Morgunblaðið - 24.04.2004, Page 25

Morgunblaðið - 24.04.2004, Page 25
DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 25 Ný bandarísk rannsókn sýn-ir að aðeins lítið magnáfengis sem barnshafandi konur láta ofan í sig á fyrstu þremur mán- uðum meðgöngu, geti haft skaðleg áhrif á hið ófædda barn til framtíðar. Frá þessu var greint nýlega í Berlingske tidende og að verðandi mæðrum, sem aðeins fá sér eitt glas öðru hverju á þessu byrjunartímabili meðgöngunnar, hættir frekar til að eignast börn með námsörð- ugleika og vandamál tengd minni, heldur en þær sem ekki snerta áfengi. Jennifer Willford sem fór fyrir rannsókn þessari segir að konur eigi að hugsa sig alvarlega um áð- ur en þær drekki áfenga drykki, hafi þær minnsta grun um að þær séu barnshafandi, því það geti haft alvarleg áhrif á þroska barns- ins seinna á ævinni. Í rannsókn- inni bar hún saman 14 ára börn mæðra með ólíkar drykkjuvenjur. Niðurstaðan var sú að börn þeirra kvenna sem höfðu drukkið sex eða færri glös á viku, á fyrstu þremur mánuðum meðgöngunnar, voru léttari og áttu í meiri erfiðleikum bæði með nám og skammtímaminni, heldur en börn kvenna sem létu áfengi alveg eiga sig á meðgöngu. Jenni- fer segir því ekkert vit í því að læknar segi barnshafandi konum að það sé í lagi að drekka upp að vissu marki, eins og gert er í mörgum löndum, m.a Dan- mörku. Ulrik Kesmodel, lektor við Háskólann í Árósum, segir þessa bandarísku rannsókn vissulega áhugaverða en hann sjá fleiri rannsóknir sem komist að sömu niðurstöðum, áður en farið verði að breyta þeim viðmiðunum sem gefnar hafa verið hingað til í Danmörku.  HEILSA Áfengisdrykkja varasöm á meðgöngu khk@mbl.is Íeldhúsinu á veitingastaðnumTGI Friday’s í Smáralind ræðurríkjum Róbert Ólafsson mat- reiðslumeistari. Veitingastaðurinn er hluti af stórri veitingahúsakeðju um allan heim sem rekin er undir þessu heiti. Alls eru staðirnir nú orðnir 680 talsins, en sá fyrsti var opnaður í New York árið 1968. TGI Friday’s á Íslandi er jafngam- all verslunarmiðstöðinni Smáralind, sem opnuð var þann 10. október árið 2001, og tekur staðurinn um 240 manns í sæti auk þess sem boðið er upp á „take-away“. „Það má í raun og veru segja að við bjóðum upp á allt nema pitsur,“ segir Róbert spurður út í matseðilinn. „Við erum með úrval af salötum, pastaréttum, steikum, hamborgurum, samlokum, mexíkósk- um réttum og eftirréttum.“ Daglegt líf falaðist eftir uppskrift að réttinum Margarita Beef Fajita sem ábending hafði borist blaðinu um að væri mjög góður. „Réttur þessi er borinn fram á sjóðandi heitri pönnu og föndra gestirnir síðan sjálfir við að raða hráefninu saman þegar mat- urinn er kominn á borðið. Þeir fá grillað nautakjöt, grillað grænmeti og hrísgrjón á pönnu auk salats, guacamole, sýrðs rjóma, sósa og hveitibaka, sem allt gúmmelaðið er sett inn í. Það er heilmikil stemning í þessu.“ Að sögn Róberts getur fólk hæg- lega prófað sig áfram heima við þenn- an rétt, hvort sem er með því að elda á pönnu í eldhúsinu eða á útigrilli á góðviðrisdegi. Margarita Beef Fajita (fyrir fjóra) Marinerað nautakjöt 4 x 170 g sneiðar af góðu nautakjöti Sneiðarnar eru marineraðar í teq- uila og limesafa í 2 klukkustundir. Létt grillaðar og kryddaðar með salti, pipar, hvítlauk, cayenne- og chillipip- ar. Skornar í þunna strimla. Steikt grænmeti 1 laukur 1 rauð paprika 1 græn paprika Skorið í sneiðar og steikt í potti með smjörklípu, salti, pipar og soja- sósu. Spænsk hrísgrjón 100 g fínt saxaður laukur 100 g fínt skorin paprika 4 söxuð hvítlauksrif 100 g smjör 100 g tómatar í dós 2 bollar Tilda hrísgrjón 3 bollar vatn 1 msk. kjúklingakraftur 1 tsk. cumin Laukurinn, paprikan og hvítlauk- urinn léttsteikt í smjörinu. Tómötum bætt saman við ásamt kryddinu og soðið saman í 5 mín. Vatninu og hrís- grjónunum bætt saman við og soðið við vægan hita í 15 mín. Tex Mex salat ½ haus fínt saxað jöklasalat 1 dós sýrður rjómi (18%) 1 bolli rifinn maribo ostur 1 bolli Pico de gallo 1 bolli guacamole Pico de gallo 1 tómatur ½ rauðlaukur 1 jalepeno pipar salt sítrónusafi ferskt coriander Allt skorið í smáa teninga og bland- að saman. Guacamole 2 þroskaðir avocado, stappaðir í mauk 1 tómatur í teningum ¼ laukur, smátt saxaður ferskt kóríander salt pipar sítrónusafi Öllu blandað saman. Tólf hveititortillur hitaðar í ör- bylgjuofni í 20 sek. Fyllið eina tortillu með sneiðum af nautakjötinu, lauknum, paprikunum og hrísgrjónunum og vefjið upp. Bor- ið fram með salati og mælir Róbert með ísköldum bjór með réttinum.  MATARKISTAN | Uppáhaldsrétturinn er Margarita Beef Fajita Morgunblaðið/Sverrir Matreiðslumeistarinn: Róbert Ólafsson. Gestirnir föndra við hrá- efnið join@mbl.is Spergilkál er óvenjuríkt af víta-mínum og steinefnum. Holl-usta þess er mikil og jafnvel er það talið einkar vænlegt til for- varnar gegn sjúkdómum eins og krabbameini. Margar ávaxta- og grænmetistegundir eru hlaðnar andoxunarefnum og öðrum krabba- meinshemjandi efnum en sperg- ilkálið hefur vinninginn og býr yfir hvorki meira né minna en 30 teg- undum slíkra efna. Björn S. Gunnarsson matvæla– og næringarfræðingur segir á Manneldi.is að frá örófi alda hafi menn notað plöntur í lækningaskyni en á síðustu árum og áratugum hafi fjölmargar faraldsfræðilegar rann- sóknir verið gerðar og niðurstöður þeirra sýni fram á verndandi áhrif mikillar neyslu grænmetis og ávaxta gagnvart sjúkdómum. Virðast áhrif- in vera sterkust á krabbamein í önd- unar– og meltingarfærum. Og ekki má gleyma jákvæðum áhrifum þess- ara afurða gegn offitu og hjarta– og æðasjúkdómum. Björn bendir einn- ig á að rannsóknir hafi sýnt að áhrif andoxunarefna í töfluformi eða fæðubótarefnum, sé ekki þau sömu og við neyslu grænmetis og ávaxta. Kemur frá Toscana á Ítalíu Spergilkálið hefur útlitið með sér, þar sem það er fagurlega lagað og minnir einna helst á lítil og þétt tré. Í Washington Post var nýlega fjallað um spergilkál eða broccoli. Nafnið broccoli er dregið af ítölsku orði sem merkir grein eða hand- leggur. Þetta fagra og holla græn- meti hefur verið á mannanna mat- ardiskum í 2000 ár en mislangt er síðan þjóðir fóru að leggja sér það til munns. Talið er að spergilkálið hafi upp- haflega verið þróað úr hvítkáli af bændum í Toscana á Ítalíu. Sagt er frá því í heimildum að árið 1533 hafi hin ítalska Catherine de Medici, gifst Henry II konungi Frakklands og þá flutt til Parísar frá heimaslóðum sínum Toscana. Hún flutti með sér ítalska kokka og mikið af grænmeti og þar á meðal spergilkál. Tveimur öldum síðar, eða um 1721 fór þetta holla græn- meti að sjást á borðum í Englandi og var þá gjarnan kallað hinn ítalski spergill (asp- aragus). Best er að gufusjóða spergilkál, skella því í örbylgjuofn eða snögg steikja á pönnu. Forðast ber að sjóða það í vatni því þá er hætta á að mikið tapist af hinum fjölmörgu vítamínum og steinefnum. Mælt er með smáskvettu af bal- samic-ediki yfir þessi litlu tré á mat- ardiskum kjötrétta og sumir gefa jafnvel hundinum sínum hvítlauks- legið spergilkál.  MATUR khk@mbl.is Spergilkál óvenju hollt Kringlunni, s. 588 1680 iðunn tískuverslun kvartbuxur Eykur orku, flrek og vellí›an Rannsóknir dr. Sigmundar Gu›bjarnasonar sta›festa a› Angelica jurtaveig inniheldur mjög virk heilsubótarefni. „Ég hef nota› Angelicu me› rá›lög›um hvíldum í eitt ár og finn mikinn mun á flreki og úthaldi. Ég flarf á hvoru tveggja a› halda í áhugamáli mínu, langhlaupum, og mæli ég hiklaust me› vörunni fyrir hlaupara og a›ra sem hug hafa á a› auka kraft og flol.“ Bryndís Magnúsdóttir www.sagamedica.com Íslenskt náttúruafl Ódýrari bílaleigubílar fyrir Íslendinga. Bílar frá dkr. 1.975,- pr. viku. Innifalið í verði; ótakmarkaður akstur, allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð. (Afgr. gjöld á ugvöllum). Höfum allar stærðir bíla, 5 – 7 manna og minibus 9 manna og rútur með/án bílstjóra. Sendum sumarhúsaverðlista; Dancenter sumarhús Lalandia orlofshver , Danskfolkeferie orlofshver Hótel. Heimagisting. Bændagisting. Ferðaskipulagning. Vegakort og dönsk GSM símakort. Fjölbreyttar upplýsingar á heimasíðu; www.fylkir.is www.fylkir.is sími 456-3745 Bílaleigubílar Sumarhús DANMÖRKU

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.