Morgunblaðið - 24.04.2004, Síða 49

Morgunblaðið - 24.04.2004, Síða 49
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 49 FÓTBOLTALEIKUR Pepsi er hafinn og stendur til 4. júlí sem er jafnframt síðasti leikdagur Evr- ópukeppninnar í fótbolta. Til að taka þátt í leiknum þarf að safna 20 gulum fótboltatöppum af Pepsi-, Pepsi Max-, Diet Pepsi- eða Mountain Dew-flöskum og fara með þá í Útilíf ásamt 500 krónum. Fæst þá afhentur fótboltapakki sem inniheldur Pepsi-fótbolta sem er áritaður af Beckham, Ronald- ino, Carlosi o.fl., plakat með helstu Pepsi-fótboltastjörnum og máltíð á Kentucky Fried Chicken eða Pizza Hut. Þátttakendur geta tekið þátt í Draumapotti Pepsi með því að fylla út þátttökuseðla á afhending- arstað. Tveir þátttakendur verða dregnir úr Draumapottinum og fá fótboltaferð fyrir tvo til Madríd, gistingu og miða á leik með Real Madrid. Dregið verður úr pottin- um um verslunarmannahelgina. Ef vinningshafi er undir lögaldri verð- ur hann að ferðast í fylgd forráða- manns. Fótbolta- ferð til Madríd í boði Pepsi BARNAVINAFÉLAGIÐ Sumargjöf veitti styrki til málefna barna sumardaginn fyrsta. Í janúar og febrúar síðastliðnum auglýsti Sum- argjöf eftir umsóknum um styrki til verkefna í þágu barna. Alls bárust 56 umsóknir. Stjórn fé- lagsins komst að þeirri niðurstöðu að veita fjóra styrki að þessu sinni. Styrkina hlutu: Arnar Pálsson verkefnisstjóri fyrir hönd Foreldrafélags barna með ADHD, þ.e. barna með athyglisbrest með eða án of- virkni og skyldar raskanir. Félagið ætlar að nota styrkinn til útgáfu og dreifingar barna- bókarinnar Boken om Sirius eftir norska höf- undinn, Lisbeth Iglum Rønhovde, eða Síríus í íslenskri þýðingu Matthíasar Kristiansen. Bók- in Síríus er ætluð börnum og fullorðnum til aukins skilnings á þeim vandamálum sem snúa að börnum sem haldin eru athyglisbresti með eða án ofvirkni og skyldum röskunum þ.á m. grunn- og leikskólakennurum. Styrkur að upp- hæð kr. 600.000. Jensína Edda Hermannsdóttir leikskóla- kennari fyrir hönd verkefnisteymis og starfs- mannahóps leikskólans Seljaborgar. Hópurinn vinnur að þróunarverkefni sem miðar að efl- ingu félagsfærni barna í leikskólum á mark- vissan hátt með því að kenna börnunum æski- lega hegðun, sjálfsstjórn, jákvæðni, mikilvægi vináttu og hjálpsemi. Styrkur að upphæð kr. 300.000 Una Margrét Jónsdóttir dagskrárgerð- armaður, sem unnið hefur að söfnun, skráningu og rannsókn á leikjasöngvum íslenskra barna nú og fyrr. Styrkur að upphæð kr. 300.000. Þórný Ólý Óskarsdóttir forstöðumaður fyrir hönd unglingaathvarfanna á Amtmannsstíg og í Keilufelli í Reykjavík vegna útgáfu blaðsins Dúndurs sem er samvinnuverkefni milli at- hvarfanna tveggja og unnið af unglingum í at- hvörfunum. Styrkur að upphæð kr. 300.000. Barnavinafélagið Sumargjöf var stofnað á sumardaginn fyrsta vorið 1924 og er því 80 ára um þessar mundir. Lengst af annaðist Sum- argjöf rekstur dagheimila og leikskóla Reykja- víkurborgar eða allt fram til ársins 1978 þegar Reykjavíkurborg yfirtók reksturinn. Á und- anförnum árum hefur Sumargjöf haslað sér völl sem styrktaraðili ýmissa málefna sem varða heill barna í Reykjavík. Eru styrkveitingarnar nú liður í því starfi, en einnig má nefna að Sumargjöf styrkir ýmis önnur verkefni. Félagið er t.d. aðili að Verðlaunasjóði íslenskra barna- bóka og styrkir sjóðinn með föstu framlagi. Sumargjöf veitti fjóra styrki í upp- hafi sumars Morgunblaðið/Eggert SENDIHERRA Þýskalands og Fé- lag þýzkukennara buðu 20 ung- mennum og foreldrum þeirra víðs vegar að af landinu í móttöku í Goethe-Zentrum að Laugavegi 18 í Reykjavík á sumardaginnn fyrsta. Tilefnið var að veita æskufólkinu verðlaun fyrir frábæran árangur í árlegri þýskuþraut sem þýskunem- endur á aldrinum 16–19 ára þreyttu um miðjan febrúar sl. Alls tóku 119 nemendur þátt í þrautinni þetta árið og fengu þeir allir skrautritað viðurkenning- arskjal fyrir þátttökuna. 20 efstu fengu sérstaka viðurkenningu fyrir frábæran árangur og afhenti sendi- herra Þýskalands, Johann Wenzl, þeim bók að gjöf frá þýska sendi- ráðinu. Tvö efstu hlutu auk þess ferð til Þýskalands og fjögurra vikna dvöl á þýskunámskeiði ytra og fyrir þriðja sætið er þriggja vikna dvöl í æskulýðsbúðum í Sax- landi. Að þessu sinni vermdu nemendur úr MR og MH 6 efstu sætin. Hlut- skarpastur allra varð Höskuldur Páll Halldórsson, MR, í öðru sæti varð Salvör Egilsdóttir, einnig úr MR og í því þriðja Sigríður Mjöll Björnsdóttir úr MH. Að verðlaunaafhendingunni lok- inni var gestum boðið að þiggja veitingar í boði sendiráðsins og Fé- lags þýzkukennara. Viðurkenning fyrir árangur í þýsku Morgunblaðið/Sverrir FÉLAG grunnskólakennara hefur sent frá sér ályktun þar sem er mót- mælt harðlega öllum áformum um að innheimta skólagjöld við Háskóla Ís- lands sem og í öðrum ríkisreknum há- skólum. „Slíkar áætlanir grafa undan einni meginstoð íslenska velferðarkerfisins sem er gjaldfrjáls almenningsmennt- un. Félag grunnskólakennara hvetur hlutaðeigandi málsaðila til að hug- leiða afleiðingar slíkrar stefnubreyt- ingar til langframa, m.a. á menntun í landinu og möguleika efnalítils fólks til að afla sér menntunar.“ Mótmæla skólagjöldum ♦♦♦ Varahlutir í vörubíla og vinnuvél- ar. Erum að rífa Volvo FH 12. Eig- um einnig ýmsa varahl. í Volvo, Scania, M. Bens og Man. Útveg- um varahl. í fl. gerðir vinnuvéla. Heiði – vélahlutir, s. 534 3441. Scania, Volvo eigendur! Varahlutir á lager. Upplýsingar, www.islandia.is/scania G.T. Óskarsson, Vesturvör 23, Sími 554 6000. Jeppapartasala Þórðar, Tangar- höfða 2, sími 587 5058. Sérhæfum okkur með varahluti í jeppa og Subaru. Nýrifnir: Patrol '95, Impreza '97, Pajero V6 '92, Patrol '92, Legasy '92, og Vitara '91-'97 Álfelgur + sumardekk 4 stk. f. Hyundai Sonata. Skelltu sumar- dekkjunum beint undir bílinn! Engin biðröð! Til sölu 4 stk. ál- felgur ásamt sumardekkjum, lítið slitin (notuð 2 sumur). Verð 38 þús. (ný 76 þús.). Matador nýir sumarhjólbarðar 155 R 13 kr. 3750, 165/70R13 kr. 3950, 175/65 R 14 kr. 4790, 185/ 70R14 kr. 5450, 185/65R15 kr. 5990. Besta verðið. Kaldasel ehf., Dalvegi 16, Kóp., s. 544 4333 og Grensásvegi 7 (Skeifumegin) Rvík s. 561 0200. Ökukennsla Reykjavíkur ehf. Ökukennsla akstursmat. Vagn Gunnarsson Mersedes Benz, 894 5200/565 2877. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '02, 863 7493/557 2493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza, 696 0042/566 6442. Gylfi K. Sigurðsson Nissan Almera, 892 0002/568 9898. Snorri Bjarnason Toyota Avensis, bifhjólak. 892 1451/557 4975. Sverrir Björnsson Wolksvagen Passat, 892 4449/557 2940. Glæsileg ný kennslubifreið, Subaru Impreza '04, 4 WD. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, símar 696 0042 og 566 6442. Bifhjóla og ökukennsla Eggert Valur, ökukennari. Ökukennsla/skóli/mat. Nýr M. Benz. Uppl. í símum 893 4744/565 3808/853 4744. Verður heppnin með þér í sum- ar? Tjaldvagnar til leigu. Leigjum einnig út aukabúnað. Uppl. á www.alaska.is, sími 848 1488. Rav 4, skr. 24/8 '99, sjálfskiptur, ek. 64 þús. Einn eigandi. Skipti á nýlegum Rav 4. Milligjöf staðgr. eða bein sala. Sími 555 3271 eða 659 1371. VW árg. '97, ek. 122 þús. km. Til sölu VW Golf, '97. Vel med farinn, einn eigandi. Verð 550.000. Uppl. í s. 897 7851 eða 896 4648. MMC Pajero, 1991, V6 3000. Einn með öllu, en þarfnast lag- færingar. Verð aðeins 199 þús. staðgreitt. Uppl. í síma 899 5522. Subaru Impreza, sjálfskiptur, árg. '99, GL, 4x4, ek. 100 þús., topp bíll, 4ra d. Verð 1.080 þ. Bíla- lán 550 þ. Ath. skipti á ód. Sími 690 2577. Ford F-150 árg. '04, ek. 0 km. Ath.: Apríltilboð á 2004-árg. frá USA. Margar tegundir í boði. Notið tækifærið og eignist nýjan bíl á verði notaðra. Uppl. iso@elp.rr.com. MERCEDES BENZ SPRINTER 316 CDI Sprinter Maxi dísel. Nýr. 156 hestöfl. Sjálfskiptur (5-gíra). Kaldasel ehf., Dalvegi 16b, s. 544 4333 og 820 1071. Til sölu Cherokee Laredo 4 l, árgerð '88, í toppstandi. Mikið endurnýjaður. Uppl. á Bílasölu Suðurlands, Selfossi, sími 480 8000 Hlynur 7 mánaða gamall M. Galant ES 2,4, árg. 2003, Ameríku-týpa m. öllu. Er eins og úr kassanum. Ek- inn 6.700 mílur. Ásett verð 2,5 m. Fæst á 2,1 m. í beinni sölu. Uppl. í s. 820 8096. Hyundai Sonata, árg. 1997, ek. 95 þús., sjálfsk., álfelgur, drátt- arkúla, geislaspilari, rafmagn í öllu, sumar- og vetrardekk. Dökk- grænsanseraður. Tjónlaus. Lítur út sem nýr. Tilboðsverð 480 þús. Upplýsingar í síma 862 8210. mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.