Morgunblaðið - 24.04.2004, Side 41
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 41
enda varstu friðsæll og fallegur að
vanda. Þegar ég kom heim eftir að
hafa verið hjá þér ilmuðu hendur mín-
ar af raksápu og rakspíra, það var svo
notalegt.
Margs er að minnast, elsku afi
minn, skemmtilegar voru allar ferð-
irnar okkar út á mýri með allt nestið í
grænum netpoka. Yfirleitt var sest á
Vöðlahólinn til að borða nestið okkar
og þú sagðir mér að gefa álfunum sem
búa í vörðunni með mér af nestinu, þú
sagðir að þeir myndu launa mér það
seinna. Allir reiðtúrarnir okkar sem
við fórum í um sveitina, og ég á Þyt
gamla. Skemmtilegast fannst mér að
fara með þér í reiðtúr að Kaldaðar-
nesi, það var svo langt að fara og þá
var tekið með nesti. Eftirsóknarvert
var að fara í reiðtúr að Ljónsstöðum,
þar var alltaf fullt borð af kökum og
við vorum bara tvö, alveg stórkost-
legt. Oft æfði ég mig í að syngja fyrir
þig texta sem ég var að semja og
breyta. Þú hrósaðir mér mikið fyrir
þessar textasmíðar. Þakka ég þér
innilega fyrir þolinmæðina og áhug-
ann sem þú sýndir lítilli dömu. Eitt
lag er það sem stendur upp úr þegar
ég hugsa um þig, afi minn, það er lag-
ið „lambið mitt með blómann bjarta“.
Það var nú oft sungið fyrir okkur
barnabörnin og nú seinna langafa-
börnin og svo var hossað hressilega í
takt. Alltaf fannst mér vænt um þegar
þú kallaðir mig „stelpuna þína“ og
enn meira nú í seinni tíð þegar Andr-
ea Björk dóttir mín var líka orðin
„stelpan þín“. Við viljum þakka þér,
elsku afi, fyrir það hversu góður þú
varst börnunum okkar. Þér var mikið
annt um allan barnahópinn þinn.
Langafabörnunum fjölgaði ört. Þú
óskaðir þess að ná þrjátíu langafa-
börnum áður en þú færir til ömmu.
Þér varð því miður ekki að ósk þinni.
Vegleg sængurgjöf var í boði, sem var
bara snilld. En besta og veglegasta
gjöfin er að hafa kynnst þér. Við Ol-
geir kveðjum þig, elsku afi minn, og
þökkum þér fyrir allt.
Bára.
Það verður tómlegt að koma heim
til Íslands framvegis, nú þegar afi er
farinn. Það var alltaf gott að heim-
sækja hann. Hlátur og gleði er það
fyrsta sem mér dettur í hug þegar ég
hugsa til hans.
Ég var svo heppinn að fá að vera
mikið með honum sem barn. Það eru
margir reiðtúrarnir á mýrinni í
Byggðarhorni sem við höfum farið
saman. Tíu ára gamall var ég ráðinn
sem sumarvinnumaður hjá honum, og
er mér sauðburðurinn afar minnis-
stæður, þar sem við riðum um mýrina
frá morgni til kvölds til að líta eftir
fénu. Það var ekki amalegt fyrir lítinn
strák úr Mosfellssveitinni að fá að
vera svona mikið með afa sínum. Ég
minnist þess sem barn að ég gat alltaf
talað við afa. Hann hefur alltaf átt ein-
staklega auðvelt með að tala við fólk
og ég fylltist alltaf öryggistilfinningu í
návist hans. Hann átti sérstaklega
gott með að ná sambandi við börn og
var stoltur af öllum afa– og langafa-
börnunum sínum.
Þegar að við vorum á Íslandi fyrir
tveimur árum í nokkra mánuði vorum
við mikið hjá honum, og hann naut
þess að fá heimsókn og upplifa lang-
afabörnin sín. Fyrir fjórum árum kom
hann hingað til Danmerkur að heim-
sækja okkur. Það var í maímánuði
þegar gróðurinn er allur sprunginn út
og raps-akrarnir enn þá gulir. Hann
átti ekki til eitt einasta orð yfir öllum
gróðrinum og skildi vel að við vildum
búa hér.
Afi var yfirleitt mjög jákvæður
maður, en gat þó fundið einn nei-
kvæðan punkt við Danmörku. Hann
taldi það nær vonlaust að smala hér.
Maður þyrfti allavegana að vera með
góðan hund.
Að lokum vil ég þakka þér, afi
minn, þakka þér fyrir allt sem þú
kenndir mér. Þú kenndir mér að
hrósa og skamma á sangjarnan hátt,
nægjusemi, vera kurteis en samt
ákveðinn, vera hreinskilinn, þakklát-
ur og mannlegur. Þú kenndir mér fað-
irvorið. Takk fyrir það. Megir þú hvíla
í friði.
Haraldur Sigvaldason.
Fleiri minningargreinar um Geir
Gissurarson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er
sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út-
prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu-
síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda
þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn
einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar
skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17
dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er
hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að
það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför ástkærs stjúpföður
míns og bróður,
PÉTURS PÁLSSONAR,
Skálahlíð,
áður Túngötu 39,
Siglufirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks gjörgæslu
Sjúkrahúss Akureyrar og Sjúkrahúss Siglu-
fjarðar fyrir góða umönnun.
Birgir Steingrímsson,
Gunnar Pálsson,
Páll Pálsson,
Gísli Pálsson,
Jóhannes Pálsson,
Sigrún Hansdóttir.
Innilegar þakkir sendum við öllum, er sýndu
okkur vináttu og hlýhug við andlát og útför
elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa
og langafa,
BJARNA PÁLMARSSONAR,
Nóatúni 28,
Reykjavík.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðbjörg Ágústa Björnsdóttir.
Elskuleg sambýliskona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÚN GUÐBJÖRNSDÓTTIR
Dúa,
Sörlaskjóli 60,
sem lést á Landspítalanum Fossvogi laugar-
daginn 17. apríl, verður jarðsungin frá Áskirkju
mánudaginn 26. apríl kl. 15.00.
Guðbjörn Guðjónsson,
Margrét Valdimarsdóttir, Sigurjón Yngvason,
Steinunn Valdimarsdóttir, Steingrímur Dagbjartsson,
Þorbjörg Valdimarsdóttir, Þorsteinn Þorvaldsson,
Unnur Valdimarsdóttir, Eyþór Benediktsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegustu þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og vináttuhug við andlát og út-
för ástkærs bróður okkar, mágs og frænda,
EINARS BJÖRNSSONAR
frá Ingunnarstöðum,
Kjós.
Guðný Guðrún Björnsdóttir, Birgir Hannesson,
Kristín Björnsdóttir, Guðmundur K. Stefánsson,
Lárus Björnsson, Eva Erlingsdóttir,
Finnbogi Björnsson, Ásrún Atladóttir,
Arndís Björk Brynjólfsdóttir,
Elín Anna Lárusdóttir,
Björn Finnbogason,
Brynjar Þór Birgisson,
María Björk Lárusdóttir.
Innilegustu þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu, dóttur, systur, mág-
konu og tengdadóttur,
STEINUNNAR HELGADÓTTUR
félagsráðgjafa,
Grenimel 28,
Reykjavík.
Ykkar stuðningur hefur verið okkur ómetanlegur á þessum erfiða tíma.
Guð blessi ykkur öll.
Þórður Óskarsson,
Eygló Ósk Þórðardóttir, Þorvarður R. Hálfdanarson,
Sara Elísa Þórðardóttir, Sigurður E. Guðmundsson,
Þórður Harry Kerr,
Helgi Kr. Halldórsson, Elísabet Gunnlaugsdóttir,
Lára V. Helgadóttir, Eric Jonson,
Margrét H. Helgadóttir, Siegfried Hügemann,
Gunnlaugur Helgason, Kristín Ágústa Valsdóttir,
Þuríður Eygló Þórðardóttir.
Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
RAGNHEIÐUR ÞYRI NIKULÁSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 26. apríl kl. 13.30.
Ragna Þyri Magnúsdóttir,
Guðný Edda Magnúsdóttir, Sigurður R. Pétursson,
Nikulás Friðrik Magnússon, Svandís Hauksdóttir,
Anna Stefanía Magnúsdóttir, Björn Heimir Björnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, dóttir, systir, mágkona
og frænka,
SNJÓLAUG G. STEFÁNSDÓTTIR
verkefnisstjóri,
Fagrahvammi 2B,
Hafnarfirði,
sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópa-
vogi miðvikudaginn 21. apríl, verður jarðsungin
frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 27. apríl
kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Félag kvenna af erlendum upp-
runa á Íslandi. Styrktarsími 821 2523.
Brynja Dan Gunnarsdóttir, Líney Dan Gunnarsdóttir,
Margrét Guðmundsdóttir, Stefán Gunnlaugsson,
Gunnlaugur Stefánsson, Sjöfn Jóhannesdóttir,
Guðmundur Árni Stefánsson, Jóna Dóra Karlsdóttir,
Ásgeir Gunnar Stefánsson, Sigrún Björg Ingvadóttir,
Finnur Torfi Stefánsson, Steinunn Jóhannesdóttir
og bræðrabörn.
Innilegar þakkir færum við þeim fjölmörgu
sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna
andláts og útfarar elskulegs eiginmanns míns,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
SKARPHÉÐINS NJÁLSSONAR,
Sólvallagötu 9,
Keflavík.
Sérstakar þakkir færum við Lögreglunni í
Reykjavík, Lögreglukór Reykjavíkur, Karlakór
Keflavíkur og Ester Ólafsdóttur organista.
Guð geymi ykkur.
Anna Margrét Jónsdóttir,
Hólmfríður Skarphéðinsdóttir, Eyþór Jónsson,
Njáll Skarphéðinsson,
Jón Valgeir Skarphéðinsson, Anna Andrésdóttir,
Sigurður Skarphéðinsson, Linda H. Birgisdóttir,
Eysteinn Skarphéðinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okk-
ur samúð og vinarhug við andlát og útför
móður okkar, fósturmóður og tengdamóður,
SIGRÍÐAR GUÐJÓNSDÓTTUR,
Lindargötu 18,
Siglufirði.
Sólrún Magnúsdóttir, Erling Jónsson,
Guðjón B. Magnússon, Jóhanna Stefánsdóttir,
Sigurlaug Magnúsdóttir, Guðmundur J. Guðmundsson,
Emil H. Pétursson, Ragna Ragnarsdóttir
og fjölskyldur.