Morgunblaðið - 24.04.2004, Qupperneq 37
MESSUR Á MORGUN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 37
Vox feminae
í Dómkirkjunni
Á SUNNUDAGINN fyrstan í sumri
syngur kvennakórinn Vox feminae
undir stjórn Margrétar Pálmadótt-
ur við messuna kl. 11. Á orgel og pí-
anó leikur Ástríður Haraldsdóttir.
Það verður mikil gleði og friður í
söngnum svo sem við á á gleðidög-
um. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson
prédikar og sr. Hjálmar Jónsson
þjónar fyrir altari.
Barnasamkoma verður á kirkju-
loftinu á sama tíma í umsjá Hans G.
Alfreðssonar.
Fulltrúaráðsfundur
Hjálparstarfs kirkj-
unnar í Kirkjulundi
LAUGARDAGUR 24. apríl: Full-
trúaráðsfundur Hjálparstarfs
kirkjunnar verður haldinn í Kirkju-
lundi kl. 10.30–16.00.
Fundurinn hefst með helgistund í
Kirkjulundi kl. 10.30. Bylgja Dís
Gunnarsdóttir syngur Ég veit að
lausnari minn lifir (I know that my
redeemer liveth) úr Messíasi eftir
Händel. Ólafur Oddur Jónsson flyt-
ur hugvekju: Hjálparstarf, einkenni
lifandi kirkju og samfélags. Bylgja
Dís Gunnarsdóttir syngur Þakkir
færum vér þér (Gratias agimus tibi)
eftir Sigurð Þórðarson.
Á fundinum verður gerð grein
fyir helstu þáttum starfsins og þeim
breytingum sem fylgja nýrri skipu-
lagsskrá (og stöðu tengla) en beðið
er eftir samþykki stjórnvalda.
Fundarmenn fengu á aðalfundi í
hendur verkáætlun fyrir árið.
Á fundinum nú gefst fólki tæki-
færi til að fylgjast með framgangi
samkvæmt henni og koma með at-
hugasemdir.
Gylfi Jón Gylfason sálfræðingur
eflir fólk til verka í þágu Hjálp-
arstarfsins. Verður því velt upp
hvaða verkfæri við þurfum til að
geta orðið betri talsmenn.
Fundurinn er haldinn í boði sókn-
arnefndar Keflavíkurkirkju.
Leiksýning í
Breiðholtskirkju:
Hans klaufi
STOPPLEIKHÓPURINN sýnir
barnaleikritið „Hans klaufi“ í fjöl-
skylduguðsþjónustu í Breiðholts-
kirkju í Mjódd á morgun, sunnudag
kl. 11.
Leikritið byggir á hinu þekkta
ævintýri H.C. Andersen. Þetta upp-
byggjandi ævintýri fjallar um Hans
klaufa og bræður hans, en þeir eru
á leið að biðla til kóngsdótturinnar.
Ævintýri H.C. Andersen eru um
margt einstök. Bjartsýni er rauði
þráðurinn í þeim flestum og hafa
verk hans glætt vonir fólks um víð-
an heim.
Í sögum hans er að finna fjöldann
allan af kristilegum táknmyndum
og eru sum ævintýrin jafnvel beinar
útlistanir á sögum Biblíunnar. Þessi
dæmisaga sýnir okkur t.d. hve
heimskulegt það er að taka sjálfan
sig of alvarlega. Það er ekki allt
fengið með menntun og góðum gáf-
um. Ef hugarfarið er ekki rétt get-
ur stórlæti og hroki hæglega leitt
okkur á villigötur. Leikritið er ætl-
að 2–8 ára börnum og tekur um 20–
25 mínútur í sýningu.
Vonandi sjáumst við sem flest á
sunnudag, bæði foreldrar og börn.
Allir eru velkomnir að njóta sýn-
ingarinnar og þess lærdóms, sem
við getum af henni dregið.
Ferðalag barnastarfs-
ins í Hjallakirkju
NÚ fer senn að líða að lokum
barna- og æskulýðsstarfsins í
Hjallakirkju. Næsta sunnudag, 25.
apríl, munum við fara í ferð með
sunnudagaskólanum, kirkju-
prökkurum og tíu til tólf ára krökk-
um eitthvað út í Guðs græna nátt-
úruna.
Lagt er af stað frá Hjallakirkju
kl. 13 og komið heim aftur kl. 16.
Ætlunin er að staldra við á fal-
legum stað, grilla pylsur og fara í
skemmtilega leiki.
Ferðin er ókeypis og allir eru
hjartanlega velkomnir.
Íslensk tónlist
í Hjallakirkju
SUNNUDAGINN 25. apríl verður
tónlistarguðsþjónusta í Hjalla-
kirkju, Kópavogi, kl. 11. Sálmar og
önnur tónlist í guðsþjónustunni eru
eingöngu eftir íslenska höfunda,
s.s. Árna Björnsson, Jóhann Ó. Har-
aldsson, Jón Ásgeirsson, Sigurð
Bragason, Þorkel Sigurbjörnsson
og Pálmar Þ. Eyjólfsson.
Þá verður flutt messutón eftir
Jón Þórarinsson. Félagar úr kór
kirkjunnar leiða sönginn undir
stjórn organistans, Jóns Ólafs Sig-
urðssonar.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Morgunblaðið/Ómar
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14:00. Kór
Áskirkju syngur. Organisti Kári Þormar.
Prestur sr. Þórhildur Ólafs.
BÚSTÐAKIRKJA: Barnamessa kl. 11:00.
Fjölbreytt tónlist. Skemmtileg samvera fyr-
ir alla fjölskylduna. Guðsþjónusta kl.
14:00. Félagar úr Kór Bústaðakirkju
syngja. Organisti Guðmundur Sigurðsson.
Aðalsafnaðarfundur Bústaðasóknar að
lokinni messu. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11:00. Sr. Jak-
ob Ágúst Hjálmarsson prédikar og þjónar
fyrir altari. Vox feminae syngur undir stjórn
Margrétar Pálmadóttur.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11:00 í
umsjá Hrundar Þórarinsdóttur djákna o.fl.
Guðsþjónusta kl. 11:00. Kirkjukór Grens-
áskirkju syngur. Organisti Árni Arinbjarn-
arson. Tekin samskot til kirkjustarfsins.
Ólafur Jóhannsson
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili:
Guðsþjónusta kl. 14:00. Organisti Kjartan
Ólafsson. Sr. Kjartan Örn Sigurbjörnsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og barna-
starf kl. 11:00. Hópur úr Mótettukór Hall-
grímskirkju syngur. Organisti Hörður Ás-
kelsson. Barnastarfið í umsjá Magneu
Sverrisdóttur. Sr. Sigurður Pálsson. Enska
messa kl. 14. Bjarni Þór Bjarnason prédik-
ar og þjónar fyrir altari.
HÁTEIGSKIRKJA: Fermingarmessa kl.
11:00. Organisti Douglas A. Brotchie. Sr.
Helga Soffía Konráðsdóttir. Barnaguðs-
þjónusta kl. 13:00. Umsjón Ólafur Jóhann
Borgþórsson.
LANDSPÍTALI HÁSKÓLASJÚKRAHÚS:
Hringbraut: Helgistund kl. 10:30. Rósa
Kristjánsdóttir, djákni. Fossvogur: Guðs-
þjónusta kl. 10:30. Sr. Sigfinnur Þorleifs-
son. Landakot: Guðsþjónusta kl. 11:30.
Sr. Sigfinnur Þorleifsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.
Barnastarfinu lýkur og verður efni guðs-
þjónustunnar því að töluverðu leyti miðað
við það en þó ætlað einnig hinum eldri.
Séra Jón Helgi Þórarinsson, Jón Stef-
ánsson og Guðbjörg Þóra annast stundina
og félagar úr Kór Langholtskirkju syngja.
Eftir guðsþjónustuna verða pylsur grillaðar
og farið í leiki. Allir velkomnir.
LAUGARNESKIRKJA: Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Sr. María Ágústsdóttir
héraðsprestur þjónar. Kór Laugarnes-
kirkju syngur undir stjórn Gunnars Gunn-
arssonar. Meðhjálpari er Aðalbjörg Helga-
dóttir. Sunnudagaskólinn er í höndum
Hildar Eirar Bolladóttur, Heimis Haralds-
sonar og Þorvalds Þorvaldssonar og
messukaffi Sigríðar kirkjuvarðar bíður svo
allra að messu lokinni. Kl. 13:00 Guðs-
þjónusta í Þjónustumiðstöð Sjálfsbjargar
að Hátúni 12. sr. María Ágústsdóttir þjón-
ar ásamt Guðrúnu K. Þórsdóttur djákna,
Gunnari Gunnarssyni organista og hópi
sjálfboðaliða.
NESKIRKJA: Messa kl. 11.00. Kveðju-
messa sr. Helga Hróbjartssonar. Kór Nes-
kirkju syngur. Organisti Steingrímur Þór-
hallsson. Barnastarf á sama tíma. Sögur,
brúður og söngur. Öll börn fá kirkjubókina
og límmiða. Kaffi, djús og spjall í safn-
aðarheimilinu eftir messu.
SELTJARNARNESKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11:00. Félagsmenn Gídeonfélagsins
kynna starfsemi þess. Kristján Einarsson
les ritningartexta. Organisti Pavel Manas-
ek. Prestur Sigurður Grétar Helgason.
Sunnudagaskólinn á sama tíma, við hvetj-
um börnin til að mæta til skemmtilegrar
samveru. Æskulýðsfélagið kl. 20:00.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Messa kl. 14.
Borgarkórinn syngur. Áður auglýstur aðal-
fundur safnaðarins frestast til 9. maí.
ÍSLENSKA KIRKJAN Í SVÍÞJÓÐ: Gauta-
borg. Guðsþjónusta sunnudaginn 25. apr-
íl kl. 14.00 í Skårskirkju í Örgryte. Íslenski
kórinn í Gautaborg syngur. Orgel og kór-
stjórn Tuula og Kristinn Jóhannesson.
Barnastund í messunni. Kirkjukaffi. Prest-
ur sr. Ágúst Einarsson.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Kvöldstund í
sumarbyrjun. Kvöldstund verður í Fríkirkj-
unni í Reykjavík klukkan 20:30. Fagnað
verður sumarkomunni með söng og tón-
list. Lesnir verða ritningartextar ásamt
stuttum hugleiðingum um góða hirðinn og
hvert við stefnum. Lesarar: Ingi Þór Emils-
sonog Þórunn Sigurðardóttir. Við viljum
hvetja alla til þátttöku í þessari hugljúfu og
fallegu stund í sumarbyrjun.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl.11.00. Organisti Kristina Kalló Szklen-
ár. Kór Árbæjarkirkju syngur. Sunnudaga-
skóli á sama tíma á neðri hæð kirkjunnar.
Aðalsafnaðarfundur eftir guðsþjónustuna.
Venjuleg aðalfundarstörf. Allir velkomnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Stoppleikhúsið kemur í heim-
sókn. Tómasarmessa kl. 20 í samvinnu
við félag guðfræðinema og Kristilegu
skólahreyfinguna. Fyrirbænir, máltíð Drott-
ins og fjölbreytt tónlist. Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Kirkjan er lokuð vegna
viðgerða 14.–30. apríl. Messað verður kl.
11.00 sunnudaginn 2. maí.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11:00. Prestur: Sr. Svavar Steánsson.
Organisti: Lenka Mátéová. Kór kirkjunnar
syngur undir stjórn organista. Sunnudaga-
skóli í safnaðarheimilinu á sama tíma
undir stjórn Elfu Sifjar Jónsdóttur. Með-
hjálpari Kristín Ingólfsdóttir. Eftir guðs-
þjónustuna verður boðið upp á súpu og
brauð í safnaðarheimilinu. Sjá nánar á
www.kirkjan.is/fella-holakirkja
GRAFARVOGSKIRKJA: Ferming kl. 10:30.
Ferming kl. 13:30. Barnaguðsþjónusta kl.
11 í Borgarholtsskóla. Séra Lena Rós
Matthíasdóttir. Umsjón Siffi og Sigga.
Undirleikari Sigrún M. Þórsteinsdóttir.
HJALLAKIRKJA: Tónlistarguðsþjónusta kl.
11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar. Félagar
úr kór kirkjunnar syngja og leiða safn-
aðarsöng. Flutt verður íslensk tónlist ein-
göngu og messutón eftir Jón Þórarinsson.
Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Ferðalag
barnastarfsins kl. 13. Ferð út í náttúruna,
grillaðar pylsur, leikir og gaman. Við minn-
um á bæna- og kyrrðarstund kl. 18 og Op-
ið hús á fimmtudaginn kl. 12 (sjá einnig í
www.hjallakirkja.is)Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf kl. 11.00 í
safnaðarheimilinu Borgum í umsjón Dóru
Guðrúnar, Bóasar og Önnu Kristínar.
Guðsþjónusta kl. 11.00. Sr. Ingþór Indr-
iðason Ísfeld prédikar og þjónar fyrir altari.
Kór Kópavogskirkju syngur og leiðir safn-
aðarsöng. Organisti Julian Hewlett. Boðið
verður upp á samveru og kaffi í Borgum að
guðsþjónustu lokinni. Sr. Ægir. Fr. Sig-
urgeirsson.
LINDASÓKN Í KÓPAVOGI: Messa í Linda-
skóla kl. 11. Sunnudagaskóli fer fram í
kennslustofum meðan á messu stendur.
Aðalsafnaðarfundur fer fram að messu
lokinni. Venjuleg aðalfundarstörf. Allir vel-
komnir.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Söngur, lifandi samfélag! Guðsþjónusta
kl. 14. Sr. Bolli Pétur Bollason prédikar.
Kór Seljakirkju leiðir söng. Organisti Jón
Bjarnason. Altarisganga.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN, Fossaleyni
14, Grafarvogi. Morgunguðsþjónusta
kl.11.00. Fræðsla fyrir börn og fullorðna.
Unnar Erlingsson kennir. Samkoma kl.
20.00. Mikil lofgjörð og fyrirbænir. Ingunn
Björnsdóttir predikar. Þáttur kirkjunnar
„Um trúna og tilveruna“ er sýndur á
Ómega kl.13.30.
BOÐUNARKIRKJAN, Hlíðasmári 9, Kóp.:
Samkomur alla laugardaga kl. 11:00.
Bænastund alla þriðjudaga kl. 20:00.
Biblíufræðsla allan sólarhringinn á Útvarp
Boðun FM 105,5. Allir alltaf velkomnir.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ: Heim-
sókn frá Færeyjum. Kvöldvaka í kvöld,
laugardag, kl 20.30. Guðsþjónusta
sunnudag kl 20.30. Allir velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagur: Kl.
19.30 bænastund. Kl. 20 hjálpræð-
issamkoma. Umsjón Elsabet Daníels-
dóttir. Mánudagur: Kl. 15 heim-
ilasamband. Elsabet Daníelsdóttir talar.
Allar konur velkomnar.
FRÍKIRKJAN KEFAS, Vatnsendabletti
601: Samkoma sunnudag kl. 14. Helga R.
Ármannsdóttir talar. Lofgjörð og fyr-
irbænir. Tvískipt barnastarf fyrir 1–6 ára
og 7–12 ára á samkomutíma. Kaffi og
samfélag eftir samkomu. Allir eru hjart-
anlega velkomnir. Nánari upplýsingar á
www.kefas.is
KFUM og KFUK v/Holtaveg: Samkoma
kl.17:00, Tónlistarsamkoma í umsjá
hjónanna og tónlistafólksins Keith Reed
og Ástu Schram. Undraland fyrir börnin,
grillað verður eftir samkomuna, verð að
venju fjölskylduvænt. Verið öll hjartanlega
velkomin. Konur í KFUK eru minntar á Af-
mælis- og inntökufundinn nk. þriðjudag
27.apríl. Nauðsynlegt er að skrá sig í mat-
inn fyrir kl. 12 á mánudaginn í síma
588 8899.
FÍLADELFÍA: Almenn samkoma kl. 16:30.
Ræðumaður Vörður Leví Traustason.
Gospelkór Fíladelfíu leiðir í söng. Fyrirbæn
í lok samkomu. Barnakirkja á sama tíma.
Allir hjartanlega velkomnir. Miðvikudaginn
28. apríl kl. 18:00–20:00 er fjölskyldu-
samvera með léttri máltið. Allir eru hjart-
anlega velkomnir. Þetta er síðasta fjöl-
skyldusmaveran fyrir sumarið.
Bænastundir alla virka morgna kl. 06:00.
filadelfia@gospel.is www.gospel.is
VEGURINN: Fjölskyldusamkoma kl. 11:00
kennsla fyrir alla aldurshópa, létt máltíð
eftir samkomu á vægu verði. Bænastund
kl. 19:30. Almenn samkoma kl. 20:00,
Jón Gunnar Sigurjónsson talar, lofgjörð,
vitnisburðir, fyrirbænir og samfélag á eftir
samkomu í kaffisalnum. Bókabúð opin
eftir samkomu. www.vegurinn.is
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík, Kristskirkja í Landakoti, dóm-
kirkja og basilíka: Sunnudaga: Messa kl.
10.30. Messa á ensku kl. 18.00. Alla
virka daga: Messa kl. 18.00. Á laug-
ardögum: Barnamessa kl. 14.00 að trú-
fræðslu lokinni. Kirkjan er öllum opin á
daginn frá kl. 8.00 til 18.30. Sunnudaginn
25. apríl: Biskupsmessa og ferming 12
ungmenna. Maímánuður er settur sér-
staklega undir vernd heilagrar Maríu meyj-
ar og tileinkaður henni. Haldin er bæna-
stund á hverjum mánudegi og miðvikudegi
kl.17.40. Fyrsta bænastund er laugardag-
inn 1. maí kl. 17.40.
Reykjavík, Maríukirkja við Raufarsel:
Sunnudaga: Messa kl. 11.00. Laug-
ardaga: Messa á ensku kl. 18.30. Virka
daga: Messa kl. 18.30
Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl.
16.00. Miðvikudaga kl. 20.00.
Hafnarfjörður, Jósefskirkja: Sunnudaga:
Messa kl. 10.30. Miðvikudaga: Messa kl.
18.30.
Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa kl.
08.30. Virka daga: Messa kl. 8.00.
Keflavík, Barbörukapella, Skólavegi 38:
Sunnudaga: Messa kl. 14.00. Alla
fimmtudaga: Rósakransbæn kl. 20.00.
Stykkishólmur, Austurgötu 7: Alla virka
daga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga:
Messa kl. 10.00.
Ísafjörður: Sunnudaga: Messa kl. 11.00.
Flateyri: Laugardaga: Messa kl. 18.00.
Bolungarvík: Sunnudaga kl. 16.00.
Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl. 19.00.
Akureyri, Kaþólska kirkjan, Péturskirkja,
Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga: Messa
kl. 18.00. Sunnudaga: Messa kl. 11.00.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Laug-
ardagur: Kl. 11:00 Fermingarmessa í
Landakirkju. Kór Landakirkju syngur undir
stjórn Guðmundar H. Guðjónssonar.
Prestar sr. Fjölnir Ásbjörnsson og sr. Þor-
valdur Víðisson. Kl. 20:30 Kvöldvaka í
Landakirkju með æskulýðsfélaginu og
Adrenalín hóp frá Reykjavík. Umsjón sr.
Jóna Hrönn Bolladóttir, Esther Bergsdóttir
æskulýðsfulltrúi og prestar kirkjunnar.
Unglingar fjölmennum í Safnaðarheimilið
og hittum skemmtilegan hóp unglinga og
eigum eftirminnilega stund saman.
Sunnudagur: Kl. 11:00 Sunnudagaskóli í
Landakirkju. Mikill söngur, biblíusaga,
biblíukerti og brúðuheimsókn. Fjölmenn-
um í kirkju með börnin. Sr. Fjölnir Ás-
björnsson og barnafræðararnir. Kl. 14:00
Fermingarmessa í Landakirkju. Kór Landa-
kirkju syngur undir stjórn Guðmundar H.
Guðjónssonar. Prestar sr. Fjölnir Ásbjörns-
son og sr. Þorvaldur Víðisson. Kl. 20:30
Frí hjá Æskulýðsfélaginu vegna kvöldvöku
í gærkvöldi.
LÁGAFELLSKIRKJA: Vorhátíð barna- og
æskulýðsstarfsins. Mæting við safn-
aðarheimilið kl.11.00. Rútuferð að Mos-
fellskirkju (ef verður leyfir) Leikur og söng-
ur í sveitinni og grillið verður hitað. Kl.
12.10 Helgistund í Mosfellskirkju. Mæt-
um öll hress og kát í sumarskapi . Sunnu-
dagaskólinn, kirkjukrakkar, TTT- hópurinn
og Æskulýðsfélagið SOUND.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Messa kl. 11.
Organisti Antonía Hevesí og prestur sr.
Þórhallur Heimisson. Sunnudagaskóli fer
fram á sama tíma í safnaðarheimilinu og
Hvaleyrarskóla. Krakkar munið kirkjurút-
una.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Skemmtileg stund
fyrir alla fjölskylduna. Guðsþjónusta kl.
14. Prédiktun: Sr. Toshiki Toma prestur
innflytjenda. Hafnfirðingum af erlendum
uppruna er sérstaklega boðið til messu.
Allir velkomnir. www.vidistadakirkja.is
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Barna- og fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Tónlist-
armennirnir Örn Arnarson og Skarphéðinn
Hjartarson leiða stundina ásamt Eddu
Möller. Að viku liðinni, sunnudaginn 2.
maí, verður aðalfundur safnaðarins hald-
inn að lokinni guðsþjónustu.
ÁSTJARNARKIRKJA: Fermingarmessa í
Hafnarfjarðarkirkju í dag, laugardag, kl.
11.
GARÐASÓKN: Fermingarmessa í Vídal-
ínskirkju sunnudaginn 25. apríl, kl. 10:30.
Kór Vídalínskirkju leiðir almennan safn-
aðarsöng. Organisti: Jóhann Baldvinsson.
Við athöfnina þjóna sr. Friðrik J. Hjartar og
sr. Hans Markús Hafsteinsson. Prestarnir.
BESSASTAÐASÓKN: Fermingarmessa í
Bessastaðasókn, sunnudaginn 25. apríl,
kl. 13:30. Kór kirkjunnar, Álftaneskórinn,
leiðir almennan safnaðarsöng. Organisti:
Jóhann Baldvinsson. Við athöfnina þjóna
sr. Friðrik J. Hjartar og sr. Hans Markús
Hafsteinsson. Prestarnir.
HNÍFSDALSKAPELLA: Kvöldmessa kl.
20.30. Gospelkórinn syngur undir stjórn
Pálínu Vagnsdóttur. Altarisganga. Sókn-
arprestur.
HRÍSEYJARKIRKJA: Messa og ferming
sunnudag kl. 10.30.
AKUREYRARKIRKJA: Laugardagur: Ferm-
ingarmessa kl. 10.30. Sr. Jóna Lísa Þor-
steinsdóttir og sr. Svavar A. Jónsson. Fé-
lagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja.
Organisti Björn Steinar Sólbergsson.
Sunnudagur: ÆFAK kl. 20. Æðruleys-
ismessa kl. 20.30. Sr. Jóna Lísa Þor-
steinsdóttir og sr. Gylfi Jónsson. Um tón-
listina sjá Arna Valsdóttir, Eiríkur Bóasson
og Stefán Ingólfsson. Kaffi í safn-
aðarheimili að lokinni messu.
GLERÁRKIRKJA: Laugardagur: Starf fyrir
grunnskólabörn 1.–4 bekk kl. 11. Söngur,
leikir og fræðsla. Fermingarmessa kl.
13.30. Sr. Gunnlaugur Garðarsson og sr.
Arnaldur Bárðarson þjóna. Félagar úr Kór
Glerárkirkju, organisti Hjörtur Steinbergs-
son. Sunnudagur: Barnasamvera kl. 11 í
safnaðarsal. Söngur, leikir, lofgjörð og
fræðsla. Fermingarmessa kl. 13.30. Sr.
Gunnlaugur Garðarsson og sr. Arnaldur
Bárðarson þjónar. Félagar úr Kór Gler-
árkirkju, organisti Hjörtur Steinbergsson.
LAUFÁSPRESTAKALL: Grenivíkurkirkja.
Fermingarguðsþjónusta sunnudag kl. 11.
Kyrrðarstund sunnudagskvöld kl. 20.
ÞINGEYJARPRÓFASTSDÆMI: Héraðs-
fundur prófastsdæmisins verður haldinn í
Kirkjumiðstöðinni við Vestmannsvatn
laugardaginn 24. apríl og hefst þar stund-
víslega kl. 11.
EGILSSTAÐAKIRKJA: Messa kl. 14. Að-
alsafnaðarfundur að messu lokinni.
Mánudagur 26. apríl: Kyrrðarstund kl. 18.
Opinn 12 spora fundur, andlegt ferðalag,
4. spor kl. 20. Sóknarprestur og sókn-
arnefnd.
ODDAKIRKJA á Rangárvöllum: Ferming-
arguðsþjónusta sunnudag kl. 13.30. Org-
anisti Nína Morávek, kór Odda- og Þykkva-
bæjarsókna syngur. Altarisganga. Sr.
Skírnir Garðarsson.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa verður
sunnudag kl. 11.00. Í messunni munu fé-
lagar úr Kammerkór Mosfellsbæjar flytja
trúarleg verk. Símon Ívarsson leikur á gítar
við upphaf og lok messunnar.
SELFOSSKIRKJA: Messa sunnudag kl.
11. Súpa og brauð eftir messu. Ferming-
armessa kl. 14. Morguntíð sungin þriðju-
dag til föstudags kl. 10, kaffisopi á eftir.
Foreldramorgnar mið. 28. apríl kl. 11.
GAULVERJABÆJARKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 14. Aðalsafnaðarfundur eftir
messu. Sóknarprestur.
Guðspjall dagsins: Ég
er góði hirðirinn.
( Jóh. 10.)