Morgunblaðið - 24.04.2004, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 9
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur sýknað íslenska ríkið af kröf-
um Atlantsskipa um að viðurkennt
yrði með dómi, að forvalsnefnd utan-
ríkisráðuneytisins væri óheimilt að
setja skilyrði fyrir vali íslenskra fyr-
irtækja vegna fragtflutninga milli
Íslands og Bandaríkjanna.
Um er að ræða flutninga sem
boðnir eru út á grundvelli samnings
milli Íslands og Bandaríkjanna til að
auðvelda framkvæmd varnarsam-
starfs ríkjanna og samkomulags
varðandi þann samning.
Atlantsskip byggðu kröfur sínar
m.a. á því að ákvæði reglugerðar um
forval og skilgreiningu íslenskra fyr-
irtækja vegna útboðs á grundvelli
sjóflutningasamningsins skorti laga-
stoð, en í reglugerðinni segir m.a. að
„„Skip sem íslenzk skipafélög gera
út“ skulu teljast skip, sem eru undir
yfirstjórn og yfirráðum íslenzkra
skipafélaga. Í því felst að íslenzk
skipafélög skulu hafa húsbóndavald
yfir áhöfn skipanna og ráðningar-
samband við áhöfn þess.“
Ekki fallist á að reglugerð
skorti lagastoð
Dómurinn féllst ekki á það með
Atlantsskipum að reglugerðar-
ákvæðið skorti lagastoð og vísaði til
þess að í lögum nr. 82/2000 um fram-
kvæmd tiltekinna þátta í varnarsam-
starfi Íslands og Bandaríkjanna,
væru íslensk fyrirtæki skilgreind
þannig að það væru fyrirtæki, óháð
rekstrarfyrirkomulagi, sem upp-
fylltu öll skilyrði sem tilgreind væru
í fjórum eftirfarandi töluliðum, en
skilyrði 4. og síðasta töluliðarins
hljóðaði svo: „Önnur skilyrði sem
leiðir af einstökum afleiddum samn-
ingum.“ Afleiddir samningar væru
skilgreindir þannig í lögunum að það
væru samningar milli Íslands og
Bandaríkjanna, sem byggðir væru á
varnarsamningum samkvæmt
orðanna hljóðan eða eðli máls.
Samkvæmt lögunum skyldu verk-
lagsreglur við mat samninga vera
þannig að utanríkisráðuneytið legði
mat á samningstilkynningar varnar-
liðsins í samráði við forvalsnefnd
með hliðsjón af öryggishagsmunum
og tilgreindi þau skilyrði sem fyrir-
tæki þyrftu að uppfylla til að teljast
íslensk fyrirtæki. Þótt ekki væri tek-
ið fram sérstaklega í ákvæði laganna
að mat og/eða tilgreining utanríkis-
ráðuneytisins skyldi gerð með reglu-
gerð, væri utanríkisráðuneytinu með
ákvæðinu falið að skilgreina nánar
þau atriði sem deilt væri um í mál-
inu. Samkvæmt lögunum væri utan-
ríkisráðherra í reglugerð heimilt að
kveða á um frekari undanþágur frá
forvalsskyldu, ef sérstakar ástæður
mæltu með því.
Í dómi héraðsdóms kemur einnig
fram m.a. að þá hafi ekkert verið sem
lá fyrir um að stefndi hefði farið út
fyrir samningsbundna heimild við
skilgreiningu á hugtökunum „ís-
lensku skipafélagi“ og „operated by
Icelandic Shipping companies“.
Þá var heldur ekki fallist á að hið
umdeilda reglugerðarákvæði bryti í
bága við 74. gr. stjórnarskrárinnar.
Málið dæmdi Sigríður Ólafsdóttir.
Lúðvík Örn Steinarsson hdl. flutti
málið fyrir Atlantsskip ehf. og Óskar
Thorarensen hrl. fyrir stefnda.
Íslenska ríkið sýknað af kröfum Atlantsskipa vegna varnarliðsflutninga
Heimilt var að setja skilyrði
SAMNINGAR hafa náðst milli Orra-
félagsins og Sæðingastöðvarinnar í
Gunnarsholti um sæðingar með sæði
úr Orra frá Þúfu. Er ákveðið að sæð-
ingar hefjist 20. maí og verði sætt til
1. júlí. Eftir þann tíma verður Orri
að venju með hryssur í girðingu í
sínum heimahögum í Þúfu. Ráðgert
er að á þessum tíma verði sæddar 80
hryssur og því áríðandi að eigendur
sem hyggjast fá hryssur fyljaðar
með sæði úr Orra mæti með þær við
fyrstu hentugleika í Gunnarsholt að
sögn Sigurðar Sæmundssonar for-
manns Orrafélagsins.
Þá hefur Orrafélagið ákveðið að
selja nokkra tolla en ekki hefur ver-
ið ákveðið hversu margir þeir verða.
Samkomulag hefur náðst um sæðingar í Gunnarsholti
Orri frá Þúfu fær 130
hryssur til fyljunar
Morgunblaðið/Vakri
Vísast léttir mörgum við þær fregnir að fersksæðingar verði framkvæmdar í vor á Sæðingastöðinni í Gunnarsholti
þar sem myndin er tekin af Orra ásamt forráðamönnum stöðvarinnar og nokkrum aðdáendum og velunnurum.
Fyrirkomulagið nú verður það sama
og var í fyrra, það er að hver hlutur í
hestinum gefur rétt á einum tolli
sem kallast A-tollur en þar er um að
ræða rétt á að mæta með hryssu í
sæðingu og síðan aftur í girðingu
hafi hryssan ekki fyljast með sæð-
ingu. Þá gefur hluturinn einnig rétt
á B-tolli þar sem einvörðungu verð-
ur um aðgang að sæðingum að ræða.
Orri og félagar hans á Sæðinga-
stöðinni þurfa að öllum líkindum að
fylja á milli 130 og 135 hryssur í ár.
Hluthafar í hestinum hafa rétt á að
halda 120 hryssum, ef eitthvað í
kringum 5 A-tollshryssur eru ófylj-
aðar frá síðasta ári og ef félagið sel-
ur á að giska 5 til 15 tolla.
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Nýr hörfatnaður
Jakkar, pils, buxur,
kjólar og dress
Laugavegi 63, sími 551 4422
Sumarkápur,
Glæsilegt úrval
Kvartgallabuxurnar komnar aftur
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
Kynning á vor- og sumarfatnaði
vikuna 24.-30. apríl
Stærðir 40-52
Nýtt!
Heimilisilmur frá Marina Rinaldi
Gjöf til viðskiptavina
HVERFISGÖTU 6
101 REYKJAVÍK - SÍMI 562 2862
2 fyrir 1
af öllu púðri, varalitum og glossum
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið í dag kl. 10 - 14
50% afsláttur
Pils og buxur - stærðir 34-52
Tilboðsslár kr. 1000 eða 3000