluggann og sneru baki við afgreiðsluborð- inu. Ég vissi, að þeir voru að blanda og höfðu setzt þarna til að það bæri minna á því, þegar þeir helltu út í glösin. Ég fór að sjá eftir að hafa ekki tekið neitt með mér af víninu og ákvað að koma við hjá Nirði og vita, hvort hann ætti eitthvað. Ein stúlkan fór að djúboxinu og stakk pening 1 það, en það fór ekki af stað, svo hún kallaði til hinna, og einn herrann fór henni til aðstoðar og hélt á glasinu með sér. Þegar hann hafði hrist djú- boxið dálítið, fór það allt i einu af stað, og hann bauð stúlkunni að súpa á glasinu og hún gretti sig um leið og hún saup á því. Ég pantaði kaffi á eftir hamborgar- anum og bað stúlkuna að flýta sér og hún brosti og mér datt í hug, að hún mundi sjá að ég var und- ir áhrifum. Svo fór ég rakleitt til Njarðar. Ég gekk inn án þess að hringja bjöllunni, af því að ég heyrði, að hann var að spila á píanóið og vissi, að húsið var eitt af þeim, sem aðeins eru lokuð á nóttunni. Við vorum oft saman að skemmta okkur og ef við smökkuðum það. Hann var með púrtara, en ég hélt, að það væri ekki gott ofan í konj- akið og drakk ekki mikið af því. Njörður hellti dálitlu á ölflösku, svo að við hefðum-eitthvað á leið- 514 Tt «1 N 1M — SUNNEDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.