Morgunblaðið - 24.04.2004, Side 31
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 31
Í 50 ÁR hefur sjómannaafslátt-
urinn þróast í það að vera lög-
bundinn skattaafsláttur á tekjur
sjómanna þótt upphafið hafi verið
með öðrum hætti. Í 50 ár hafa sjó-
menn þessa lands stigið ölduna
fjarri daglegum til-
boðum velferðarsam-
félagsins, fjarri þjón-
ustu og dægra-
styttingu sem þykir
sjálfsögð hjá land-
kröbbunum í nútíma
samfélagi og í mörgu
tilviki er sjómaðurinn
með tvöfaldan kostn-
að sem fylgir því að
gera út frá tveimur
stöðum, heima og
heiman. Í 50 ár hafa
sjómenn sem betur
fer fengið nokkra
uppbót skattalega
vegna þeirra aðstæðna sem sjó-
mennskan býður upp á, nokkur
hundruð krónur á dag í skatta-
hlunnindum.
Kann ekki góðri lukku
að stýra að vega tvívegis
í sama knérunn
Sjómannaafslátturinn er orðinn
helgur réttur sjómanna vegna
þess að fyrir mörgum áratugum
samþykkti Alþingi kjara- og
skattarétt sjómanna og meðan
ekki er búið að leysa með fullu ör-
yggi hvað kæmi í staðinn fyrir sjó-
mannaafsláttinn sem kerfi til að
tryggja laun sjómanna þá er fá-
ránlegt að reyna að hrófla við
honum. Það frumvarp sem nú
liggur fyrir Alþingi í þessum efn-
um verður að daga uppi af því að
það er bæði óbrúklegt og óboðlegt
og þótt fjármálaspekúlantar í
embættiskerfinu kunni að leggja
nótt við dag á fullri yfirvinnu að
reikna sjómannaafsláttinn út af
borðinu, þá eru forsendurnar vit-
lausar kannski helst vegna þess að
þær eru hagfræðilegar patent-
lausnir sem eru fjarri öllum raun-
veruleika. Það vantar í þær allt
kryddið, lífsreynsluna sjálfa og
þess vegna eru þær ekki mark-
tækar.
Það er gott sjónarmið út af fyrir
sig að einfalda allt kerfi, ekki síst
skatta og það hefur núverandi
fjármálaráðherra tekist jafnt og
þétt að góðu einu. En fiktið við
sjómannaafsláttinn er mistök,
jafnvel þótt það sé bara til að
vekja athygli á að kerfislega væri
betra að hafa hann ekki. Eitt af
því sem við státum af úr fornbók-
menntum okkar er að það kunni
ekki góðri lukku að stýra að vega
tvívegis í sama knérunn. 1991 og
1992 stóð mikill styrr um sjó-
mannaafsláttinn. Þá var tekist
hart á og hreinsað til í kerfinu til
þess að fyrirbyggja að þeir sem
spiluðu á kerfið gætu gert það.
Undirritaður tók fullan þátt í
þessari dekkvinnu til þess að verja
sjómannaafsláttinn. Þá var sjó-
mannaafslátturinn bundinn við
lögskráningu og þurftu sjómenn
að vera skráðir 245 daga til að
njóta afsláttar allt árið og aðrir
sjómenn hlutfallslega
miðað við það. Þetta
hefur þótt sanngjarnt.
Það er ekki viturlegt
að vega aftur í sama
knérunn. Það verður
þó að viðurkennast að
þegar spúllinn var
notaður síðast á kerf-
ið urðu nokkrir tugir
manna eftir á gráu
svæði, áhafnir hafn-
sögubáta og beitn-
ingamenn í landi, þ.e.
þeir sem aldrei fara á
sjó. Varðandi þá fyrri
ætti að vera auðvelt
að færa það sem nemur sjó-
mannaafslætti til kauphækkunar á
hafnsögubátum og lítil rök liggja
fyrir því að landmenn í beitningu
séu með sjómannaafslátt. Að öðru
leyti er sátt um kerfið.
Nágrannaþjóðir
veita sjómannaafslátt
Íslendingar, sem þó eiga meira
undir sjósókn komið en flestar
aðrar þjóðir, eru ekki einir um að
veita sjómannaafslátt. Það gera til
að mynda Normenn, Færeyingar
og Danir svo einhverjir séu nefnd-
ir. Í Færeyjum fá sjómenn 15%
afslátt af skattgreiðslum upp að
500 þús. kr. dönskum, í Danmörku
fá sjómenn 190 kr. danskar á dag
í skattaafslátt ef þeir eru meira en
12 klst. á sjó á dag. Þessi greiðsla
er að hámarki um 50 þúsund kr.
danskar á ári. Sjómannaafslátt-
urinn í Noregi er 80 þús. kr.
norskar á ári, en getur hækkað í
115 þúsund kr. norskar.
Landsfundur
Sjálfstæðisflokksins varði
sjómannaafsláttinn
Kerfislega freista menn þess oft
að einfalda og samræma út frá
mismunandi forsendum, en stefna
Sjálfstæðisflokksins varðandi sjó-
mannaafslátt er alveg skýr og
klár. Síðasti landsfundur Sjálf-
stæðisflokksins hafnaði því að af-
nema sjómannaafsláttinn og þá
um leið að hrófla eitthvað við hon-
um sem skipti sköpum varðandi
rétt sjómanna.
Við lestur frumvarpsins sem
liggur fyrir Alþingi varðandi sjó-
mannaafsláttinn kemur berlega í
ljós að aðstandendur frumvarpsins
vaða í villu og svíma, því þeir gefa
sér forsendur sem standast ekki.
Látið er að því liggja að um
eitthvert samkomulag tengt
kjarasamningum sé að ræða
varðandi gildandi sjómannaafslátt.
Svo er ekki og ekkert til sem
styður það sjónarmið flutnings-
manna.
Sjómenn njóta ekki hlunninda
daglegs lífs á Íslandi
Í fjármálakerfi landsins, sköttum
sem öðru er lýtur að daglegri
stjórnun er mikið um margs konar
tilfærslur, hlunnindi, kaupmat í
öðru en beinu kaupi og svo fram-
vegis, ýmsir þættir sem ríkisvaldið
eyðir beint í, gula áskriftin hjá
sinfóníunni, niðurgreiðsla á leik-
húsmiðum, staðaruppbótt í ýmsum
greinum, sporslur, tilfærsla í heil-
brigðiskerfinu og fleira og fleira.
Kannski eru raunverulegri rök að
skoða sjómannaafsláttinn sem nið-
urgreiðslu á útgerðarkostnaði, en
það er líka jafn ljóst að það er fá-
ránlegt að láta sér detta í hug,
miðað við þær staðreyndir sam
blasa við, að færa sjómanna-
afsláttinn yfir á útgerðina sem
borgar nú þegar um 40 % í laun
og launatengd gjöld. Það hlýtur að
vera grundvallarskylda okkar Ís-
lendinga að hafa metnað fyrir
hönd sjávarútvegsins því þar
standa raunveruleg verðmæti á
bak við. Það eru ekki útvegsmenn
eða sjómenn sem eru að véla með
stóru fúlgurnar í verðbréfum gler-
veggjanna í kauphöllunum eða
verslunarhöllunum. Sjávarútveg-
urinn hefur í raun lengi verið
þjóðnýttur á Íslandi þegar aðrir
leika lausum hala.
Sjómenn stíga ölduna
fyrir íslenska þjóð
Þess er óskandi að þær aðstæður
skapist að unnt verði að jafna sjó-
mannaafsláttinn út án þess að
skerða laun sjómanna og tekjur
útgerðar, en þær aðstæður eru
ekki fyrir hendi í dag.
Það ætti öllum landsmönnum að
vera kært að standa á bak við það
að íslenskir sjómenn fái sjó-
mannaafslátt fyrir það að stíga
ölduna, sinna burðarverkum sam-
félagsins við erfiðar aðstæður
fjarri félagslífi, öryggi og þjónustu
hins daglega lífs í landinu.
Í launum og aðstöðu fólks á
landsbyggðinni annars vegar og
höfuðborgarsvæðinu hins vegar er
stórt skarð þar sem hallar á
landsbyggðina. Afnám sjó-
mannaafsláttar myndi stækka það
skarð til mikilla muna.
Við verjum sjómannaafsláttinn
að hætti Haukdæla, því sjó-
mannaafslátturinn er hluti af
þeirri bláköldu staðreynd og
skyldu að horfast í augu við ís-
lenskan raunveruleika og bera
virðingu fyrir honum.
Sjómannaafslátturinn
er helgur réttur
Eftir Árna Johnsen ’…sjómannaafslátt-urinn er hluti af þeirri
bláköldu staðreynd og
skyldu að horfast í augu
við íslenskan raunveru-
leika og bera virðingu
fyrir honum.‘
Árni
Johnsen
Höfundur er stjórnmálamaður, blaða-
maður og tónlistarmaður.
Laugavegi 63
(Vitastígsmegin)
sími 551 2040
Silkitré og silkiblóm
Silkiblóm
og gjafavara
Kíktu á neti›
www.das.is
Hringdu núna - opi› frá 10-18
561 7757
N‡tt happdrættisár byrjar í maí
Engin
vika
án milljóna
Chevrolet B
el Air 1954
afmælisvin
ningur árs
ins
- til s‡nis í
Smáralind
inni í dag
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
A
S
24
43
6
0
4/
20
04