Tíminn Sunnudagsblað - 13.06.1971, Síða 15

Tíminn Sunnudagsblað - 13.06.1971, Síða 15
hafði vorið sem við fluttumst að Litla-Ósi. Nokkuð var hún við ald- ur, en svo gæf og þæg, að ég náði henni hvar og hvenær sem var, og eins þótt hún gengi með folaldi. En ég var ekki há í loftinu og varð því að teyma hana að þúfu, svo ég kæmi beizli upp á höfuðið á henni. Síðan varð ég að teyma hana að annarri þúfu hærri, ef mér átti að auðnast að hafa mig á bak. Ef Rauðka vildi fara heim, gekk allt að óskum, því hinir hest- arnir eltu hana og folaldið. En ef hún af einhverjum ástæðum hafði áhuga á einhverju öðru, fór gaman ið að grána. Þá varð ég að gera svo vel og renna mér af baki og teyma hana alla leið heim. Þannig gekk þetta allt fyrsta sumarið á Litla- Ósi. Seinna, þegar ég var orðin kraftmeiri, vann ég mér þetta létt- ara. — Þurftir þú ekki að smala kvíaám? — Það var yfirleitt ekki fært frá heima hjá mér. Þó var það eitt sumar, að pabbi hafði nokkr- ar ær heima við og voru þær mjólkaðar kvölds og morgna. Lömb þeirra höfðu verið rekin á fjall um vorið með hinu fénu, svo það er víst hægt að kalla þetta kvíaær. Þá var fyrir nokkru kom- in hagagirðing hjá okkur, og þar voru ærnar hafðar. Það þurfti því ekki að sitja yfir þeim á daginn, heldur aðeins smala þeim kvölds og morgna. Og þann starfa hafði ég að sjálfsögðu. — Yar það ekki skemmtilegt? — Nei, ekki fannst mér það. Mér þótti þetta bæði erfitt og ábyrgðarmikið starf, en auk þess voru á vegi mínum ýmsir hlutir, sem ég óttaðist, því ég var kjark- lítið barn. — Við hvað varst þú einkum hrædd? — Það var nú fleira en eitt. En einkum var það þó stórt og svart jarðfall, sem skaut mér mjög skelk í bringu. Þegar ég þurfti að fara fram hjá því, lokaði ég augun- um, hljóp í harðaspretti og þuldi allar bænir, sem ég kunni. — Hvernig var barnafræðslu hagað í umhverfi þínu. Var ekki kominn farskóli f SVeitinni? — Nei, farskóli var enginn. En það var oft fenginn einhver mað- ur til þess að vtira heima hjá okk- ur, eða þá á einhverjum nágranna bænum, og kenna okkur, krök's- unum. Þótti gott, ef námstímir.n náði tveim mánuðum hvern vetur. Svo fengum við eina viku að vor- inu til þess. að búa okkur unci r prófið — og þar með vorum v J útskrifuð. — Aflaðir þú þér ekki meiri menntunar, þegar þú hafðir aldur til? — Ég fór í kvennaskólann á Blönduósi haustið 1935 og var þar veturinn, sem þá fór í hönd. Ég var svo heppin, að Hulda Stefáns- dóttir var þá orðin skólastýra. Það var bæði lærdómsríkt og ánægju- legt að stunda nám undir hennar handleiðslu. En þótt ég nefni hana hér eina með nafni, á ég þó ekki síður góðar minningar um aðra kennara mína, sem líka gerðu allt, er í þeirra valdi stóð til þess að mennta okkur og manna. HVÍTSERKUR — þekkfesta náHúrufyrirbærið á Vntnsnesi. TtMlNN SUNNUDAGSBLAÐ 519

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.