Morgunblaðið - 24.04.2004, Page 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Opið í dag og sunnudag frá kl. 13-16
Netsalan ehf.
„Alltaf með nýjungar!“ Aðeins það besta!
Knarrarvogi 4, 104 Reykjavík - Sími 517 0220 - www.netsalan.com
landsins langbesta
verð 695.000
með bremsum.
Knaus hjólhýsi
það er framtíðin
Munið Viking
fellihýsin -
Sölusýningarhalda áfram
og Grikklands. Ómar Benediktsson sagði að samið
hefði verið nýlega um verkefnið og það hefði staðist
á endum að ljóst var að vélarnar fengjust keyptar
nánast sama dag og skrifa þurfti undir breska
samninginn.
Keppti við 43 flugrekendur
Íslandsflug keppti við 43 flugrekendur og flug-
vélakaupendur um kaupin á þotunum þremur. Fáir
buðu í þær allar en það var ósk seljanda þrotabús
Sobel Air að einn aðili keypti þær helst allar. Tilboð
Íslandsflugs var að sögn Ómars um 200 þúsund
evrum hærra en næst hæsta tilboðið eða um 16
milljónum króna hærra sem telst ekki mikill mun-
ur í 1,7 milljarða samningi. Ómar sagði leiguverð á
ÍSLANDSFLUG hefur keypt þrjár þotur af belg-
íska flugfélaginu Sobel Air og er kaupverð þeirra
um 1,7 milljarðar króna. Ómar Benediktsson,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir kaupin
hagstæð, markaðsvirði vélanna sé kringum 2,3
milljarðar. Landsbanki Íslands aðstoðaði við fjár-
mögnun kaupanna og segir Ómar rekstur Íslands-
flugs hafa gengið vel undanfarin misseri og félagið
því geta staðið undir þessari fjárfestingu.
Vélarnar eru allar af gerðinni B737, tvær eru af
400 gerðinni og ein 300. Fyrsta vélin var afhent í
gær, næsta verður afhent eftir viku og sú þriðja
eftir hálfan mánuð. Með þeim mun Íslandsflug
annast flug fyrir bresku ferðaheildsöluna Kosmar
og verða vélarnar einkum í ferðum milli Bretlands
flugvélum hafa farið hækkandi að undanförnu og
sömuleiðis flugvélaverð og sagði hann félagið því
mjög samkeppnisfært með þessa nýju fjárfestingu.
Verkefnið fyrir bresku ferðaheildsöluna er til 18
mánað hið minnsta og er mest flogið á sumrin. Seg-
ir Ómar unnt að nýta vélarnar í önnur verkefni
meðfram næsta vetur og verði brátt hugað að því.
Verið er að ganga frá samningum við flugliða
vegna þessa nýja verkefnis en ráða þarf nokkra
flugmenn til viðbótar á nýju þoturnar. Íslandsflug
rekur nú alls 19 þotur, 13 Boeing og 6 frá Airbus.
Einnig rekur félagið tvær 19 sæta Dornier vélar til
innanlandsflugsins. Er félagið því næst á eftir flug-
félaginu Atlanta hvað varðar fjölda flugvéla í
rekstri hjá íslenskum flugfélögum.
Íslandsflug kaupir þrjár
vélar fyrir 1,7 milljarða
ÚTFÖR Haralds Blöndals hæstaréttarlögmanns fór
fram frá Kristskirkju í gær að viðstöddu fjölmenni,
en hann lést 14. apríl, 57 ára að aldri. Séra Jürgen
Jamin jarðsöng. Líkmenn Gunnlaugur Claessen,
Pétur Kjartansson, Örnólfur Árnason, Benedikt
Sveinsson, Davíð Oddsson, Jón Steinar Gunn-
laugsson, Jón Sigurðsson og Atli Freyr Guðmunds-
son.
Morgunblaðið/Golli
Útför Haralds Blöndals
SUMARIÐ var ekki fyrr gengið í
garð en fyrstu íslensku paprikurnar
þetta árið voru orðnar þroskaðar og
komnar á markað. Á garðyrkjustöð-
unni Jörfa á Flúðum hefur hluti af
paprikunum verið lýstur í vetur til
að flýta fyrir þroska þeirra og hefur
það gefist vel. Sú aðferð hefur einn-
ig borið góðan árangur við ræktun
agúrkna og tómata, að sögn Georgs
Ottóssonar, eiganda Jörfa. Paprik-
urnar eru því mörgum vikum fyrr á
ferðinni nú en venjulega.
„Þetta eru safaríkar og góðar
paprikur,“ segir Georg stoltur af af-
rakstrinum. Hann segir papriku-
plönturnar halda áfram að gefa af
sér í allt sumar og því verði nýjar ís-
lenskar paprikur á boðstólum í
verslunum fram á haust. Jörfa-
paprikur eru vistvæn ræktun og er
tveimur pakkað saman í einu til hag-
ræðis fyrir neytandann.
Georg segir að allar paprikur séu
í fyrstu grænar, svokallaðir græn-
jaxlar. Hins vegar breyti þær um lit
þegar aldurinn færist yfir; verði gul-
ar, rauðar eða appelsínugular og
einnig séu til afbrigði sem séu svört
og hvít en þau eru fáséð, í það
minnsta hér á landi.
Monika Domagala, starfsstúlka á garðyrkjustöðinni Jörfa á Flúðum, tínir fyrstu paprikur sumarsins.
Óvenju snemmþroska paprikur
VANGAVELTUR um hugsanlegt til-
kall Íslands til Jan Mayen tilheyra
fortíðinni og eru ekki raunhæfar í dag
að mati Tómasar H. Heiðar, þjóðrétt-
arfræðings í utanríkisráðuneytinu.
Segir Tómas ljóst að Jan Mayen sé
norskt landsvæði. „Ísland og Noreg-
ur gerðu samninga um afmörkun fisk-
veiðilögsögu og landgrunns milli Ís-
lands og Jan Mayen fyrir aldar-
fjórðungi, en aðeins 290 sjómílur eru
milli eyjanna,“ segir Tómas. Um-
ræddir samningar fólu í sér að 200
sjómílna lögsaga Íslands var að fullu
viðurkennd. Lögsaga Noregs við Jan
Mayen varð samkvæmt samkomulag-
inu hins vegar 90 sjómílur í áttina til
Íslands.
„Auk þessa fól samkomulagið í sér
að afmarkað var sameiginlegt nýting-
arsvæði á landgrunninu milli Íslands
og Jan Mayen og nær það svæði langt
inn í lögsögu Jan Mayen,“ segir Tóm-
as.
Áhyggjuraddir hafa heyrst meðal
Norðmanna vegna meintrar óvissu
um framtíð Jan Mayen, en norski her-
inn vill leggja niður Loran-C stöð sem
þar er staðsett og hætta flutningum á
fólki til og frá eyjunni. Uppi hafa verið
raddir um að þessi ákvörðun kyndi
undir kröfum annarra þjóða til fiski-
miða við eyna. Margar norskar rann-
sóknastofnanir hafa áhuga á eyjunni
en hafnleysi og hafís hamla siglingum
þangað.
Vanga-
veltur um
Jan Mayen
tilheyra
fortíðinni
NÝR samningur hefur verið
undirritaður milli Akureyrar-
bæjar og Leikfélags Akureyrar
um stuðning við rekstur at-
vinnuleikhúss næstu þrjú árin.
Samningurinn er byggður á
samningi bæjarins við mennta-
málaráðuneytið um stuðning
ríkisins við menningarmál á
Akureyri. Í samningnum við
LA er kveðið á um að Akureyr-
arbær veiti árlega 80 milljónum
króna til reksturs félagsins.
Að auki er gert ráð fyrir að
við framlagið bætist 5 milljónir
á árinu 2005 og 10 milljónir á
árinu 2006 að því tilskildu að
áætlanir félagsins um verkefni
og hallalausan rekstur gangi
eftir.
Atvinnuleikhúsið mun svið-
setja að lágmarki 4 leikverk á
ári og þá er kveðið á um að lögð
verði sérstök áhersla á lifandi
samstarf við börn og grunn-
skólanna á Akureyri.
Það voru Kristján Þór Júl-
íusson bæjarstjóri og Saga
Jónsdóttir formaður LA sem
undirrituðu samninginn.
Nýr samn-
ingur um
rekstur
Akureyrarbær
og Leikfélagið
SJALDGÆFUR flækingsfugl, ná-
skyldur Maríuerlu, hefur sést tví-
vegis hérlendis að undanförnu. Um
er að ræða Bretaerlu, sem á heim-
kynni sín á Bretlandseyjum, að
undanskildum Hjaltlandseyjum.
Bretaerlan sást í Nesjum á sum-
ardaginn fyrsta og nokkru áður í
nágrenni Stykkishólms. Bretaerlan
er ívið dekkri en Maríuerlan og hef-
ur sést hér við land um 10 sinnum.
Bretaerla
í heimsókn
♦♦♦