Morgunblaðið - 24.04.2004, Page 13

Morgunblaðið - 24.04.2004, Page 13
ÚR VERINU MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 13 Málshefjendur á þinginu verða: Emil Thoroddsen, framkvæmdastjóri Gigtarfélags Íslands, Eggert Skúlason frá Landssamtökum hjartasjúklinga, Ingunn Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Lyfjafræ›ingafélagsins, Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erf›agreiningar, Pétur Hauksson ge›læknir, Einar Magnússon yfirlyfjafræ›ingur Heilbig›isrá›uneytisins og Matthías Halldórsson a›sto›arlandlæknir. Fundarmönnum gefst kostur á a› koma fyrirspurnum til frummælenda. Fundarstjóri: Hulda Gunnarsdóttir fréttama›ur. Öryrkjabandalag Íslands boðar til málþings á Hótel Sögu, Súlnasal, laugardaginn 24. apríl kl. 10 - 12. Umræ›uefni er sta›a sjúklinga á Íslandi í samskiptum vi› heilbrig›isyfirvöld vegna rá›ger›ra ver›hækkana á lyfjum til notenda 1. maí. Verður tvöfalt heilbrigðiskerfi að veruleika á Íslandi á baráttudegi verkalýðsins 1. maí? Öryrkjabandalag Íslands samanstendur af eftirtöldum félögum: ADHD samtökin; Alnæmissamtökin á Íslandi; Blindrafélagið; Blindravinafélag Íslands; Daufblindrafélag Íslands; FAAS - Félag aðstandenda Alzheimersjúklinga; Félag heyrnarlausra; Félag lesblindra; Félag nýrnasjúkra; Foreldra- og styrktarfélag heyrnardaufra; Geðhjálp; Geðverndarfélag Íslands; Gigtarfélag Íslands; Heyrnahjálp; LAUF-Landssamtök áhugafólks um flogaveiki; Málbjörg; MG-félag Íslands; MND-félag Íslands; MS-félag Íslands; Parkinsonsamtökin á Íslandi; Samtök psoriasis og exemsjúklinga; Samtök sykursjúkra; SEM - Samtök endurhæfðra mænuskaddaðra; SÍBS -Astma- og ofnæmisfélagið, - Samtök lungnasjúklinga, -Landsamtök hjartasjúklinga; Sjálfsbjörg; Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra; Styrktarfélag vangefinna; Tourette samtökin; Umsjónarfélag einhverfra. Á SÍÐASTA ári var settur upp við bræðslu Vinnslustöðvarinnar í Vest- mannaeyjum rafskautaketill sem gerir þeim kleift að kaupa afgangs- orku og lækka þar með orkukostnað sinn. Um leið fá þeir meiri orku frá Hitaveitu Suðurnesja sem þeir skila að nokkru leyti til baka inn á hita- veitukerfi bæjarins. Loðnuvertíðin sem nú er nýlokið er önnur í röðinni þar sem þessari tækni er beitt og segir Jónas Berg- steinsson rafvirki að þetta komi vel út. „Þetta virkar þannig að raf- skautaketillinn er kyntur upp með rafmagni, afgangsorku sem er keypt af Hitaveitu Suðurnesja. Hann getur framleitt um 12 megavött en vanaleg keyrsla er sex til átta megavött. Hann framleiðir gufu sem er notuð í verksmiðjunni hjá okkur, meðal ann- ars til að þurrka mjöl. Uppgufunin þaðan og afgangsorkan fer inn í soð- kjarnatæki og afgangsorkan úr þeim er notuð til að hita upp vatnið frá bænum. Við fáum það inn þrjátíu og fimm gráða heitt en skilum því aftur út í kerfið í bænum um sjötíu og fimm gráða heitu. Við höfum skilað til baka þremur til fjórum megavött- um en gætum líklega skilað meiru en Hitaveita Suðurnesja hefur ekki get- að tekið við því. Einstaka sinnum höfum við farið upp í rúm fimm megavött en ég gæti trúað að hægt væri að framleiða sex megavött.“ Ná meiri orku út úr kerfinu Með því að endurvinna orkuna og setja hana aftur út í kerfið gefst færi á að ná meiri orku út úr kerfinu. „Við lækkum aflið á rafskautakatlinum hjá Hitaveitunni sem nemur því sem við framleiðum hverju sinni. Þeir geta flutt 22 megavött hingað og ef við leggjum þrjú megavött til baka náum við meiri orku út úr þeirra kerfi.“ Mesti sparnaðurinn liggur þó lík- lega í því að með þessari orku þurfa Vinnslustöðvarmenn minna að nota olíukyndingu. „Það sparast talsvert í olíukostnaði, þetta er miklu ódýrara, við fáum betri nýtingu úr þessu og svo er þetta að sjálfsögðu mun um- hverfisvænna en olíukynding. Auk þess erum við að nýta orku sem ann- ars yrði hent.“ Jónas sagði þetta hafa verið í þró- un lengi og starfsmenn FES, bræðslu Ísfélagsins hafa nýtt auka- orku um nokkurt skeið þó það sé ekki í eins miklum mæli og Vinnslu- stöðvarmenn gera nú. Páll Sigurðs- son verkfræðingur hannaði þetta, bæði í Vinnslustöðinni og Ísfélaginu. Kynda eigið húsnæði „Þetta væri ekki hægt nema vegna þess að það er svokallað hringrásarkerfi hjá Hitaveitu Suður- nesja sem gerir það að verkum að þú ert alltaf að hita upp sama vatnið.“ Þó að þetta sé aðeins annar vet- urinn sem þetta kerfi er notað eru Vinnslustöðvarmenn ekki að stíga sín fyrstu skref í að setja upp hita- veitu. „Við höfum hitað upp hús Vinnslustöðvarinnar síðustu sjö eða átta ár þegar verksmiðjan er í gangi. Þar erum við að nota þéttivatn sem við myndum annars henda. Það þarf talsvert mikið til að kynda stöðina enda gríðarlega stór og öll meira og minna óeinangruð.“ Létta undir með hita- veitunni Bræðsla Vinnslu- stöðvarinnar skil- ar allt að þremur megavöttum til baka inn í hita- kerfi bæjarins Vestmannaeyjum. Morgunblaðið. Aukin orka Jónas Bergsteinsson, rafvirki við fiskimjölsverksmiðju Vinnslustöðvarinnar í Eyjum, segir nýja aðferð auka orku. RÁÐSTEFNA á vegum sjávarút- vegsráðuneytisins og Útflutnings- ráðs Íslands verður haldin næstkom- andi fimmtudag, 29. apríl í Salnum í Kópavogi klukkan 13.30 til 17.00. Yfirskrift ráðstefnunnar er Sótt á ný mið, tækifæri sjávarútvegsins og leitazt verður við að svara þeirri spurningu hvort sjávarútvegurinn geti nýtt sér þekkingu annarra at- vinnugreina í þeim tilgangi að efla útrásina enn frekar. Árni M. Mathiesen, sjávarútvegs- ráðherra, setur ráðstefnuna, en síð- an koma framsöguerindi. Kristján Þ. Davíðsson, forstjóri Granda, ræðir um tækifæri á fjarlægum slóðum, Jón Scheving Thorsteinsson, fram- kvæmdastjóri AREV og Sindri Sindrason, viðskiptafræðingur meta það hvaða lærdóm sjávarútvegurinn geti dregið af útrás annarra atvinnu- greina, Pétur Einarsson, forstöðu- maður fjárfestinga- og alþjóðasviðs Íslandsbanka, ræðir um arðsemi og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri segir að margt beri að var- ast í útrásargleðinni. Að loknu kaffihléi verða pallborðs- umræður með Sighvati Bjarnasyni stjórnarformanni Jekafish, Arnari Viðari Skúlasyni forstjóra SÍF o.fl. Sótt á ný mið Rætt um tækifæri sjávarútvegsins

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.