Morgunblaðið - 24.04.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÚTILOKAR EKKI ÁRÁS
Ariel Sharon, forsætisráðherra
Ísraels, kvaðst í gær ekki vera bund-
inn af loforði við George W. Bush
Bandaríkjaforseta um að reyna ekki
að ráða Yasser Arafat, leiðtoga Pal-
estínumanna, af dögum. „Arafat nýt-
ur ekki lengur friðhelgi,“ sagði Shar-
on í sjónvarpsviðtali. Embættis-
maður í Hvíta húsinu í Washington
sagði í gærkvöldi að stjórn Bush
hefði skorað á Sharon að standa við
loforðið.
Álverð 33% hærra en í fyrra
Verð á áli hefur farið stöðugt
hækkandi undanfarna mánuði og
misseri og fór yfir 1.800 dali fyrir
tonnið um miðjan apríl og hafði ekki
verið hærra í átta ár. Verðið var
rúmir 1.700 dalir í gær samkvæmt
tölum frá Málmmarkaðnum í Lund-
únum (LME). Þróun álverðs er með-
al annars gerð að umtalsefni í nýjum
hagvísum Seðlabankans og þar segir
að verðið á áli sé nú um það bil þriðj-
ungi hærra en það var fyrir einu ári.
Baath-menn fái embætti
Bandaríkjamenn hyggjast hverfa
frá þeirri stefnu sinni að engir fyrr-
verandi liðsmenn Baath-flokksins í
Írak, stjórnarflokks landsins í for-
setatíð Saddams Husseins, skuli
vera gjaldgengir í embætti í hinu
nýja Írak.
Íslandsflug kaupir þotur
Íslandsflug hefur fest kaup á
þremur þotum fyrir 1,7 milljarða
króna af Sobel Air í Belgíu. Fram-
kvæmdastjóri Íslandsflugs segir
kaupin vera hagstæð, markaðsvirði
vélanna sé kringum 2,3 milljarðar.
Fyrsta vélin var afhent í gær, sú
næsta verður afhent í næstu viku og
sú þriðja eftir hálfan mánuð. Fram-
kvæmdastjóri Íslandsflugs segir
rekstur félagsins hafa gengið vel
undanfarin misseri og félagið geti
því staðið undir þessari fjárfestingu.
Talið að hundruð hafi farist
Talið var í gær að hundruð manna
hefðu látið lífið þegar lestarvagnar
hlaðnir dýnamíti sprungu í loft upp
við lestarstöð í Norður-Kóreu í
fyrradag. Stjórnvöld í Pyongyang
óskuðu eftir aðstoð Sameinuðu þjóð-
anna vegna sprengingarinnar.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Þjónusta 35
Viðskipti 12/13 Viðhorf 36
Erlent 16/18 Kirkjustarf 37/38
Minn staður 19 Minningar 39/43
Höfuðborgin 20 Dans 44
Akureyri 21 Bréf 50/51
Suðurnes 22 Brids 51
Landið 23 Dagbók 66/67
Árborg 24 Staksteinar 52
Daglegt líf 25 Íþróttir 54/55
Ferðalög 26 Leikhús 56
Listir 27/29 Fólk 56/61
Forystugrein 38 Bíó 57/61
Umræðan 30/36 Ljósvakamiðlar 62
Skoðun 31 Veður 63
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Bú
dape
st
43.150 kr.
Plúsfer›ir • Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 • www.plusferdir.is
Netver› á mann frá
Innifalið: Flug, gisting í 3 nætur á Hótel Lieget í október
í 2ja manna herbergi með morgunverði,
flugvallarskattar og ísl. fararstjórn.
STEFNT er að því að allir þeir nemendur sem eru
að koma úr grunnskólum í framhaldsskóla í haust,
sem og þeir sem eru að flytja sig milli skóla, fái
skólavist samkvæmt upplýsingum frá mennta-
málaráðuneytinu, en búast má við umtalsverðri
fjölgun nýnema við framhaldsskóla sem og há-
skóla næsta skólaár. Ekki er hægt að bregðast við
fjölguninni fyrr en endanlegar tölur um fjölda
nemenda liggja fyrir.
Haft var eftir Sölva Sveinssyni, skólameistara
Fjölbrautaskólans við Ármúla, í Morgunblaðinu í
gær, að hugsanlega vanti 400–500 sæti í fram-
haldsskólunum í haust miðað við fjárveitingar. Þá
hafa háskólamenn vakið athygli á sömu þróun.
Óljóst hver ásóknin verður
„Hversu mikil ásóknin í skólana verður vita
menn ekki fyrr en endanlegar tölur berast um inn-
ritun og fyrr er ekki hægt að bregðast við ef þörf
krefur,“ segir Steingrímur Sigurgeirsson, aðstoð-
armaður menntamálaráðherra. Hann segir stefnt
að því að allur innritunarárgangurinn sem er að
koma upp úr grunnskóla og einnig allir þeir sem
eru að færa sig á milli skóla, fái skólavist í haust.
„Það hefur verið aukin aðsókn í framhaldsskólana
um nokkurt skeið og vitað að nú í haust væri að
koma inn stór árgangur,“ segir hann.
Steingrímur segir að sama eigi við um háskóla,
háskólanemum hafi verið að fjölga um nokkurra
ára skeið. „Við þessari fjölgun hefur verið brugðist
með stórauknum framlögum til háskólanna á síð-
ustu árum. Sem dæmi ná nefna að í fjárlögum
þessa árs eru framlög til háskólanna aukin um
8,4%.“
Steingrímur segir háskólana vita að hverju þeir
gangi í fjárlögum og hljóti að taka mið af því.
Menntamálaráðuneytið um fjölgun nemenda í framhalds- og háskólum
Allur innritunarárgangur-
inn fái skólavist í haust
STAÐAN í deilu hjúkrunarfræð-
inga á skurðdeild Landspítala –
háskólasjúkrahúss (LSH) og
stjórnenda LSH virðist vera á
mjög viðkvæmu stigi. Tuttugu og
tveir hjúkrunarfræðingar á skurð-
deildinni sögðu upp störfum um
miðjan mánuðinn vegna óánægju
með nýtt vaktafyrirkomulag sem
tekur gildi um næstu mánaðamót.
Heldur kaldar kveðjur
Stjórnendur LSH hittu fulltrúa
hjúkrunafræðinga stuttlega í gær-
morgun og afhentu þeim bréf en
vilja ekki tjá sig um innihald þess
að svo stöddu. Fulltrúi hjúkrunar-
fræðinga sagði heldur kaldar
kveðjur að finna í bréfinu en vildi
að öðru leyti ekki greina frá efni
þess enda ætti eftir að fara yfir
það með hjúkrunarfræðingunum
sem í hlut eiga. Það yrði gert í
dag.
Helga Kristín Einarsdóttir,
sviðsstjóri hjúkrunar á svæfinga-,
gjörgæslu- og skurðstofusviði
LSH, segir menn hafa farið yfir
stöðuna í gær. Hún segir enga nið-
urstöðu vera komna í málið og
spurð um fyrrnefnt bréf segir hún
ekki rétt að upplýsa um innihald
þess þar sem málið sé á „mjög við-
kvæmu stigi núna“. Hún segir þó
að með bréfinu hafi menn verið að
velta boltanum til hjúkrunarfræð-
inganna. „Vonandi finnst lausn,
það er það sem skiptir máli. Það
er verið að reyna að finna nýja
fleti.“
Málið á
mjög við-
kvæmu
stigi
Deila skurðhjúkr-
unarfræðinga við LSH
MIKIL uppbygging á sér nú stað á
Austurlandi. Bæjarstjórn Austur-
Héraðs hefur ákveðið að taka til-
boði Íslenskra aðalverktaka í bygg-
ingu nýs leikskóla á Egilsstöðum.
Í svokölluðu alútboði, sem innifel-
ur í sér að verktaki hanni og byggi
húsið og skili því tilbúnu, buðu ÍAV
rúmar 218 milljónir króna, en
kostnaður við verkið, fyrri áfanga
leikskólans með fjórar deildir fyrir
eitt hundrað börn, var metinn um
215 milljónir króna.
Verkið var boðið út fyrir skömmu
í alútboði og einkaframkvæmd, en
hið síðarnefnda merkir að verktaki
byggi og leigi verkbeiðanda aðstöð-
una í tilgreindan tíma.
Fyrri áfangi leikskólans á að
vera tilbúinn fyrrihluta næsta árs.
Byggja nýjan leik-
skóla á Egilsstöðum
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Leikskólabörn á Egilsstöðum gleðjast þessa dagana yfir nýjum tækjum á
leikskólalóðinni: Nú á að hugsa stærra og byggja nýjan leikskóla í bænum.
NOKKURT magn af olíu lak í
höfnina á Húsavík í fyrradag þeg-
ar verið var að dæla henni á milli
tanka á fiskiskipi. Stefán Stefáns-
son hafnarvörður segir tankinn
hafa yfirfyllst og olía lekið út um
affallsrörið. Um mannleg mistök
hafi verið að ræða og engin eft-
irmál verði.
Enn var nokkuð af olíu í höfn-
inni og fyrir utan í gærdag. Stefán
segir að ekki hafi verið ákveðið að
setja upp girðingar og sökkva
olíunni með þar til gerðum efnum.
Magnið hafi ekki verið það mikið
og um díselolíu sé að ræða sem
gufi fljótt upp. Það sé betra en að
hún setjist á botninn. Hlýindi síð-
ustu daga flýti þessu ferli mikið.
Stefán segist vita til þess að ein-
hverjir fuglar hafi lent í olíubrák-
inni.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Þessi fugl lá dauður í fjörunni við
Húsavík í gær, allur löðrandi í olíu.
Olíutankur
yfirfylltist
Húsavíkurhöfn
SVEITARSTJÓRN Dalabyggðar
hefur ákveðið að neyta forkaupsrétt-
ar á eyðijörðunum Stóra-Skógi og
Skógskoti í Miðdölum, en svissnesk
hjón höfðu áður gert samning við
jarðaeigendur um að kaupa jarðirnar
á tæpar 80 milljónir króna. Nýlega
féll hjá Héraðsdómi Vesturlands
dómur vegna sölu jarðarinnar Vogs á
Fellsströnd, en Dalabyggð var mein-
að að neita forkaupsréttar þar. Dóm-
urinn féll Dalabyggð í vil, en Harald-
ur Líndal, sveitarstjóri Dalabyggðar,
segir of algengt að reynt sé að fara
fram hjá forkaupsréttarákvörðunar-
ákvæði.
Haraldur segir það stefnu sveitar-
félagsins að halda jörðum í nýtingu í
landbúnaði og því telji sveitarfélagið
eðlilegt að grípa inn í þegar slík nýt-
ing er í hættu. „Í sjálfu sér er ekki
meiningin hjá okkur að eiga þessar
jarðir. Við munum selja þær strax
þegar við höfum náð yfirráðum yfir
þeim. Tveir aðilar í Dalabyggð hafa
óskað eftir því að við kaupum jarð-
irnar svo þeir geti nýtt þær í búrekst-
ur og munu þeir kaupa þær strax af
sveitarfélaginu. Við teljum að ef við
kaupum þessa jörð munum við bjarga
tveimur jörðum sem eru í ábúð og
annars munum við missa þær. Þetta
eru gríðarlegir hagsmunir sem við er-
um að berjast fyrir,“ segir Haraldur.
Dalabyggð neytir for-
kaupsréttar á jörðum