Morgunblaðið - 24.04.2004, Qupperneq 44
44 LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
HIÐ árlega dansmót barna og
unglinga sem haldið er í Blackpool á
Englandi fór fram á dögunum. Mót-
ið stóð yfir í fimm daga og var
keppni fyrir dansarana á hverjum
degi. Stærstu keppnirnar eru
meistarakeppnirnar og eru þær
tvær í hvorum aldursflokknum, það
er í standarddönsum annars vegar
og hins vegar í s.-amerískum döns-
um.
Íslendingar hafa tekið þátt í
þessu móti í u.þ.b. 15 ár og voru það
þessu sinni sex pör sem lögðu land
undir fót og tóku þátt í keppnunum
sem þar voru í boði. Í flokki barna
(11 ára og yngri) kepptu tvö pör.
Það voru þau Sigtryggur Hauksson
og Eyrún Stefánsdóttir frá Dans-
íþróttafélaginu Gulltoppi og Sigurð-
ur Már Atlason og Sara Jakobsdótt-
ir frá Dansíþróttafélagi Hafnar-
fjarðar. Í flokki unglinga (12–15
ára) kepptu þau Adam Erik Bauer
og Þóra Björg Sigurðardóttir frá
Dansíþróttafélaganu Gulltoppi,
Gísli Bergur Sigurðsson og Elísa
Rut Hallgrímsdóttir einnig frá Gull-
toppi, Eyþór Þorbjörnsson og
Hanna Rún Óladóttir frá Dans-
íþróttafélaginu Hvönn og Haukur
Freyr Hafsteinsson og Denise
Yaghi einnig frá Hvönn.
Í flokki barna voru 67 pör skráð
til keppni í „British Juvenile Ball-
room Championship“. Þá er keppt í
standarddönsum. Í þeirri keppni
komust Sigtryggur og Eyrún í 2.
umferð (40 para) og Sigurður og
Sara í 3. umferð (28 para). Sigur-
vegarar í standarddönsum voru
Andreas Roosson og Helina Oun frá
Eistlandi. Það voru síðan 73 pör
skráð til leiks í „British Juvenile
Latin Championship“ þar sem
keppt er í s.-amerískum dönsum.
Þar komust Sigtryggur og Eyrún í
2. umferð (50 para) og Sigurður og
Sara í 3. umferð (24 para). Sigur-
vegarar voru Kirill Kolpashchikov
og Sofya Shutkina frá Rússlandi.
Mjög sterk keppni
Í flokki unglinga voru 214 pör
skráð til keppni í „British Junior
Ballroom Championship“. Þetta var
mjög sterk keppni og komust ís-
lensku pörin því miður ekki upp úr
fyrstu umferð. Sigurvegarar voru
þau Nikita Brovko og Natalia Kal-
ashnik frá Rússlandi. Í s.-amerísku
dönsunum var slegið met í skrán-
ingu keppenda. Til keppni í „British
Junior Latin Championship“ voru
skráð 249 pör. Þar komust tvö ís-
lensku paranna, þau Eyþór og
Hanna Rún og Haukur og Denise, í
2. umferð (127 pör). Sigurvegarar
voru þau sömu og í s.-amerísku
dönsunum og voru því tvöfaldir
meistarar þetta árið. Þau eru að
mínu mati hreint frábærir dansarar
og vel að sigrinum komin. Þetta er
ekki í fyrsta sinn sem þau sigra í
Blackpool því þau voru einnig tvö-
faldir meistarar þegar þau kepptu í
flokki barna fyrir þremur árum.
Samhliða meistaramótunum fóru
einnig fram minni keppnir þar sem
keppt var í einum til tveimur döns-
um. Þar tókst sumum íslensku par-
anna að komast lengra en í stóru
keppnunum.
Árlega er nokkrum þjóðum boðið
til þátttöku í liðakeppni og eru tvær
slíkar keppnir, ein í hvorum aldurs-
flokki. Þar mynda fjögur pör lið og
dansa tvö þeirra standarddansa og
tvö pör s.-ameríska dansa. Íslend-
ingar hafa um árabil verið þátttak-
endur í þessum keppnum en því
miður tókst ekki að vera með í yngri
flokknum þar sem einungis tvö pör
fóru héðan til þátttöku í Blackpool-
dansmótinu. Sigurvegarar í báðum
aldursflokkum í liðakeppninni voru
frá Rússlandi. Þaðan kom mesti
fjöldi keppenda á mótið og eru þeir í
heildina mjög sterkir dansarar.
Mér fannst íslensku pörin dansa
ljómandi vel í þessari ferð og fóru
þau vaxandi þegar leið á keppnina.
Þetta er mikill skóli og gaman fyrir
þau að sjá dansara víðs vegar úr
heiminum koma saman og dansa á
einum stað.
Keppnin er haldin í „The Tower
Ballroom“ sem er glæsilegur salur í
Blackpool. Þar er hátt til lofts og
eru tvær hæðir af svölum fyrir
áhorfendur. Gylltar skreytingar eru
upp um alla veggi og handmáluð
listaverk í loftinu. Þarna er park-
etgólf sem lagt er í skrautlegt
mynstur. Dansararnir fá að njóta
þess að dansa undir lifandi tónlist,
fluttri af níu manna hljómsveit, sem
er einstök upplifun og skapar frá-
bæra stemningu. Níu dómarar
dæmdu í keppninni og voru allir frá
Bretlandi.
Skipuleggjandi keppninnar til
fjölda ára er Gillian MacKenzie.
Þetta var í síðasta sinn sem hún
skipulagði þessa keppni. Í lok
keppninnar er ávallt haldin sam-
koma þar sem fram koma sigurveg-
arar vikunnar og fulltrúar úr lið-
unum sem taka þátt í liðakeppninni.
Þar var henni þakkað áralangt starf
við það að skipuleggja, að margra
sögn, „bestu danskeppni heims“ í
flokki barna og unglinga.
Íslenska liðið stillir sér upp fyrir ljósmyndara fyrir liðakeppnina í Blackpool.
Sex íslensk pör
dönsuðu í Blackpool
DANS
Blackpool á Englandi
Íslensku pörin sem tóku þátt í Blackpoolkeppninni.
Kara Arngrímsdóttir.
FRÉTTIR
Í TENGSLUM við umræðuna um
fjöldatakmarkanir í ríkisháskóla vill
Kennaraháskóli Íslands benda á að
mörg undanfarin ár hefur skólinn bú-
ið við það að þurfa að takmarka fjölda
nýnema. Þrátt fyrir mikla fjölgun
nemenda í skólanum undanfarin fjög-
ur ár hefur fjárhagsrammi skólans
ekki gert honum kleift að taka inn
nema brot af þeim fjölda sem sækir
um skólavist ár hvert. Síðastliðið vor
var metaðsókn að skólanum en þá var
aðeins hægt að bjóða þriðjungi um-
sækjenda skólavist. Allt útlit er fyrir
að nú í vor verði umsóknir einnig
miklu fleiri en hægt verður að koma
til móts við.
Kennaraháskóli Íslands hefur lagt
áherslu á að fjölgun nemenda við
skólann komi ekki niður á gæðum
kennslunnar meðal annars með því að
halda í þá hefð að verulegur hluti
kennslu í staðnámi fari fram í fá-
mennum hópum. Í fjarnámi er lögð
mikil áhersla á persónuleg samskipti
stúdenta og kennara með aðstoð
kennsluumhverfis á vef og kennslu í
staðlotum. Haustið 2001 var tekið í
notkun nýtt kennsluhúsnæði með
góðum fyrirlestrarsölum og kennslu-
stofum. Aðstaða til náms við Kenn-
araháskólann er því mjög góð.
Kennaraháskóli Íslands er miðstöð
kennara- og uppeldismenntunar á Ís-
landi. Skólinn menntar starfsstéttir
sem skortur er á í samfélaginu og tel-
ur mikilvægt að uppfylla þarfir sam-
félagsins í þeim efnum og koma til
móts við þá einstaklinga sem vilja
leggja stund á nám á sviði kennslu,
uppeldis, ráðgjafar og þjálfunar.
Í umræðu um fjöldatakmarkanir í
háskóla er mikilvægt að horft sé til
alls háskólastigsins. Ljóst er að ef
Kennaraháskólinn þarf að hafna um
1000 umsækjendum – eins og allt útlit
er fyrir – má ætla að stór hluti þeirra
sem ekki fá skólavist leiti eftir námi í
öðrum háskólum, ekki síst Háskóla
Íslands þar sem ekki hafa verið
fjöldatakmarkanir t.d. í hug- og fé-
lagsvísindum.
Fjöldatakmark-
anir árum saman