Morgunblaðið - 24.04.2004, Qupperneq 23
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 23
Kynning
í kringlunni
um helgina
Nýr lífsstíll í miðborginni
Komdu og kynntu þér málið
www.101skuggi.is
Fyrsti áfangi í 101 Skuggahverfi kominn undir þak
Kostir íbúða í 101 Skuggahverfi eru m.a.:
• Alþjóðleg hönnun
• Stórbrotið útsýni
• Tólf mismunandi íbúðagerðir
• Fjölbreytileiki í útfærslu íbúða
• Lofthæð 2,70 m
• Stærð íbúða frá 69 - 280 m2
• Bílastæði í lokuðum bílageymslum
• Óvenjumikil hljóðeinangrun
• Útsýni úr öllum lyftum
• Háþróað öryggis- og samskiptakerfi
Kynning í Kringlunni 16. - 25. apríl
á glæsilegum gæðaíbúðum á besta stað
í miðborg Reykjavíkur.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
S
KU
2
43
43
04
/2
00
4
Sími 588-9090Sími 530-1500
Djúpivogur | Það var líf og fjör í
íþróttahúsinu á Djúpavogi um síð-
ustu helgi þegar unglingarnir á
staðnum tóku sig til og stunduðu
íþróttir í sólarhring. Áður höfðu
þeir safnað áheitum hjá einstak-
lingum og fyrirtækjum og verða
peningarnir notaðir til að kaupa
ýmislegt sem vantar í félagsmið-
stöðina Zion.
Þegar fréttaritari Morgunblaðs-
ins kom við í íþróttahúsinu höfðu
unglingarnir verið að í nær sólar-
hring og voru orðnir dálítið þreytt-
ir, enda hörkupúl að vaka í sólar-
hring og hlaupa, synda og sparka
til skiptis. Foreldrar tóku þátt í
íþróttamaraþoninu og voru þeir
sammála um að unglingarnir hefðu
staðið sig frábærlega.
Alls söfnuðust rúmar hundrað
þúsund krónur sem vonandi eiga
eftir að nýtast félagsmiðstöðinni
vel.
Íþróttamaraþon
Púlað fyrir
peninga
Morgunblaðið/Sólný Pálsdóttir
Stund milli stríða í íþróttamaraþoni: Djúpavogsstúlkurnar Ólöf, Ellen,
Guðmunda, Karen og Ásdís kasta mæðinni, en þær sýndu mikinn dugnað.
Hrunamannahreppur | Sumardag-
urinn fyrsti var sannarlegur hátíðis-
dagur í Villingaholtshreppi en þá var
sett sýningin Hugvit og hagleikur í
félagsheimilinu Þjórsárveri en hún
stendur til sunnudagskvölds 25.
apríl.
Um er að ræða sérstæða sýningu á
sviði tækniþróunar og menningar.
Kynnt eru verk meira en 20 hugvits-
manna og hagleiksfólks. Það eru fé-
lagsheimilið Þjórsárver, Kvenfélag
Villingaholtshrepps og Ungmenna-
félagð Vaka sem standa að sýning-
unni.
Eftir setningarræðu Valdimars
Össurarsonar, húsvarðar í Þjórsár-
veri, eins nefndarmanna og eldhuga
við að koma sýningunni á laggirnar,
fór fram verðlaunaafhending fyrir
víðavangshlaup, en venja er að efna
til víðavangshlaups í sveitinni á sum-
ardaginn fyrsta. Að þessu sinni voru
þátttakendur 58, yngri sem eldri.
Ávarp flutti Elinora Inga Sigurð-
ardóttir, formaður Landssambands
hugvitsmanna, og veitti Valdimar
Össurarson viðtöku viðurkenning-
arskjali fyrir á koma á fót fyrsta vísi
að tæknisafni Íslands. Berglind Hall-
grímsdóttir, framkvæmdastjóri
Imbru við Iðtæknistofnun, flutti
einnig ávarp og skýrði frá starfsemi
Iðntæknistofnunar í máli og mynd-
um.
Mekka hugvitsmanna
Heiðursgestir við setninguna voru
forseti Íslands Ólafur Ragnar
Grímsson og eiginkona hans Dorrit
Moussaieff ásamtGuðna Ágústssyni
landbúnaðarráðherra. Ólafur Ragn-
ar sagði meðal annars í ræðu sem
hann flutti af tilefni af opnun sýning-
arinnar „Það er sannarlega vel til
fundið að fagna sumri í svona fögru
veðri hér á Suðurlandi af þessu
skemmtilega tilefni hér í Þjórsárveri
og helga þessa sýningu hugvitsfólki
sem ættað er og upprunnið er héðan
úr héraðinu – frumkvöðlum og hönn-
uðum, listasmiðum og hagleiksfólki
sem skópu vélar og tæki. Það er
reyndar á margan hátt undravert
hve margir hér hafa látið að sér
kveða á þennan hátt og Villinga-
holtshreppurinn orðið eins konar
kjörsveit á þessu sviði. Við getum
jafnvel sagt Mekka hugvitsmanna
hjá okkur Íslendingum.“
Uppfinningar og listaverk
Meðal margra merkra muna á
sýningunni eru spunavél og vefstóll,
einnig verkfæri til framleiðslu
spunavéla. Listakonan Sigga á
Grund er með nokkur af sínum frá-
bæru listaverkum sem hún hefur
skorið í tré. Þá er einn merkilegasti
smíðisgripurinn og athyglisverðasti
fjölblendir Kristjáns B. sem er sonur
hjónanna Sigríðar Kristjánsdóttur
(Siggu á Grund) og eiginmanns
hennar Ómars Breiðfjörðs. Áður hef-
ur verið sagt frá þessum sérstaka
blöndungi sem notaður er á smávélar
og sparar bensín um 50% frá fyrri
vélum og dregur úr mengun. Krist-
ján og aðstoðarmenn hans eru nú
komnir í samband við ýmis fyrirtæki
í Japan svo sem Honda og Suzuki.
Þá má einnig sjá meðal margra
hluta og verkfæra heimasmíðaða
flugvél, flugvél í smíðum og vind-
mylluspaða eftir þá bræður Ólaf og
Albert Sigurjónssyni í Forsæti. Fjöl-
mörg listaverk eru einnig til sýnis og
svo mætti áfram telja, allt gert af
heimafólki í þessari sveit.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Kristján Björn Ómarsson, Ólafur Ragnar Grímsson, Dorrit Moussaieff og Aðalsteinn Sveinsson skoða fjölblöndung
sem verið er að setja á markað víðs vegar um heiminn. Sýningunni í Þjórsárveri lýkur á sunnudag.
Sérstæð sýning um
hugvit í Þjórsárveri
Sigga á Grund með eitt af sínum kunnu listaverkum.