Morgunblaðið - 24.04.2004, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 24.04.2004, Qupperneq 32
32 LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. F orsætisráðherra, Dav- íð Oddsson, var fyrir skemmstu staddur vestanhafs og fékk að eigin sögn óvænt símtal árla dags fimmtudaginn 15. apríl sl. Á hinum enda línunnar var sjálfur Bandaríkjaforseti og vildi endilega að íslensku þjóðinni yrðu flutt jákvæð skilaboð, efn- islega á þá leið að hann sjálfur og Bandaríkin væru ákaflega þakk- lát fyrir stuðning Íslendinga við Íraksstríðið. Hvað varðaði sam- skipti Íslands og Bandaríkjanna á sviði varnarmála segir Davíð að forsetinn, án þess að fara út í þá hluti í einstökum atriðum, hafi endilega viljað að það misskildist ekki að Bandaríkjamenn mætu samstarf við Ísland á því sviði mikils. Langt er síðan eitt stutt símtal hefur notið viðlíka athygli og þetta sem fram fór nefndan dag árla morguns, að loknum bænum þó. Væntanlega var þó fyrst og fremst um kurteisishjal að ræða og allt samkvæmt diplómatískum venjum. Það eru að sjálfsögðu engin tíð- indi að Bandaríkjaforseti sé ánægður með stuðning Davíðs og Halldórs við Íraksstríðið. Ekki er „staðfestan“ síður mikils metin nú af hálfu þeirra í Washington, þeg- ar ört fækkar í vinahópnum. Öllu dapurlegra er að formenn stjórn- arflokkanna skuli enn vera jafn galvaskir í stuðningnum og raun ber vitni. Engin hafa gereyðing- arvopnin fundist, almennt er við- urkennt að um ólögmætt árás- arstríð var að ræða, og enginn endir er á hörmungunum í Írak undir hinni ólögmætu hersetu. Samt eru þeir Halldór og Davíð ekki menn til að viðurkenna nein mistök í þessu sambandi. Nú er látið eins og tilgangur stríðsins hafi allan tímann verið að koma Saddam Hússein frá völdum og engu skipti þó hin eiginlega rétt- læting innrásarinnar, þ.e. tilvist gereyðingarvopna og sú ógn sem heimsbyggðinni þar með stafaði af Írak hafi gufað upp. Sem sagt, ein lygi tekur við af annarri. Engum sögum fór heldur af því að forsætisráðherra vor hafi í margnefndu símtali notað tæki- færið og mótmælt stefnubreyt- ingu Bandaríkjastjórnar í efnum Palestínu. Það sem Morgunblaðið kallar svo r „hið ógeðfellda bandalag“ nú í því að Bush Bandarík forseti, háður stuðningi rí Gyðinga vestanhafs, hefu og minna skrifað upp á ei tillögur Sharons um að in hluta þess lands í Ísraelsr hertekið hefur verið og ha með ólögmætum hætti. M þessu sýnir ekki aðeins S Símtali fylgt eftir me Eftir Steingrím J. Sigfússon Greinarhöfundur segir hrakspár herstöðvarandstæðinga nú ver S íðastliðin fimm ár eða svo hafa borg- arfulltrúar R-listans kosið að draga athygl- ina frá slælegri frammistöðu í málefnum almenn- ingssamgangna með því að láta í veðri vaka að fram undan sé stór- kostlegt átak í þeim málaflokki með uppsetningu sporbundinna samgangna á höfuðborgarsvæð- inu. En í þessu máli sem öðrum virðist þó hver flokkur innan R-listans hafa sínar áherslur og berjast um athygli fjölmiðla með sjálfstæðum útspilum. Hraðlest Framsóknar Fyrst lét Alfreð Þorsteinsson borgarfulltrúi Orkuveituna borga um 15 milljónir króna fyrir skýrslu um hugsanlega lagningu lestarteina til Keflavíkurflug- vallar og rekstur hraðlestar þar á milli. Sigri hrósandi sagði Alfreð niðurstöðu skýrslunnar vera þá að rekstur hraðlestarinnar yrði arðbær, þ.e.a.s. ef ekki yrði gert ráð fyrir kostnaði við að koma henni á fót. Sagði Alfreð að eðli- legt væri að ríkið borgaði fjárfest- ingarkostnaðinn, 25-30 milljarða króna, samkvæmt lauslegum áætlunum. Neðanjarðarlest Samfylkingar Samfylkingin undi því ekki að borgarfulltrúi Framsóknarflokks- ins hrifsaði af henni frumkvæðið í málefnum almenningssamgangna og skömmu síðar birtust í blöðum viðtöl við borgarfulltrúa hennar um að nauðsynlegt væri að huga sem fyrst að koma á fót neð- anjarðarlestarkerfi í Reykjavík. Þegar áhugasamir blaðamenn spurðu um kostnað var því svarað að hann yrði vafalaust einhver (sennilega nokkrir tugir millj- arða) en eðlilegt væri að h yrði greiddur af ríkinu. Sporvagnar vinstri grænna Borgarfulltrúar vinstri mega vart til þess hugsa a ast sjálfir undir stýri og g Vill R-listinn hraðles eða sporvagnakerfi í Eftir Kjartan Magnússon Sporvagnar í Prag, höfuðborg Tékklands. Greinarhöfundur telu SHARON OG ARAFAT Ariel Sharon, forsætisráðherraÍsraels, virðist vera að missastjórn á sjálfum sér. Alla vega benda yfirlýsingar hans í gær þess efnis, að hann sé ekki lengur bundinn af loforðum við Banda- ríkjamenn um að hlífa Arafat, leið- toga Palestínu, við árás til þess. Yf- irlýsing Sharons er túlkuð á þann veg, að hann ætli sér að láta drepa Arafat. Yasser Arafat hefur verið leiðtogi Palestínumanna um áratugaskeið. Hann hefur ekki verið barnanna beztur í þeim hópi en hann er lög- lega kjörinn forseti Palestínu. Geri Sharon alvöru úr hótun sinni og geri út menn til þess að drepa Ara- fat verður Sharon sjálfur kominn í þá stöðu, sem hann hefur viljað koma Arafat í. Hann hefur mark- visst unnið að því að einangra Ara- fat og unnið að því að fá aðrar þjóð- ir til þess að hundsa hann. Niðurstaðan af drápi Arafats yrði ofsabræði meðal Araba út um öll Miðausturlönd og gæti leitt til þess að allar Arabaþjóðir sameinuðust á ný gegn Ísraelsmönnum. Afleiðing- in yrði líka sú, að Evrópuþjóðir mundu snúa baki við Ísraelsmönn- um og vildu ekki við þá tala. Innan Bandaríkjanna myndi krafan um að Bandaríkjamenn setji Ísraelsmönn- um stólinn fyrir dyrnar, sem þeir geta ef þeir vilja, margfaldast. Sharon og hans lið yrði fyrirlitið um allan heim. Einræðisherrar og harðstjórar láta drepa fólk, ekki kjörnir forystumenn lýðræðisríkja. Sharon kveðst hafa skýrt Bush, Bandaríkjaforseta frá því í Hvíta húsinu fyrir skömmu, að hann liti svo á, að hann væri ekki lengur bundinn af þessu loforði. Talsmaður Hvíta hússins segir, að Bush hafi áréttað á fundinum, að stjórn hans væri andvíg slíku framferði af hálfu Ísraelsmanna. Sú árétting er ekki nóg. Banda- ríkjamenn hafa bolmagn og úrræði til að koma vitinu fyrir Sharon og stjórn hans í Ísrael. Þeir eiga að beita þeim úrræðum. Þeir geta ekki verið þekktir fyrir annað. Geri þeir það ekki munu þeir missa stuðning margra, sem hafa fylgt þeim í gegn- um þykkt og þunnt um langan tíma. HINIR HEIMILISLAUSU Ummæli Árna Magnússonar, fé-lagsmálaráðherra, og Jóns Kristjánssonar, heilbrigðisráðherra, í Morgunblaðinu í fyrradag benda eindregið til þess, að ráðherrarnir vilji leggja sitt af mörkum til þess að þurrka út það hneyksli, að um 100 einstaklingar séu heimilislausir á höfuðborgarsvæðinu. Þannig segir Jón Kristjánsson í samtali við Morg- unblaðið: „Auðvitað er það ekki við- unandi að menn eigi hvergi höfði sínu að halla.“ Þetta mál er tvíþætt. Annars vegar þarf strax að finna húsaskjól fyrir þetta fólk. Það á ekki að þurfa að taka marga daga. Það er nóg til af tómu húsnæði. Hins vegar þarf að finna lausn til lengri tíma. Það er áreiðan- lega erfiðara úrlausnar en þann vanda er hægt að leysa þótt það taki einhvern tíma. Ráðherrarnir og borgarstjórinn í Reykjavík þurfa hins vegar að taka höndum saman um að knýja fram þegar í stað lausn á þeim bráðavanda, sem við blasir. Þeir þurfa að tryggja húsnæði fyrir heimilislaust fólk. Þeir hafa vald til þess að leysa þá hnúta, sem upp kunna að koma í kerfinu. Vonandi tekur það ekki marga daga í viðbót að finna þetta húsnæði. VIÐSKIPTALÍFIÐ KVARTAR Það er einhver kvörtunartónn íviðskiptalífinu um þessar mundir. Á aðalfundi Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja sl. föstudag sagði Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans og for- maður samtakanna, að viðhorf stjórnvalda til fjármálageirans mót- aðist um of af því að setja fjármála- lífinu skorður og amast við vexti þess. Sagði Halldór, að þessum við- horfum stjórnvalda og í opinberri umræðu þyrfti að breyta. Á morgunverðarfundi Verzlunar- ráðs Íslands sl. miðvikudag sagði Þór Sigfússon, framkvæmdastjóri ráðsins m.a.: „Nú er í algleymingi að setja þurfi lög á viðskiptalífið en ekki létta því lífið enn frekar.“ Ummæli þessara tvegga forystu- manna í viðskiptalífinu benda til þess, að þeir átti sig ekki á því, að vissir þættir viðskiptalífsins á Ís- landi eru komnir úr böndum. Á ein- um og hálfum áratug hefur sú bylt- ing orðið í íslenzku atvinnulífi, að það býr við nánast algert frelsi á öllum sviðum. Þær umræður, sem fram hafa farið undanfarna mánuði um viðskiptalífið snúast um það, að sumir aðilar þess hafi ekki kunnað til fulls að fóta sig í þessu frjáls- ræði. Halldór J. Kristjánsson og Þór Sigfússon hljóta að gera sér grein fyrir þessum veruleika. Þá kröfu er hægt að gera til þeirra tveggja, að þeir, sem trún- aðarmenn viðskiptalífsins í mikil- vægum samtökum, hafi forystu um að beina viðskiptalífinu inn á réttar brautir. Að þeir styðji þá viðleitni og löggjöf, sem hugsanlega þarf til þess. Raunar er ekki bara hægt að gera þá kröfu til þeirra tveggja heldur til allra félagasamtaka í at- vinnulífinu. Þegar búið er að tryggja íslenzku atvinnu- og viðskiptalífi nánast allt það frelsi, sem hægt er að veita því er ekki við hæfi að sá kvörtunar- tónn heyrist úr þessari átt, sem vitnað var til hér að framan.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.