Morgunblaðið - 24.04.2004, Side 6

Morgunblaðið - 24.04.2004, Side 6
FRÉTTIR 6 LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ STOFNUN Vigdísar Finnbogadóttur (SVF) verður kynnt í Þýskalandi dag- ana 26. apríl til 4. maí en tilgangurinn er að efla tengsl Háskóla Íslands við þýska háskóla og reyna að afla fjár til verkefna sem geta orðið til að styrkja stöðu þýskrar tungu hér á landi. Oddný G. Sverrisdóttir, dósent í þýsku og varaforstöðumaður SVF sem hefur borið veg og vanda af kynningunni, segir að verið sé að reyna að auka samstarf milli ein- stakra stofnana á Íslandi og í Þýska- landi. „Við erum svo lítið að leita til við- skipta- og atvinnulífsins og förum m.a. í Robert Bosch Stiftung sem er mjög auðug og virðuleg stofnun en með í förinni verður fulltrúi frá Út- flutningsráði. Þannig að það má segja að við séum bæði að reyna að efla við- skipti og tungumál. Það skiptir mjög miklu máli fyrir okkur Íslendinga að tengja þetta tvennt saman, ekki síst við land eins og Þýskaland sem við eigum í miklum viðskiptum við.“ Vigdís Finnbogadóttir mun taka þátt í Þýskalandskynningunni og mun m.a. annars halda fyrirlestur við háskólann í Tübingen en mikið sam- starf hefur verið á milli HÍ og hans. Þá verður Humboldt-háskólinn í Berlín heimsóttur og mun sendi- nefndin eiga fund með fyrrverandi forseta Þýska- lands dr. Richard von Weizsacker en þaðan verður haldið til Kielar, mekka norrænna fræða í Þýskalandi þar sem sendi- nefndin mun hitta borgarstjórann þar. „Við byrjum í Tübingen því við er- um að gera samstarfsamning sem auðveldar öll samskipti HÍ og Eber- hards Karls-háskólans í Tübingen en þar er mjög stór norrænudeild með yfir 50 manns sem eru að læra nor- rænu og íslensku,“ segir Oddný. „Ís- lenskan er mjög í tísku, kannski vegna Arnaldar [Indriðasonar]. Arn- aldur og íslenskar bókmenntir al- mennt eru mjög vinsælar í Þýska- landi. Við erum kannski ekki eins dugleg að þýða þýskar bókmenntir og horfa til þeirra. Við vildum gjarna að það yrði gagnvirkni í þessu. Þjóðverj- ar eru mjög vinveittir Íslendingum, það er ótrúlegt hve velviljinn er mik- ill,“ segir Oddný. Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur kynnt í Þýskalandi Þjóðverjar mjög vin- veittir Íslendingum Oddný G. Sverrisdóttir VIKA er í dag þar til uppsögn þyrlu- lækna sem starfa á þyrlu Landhelg- isgæslunnar tekur gildi. Dómsmála- ráðuneytið hefur farið þess á leit við Landspítala – háskólasjúkrahús að samningur um þyrluvakt sem spítal- inn sagði upp í byrjun árs verði fram- lengdur til áramóta, svo hægt verði að tryggja starfsemina. Sviðsstjóri bráða- og slysasviðs spítalans hefur ekkert formlegt tilboð séð. Þyrlulæknunum var sagt upp í byrjun árs, í kjölfar þess að Landspít- ali – háskólasjúkrahús sagði upp samningi sem var í gildi milli LSH og þriggja ráðuneyta, en hann kvað á um þyrluvakt, læknisfræðilega ráðgjöf fyrir Neyðarlínuna og fjarlækningar. Samkvæmt upplýsingum úr dóms- málaráðuneytinu tók Neyðarlínan til við að semja við spítalann um þá þjón- ustu sem samningurinn fól í sér um leið og honum var sagt upp. Þær samningaviðræður munu vera komn- ar langt á veg og mun vera orðið fyr- irsjáanlegt að spítalinn fái greiðslur fyrir þá þjónustu frá Neyðarlínunni. Ráðuneytið telur að þetta geri það að verkum að spítalinn verði ekki fyrir fjárhagslegum skaða við að fram- lengja samninginn um þann tíma sem óskað hefur verið eftir, þ.e. til ára- móta. Vilja skoða samnýtingu neyðarþjónustunnar Ráðuneytið vill nýta tímann fram að áramótum til að fara yfir heildar- skipulag neyðarþjónustunnar og meta hvort mögulegt væri að reka þjónustuna með hagkvæmari hætti. Vill ráðuneytið skoða hvort hægt væri að samnýta þá þjónustu sem er veitt um borð í sjúkrabílum, við sjúkraflug og í þyrluflugi og þannig manna þyrl- urnar með hjúkrunarfræðingum, sjúkraflutningamönnum og læknum, allt eftir þörfinni hverju sinni. Brynjólfur Mogensen, sviðsstjóri bráða- og slysasviðs LSH, segir að kostnaður spítalans vegna samnings- ins sem sagt var upp, sé talsvert meiri en tekjurnar. Spítalinn fái 16,5 millj- ónir vegna samningsins en eingöngu vaktagreiðslur nemi 20 milljónum, við það bætist annar kostnaður. „Við höfum engan áhuga á því að breyta um starfsháttu í sjálfu sér, en okkur finnst ekki sanngjarnt að spít- alinn tapi á samningnum. Því það kostar ákveðna fjármuni að reka þyrluþjónustuna og okkur finnst eðli- legt að samfélagið leggi til það sem það kostar,“ segir Brynjólfur. Ekki sjálfgefið að gangi eins og smurt til baka Hann segist ekkert formlegt tilboð hafa fengið. „Við erum að bíða eftir viðbrögðum frá ráðuneytinu. Enn hefur ekkert komið á borð til mín, en ég er fullviss um að það kemur, ég hef enga ástæðu til að ætla annað og þeg- ar það kemur munum við ganga frá þessu í bróðerni. Ég hef ekki nokkra trú á því að nokkur maður vilji að þetta fari í óefni. Þetta er eins og hver annar rekstur, reksturinn kostar, það þarf að borga hann og við teljum að spítalinn eigi ekki að borga hann,“ segir Brynjólfur. Hlynur Þorsteinsson þyrlulæknir segir að læknarnir sem að óbreyttu hætta störfum 1. maí, hafi ekkert heyrt frá spítalayfirvöldum og þeir viti í raun ekki hvar málið er statt. „Ég er eiginlega kominn út yfir það að vera hissa,“ segir Hlynur aðspurð- ur um hvernig honum lítist á stöðu mála. Hann segir að það sé stuttur tími til stefnu og ef það eigi að vera eitthvert framhald á að læknar fari í sjúkraflug með þyrlunni finnist hon- um skrýtið að ekki hafi verið haft samband við læknana. „Það er kannski ekki alveg sjálf- gefið þegar það er búið að segja mönnum upp að það gangi eins og smurt til baka,“ segir Hlynur. Ekki sé gert ráð fyrir neinum þyrlulæknum á vaktaplani spítalans í næsta mánuði, en vaktir hvers mánaðar eru ákveðnar í síðasta lagi um miðjan mánuðinn á undan. Uppsögn þyrlulækna að taka gildi en óskað var eftir framlengingu BÚIÐ er að koma ÍR-húsinu fyrir á steyptum grunni á Árbæjarsafni. Húsið er staðsett við hlið gamla Kleppshússins og verður í framtíð- inni notað sem sýningarhúsnæði. Nú tekur við viðgerð á húsinu, en lítið viðhald hefur verið á því í mörg ár. Húsið, sem var upphaflega reist sem fyrsta kaþólska kirkjan á Ís- landi, árið 1897, hefur síðustu tvö ár staðið á geymslusvæði Reykjavík- urhafnar, en það þurfti að víkja fyrir nýju íþróttahúsi Landakotsskóla. ÍR-húsið var um árabil helsta íþróttahús bæjarins, þar voru stund- aðar æfingar og háðar íþrótta- keppnir. Á stríðsárunum lagði breski herinn húsið undir sig en strax að stríðinu loknu varð það aft- ur íþróttahús. ÍR-húsið hefur verið nefnt vagga frjálsra íþrótta í borg- inni. Margir frægir kappar hafa stundað þar æfingar og keppni og þar hafa mörg met verið sett. Má þar nefna Clausenbræður og Vil- hjálm Einarsson, sem setti heimsmet í hástökki án atrennu í húsinu 1961. ÍR-húsið komið á grunn á Árbæjarsafni HAFSTEINN Hafsteinsson, for- stjóri Landhelgisgæslunnar, segir sjálfsagt að kanna þá hugmynd að bjóða út varðskip í einkaframkvæmd sem Landhelgisgæslan leigir svo til ákveðins tíma. Þetta sé gert í Noregi í einhverjum mæli. Fyrst þurfi þó að fara vandlega yfir alla útreikninga á hagkvæmni þess. Íslensku varðskip- in hafi enst mjög vel; það elsta sé yfir 40 ára gamalt og hin í kringum 30 ára. „Það væri skynsamlegast á þessu stigi málsins að fá upplýsingar frá Noregi um hvernig þetta er þar,“ segir Hafsteinn. Hann segir þessa hugmynd áður hafa komið til tals í tengslum við undirbúning útboðs á nýju varðskipi. Þetta sé því ekki ný umræða og hug- að hafi verið að því að hafa þennan valkost inni í útboði. Þá megi ekki slá af kröfum um gæði skipsins svo það geti tekist á við fjölbreytt verkefni við misjafnar aðstæður á hafi úti. Nefnir hann dönsku skipin sérstak- lega og að þau hafi reynst einstak- lega vel við strendur Íslands. Forstjóri Landhelgisgæslunnar Sjálfsagt að kanna einkafram- kvæmd LÖGREGLAN í Reykjavík handtók mann í garði kínverska sendiráðsins um sjöleytið í gærkvöld, en maður- inn var grunaður um þjófnað. Starfsmenn Hótels Sögu tilkynntu lögreglu í gærkvöldi um mann sem hefði framið þar þjófnað. Fór starfs- maður hótelsins í humátt á eftir þjófnum, en þegar hinn grunaði varð þess var að lögreglan var á leiðinni tók hann á sprett og lögreglumenn á eftir. Barst eltingaleikurinn garð úr garði með nokkrum látum, en mað- urinn var á endanum handsamaður í garði sendiráðsins. Handtekinn á kínverskri grund ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.