Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 25.06.1972, Qupperneq 3

Tíminn Sunnudagsblað - 25.06.1972, Qupperneq 3
Sigurður Guðiónsson: Smásaga H A L L A Hún var gangastúlka á Hvítaband- inu. Hún var há vexti og glæsileg með fallega fótleggi, sem ég horfði oft á, þegar ég talaði við hana. Hún var dökkhærð og snöggklippt og með dálitlar freknur i andliti. Það gaf henni vingjarnlegt yfirbragð. En hún hafði litil brjóst. Ég sá Höllu fyrst fimmtudaginn 10. desember, sama daginn og ég kom niður á Hvitaband. Hún kom upp i her- bergi til min til aðkalla mig i kaffi: — Gerðu svo vel, og vertu velkom- inn'. — Þakka þér fyrir, sagði ég og virti hana fyrir mér ofan frá og niður úr. Helviti ertu falleg. Hefurðu sofið hjá? Siðan frétti ég, að hún væri gift og ætti fjögurra ára dóttur. Þá þurfti ég ekki að spyrja lengur. Verk Höllu var i eldhúsinu. Þar tók hún til matinn og brauðið, eftir þvi sem við átti og ók þvi inn i matstofu á þar til gerðum vagni. Eftir máltiðir vaskaði hún upp og þurrkaði. Hún tók einnig til i herbergjunum. Og hún var anzi fljót aö þvi. Þó langar mig til að halda, að hún hafi gert það vel. En þetta var ekki hennar eina verk. Hún var flink við hárgreiðslu og greiddi oft kvenfólkinu, þegar þvi lá litið á. Sú at- höfn fór fram i litlu stofunni og var hátiöleg stund. Þá ræddi hún af djúpri alvöru.um vandamál lifsins og rök tii- verunnar. Hún virtist hafa miklu meiri ánægju af þessu en starfi sinu i eldhús- inu. Það gat ég vel skilið. Ég held hún hafi verið löt að eðlisfari. Það þótti mér vænt um. Ég kynntist Höllu litið fyrstu vikurn- ar. en þegar ég útskrifaöist, var hún orðin bezti spaugsvinur minn i húsinu. Næst bezta skemmtun min á Hvita- bandinu var að ræða við hana. En upp- áhaldsskemmtun min var að horfa á Ljósku, þegar hún var komin i stutt buxurnar. Én mér varð fljótlega ljóst, að hún hafði ekki. mikið álit á mér. Hún hafði kannski minnst álit á mér af öllum i stofnuninni. Hún var raunsæ. Hún hafði unun af þvi að gera litið úr mér. Og henni varð vel ágengt. Hún kom með lúmskar og lævisar hártoganir og útúrsnúninga á öllu, sem ég vogaði að láta út úr mér, sem var nú ekki mikið undir lokin. Og það sárgrætilegasta var það, að ég varð oftast nær að éta skömmustulegur vitleysuna ofan i mig. Hún hafði yfirnáttúrulegan hæfi- leika til að koma öðrum á sina skoðun. Hún vissi lika af þvi.En þegar hún var búin að snarsnúa manni, var hún vis til að tala fyrir þeirri ólánssömu skoðun, sem ég var að burðast við að rcyna að verja. Og það hófst nýtt strið. Hún var feikn rómantisk. Og róman- tik hennar var ólm og villt og eldrauð. Sérstaklega var hún rómantisk i ásta- málum og varð oft sárlega hneyksluð á virðingarlausu hjali minu um þau efni, sem reyndar var beinlinis- stefnt gegn henni. Hún hafði gaman af öllu, sem varsvolitiðskrýtiðogóvenjulegt, og sá sjálf heiminn oft og tiðum i skemmti- legu og sérstæðu Ijósi. Það þótti mér mikið til um. Einn kost hafði hún, og það var kannski eini kostur hennar: hún kjaft- aði ekki frá. En kannski vakna ég við það i fyrramálið, að hún hafi blaðrað öllu, sem ég sagði henni. Halla var mikill heimspekingur. Og það var eins og hún væri alltaf að hugsa. Það var gaman að horfa á hana vinna, þegar hún sá ekki til. Hún vann verk sin eins og vel smurð maskina, en virtist enga athygli veita þvi, sem fram fór i kringum hana. Hún stein- þagði og var feikn alvarleg i framan, eins og öll synd heimsins hvildi á herð- um hennar. Hún var oft svo utan við sig, að hún hrökk i kút, þegar maður yrti á hana. Svo spurði hún einhverra spennandi spurninga. Þá vissi maður, hvað hún hafði verið að hugsa. Eitt sinn spurði hún: Vildirðu-vera kona? — Já.Vændiskona. En henni fipaðist ekki i sinum heim- spekilega þenkimáta. Nú varð ég að útlista nákvæmlega, af hverju ég vildi vera vændiskona. Það var býsna er- fitt. Og ég held henni hafi ekki þótt rökin sannfærandi. Oðru sinni skellti hún þessari spurn- ingu framan i mig: Hvar er sálin i mönnum? — 1 maganum, svaraði ég án þess að hugsa mig um. f maganum? át hún eftir mér von- svikin. — Já, i maganum, bunaði ég út úr mér og hugsaði: Nú er að standa sig! Rektu nú helvitið á gat! — Sálin er i maganum. Með magan- um inntaka menn heiminn. Með maganum hugsa þeir. Með maganum skynja þeir. Og með maganum lifa þeir. Sönn sálrækt er fólgin i þvi að hugsa vel um magann. Éttu steiktar svinakótelettur og teygaðu hin ljúfustu vin og þú munt verða stór og sterk i andanum og uppljómast af hinni æðstu vizku. Et og drekk og ver glöð, og þú munt hólpin verða. Hún varð andartak hugsi, en sagði svo með óbifanlegri ró og ögn af fyrir- litningu i svipnum: Ég missi álit á þér. — Ha? Sigurglottið stirðnaði á smettinu á mér. Hvað segir ekki dækjan. Kanntu ekki að meðtaka minn himneska vis- dóm. Fjandinn hossi þér. En það var til litils að vera með þvi- likar hugrenningar. Það litia álit, sem hún kann að hafa haft á mér, var fokið út i veður og vind, og ég stóð gapandi eftir, brennimerktur einfeldningur og fifl. Ég æddi um gólf og reytti hár mitt i hljóðlátri örvæntingu. Asninn ég! Alltaf sami bjáninn! Og þetta var ekki i siðasta skipti, sem Halla fór með frækilegan sigur af hólmi i vopnaviðskiptum við mig. Hún var sleipasti rökfræðingur, sem ég hef átt i höggi við. Hún bókstaflega vaföi mér um fingur sér. Hún tætti mig sundur ögn fyrir ögn miskunnarlaust. Hún brytjaði mig niður eins og kál og hakkaði mig gráðug i sig eins og góm- sætar pylsur. Ég kom aldrei höggi á hana. Ef drottinn veitti mér eina ein- ustu bæn uppfyllta, myndi ég biðja á þessa leið: Drottinn minn og guð minn! Hefndu min á Höllu. Láttu fara illa fyrir henni i lifinu. Hún á það skilið. Og þegar hún er dauð, eftir að hafa framið öll sin myrkraverk á jörðinni, þá dæmdu hana til eilifrar útskúfunar meðal fordæmdra i glóandi og sjóð- andi helviti. Og þetta var ekki allt. Ofan á þetta var hún svo stórkostlega lygin, að sjálfur Munchausen varð að barni i samanburöi við hana. Hún spann sinn lygavef svo kænlega og lystilega, að Sunnudagsblaö Tímans 507

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.