Morgunblaðið - 24.04.2004, Page 16
ERLENT
16 LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
LJÓSMYNDIR af kistum með líkum banda-
rískra hermanna, sem fallið hafa í Írak, voru
birtar í blaðinu Seattle Times um síðustu
helgi og hefur varnarmálaráðuneytið í Wash-
ington mótmælt því harðlega. Ráðuneytið af-
henti einnig einstaklingi slíkar myndir eftir
að hann hafði fengið til þess dómsúrskurð.
Hann setti nær 360 myndir á heimasíðu sína,
memoryhole.org.
Opinber birting mynda af þessu tagi er í
andstöðu við stefnu ráðuneytisins sem hefur
frá 1991 ekki látið fjölmiðla hafa fregnir af
líkflutningum af orrustuvelli.
„Meginmarkmið þessarar stefnu er að verða
þannig við óskum aðstandenda og vernda
einkalíf þeirra þegar þeir takast á við mesta
missi og sorg sem þeir verða fyrir í lífinu,“
sagði talsmaður ráðuneytisins. John Molina,
aðstoðarvarnarmálaráðherra, sagði að reynt
væri að koma í veg fyrir að aðstandendur
yrðu þvingaðir til að sæta athygli sem þeir
bæðu ekki um og gæti verið óvirðing við þá.
„Þurfum að hætta að fela
dauða unga fólksins okkar“
Andstæðingar Íraksstríðsins og sumir af að-
standendum fallinna hermanna hafa á hinn
bóginn andmælt þessari stefnu. Segja þeir að
með leyndinni sé verið að reyna að draga at-
hygli almennings í landinu frá mannfallinu.
„Við þurfum að hætta að fela dauða unga
fólksins okkar,“ sagði Jane Bright frá Kali-
forníu en hún missti son sinn í bardaga í
fyrra.
Tami Silicio, starfsmaður einkarekins fyr-
irtækis sem er undirverktaki hjá bandaríska
hernum, tók að sögn Seattle Times mynd-
irnar. Þær sýna kistur, sveipaðar bandaríska
fánanum, þegar verið er að flytja þær um
borð í flutningaþotu í Kúveit. Silicio var rekin
þegar upp komst að hún hafði látið blaðið
hafa myndirnar.
Að sögn fréttavefjar breska ríkisútvarpsins,
BBC, fékk stríðsandstæðingurinn Russ Kick
dómsúrskurð til að þvinga varnarmálaráðu-
neytið til að afhenda sér nokkur hundruð
myndir af kistum sem fluttar höfðu verið til
Dover-herbækistöðvarinnar í Delaware en þar
er stærsta líkhús hersins. Úrskurðurinn
byggðist á lögum um upplýsingaskyldu stjórn-
valda en mikil reiði er sögð ríkja í ráðuneyt-
inu í garð Kicks fyrir að birta myndirnar á
Netinu. Hefur verið ákveðið að afhenda ekki
fleiri myndir.
Reuters
Kistur með líkamsleifum bandarískra hermanna, sem féllu í Írak, í bækistöð Bandaríkjahers í Delaware. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Mótmæla myndum af líkkistum
Bandaríska varnarmálaráðuneytið reiðist manni sem setti myndir á Netið
af kistum hermanna sem fallið hafa í Írak á undanförnum mánuðum
Washington. AFP.
BANDARÍKJAMENN hyggjast
hverfa frá þeirri stefnu sem þeir
mótuðu á síðasta ári að engir fyrr-
verandi liðsmenn
Baath-flokksins í
Írak, stjórnar-
flokks landsins í
forsetatíð Sadd-
ams Husseins,
skuli gjaldgengir
í embætti emb-
ættismanna í hinu
nýja Írak.
Flestir sem
störfuðu hjá hinu
opinbera í tíð Saddams neyddust til
að skrá sig í Baath-flokkinn. Þegar
Bandaríkjamenn tóku völdin í Írak
fyrir ári var þessu fólki í flestum til-
fellum vikið frá störfum. Þetta olli
mikilli óánægju meðal þeirra, sem
misstu vinnuna, og hefur þar að auki
síðan valdið því að sárlega hefur
skort hæfa millistjórnendur til að
manna embættismannakerfið í Írak,
skóla og sjúkrahús.
Þá olli ákvörðunin því að súnní-
múslímar lentu mjög upp á kant við
bandarísku landstjórnina, en flestir
embættismannanna í tíð Saddams
voru súnnítar, jafnvel þó að þeir séu
færri en sjía-múslímirnir í Írak. Með
því að gera breytingar nú eru
Bandaríkjamenn því að vona, að
súnnítar í Írak taki landstjórnina í
sátt. Þeir viðurkenna raunar, að ekki
sé víst að ákvörðunin nú verði til að
andspyrna gegn hernámsliðinu
bandaríska gufi upp en telja þó að
þetta geti orðið til að draga úr stuðn-
ingi við íraska andspyrnumenn.
Sex hershöfðingjar ráðnir
„Í hinu nýja Írak er ekkert pláss
fyrir hugmyndafræði Baath-flokks-
ins eða fyrir flesta þá sem fylltu
æðstu stöður ríkisins og tengdust
beint glæpum og grimmdarverkum
Baath-stjórnarinnar,“ sagði Dan
Senor, talsmaður bandarísku land-
stjórnarinnar í Bagdad á fimmtudag.
Senor viðurkenndi hins vegar
einnig að þó að rétt væri að eyða
áhrifum Baath-flokksins með öllu þá
þyrfti að endurskoða framkvæmd
þess verkefnis. „Stefnan hefur
stundum útilokað saklausa, hæfa
einstaklinga, sem aðeins voru Baath-
istar að nafninu til, frá því að leika
uppbyggilegt hlutverk í uppbygg-
ingu Íraks,“ sagði Senor.
Paul Bremer, landstjórinn í Írak,
kynnti tillögur sínar í ávarpi á ír-
askri sjónvarpsstöð í gær. Fram
kom m.a. hjá honum að þegar væri
búið að ráða sex hershöfðingja úr
forsetatíð Saddams til starfa en sár-
lega hefur vantað hæfa stjórnendur
til að fara fyrir nýjum hersveitum,
sem Bandaríkjamenn eru að þjálfa.
Lögð er hins vegar áhersla á að
engir fái að snúa aftur sem gerst hafi
sekir um glæpsamlegt athæfi.
Bremer hefur verið gagnrýndur
fyrir að hafa leyst upp íraska herinn
í heild sinni síðasta vor og því vekur
ákvörðun hans nú athygli. „Sú
ákvörðun að hreinsa kerfið af Baath-
istum var réttmæt,“ sagði hann í gær
en viðurkenndi að kvartanir um að
stefnunni hefði oft og tíðum verið
framfylgt á „ójafnan og ósanngjarn-
an“ hátt ættu við rök að styðjast.
Það var eitt fyrsta verk Bremer,
þegar hann kom til starfa sem land-
stjóri yfir Írak í maí á síðasta ári, að
fyrirskipa hreinsanir hjá hinu opin-
bera, þ.e. að allir liðsmenn Baath-
flokksins skyldu reknir. Þetta gerði
hann að undirlagi Ahmeds Chalabi,
leiðtoga Íraska þjóðarráðsins,
áhrifamestu samtaka útlægra Íraka.
Með tilskipun Bremers var Baath-
flokkurinn formlega leystur upp og
liðsmenn hans útilokaðir frá störfum
á vegum hins opinbera. Um þrjátíu
þúsund embættismenn voru því
reknir og gert er ráð fyrir því að sú
tala tvöfaldist.
Brahimi gagnrýndi stefnuna
Lakhdar Brahimi, sérlegur sendi-
maður framkvæmdastjóra Samein-
uðu þjóðanna, gagnrýndi þetta ferli
nýverið, þegar hann heimsótti Írak.
Hægt gengi að taka fyrir beiðnir
þeirra sem misstu vinnuna og vilja
að sín mál verði endurskoðuð. Auk
þess sem erfitt væri að skilja hvers
vegna kennarar, háskólaprófessor-
ar, verkfræðingar, læknar og annað
starfsfólk sjúkrahúsa hefðu þurft að
víkja; einkum og sér í lagi þar sem
þessa fólks væri sárt saknað. Víst
mætti telja að það gæti spilað stóra
rullu í því að koma Írak á réttan kjöl.
Horfið frá stefnu um
allsherjarhreinsanir
Sumir fyrrverandi Baath-liðar fá að
gegna störfum hjá hinu opinbera
Paul
Bremer
Bagdad, Washington. AFP.
ÍRASKI sjíta-klerkurinn Moqtada al-
Sadr, sem hefur að undanförnu leitt
andspyrnu sjíta gegn hernámsliðinu í
Írak, hótaði í gær
að grípa til sjálfs-
morðsárása ef
bandarískir her-
menn réðust inn í
helgar borgir sjíta
í landinu. Al-Sadr
hefur sjálfur búið
um sig í Najaf,
einni þessara
helgu borga, og
hefur Bandaríkja-
her setið um borgina undanfarnar
vikur.
„Ef við neyðumst til að verja borgir
okkar munum við grípa til sjálfs-
morðsaðgerða og við verðum
mennskar tímasprengjur sem
springa framan í andlit þeirra,“ sagði
al-Sadr í vikulegri prédikun sinni í
Kufa, skammt frá Najaf. „Við eigum
næg vopn og mikinn fjölda fylgis-
manna og margir trúaðir menn eru
reiðubúnir til að fremja sjálfsmorðs-
árásir,“ sagði al-Sadr.
„Fram til þessa höfum við hafnað
þessum kosti,“ bætti hann við. „En ef
við erum neyddir til þess þá munum
við gera það.“
Varað við uppreisn í Fallujah
Á sama tíma og al-Sadr lét þessi
orð falla kom til átaka í Karbala, ann-
arri helgri borg sjía-múslíma, milli
fylgismanna hans og hersveita sem
skipaðar eru pólskum, búlgörskum,
litháenskum og lettneskum hermönn-
um. Að minnsta kosti tíu særðust í
átökunum, sem stóðu í um þrjátíu
mínútur; einn íranskur pílagrímur,
fjórir óbreyttir borgarar og fimm
liðsmenn sveita al-Sadrs.
Þá varaði einn leiðtoga súnní-músl-
íma, Sheikh Ahmad Abdel Ghafur
Samarrai, við því að ef hernámsliðið í
Írak réðist á nýjan leik til atlögu í
borginni Fallujah mætti búast við
allsherjar uppreisn. Forystumenn
hernámsliðsins hafa sagt að and-
spyrnumenn í Fallujah yrðu undir-
eins að byrja að afhenda þungavopn
sín, í samræmi við vopnahléssáttmála
sem var gerður í síðustu viku.
Hótar
sjálfs-
morðs-
árásum
Karbala. AFP.
Moqtada
al-Sadr
SVEND Aage Jensby, varnarmála-
ráðherra Danmerkur, hefur sagt af
sér embætti. Eru viðbrögð danskra
stjórnmálamanna almennt þau, að
hann hafi ekki átt um annað velja
eftir ákaflega misvísandi yfirlýsing-
ar og jafnvel trúnaðarbrot.
Jensby tilkynnti þetta eftir að
hafa átt fund með Anders Fogh
Rasmussen forsætisráðherra en að
sögn Jyllands-Posten mun Søren
Gade taka við af honum.
Jan Trøjborg, fyrrverandi varnar-
málaráðherra í stjórn jafnaðar-
manna, sagði, að Jensby hefði ekki
átt annars úrkosti og myndi afsögn
hans vafalaust greiða fyrir samstöðu
á þingi um varnarmálin. Pia
Kjærsgaard, leiðtogi Danska þjóðar-
flokksins, tók undir það og Villy
Søvndal, talsmaður Sósíalíska þjóð-
arflokksins, kvaðst vera mjög
ánægður með ákvörðun Jensbys.
„Eins og komið var, gat hann ekki
annað gert. Hann hefur logið til um
Íraksmál og leyniskýrslur og átt í
erfiðleikum bæði gagnvart lögum
um ráðherraábyrgð og um trúnaðar-
skyldu,“ sagði Søvndal, sem telur þó
ekki, að afsögnin sé mikið áfall fyrir
ríkisstjórnina.
Danmörk
Ráðherra
segir af sér
♦♦♦