Tíminn Sunnudagsblað - 25.06.1972, Blaðsíða 18

Tíminn Sunnudagsblað - 25.06.1972, Blaðsíða 18
Heiðursvörður allvigalegur við kistu Brands Brandssonar valdsmannslegum tilburðum, og rynni andstæðingurinn af hólmi, horfði hann á eftir honum af megnri fyrirlitn- ingu. Vildi andstæðingurinn á hinn bóginn reyna afl sitt, var búizt til bar- daga. Nálguðust þeir hvor annan æði lágfættir með rifuð augu og mikilli lát- bragðslist, unz þeir sprændu sitrón- gulu hvor á annan, ruku þvi næst saman og létu kjaft og klær ganga eins og grjótmulningsvél. Brandur hopaði hvergi, en hafði óvininn undir og jafn- aði siðan um hann. Sumir þurftu ekki frá tiðindum að segja. Kom þar, að aðrir fresskettir flúðu upp á húsþök eða simastaura, ef þeir heyrðu grun- samlegt þrusk. En húsfreyjur marg ar lögðu fæð á Brand, þvi að þær tóku þykkjuna upp fyrir sina ketti. Brandi varð ekki maka vant, enda eru niðjar hans sem sandur á sjávar- strönd, og vígslur allar framkvæmdi hann sjálfur. Brandur var samkeppnissinni og slak- aði aldrei á klónni. Hann varð ein- valdur i sveit sinni og hélt völdum til hinztu stundar. Eins og áður segir, var Brandur mikill vexti og vörpulegur, belgurinn gljáandi og yfirbragðið tigulegt. Augun voru gul og lýstu gáfum og miklum þokka. Drengur var hann góður, ef valdir vinir áttu i hlut, en liferni. Vinátta þeirra Vals og hans var svipuð og vinátta Finns og Hjálm- ars tudda. Þeir sváfuoftárekstralaust i eldhúsinu, en ættu þeir að sitja við sama borð og neyta sömu fæðu, lék taugakerfi Vals a!lt á þræði, en grettur Brands gengu úr hófi fram, kryppan varð eins og skemmuburst, og skottið lygilega stutt. Hvert kvöld, sumar jafnt sem vetur, reis Brandur upp og gekk út, hverju sem viðraði. Stundum var hann úti allar nætur, kom þá heim allúfinn aö morgni, tók rösklega til matar sins, en lagðist siðan fyrir og sleikti sár sin, sem oft voru mikil. Oft kom hann um miðjar nætur á gluggann hjá fóstru sinni, barði upp á með loppunni, og var hann þá jafnan sár mjög. Ekki kveink- aði hann sér þó við að stökkva upp i gluggann , þegar opnað var, og hrökk þá af honum leir og blóð. En fóstra hans fægði sár hans og saumaði þau saman, er hann lét sér vel lika. Oft lá hann lengi i sárum, og var búkur al- settur örum, og hnúðum og eyrun eins og stórviðarsög. Þrátt fyrir háan aldur og erjusamt líf, þvarr bardagahugur hans aldrei. Ætið gladdi það hans gömlu augu að sjá orrustu og fallna fjendur. Sæi hann graðkött, nálgaðist hann hann með Jarðarförin var býsna fjölmenn og för viröulega fram. 522 Sunnudagsblað Tímans

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.