Morgunblaðið - 24.04.2004, Qupperneq 28
LISTIR
28 LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Spirulina
Töflur og duft
lífrænt ræktað
FRÁ
Nr. 1 í Ameríku
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
SUMARSKEMMTUN Hamrahlíð-
arkóranna verður haldin í hátíðarsal
Menntaskólans við Hamrahlíð á
morgun, sunnudag, undir yfirskrift-
inni Vorvítamín. Kór Menntaskólans
við Hamrahlíð og Hamrahlíðarkór-
inn, samtals um 120 söngvarar, koma
fram undir stjórn Þorgerðar Ingólfs-
dóttur á tvennum tónleikum. Húsið
verður opnað kl. 13.30 og hefjast
fyrri tónleikarnir kl. 14 og þeir seinni
kl. 16, en um er að ræða ólíkar efnis-
skrár á tónleikunum.
„Við stöndum fyrir fögnuði yfir
sumarkomunni sem við köllum
Vorvítamín þar sem við tökum von-
björt á móti vorinu, en þetta hefur
verið árlegur viðburður hjá okkur
undanfarin ár. Með þessum fögnuði
erum við að hvetja okkur til góðra
verka í upphafi sumars, en fram-
undan er mikill annatími hjá kór-
félögum þar sem prófatíminn gengur
senn í garð. Í ár ætlum við að bjóða
vorið og sumarið inn á rauða dreg-
ilinn því við munum renna rauðum
dregli frá aðaldyrunum í Hamrahlíð
út á bílastæði og flagga til að bjóða
gesti velkomna.“
Um efnisskrá tónleikanna tvennra
segir Þorgerður kórana munu flytja
ýmislegt sem æft hafi verið á síðustu
vikum. „Kórarnir tveir, Kór Mennta-
skólans við Hamrahlíð og Hamra-
hlíðarkórinn, munu bæði syngja sam-
an og hvor í sínu lagi á tónleikunum.
Við flytjum tónlist frá ýmsum tímum,
þjóðlög frá mörgum löndum og tón-
list eftir ýmis tónskáld, m.a. Bach og
Bartók. Flutt verða íslensk kórverk,
m.a. tvö ný verk. Annað flytja allir
kórfélagar saman og það er verk sem
var samið fyrir kóramót framhalds-
skólanna og frumflutt um miðjan
marsmánuð á Selfossi. Það verk er
eftir fyrrverandi kórfélaga okkar,
Örlyg Benediktsson, ungt tónskáld
sem er nýkominn heim úr námi frá
Pétursborg þar sem hann hefur lagt
stund á tónsmíðar. Kórverkið samdi
Örlygur við ljóð Hannesar Péturs-
sonar, Ísland. Sömuleiðis flytjum við
nýtt verk eftir Snorra Sigfús Birg-
isson sem hann gaf kórnum í vetur
og frumflutt var á tónleikum okkar í
Listasafni Íslands núna í byrjun apr-
íl. Hann semur verkið við ljóðið Bak
við auga eftir móður sína, Önnu S.
Snorradóttur, en í ljóðinu er fjallað
um góðu gildin í lífinu, vináttuna,
góðvildina og ástina,“ segir Þorgerð-
ur og bætir við að tónleikagestum
verði auðvitað boðið að taka undir í
sumar- og ættjarðarlögum.
Á milli tónleikanna tvennra verður
að sögn Þorgerðar brugðið á leik
með ýmsum skemmtilegum uppá-
komum auk þess sem seldar verða
veitingar. „Boðið verður upp á leiki
fyrir börnin og búast má við spákonu
úr hópi kórfélaga. Auk þess sem
fram kemur Hljómsveitin leikur fyrir
dansi, sem skipuð er kórfélögum
beggja kóra, og von er á leynigest-
um.“ Að sögn Þorgerðar má einnig
búast við því að félagar í Vinafélagi
kóranna, sem stofnað var fyrir ári og
skipað er fyrrum kórfélögum, troði
upp.
Af kórunum er það annars að
frétta að Kór Menntaskólans við
Hamrahlíð er nýkominn heim úr vel-
heppnaðri þriggja daga tónleikaferð
á Austurlandi. „Við vorum gestir
Menntaskólans á Egilsstöðum og
sungum fimm tónleika bæði á Egils-
stöðum og Eskifirði, auk þess sem
við sungum messu á Valþjófsstað,
þeim sögufræga stað.“
Aðspurð hvað framundan sé hjá
kórnum segir Þorgerður kórinn vera
að undirbúa söngferð til Eistlands,
en kórnum hefur verið boðið að taka
þátt í kórahátíð þar nú í sumar. „Á
kórahátíðinni gefst okkur tækifæri
til að vinna aftur með hinum fræga
stjórnanda Tönu Kaljuste, en hann
kom hingað til lands og stjórnaði
Hamrahlíðarkórunum á Sinfóníutón-
leikum fyrir rúmu ári þar sem m.a.
var flutt nýtt verk eftir Arvo Pärt til-
einkað heilagri Sesselju, vernd-
ardýrlingi tónlistarinnar,“ segir Þor-
gerður og bendir á að kórnum hafi
auk þess verið boðið að opna tónlist-
arhátíð í Tartu í Eistlandi. Þess má
geta aðsíðasta utanlandsferð kórsins
var hin mikla tónleikaferð til Filipps-
eyja í september sl., sem farin var í
boði menntamálaráðuneytis eyjanna,
og var sú ferð mikil sigurför að sögn
aðstandenda.
Hamrahlíðarkórarnir fagna sumri
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Hamrahlíðarkórarnir taka vonbjartir á móti vorinu á Vorvítamíni í Menntaskólanum við Hamrahlíð á morgun.
Gallerí Kling og Bang
Sýningu Jóns Óskars lýkur á
sunnudag.
Listasafn Rvk. – Hafnarhús
Sýningu Ólafs Elíassonar, Frost
Activity, lýkur á sunnudag. Hafnar-
húsið verður lokað til 15. maí en þá
verður opnuð Útskriftarsýning
Listaháskóla Íslands 2004.
Sýning framlengd – Listhús
Ófeigs, Skólavörðustíg
Sýningu Sigurðar Örlygssonar er
framlengt til 30. apríl.
Sýningum lýkur
40. SÝNING á Græna landinu, eftir
Ólaf Hauk Símonarson, verður í
kvöld. Leikritið er sýnt á Litla sviði
Þjóðleikhússins. Leikstjóri er Þór-
hallur Sigurðsson. Leikritið er samið
fyrir þau Gunnar Eyjólfsson og Krist-
björgu Kjeld en auk þeirra skipta þeir
Björn Thors og Rúnar Freyr Gísla-
son með sér hlutverki í sýningunni.
Leikritið var fyrst sýnt í Frumleik-
húsinu í Keflavík.
Græna landið
40 sinnum
Í SÚLNASAL Hótels Sögu verður
listmunauppboð á sunnudag kl. 19.
Boðin verða upp 150 málverk, þar á
meðal mörg verk eftir gömlu meist-
arana. Þá verða einnig boðin upp verk
eftir Ólaf Elíasson, Georg Guðna,
Helga Þorgils, Pétur Gaut, Braga Ás-
geirsson og Kristján Davíðsson.
Uppboðsverkin verða sýnd í Gall-
eríi Fold, Rauðarárstíg 14-16. Sjá má
uppboðsskrána á Vefsvæði Foldar:
www.myndlist.is.
Listmuna-
uppboð Foldar
ÁRLEGIR vortónleikar Karlakórs-
ins Þrasta í Hafnarfirði verða fernir
að þessu sinni. Í Víðistaðakirkju kl. 16
í dag og kl. 20 á miðvikudag. Þriðju
tónleikarnir verða í Hafnarborg kl. 20
á fimmtudag og þeir fjórðu í Grafar-
vogskirkju kl. 16 laugardaginn 1. maí.
Stjórnandi er Jón Kristinn Cortez og
undirleikari Jónas Þórir. Einsöngvari
er Jóhann Sigurðarson.
Þetta ár er mjög annasamt hjá
Þröstum. Í byrjun júlímánaðar held-
ur kórinn til Wales til þátttöku í al-
þjóðlegu kóramóti sem heitir Llagoll-
en International Musical Eisteddfod.
Kórinn tekur þar þátt í Folk songs
choirs sem er keppni kóra með há-
marksfjölda 25 manns og Male choirs
sem allur kórinn tekur þátt í.
Í byrjun nóvember heldur kórinn
til New York og tekur þátt í upp-
færslu á óratoríunni Elijah eftir
Mendelssohn í Carnegie Hall undir
stjórn Garðars Cortes. Elijah er flutt
af 300 manna kór, fjórum einsöngv-
urum og sinfóníuhljómsveit.
Vortónleikar
Þrastanna
NEMENDUR Tónlistarskóla Ísa-
fjarðar, sem jafnframt eru mennta-
skólanemar, halda tónleika í Hömr-
um kl. 20 annað kvöld. Nemend-
urnir, sem eru á mið- eða fram-
haldsstigi leika m.a. á píanó, gítar,
fiðlu, þverflautu, blokkflautur,
harmónikkur og fleira. Á efnisskrá
eru m.a. verk eftir Chopin, Schu-
mann, Schubert, Rachmaninoff,
Wieniawski, Bartók, Kadósa og Atla
H. Sveinsson, en einnig verður tón-
list af léttara taginu á dagskránni.
Um 36 nemendur MÍ hafa stundað
nám við tónlistarskólann í vetur eða
um 10 % dagnema í skólanum. Nem-
endurnir fá tónlistarnámið metið til
valeininga, en einnig hafa nokkrir
nemendur verið á tónlistarbraut, nú
listnámsbraut á tónlistarkjörsviði.
Nemendatón-
leikar í Hömrum
GUÐMUNDUR Sigurðsson organ-
isti Bústaðakirkju er næsti gestur í
Hádegistónleika-
röð Listvina-
félags Hall-
grímskirkju á
þessu ári undir
yfirskriftinni
Klais orgelið
hljómar í Hall-
grímskirkju. Í
hádeginu í dag,
kl. 12, leikur og
kynnir Guð-
mundur verk frá
Ameríku, m.a. nokkra kunna
negrasálma í djassútsetningum.
Auk þess flytur hann nýjan sálma-
forleik eftir Smára Ólason um ís-
lenskt passíusálmalag.
Guðmundur lauk einleikaraprófi
við Tónskóla Þjóðkirkjunnar, m.a.
undir handleiðslu Harðar Áskels-
sonar, árið 2000. Hann tók við org-
anistastarfi Bústaðakirkju sama ár.
Amerísk lög
leikin á orgel
Hallgrímskirkju
Guðmundur
Sigurðsson
BLÁSARAKVINTETT Reykjavíkur heldur tónleika í
tónlistarhúsinu Ými á sunnudag kl. 16. Yfirskrift tón-
leikanna er „Vorvindar glaðir og Vovka“ en gestur
kvintettsins er píanóleikarinn Vovka Ashkenazy.
Leiknir verða sextettar fyrir píanó og blásara eftir
Jean Francaix og Ludwig Thuille, blásarakvintett eft-
ir Frans Danzi og sónata fyrir klarínett og píanó eftir
Johannes Brahms.
Upphafsverk tónleikanna, Kvintett í g-moll eftir
Frans Danzi, er saminn um aldamótin 1800 og ber
með sér heiðríkju klassíska tímabilsins en jafnframt
fyrstu frjóanga rómantísku stefnunnar.
„Danzi starfaði í hinni miklu tónlistarborg þess
tíma, Mannheim, sem státaði af mikilli fágun jafnt í
tónsköpun og flutningi og Mozart hafði seint þreyst á
að dásama,“ segir Einar Jóhannesson klarínettleikari.
„Sextett fyrir blásara og píanó eftir Ludwig Thuille
einkennist hins vegar af ósviknu rómantísku flæði
enda samið af 25 ára franskættuðu tónskáldi starfandi
í Munchen á hápunkti draumastefnunnar. Nokkru síð-
ar, eða árið 1894, lýkur Brahms sínu stórkostlega
ævistarfi með fjórum meistaraverkum fyrir klarínett,
þ.á m. sónötunni í Es-dúr opus 120, sem flutt er á tón-
leikunum.“
„Rómantíska tímabilið var að renna sitt skeið á
enda og Brahms átti aðeins þrjú ár eftir ólifuð. En
það er ekki lúinn andi gamals manns sem skynja má í
verkinu heldur heitar tilfinningar, amabile og appass-
ionato, ástúðlega og ástríðufullt!“
„Tónleikunum lýkur á kostulegum sextett eftir
grallarann franska Jean Francaix. Hann lifði allar
helstu tónlistarstefnur síðustu aldar en hélt ætíð sín-
um sérkennum, sem var franskur léttleiki og húmor.
Sextettinn L’heure Du Berger, eða Stund smalans, er
dæmigerður fyrir stíl tónskáldsins; titillinn er orða-
leikur um kvennafar karla á ýmsum aldri, sem ýmist
eru of ungir eða of gamlir, eða tilburði og drauma í þá
veru. Og allt sagt af ástúð og kímni,“ segir Einar.
Vovka og vorvindarnir
Morgunblaðið/Sverrir
Hafsteinn Guðmundsson, Bernharður Wilkinson, Daði
Kolbeinsson, Vovka Ashkenazy, Joseph Ognibene og
Einar Jóhannesson í blíðunni á sumardaginn fyrsta.
♦♦♦
♦♦♦
♦♦♦
♦♦♦
ÆFINGAR eru hafnar í Þjóðleikhús-
inu á nýju leikriti Kristjáns Þórðar
Hrafnssonar, Böndin á milli okkar.
Fjallað er um unga kvikmynda-
gerðarkonu með stóra drauma sem er
tilbúin að leggja allt undir. Ungur
leikari, sem á bak við ímynd vinsælda
og velgengni á í miskunnarlausri bar-
áttu við eigin hugsanir og tilfinningar.
Fólkið í kringum þau sem veit og veit
ekki. Hve langt er hægt að ganga til
að láta að vilja annarrar manneskju?
Hvað er að gefa af sjálfum sér? Hvað
er að hafa stjórn á eigin lífi? Tilfinn-
ingaþrungið leikrit um vald og vald-
leysi í mannlegum samskiptum, segir
í kynningu.
Leikstjóri er Hilmir Snær Guðna-
son. Leikendur eru Sólveig Arnars-
dóttir, Rúnar Freyr Gíslason, Nanna
Kristín Magnúsdóttir og Friðrik
Friðriksson. Lýsing er í höndum Ás-
mundar Karlssonar, um búninga sér
Margrét Sigurðardóttir, höfundur
leikmyndar er Jón Axel Björnsson.
Morgunblaðið/Sverrir
Kristján Þórður ásamt leikurum og listrænum stjórnendum.
Böndin
á milli
okkar æfð