Morgunblaðið - 24.04.2004, Side 27

Morgunblaðið - 24.04.2004, Side 27
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 27 ÞRJÁR einkasýningar verða opnaðar í Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni, kl. 15 í dag. Í austursal sýnir Rebekka Rán Samper tví- og þrívíð verk ásamt myndbandsgjörningi á sýningu sem hún nefnir Introsum. Í vestursal er Ragna Fróðadóttir með innsetningu og á neðri hæð gefur að líta málverk Bjarna Sigurbjörnssonar Á sýningu sinni veltir Rebekka fyrir sér væntingum, þrám og klisjum sem tengjast samskiptum kynjanna. Þau eru unnin í mismunandi efni og eru eins konar holdgerð hugarfóstur, sprottin af þessum samskiptum. Annar staður – annar tími er yfirskrift sýningar Rögnu Fróðadóttur og er þar um að ræða innsetningu með fata- og textílhönnun sem samanstendur af ljós- myndum, flíkum og vinnustofu Rögnu sem flutt verður í Gerðarsafn. Ragna er þekkt fyrir flíkur úr sérgerðum efnum sem hún endurvinnur og framleiðir á vinnustofu sinni. Við opnun sýningarinnar munu Auður Bjarna og Anna Richards flytja dansgjörning. Sýning Bjarna nefnist Opus. Í augum Bjarna er mál- verk ekki endanlegur hlutur, heldur vitnisburður um athöfn og ferli. Að þessu leyti finnur hann til ákveð- innar samkenndar með hinu vonlausa verki alkemista fyrri alda sem sökktu sér niður í leyndardóma efn- isheimsins, þröngvuðu andstæðum öflum til að stríða hvort gegn öðru, splundruðu þeim, í von um að finna yfirnáttúrlegan samhljóm. Innan alkemíunnar er vinn- an hinn guðdómlegi „ópus“. Safnið er opið alla daga nema mánudaga, kl. 11–17. Sýningarnar standa til 16. maí. Þrjár ólíkar sýningar í Gerðarsafni Ragna Fróðadóttir: Annar staður – annar tími. Málverk eftir Bjarna Sigurbjörnsson. „ÞAÐ er óskaplega gaman að koma með þetta verk norður,“ sagði Arnar Jónsson leikari sem nú um helgina sýnir einleikinn Sveinsstykki eftir Þorvald Þorsteinsson í Samkomu- húsinu. Tvær sýningar verða á verk- inu, í dag og morgun. Þorvald- ur skrifaði ein- leikinn sérstak- lega fyrir Arnar í tilefni af 40 ára leikamæli hans. Arnar er ekki ókunnur fjölum Samkomuhúss- ins, en hann var í hópi fyrstu fast- ráðnu leikara Leikfélags Akureyrar fyrir um 30 árum. „Það var geysi- mikil gróska hjá félaginu um og upp úr 1970, fjölmargar sýningar á hverju ári og starfsemin mikil og fjölbreytt,“ sagði Arnar, en í kjölfar þess hafi menn farið að velta fyrir sé möguleikanum á stofnun atvinnu- leikhúss. „Það fór að verða æ erf- iðara að manna sýningarnar á áhugamannagrundvelli, en krafan orðin sú að fólk vildi hafa öflugt og gott leikhús í bænum,“ sagði Arnar. Sú varð svo raunin og auk Arnars var eiginkona hans, Þórhildur Þor- leifsdóttir, í hópi fyrstu fastráðnu leikaranna. Faðir hans, Jón Kristins- son, var formaður LA. Arnar sagði gaman að geta sýnt á sínum gömlu slóðum og vonaði hann að bæjarbúar og nærsveitarmenn hefðu gaman af einnig og gæfu sér tíma, þrátt fyrir gott veður, að mæta í Samkomuhúsið. „Þetta er virkilega fínt verk hjá Þorvaldi og ég reyni auðvitað að skemma sem minnst fyr- ir. Þetta er óvenjulegt leikrit, mjög athyglisvert.“ Gaman að sýna nyrðra Arnar Jónsson RITIÐ – Tímarit Hugvísinda- stofnunar gengst fyrir málþingi um fornleifafræði í dag kl. 13.30 í Öskju, náttúru- fræðahúsi Háskóla Íslands. Þingstjórar verða ritstjórar rits- ins, Jón Ólafsson og Svanhildur Óskars- dóttir. Meginspurningin sem velt verður upp á málþinginu varðar hvert íslensk forn- leifafræði stefni og er það hugsað sem undirbúningur fyrir annað hefti Ritsins, sem að þessu sinni verður helgað forn- leifafræði. Megin- áhersla verður lögð á erindi um fræðilegar forsend- ur greinarinnar og stöðu hennar í íslensku fræðasamfélagi. Eft- irfarandi fræðimenn flytja er- indi: Adolf Friðriksson: Fortíðin framundan. Íslensk fornleifa- fræði í 100 ár, Kristján Mím- isson: Fornleifafræðin – fagvæð- ing, þverfagleiki eða fagleysa!, Gavin Lucas: Archaeologia Is- landica, Steinunn Kristjánsdótt- ir: Sameiginlegt minni í fortíð og nútíð, Orri Vésteinsson: Staða íslenskrar fornleifafræði. Gavin Lucas er verkefnis- stjóri uppgraftar hjá Fornleifa- stofnun Íslands. „Í erindi mínu mun ég fjalla um íslenska fornleifafræði í samhengi við þróun í norður- evrópskri fornleifa- fræði, og skoða sér- staklega hvað er ólíkt. Mér sýnist ís- lensk fornleifafræði hafa fjarlægst meg- inhugmyndir evr- ópskrar fornleifa- fræði á 7. ára- tugnum og að það sé einungis á síðasta áratug sem hún fer að nálgast þær aft- ur. Ég mun skoða nokkrar ástæður þessa í erindinu, og einnig koma með hugmyndir að fram- tíðarstefnumótun í íslenskri fornleifafræði,“ segir Gavin Lucas í samtali við Morg- unblaðið. Ritstýrir tímaritinu Archaeologia Islandica Auk þess að stjórna upp- greftrinum í Skálholti ritstýrir Lucas tímaritinu Archaeologia Islandica og gegnir stöðu að- júnkts við fornleifafræðideild Háskóla Íslands. Hann hefur verið búsettur hér á landi síðan árið 2002, en starfaði áður við háskólann í Cambridge, þar sem hann lauk doktorsgráðu á sínum tíma. Ráðstefna um íslenskar fornleifarannsóknir í Öskju Hvert liggur stefnan? Gavin Lucas Í tilefni Viku bókarinnar efna Morgunblaðið og Vaka-Helgafell til getraunaleiks. Frá þriðjudeginum 20. apríl til og með mánudeginum 26. apríl birtist ein tilvitnun á dag úr verkum Halldórs Laxness og spurt er úr hvaða verki viðkomandi til- vitnun er. Þátttakendur senda inn svörin sín í lok getraunarinnar. Frestur til að senda inn lausnir er til 30. apríl. Dregið verður úr öllum innsendum lausnum og munu 10 þátttakendur, sem svara öllu rétt, hljóta í verðlaun bókina Perlur í skáldskap Laxness. Þú getur kynnt þér Nóbelsverðlaunaskáldið Halldór Lax- ness og verk hans á mbl.is undir Fólkinu. Þar er að finna umfjöllun um skáldið, verk hans, umsagnir og margt fleira. Sendu svörin til okkar. Utanáskriftin er: Morgunblaðið Getraunaleikur - Halldór Laxness - Kringlan 1, 103 Reykjavík „Er nokkrum of gott að vera fífl?“ GETRAUNALEIKUR - Halldór Laxness 5. tilvitnun: Spennandi og skemmtileg Sigrún Eldjárn Sýning á verkum Sigrúnar Eldjárn í Norræna húsinu 22. apríl - 9. maí. edda.is Spennandi og skemmtileg saga sem tilnefnd er til Norrænu barna- bókaverðlaunanna. 5. sæti Penninn Eymundsson og Bókabú›ir MM 14.–20. apríl Barnabækur Boðin verða upp um 160 verk, þar á meðal fjöldi verka gömlu meistaranna. Þá verða einnig boðin upp verk eftir Ólaf Elíasson, Georg Guðna, Helga Þorgils, Pétur Gaut, Braga Ásgeirsson og Kristján Davíðsson. LISTMUNAUPPBOÐ verður haldið annað kvöld kl. 19.00 á Hótel Sögu, Súlnasal Verið velkomin að skoða verkin í Galleríi Fold, Rauðarárstíg 14 – 16, í dag kl. 10.00 – 17.00 og á morgun kl. 12.00 – 17.00. Sími 551 0400 Hægt er að nálgast uppboðsskrána á netinu: www.myndlist.is OPIÐ HÚS HRINGBRAUT 11 - HAFNARFIRÐI Sigurbjörn Skarphéðinsson, lögg. fasteignasali Borgartúni 20, 105 ReykjavíkSími 590 9500 OPIÐ HÚS ASPARLUNDI 11 - GARÐABÆ Gott 300 fm einbýlishús, ásamt 52 fm tvöföldum bílskúr, á besta stað í Garðabæ. Húsið er á tveimur hæðum. Á efri hæð eru tvískiptar flísa- lagðar stofur með arni, þrjú svefnherb., eldhús með góðri innréttingu, gas- og rafmagnselda- vél. Stórar suður-svalir með miklu útsýni. Bað- herbergi er með nýlegum innréttingum. Gesta- salerni.Á neðri hæð eru þrjú svefnherbergi, stofa, stórt sjónvarpshol og gufubað. Möglegt er að útbúa íbúð með sérinngang á neðri hæð. Mjög fallegur og skjólgóður garður sem er lokað- ur af með háu grindverki. Tvöfaldur 52 fm bílskúr með stóru plani framan við. Húsið er í lokaðri götu í rólegu hverfi. Verð 39 millj. Páll tekur á móti áhugasömum milli kl. 14 og 16 í dag, laugardag. Verið velkomin - Sjón er sögu ríkari!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.