Morgunblaðið - 24.04.2004, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 24.04.2004, Qupperneq 22
SUÐURNES 22 LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Grindavík | Það er alltaf mikil þátttaka hjá krökkunum í víðavangshlaupinu á sumardaginn fyrsta. Eins og áður eru það yngstu krakkarnir sem eru dug- legust að mæta enda mætingabikar í boði í skólanum. Allir þátttakendur fengu verðlaunapening auk þess að þrír efstu í hverjum aldursflokki fá sérstaka viðurkenningu. Veðrið lék við heimamenn og margir hlauparar voru á stuttbuxum í blíðunni. „Já ég held að þetta sé met hjá okkur enda veðrið frá- bært. Sigurvegarar í bekkjarkeppninni þ.e. sá bekkur sem mætti best er 4-L en þau unnu einnig í fyrra“, sagði Erna Lind Rögnvaldsdóttir, íþróttakennari. Morgunblaðið/Garðar Víðavangs- hlaup í blíðunni Reykjanesbær | Á morgun, laug- ardag, og á sunnudag efnir Knatt- spyrnudeild Keflavíkur til bíla- og þjónustusýningar í Reykjaneshöll- inni þar sem allt að 25 aðilar munu sýna vörur sínar og þjónustu. Meðal annars verða á staðnum öll stærstu bílaumboð landsins og þjónustuað- ilar fyrir bílaeigendur. Allt að 80 ný- ir bílar verða til sýnis og koma sumir þeirra fyrir augu almennings á Ís- landi í fyrsta sinn. Þá verða nokkrar gerðir af fágætum bílum til sýnis. Sýningin er opin báða daga milli kl. 10 og 18 en sérstök skemmti- dagskrá verður milli 14 og 16 þar sem fjölmargir tónlistarmenn koma fram. Aðgangur er ókeypis.    Reykjanesbær | Átak verður gert í hreinsun á Fitjum, framtíðarútivist- arsvæði íbúa í Reykjanesbæ, sunnu- daginn 25. apríl nk. í tilefni af degi umhverfisins. Eru íbúar hvattir til að mæta við Steypustöð Suðurnesja en hreinsun hefst kl. 13 og stendur til 16. Mun starfsfólk Þjónustumiðstöðvar Reykjanesbæjar leggja til áhöld til verksins og er fólk hvatt til að klæða sig vel og hafa með sér stígvél.    Miðnesheiði | Utanríkisráðuneytið hefur farið þess á leit við Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli að mannvirki gömlu ratsjárstöðvarinnar Rockville á Miðnesheiði sem hafi að geyma hættuleg spilliefni eða þar sem fólki er að öðru leyti hætta búin verði lok- uð þar til þau hafi verið rifin. Brögð eru að því að börn og ungmenni hafi gert sér að leik að fara inn á svæðið og hefur bæjarstjóri Sandgerðisbæj- ar sagt að svæðið sé stórhættulegt og aðeins tímaspursmál hvenær slys verði á fólki. Meðal annars sé þar að finna sýrugeyma og olíutanka og greið leið sé fyrir fólk inn í mann- virkin. Utanríkisráðuneytið hefur ítrekað óskað eftir því við Varnarliðið að húsin verði fjarlægð en Varnarliðið segir að ekki séu til fjármunir til verksins. Svæðið aftur í hendur Íslend- inga að lokinni hreinsun Að sögn Matthíasar Pálssonar, fulltrúa á varnarmálaskrifstofu ut- anríkisráðuneytisins, ræddi skrif- stofustjóri varnarmálaskrifstofu við fulltrúa Varnarliðsins síðast í þessari viku þar sem lagt er til að húsunum verði lokað og hefur Varnarliðið sagst munu verða við því. Þá hefur lögregla skerpt eftirlit með svæðinu auk þess sem Varnarliðið sinnir eft- irliti á þessum slóðum. Að sögn Matthíasar er þó enn óráðið hvenær mannvirkin verða rifin eins og gerð sé krafa um af hálfu íslenskra stjórn- valda. Svæðið sé nú aftur í umsjá Varnarliðsins eftir að heimili Byrg- isins var lokað og gert sé ráð fyrir að svæðið verði aftur afhent íslenskum stjórnvöldum þegar hreinsun sé lok- ið. Að sögn Matthíasar liggur fyrir að kannað verði hvort jarðvegs- mengun sé á svæðinu og hvort asb- estmengun sé í húsunum. Rætt við Varnarliðið um Rockville Húsun- um lokað og eftir- lit hert Reykjanesbær | Hermann Árnason alþýðulistamaður opnar sína fimmtu einkasýningu undir yfirskriftinni „Óbeisluð útrás“ í tískuvöruversl- uninni Persónu, Hafnargötu 29, kl. 16 í dag. Hermann sýnir 12 verk sem öll eru unnin með blandaðri tækni. Reykjanesbær | „Það er ekki nokkur spurning að verk- efnið hefur skilað skipulagðari vinnubrögðum og breyttu verklagi í leikskólum bæjarins og ég hef líka merkt það í grunnskólunum þar sem ég hef náð að fylgjast með,“ sagði Guðríður Helgadóttir, leikskólafulltrúi Reykjanes- bæjar um verkefnið „Lestrarmenning í Reykjanesbæ“. Alla næstu viku gefst foreldrum og forráðamönnum kostur á að koma með börn fædd 2002 á safnið til að fá bók að gjöf. Hófst fyrir ári Verkefnið „Lestrarmenning í Reykjanesbæ“ hófst fyrir ári á Degi bókarinnar 23. apríl 2003. Umsjón með því hefur Fræðsluskrifstofa Reykjanesbæjar en það nær til heimila, leik- og grunnskóla, bókasafns, fjölskyldu- og félagsþjónustu, heilsugæslu, menningar- og tómstunda- starfs bæjarins, en einnig til fyrirtækja, stofnana og fé- lagasamtaka í Reykjanesbæ. Hvað þáttöku almennings áhærir hefur lestrarkeðja verið í gangi í allan vetur þar sem fyrirtæki skora á hvert annað að lesa fyrir starfs- menn í kaffitíma. Þá hefur Guðni Kolbeinsson, íslensku- fræðingur og sérlegur sendiboði verkefnisins haldið er- indi í klúbbum og félagasamtökum við góðan orðstír og Stefán Jónsson frístundamálari hannað merki fyrir verk- efnið sem sett verður á penna og barmmerki til gjafa. Þá hefur verkefnið ekki síst verið umfangsmikið í leik- og grunnskólum bæjarins. „Ég held að mér sé óhætt að fullyrða að það hafi verið tekið upp annað verklag bæði í leik- og grunnskólunum og hvað leikskólana varðar hef- ur lestrarmenning verið tekin fastari tökum,“ sagði Guð- ríður Helgadóttir, leikskólafulltrúi á Fræðsluskrifstof- unni. Mál- og lesþroski efldur Nýja verklagið snýst að miklu leyti um að efla mál- og lesþroska barna. Í leikskólunum er greiningartækið „HLJÓM “ notað til að árangursmæla börn á þessu sviði og síðan er athyglinni beint að þeim þáttum þar sem þau eru veikust fyrir. Eftir að lestrarmenningarverkefnið hófst hefur móðurmálskennsla í kjölfar greiningarinnar verið tekin fastari tökum. Leikskólabörn fá bók að gjöf á hverju vori á meðan verkefnið stendur yfir. Í fyrra fengu öll börn á aldrinum 2ja til 6 ára bækur sem hæfði þeirra aldri en í ár fá öll börn fædd 2002 bókina „Svona stór“ eftir Þóru Másdótt- ur. Bókin er valin af leikskólakennurum í Reykjanesbæ. Verkefnið „Lestrarmenning í Reykjanesbæ“ eins árs Öll börn fædd 2002 fá bókina „Svona stór“ Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Kristbjörg Perla og Kári á leikskólanum Holti fengu góðar gjafir frá Guðbjörgu Sveinsdóttur og Guðríði Helgadóttur hjá Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.