Tíminn Sunnudagsblað - 25.06.1972, Blaðsíða 20

Tíminn Sunnudagsblað - 25.06.1972, Blaðsíða 20
i VID GLUGGANN GRÆNLENZK SJALFSTJÓRN Grænlandsmálaráðherrann Knud Hertling hefur reifað það, að Grænlendingar fái heima- stjórn einhvers konar og ákvörðunarvald i ýmsum málum, er hingað til hefur stjórnað frá Danmörku. BARNASTÓLAR í BIFREIÐIR Ýmsar gerðir stóla, sem ætl- Viltu bíða mín Framhald af bls. 515 ur fyrir löngu. Við fórum i gamalt veitingahús. —Þú sérð á klæðaburði minum, að ég er hjúkrunarkona, sagði hún. Sjálf særðist ég i striðinu, tvisvar meira að segja, og það voru ljót sár. Ég get ekki sýnt þau hér, enda skipta þau þig engu. Ég er gift - hann er flugmaður, maðurinn minn, en ég hef ekki séð hann i heilt ár. Hann var sendur austur i Asiu, og sonur okkar fæddist eftir að hann var farinn. En nú skal ég segja þér nokkuð, tvan Stephanóvitsj: Kunningi minn sagði mér, hvar þú ætt- ir heima, og af þvi að ég átti að fara til Parisar til þess að sækja þangað veika hermenn, datt mér i hug... —Ljóska, sagði ég alvarlegur i bragði og brá fyrir mig gamla myndugleikanum, sem mér var svo tamur, þegar ég var að tala um fyrir henni i fyrri daga - Ljóska, hvernig stendur á þvi, að þú, sem ekki máttir heyra neitt nefnt nema gömlu skáldin og hugmyndaheim þeirra.... Hún hló, samt dálitið vandræðalega. Ég veitti athygli djúpum bollunum i kinnum hennar. —Æ, tvan Stephanóvisj, sagði hún - skilurðu þetta ekki? Mig langaði til þess að hitta þig til þess að þakka þér fyrir gömul kynni. Það voru einmitt bækurnar - hetjurnar, sem við töluðum svo oft um. Ég á þér mikið upp að unna. Og nú langaði mig til þess að kóróna allt saman með þvi að gera einu sinni eitthvað á borð við það, sem þær hefðu gert. Kannski er þetta þarf- laust hjal. En við urðum nú svona, konurnar, sem i striðinu. Aður en við skildumst, spurði ég: aðir eru börnum i bifreiðum, eru taldar stórhættulegar, ef eitthvað ber út af i akstri. Sviar hafa gert rannsókn á þessu. Þeir hafa einungis veitt viður- kenningu þrem stólgerðum, sem ætlaðir eru i fram- sæti bifreiðar, og i öllum tilvikum horfir þá barnið aftur i bifreiðina. Allar aðrar stól- gerðir geta haft i för sér stór- slys, ef snögglega er hemlað. HAFERNIR A GRÆNLANDI Nú er talið svo komið, að ekki séu eftir nema svo sem fimmtiu pör hafarna á Grænlandi. Ernir hafa aðeins verið friðaðir þar að nokkru leyti. En nú hafa menn vaknað við vondan draum. Leiðangur verður gerður út til þess að leitast við að telja græn- lenzku ernina, og á jafnframt að gera kvikmynd, er sýnir lifn- aðarhætti þeirra. Vonir standa til, að ernir verði upp úr þessu alfriðaðir á Grænlandi. Slik friðun gildir nú i Sovétrikj- unum, Sviþjóð, Bretlandi og á tslandi. —Bréfið, Ljóska, með visubrotinu eftir Púskin — mannstu eftir þvi? Þú sendir mér það, áður en ég fór frá Moskvu. Hún hugsaði sig um. —Ég hef aldrei sent þér bréf. Það hefur ekki verið frá mér. Einhver önn- ur hefur sent þér það, Og svo kom þessi klingjandi silfur- hlátur. —Já, einhver önnur. Eða þig hefur þá bara dreymt þetta. —Kannski hefur mig dreymt það, Ljóska. En heldurðu ekki, að þú skrifir mér fáeinar linur frá Paris? —Jú, kannski. En hefurðu áttað þig á þvi, að þú ert ekki - ekki nein hetja fremur en fyrri daginn? Og þú færð ekki að fylgja mér út á flugvöllinn. Það væri ekki heppilegt, þvi að þú ert vist - ja, hvað eigum við að kalla það? —Einn þeirra, sem strauk undan merkjum? —Já, einmitt - einn þeirra, sem hljópst á brott. En þakka þér samt fyrir það, sem við áttum saman að sælda i gamla daga. Ég þakka þér fyrir allar gömlu bækurnar, sem þú útvegaðir mér, og allar hetjurnar, sem þú gafst mér. Maðurinn minn er ekki vitund likur Sanin i sögu Túrgenéffs. Hann hefur aldrei kysst mig á handar- bakið. Hann er óbreyttur bóndi —- bara maður.... ... , . , ,. J.H. þyddi Halla Framhald af bls. 509 jafn ægilegum vonbrigðum. Það stóð ekkert i blaðinu. Jörðin stanzaði eitt andartak, og mér sortnaði fyrir augum. Var hún þá svona? Hafði hún teymt mig blákalt á asnaeyrunum heila nótt? Heimur minn hrundi saman. Mér varð nú ljóst, hvernig i öllu Iá. Enn einu sinni hafði erki- óvinurinn borið sigur úr býtum. Ég rölti upp i herbergi og fór að gráta. Um kvöldið laumaðist ég upp á Hvitaband til njósna. En ég söng ekki af kæti i þetta skipti. Nú, hugsaði ég skuggalegar hugsanir um vonzku mannkynsins og óréttlæti heimsins. Ókindin var öll upplyft og bisperrt, þegar ég sá smettið á henni. Hún viðurkenndi blygðunarlaust og harð- svirað að hafa logið upp i opið geðið á mér og haft gaman af. Mér var öllum lokið. Hún var ekki mennsk. Hún var ófreksja. Þetta ömurlega atvik hafði róttæk áhrif á viðhorf mitt til lifsins og allra manrifélagsmála. Ég, sem alltaf hafði verið bjartsynn og trúað á guðsneistann I manninum, varð nú að svartsynum mannhatara, fullur beizkrar fyrirlitningar á heiminum. Og það tók mig langan tima og kostaði mig mikla baráttu að ávinna mér mina fornu lifstrú. Það tókst samt. En það var ekki Höllu að þakka. Þegar ég heyri vondrar manneskju getið, vona ég, að enginn lái mér, þótt mér detti alltaf ákveðin manneskja i hug. Guð veri sálu hennar náðugur. * 524 Sunnudagsblað Tímans

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.