Morgunblaðið - 24.04.2004, Qupperneq 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 11
EMBÆTTI sóttvarnalæknis hefur
með heimild ríkisstjórnarinnar sam-
ið við GlaxoSmithKline ehf. (GSK)
um að tryggja að ávallt séu til í land-
inu tilteknar neyðarbirgðir af inflú-
ensulyfinu Relenza til að bregðast
við hættulegum inflúensufaraldri.
„Í ljósi atburða fyrr í vetur vegna
fuglainflúensufaraldurs, sem leitt
gat til heimssóttar af völdum inflú-
ensu taldi sóttvarnalæknir nauðsyn-
legt að huga að lyfjum gegn inflú-
ensu og til hvaða úrræða væri hægt
að grípa til að efla sóttvarnir þjóð-
arinnar. Gömlu inflúensulyfin s.s.
Amantidin og Rimantidin virðast
ekki virka sem skyldi á fuglaflensu-
veiruna á sama máta og nýrri
inflúensulyf eins og Relenza frá
GlaxoSmithKline,“ segir í fréttatil-
kynningu vegna samningsins.
Fram kemur í tilkynningunni að
samkomulagið felur í sér að GSK
muni eiga til á hverjum tíma um
3.000 pakka af inflúensulyfinu Rel-
enza vegna neyðarbirgðahalds gegn
hættulegum inflúensufaraldri eins
og fuglaflensu. Hver pakki inniheld-
ur 20 skammta af zanamvivir 5 mg
sem duga til 5 daga meðferðar eða 10
daga fyrirbyggjandi meðferðar.
Þessar birgðir standa sóttvarna-
lækni til boða á afsláttarverði þegar
og ef þörf krefur. Heilbrigðisyfirvöld
greiða fyrir þau lyf sem ákveðið er
að kaupa vegna hugsanlegs neyðar-
ástands en GSK fjármagnar og held-
ur birgðir af tilteknu magni af Rel-
enza á hverjum tíma. Andvirði
þessara birgða er um 6 milljónir
króna.
Heilbrigðisráðuneytið hefur að því
er segir í tilkynningunni ákveðið að
apótek Landsspítala – háskóla-
sjúkrahúss (LSH) taki að sér sér-
tækt birgðahald lyfja sem tengjast
meðferð eða viðbrögðum við vá af
völdum sýkla, eiturefna eða geisla-
virkra efna í samráði við sóttvarna-
lækni. Komi til neyðarástands skulu
lyfjabirgðirnar sem GSK hefur
skuldbundið sig til að hafa á lager til
afgreiðslu til heilbrigðisyfirvalda
verða í umsjá apóteks LSH, sam-
kvæmt fyrirmælum sóttvarnalæknis
og í umboði ráðherra.
WHO vill áætlanir um viðbrögð
„Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
(WHO) hefur hvatt til þess að allar
þjóðir heims geri áætlanir um við-
brögð við heimssótt af völdum inflú-
ensu. Fram hefur komið hjá Haraldi
Briem sóttvarnalækni að eins og
málum er nú háttað er talið að við
séum á milli heimssótta, nánar til-
tekið á svokölluðu viðbragðsstigi 2.
Það þýðir að nýr stofn inflúensu hef-
ur greinst í mönnum en ekki hefur
verið sýnt fram á að hann berist milli
manna. Á þessu viðbúnaðarstigi er
hins vegar nauðsynlegt að huga að
viðbúnaði við hugsanlegri heimssótt
sem getur verið yfirvofandi og sem
almennt er talið að komi fyrr eða síð-
ar,“ segir í fréttatilkynningunni.
Sóttvarnalæknir semur við fyrirtækið GlaxoSmithKline ehf.
Neyðarbirgðir af inflúensu-
lyfjum ávallt til í landinu
Haraldur Briem sóttvarnalæknir (t.v.) og Hjörleifur Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri GlaxoSmithKline, við hluta af umsömdum neyðarbirgðum.
ÞAÐ gilda ekki bara leikreglur í fót-
og handbolta. Um skattskil gilda
einnig reglur og hefur ríkisskatt-
stjóri, í samvinnu við Íþrótta- og
ólympíusamband Íslands, gefið út
leiðbeiningar um skattskyldu íþrótta-
félaga, sem ætlað er að hjálpa þeim
sem sjá um bókhald og rekstur
íþróttafélaga og deilda að fóta sig við
framtalsgerð og skil á skatti.
Íþróttahreyfingin er skattfrjáls að
mestu leyti, en greiðir tryggingagjald
og staðgreiðslu af launum starfs-
manna sinna, auk þess sem greiða
þarf virðisaukaskatt af samkeppnis-
rekstri á borð við sölu veitinga.
Á blaðamannafundi þar sem bæk-
lingurinn var kynntur sagði Ellert B.
Schram, forseti ÍSÍ, að stundum hefði
það verið ákveðið vandamál fyrir
íþróttafélög að henda reiður á skatta-
legum skyldum og fara með bókhald
og rekstur íþróttadeilda og félaga.
Hann sagði að stöðugt þyrfti að
minna á þær reglur sem í gildi væru,
þar sem mannabreytingar væru tíðar
hjá íþróttahreyfingunni. Því hefði ÍSÍ
haft forgöngu um að skipaður yrði
starfshópur til að taka þessar reglur
saman.
Velta íþróttahreyfingarinnar
um 6,5–7 milljarðar króna
Indriði H. Þorláksson ríkisskatt-
stjóri sagði það mikið ánægjuefni að
ÍSÍ hefði leitað til skattayfirvalda
vegna þessa verkefnis. „Með þessu er
í sjálfu sér ekki verið að setja neinar
nýjar reglur heldur er tilgangurinn
fyrst og fremst að koma upplýsing-
unum á framfæri við alla viðkomandi
aðila, þannig að þeir viti hvað er rétt
og hvernig á að standa að málunum,“
sagði Indriði.
Ríkisskattstjóri sagði veltu
íþróttahreyfingarinnar mikla og að
margir kæmu þar að rekstrinum.
„Það er ekki hægt að gera þá kröfu að
þeir sem hafa áhuga á íþróttaiðkun
og félagsmálum kunni öll skil á
skattamálum líka,“ sagði Indriði.
Á fundinum kom fram að áætluð
velta hreyfingarinnar á árinu 2003
væri 6,5–7 milljarðar króna.
Í bæklingnum er fjallað um starf-
semi íþróttafélaga og hinar ýmsu
tekjulindir. Þar kemur t.d. fram að
félagsgjöld, leikjanámskeið og tekjur
af dósasöfnun eru undanþegin skatti,
sem og aðgangseyrir að íþróttamót-
um og annarri íþróttatengdri starf-
semi og greiðslur frá einu íþrótta-
félagi til annars vegna félagaskipta
íþróttamanna. Íþróttafélögum ber þó
að greiða virðisaukaskatt af rekstri
verslunar og veitingasölu og inn-
heimta staðgreiðslu af launum laun-
þega sinna og greiða tryggingar-
gjald.
Geta sætt refsiábyrgð
Alls starfa um 1.000 starfseiningar
á vegum ÍSÍ. 27 íþróttafélög, 24 sér-
sambönd, 450 félög og nokkur hundr-
uð deildir. Á fundinum kom einnig
fram sú von að bæklingurinn yrði til
þess að þeir sem taka að sér störf í
þágu íþróttahreyfingarinnar gerðu
sér grein fyrir ábyrgðinni sem þeir
tækjust á hendur. Í bæklingnum
kemur fram að stjórnarmenn og
framkvæmdastjórar íþróttafélag-
anna beri ábyrgð á framtals- og
skýrsluskilum félaganna til skatts.
„Verði uppvís brot á skattalögum
geta bæði viðkomandi íþróttafélög og
forsvarsmenn þeirra sætt refsi-
ábyrgð,“ segir í bæklingnum.
Skattaleikreglur íþróttahreyfing-
arinnar gefnar út í bæklingi
VESTUR-HÚNVETNSK mær,
Sigríður Ólafsdóttir, bar sigur úr
býtum í skeifukeppninni á Hvann-
eyri á sumardaginn fyrsta og hlaut
að launum hina eftirsóttu Morgun-
blaðsskeifu. Viðfangsefni Sigríðar í
tamningum vetrarins var Skrámur
frá Innri-Skeljabrekku, borgfirskt
gæðingsefni. Sigríður hlaut einnig
ásetuverðlaun Félags tamninga-
manna. Í öðru sæti varð Þórunn Eyj-
ólfsdóttir en hún tamdi og sýndi á
skeifudaginn Ketil frá Starrastöðum
og í þriðja sæti varð svo Jóhann Þor-
steinsson á Prinsessu frá Álftagerði
en hann hlaut einnig Eiðfaxabikar-
inn sem veittur er fyrir bestu um-
hirðu á tamningatrippi. Hesta-
mannafélag nemenda á Hvanneyri,
Grani, er fimmtugt á árinu og var af
því tilefni meira við haft en venja er á
skeifudeginum á Hvanneyri.
Heiðursgestur afmælisins var
Ágúst Sigurðsson hrossaræktar-
ráðunautur en hann er fyrrverandi
félagi í Grana og tók þátt í skeifu-
keppninni á sínum tíma. Þá var hald-
in gæðingakeppni félagsins eins og
venja er til á skeifudegi.
Kvenna-
veldi á
Hvanneyri
Morgunblaðið/Vakri
Keppt um
Morgunblaðsskeifuna
RÆTT hefur verið um nokkrar út-
færslur á legu nýs Gjábakkavegar
milli Þingvalla og Laugarvatns sam-
kvæmt matsáætlun Vegagerðarinn-
ar. Eru þær merktar inn á meðfylgj-
andi korti.
Sveitarfélögin Bláskógabyggð og
Grímsnes- og Grafningshreppur
hafa viljað fara svonefnda leið 12 í
matsáætluninni með tengingu við
núverandi Þingvallaveg við Gjá-
bakka. Björn Bjarnason, dómsmála-
ráðherra og formaður Þingvalla-
nefndar, hefur sagt að sú leið skeri
Gjábakkalandið og þar með þjóð-
garðinn. Nefndin samþykki hana
ekki og líklegt sé að farin verði leið 7
í tillögum Vegagerðarinnar. Er hún
um 2 km lengri en leið 12 og kemur
að Þingvallavegi við Miðfell.
Útfærslur á legu
nýs Gjábakkavegar
!
"#
$
%
&
'&
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur úr-
skurðaði á miðvikudag rúmlega tví-
tugan karlmann í áframhaldandi
gæsluvarðhald til 2. júní, vegna
grófrar líkamsárásar á sextán ára
dreng snemma í apríl. Maðurinn var
úrskurðaður í síbrotagæslu þar til
dómur gengur í máli hans, þó ekki
lengur en til 2. júní.
Maðurinn var nýkominn á
reynslulausn eftir 10 mánaða afplán-
un 2 ára fangelsisdóms fyrir aðra
grófa líkamsárás við Skeljagranda í
ágúst 2002, auk gæsluvarðhalds,
þegar hann réðst á drenginn. Í kjöl-
farið hafnaði héraðsdómur gæslu-
varðhaldskröfu lögreglunnar en
skömmu síðar var maðurinn hand-
tekinn vegna enn annarrar líkams-
árásar og þá úrskurðaður í gæslu-
varðhald.
Úrskurð-
aður í sí-
brotagæslu
BROTIST var inn í veitingastaðinn
Víkina á Höfn í Hornafirði í fyrrinótt
á bilinu. Stolið var áfengi og dýrum
skjávarpa auk fleiri verðmæta. Lög-
reglan á Höfn rannsakar málið og
biður þá sem urðu varir við manna-
ferðir við veitingastaðinn í fyrrinótt
að hafa samband.
Brotist inn
í Víkina
ÖKUMAÐUR bifreiðar var fluttur á
Heilsugæsluna á Egilsstöðum í gær
eftir bílveltu við Urriðavatn. Meiðsli
hans voru talin minniháttar en bif-
reiðin, sem valt a.m.k. einn hring og
lenti á hjólunum utan vegar, er ónýt
að sögn lögreglu.
Bílvelta á
Egilsstöðum
♦♦♦
♦♦♦
PILTUR á skellinöðru ók á 11 ára
dreng við Rimaskóla í gær og var
hann fluttur á slysdeild í sjúkra-
bifreið með heilahristing, að því er
talið var. Ökumaðurinn er sextán
ára og var á bifhjólinu á göngustíg
við skólann en slíkt er óheimilt.
Lögreglan fór þess á leit við borg-
aryfirvöld að loka göngustígnum til
að fyrirbyggja slysahættu af þessu
tagi.
Varð fyrir
skellinöðru