Morgunblaðið - 24.04.2004, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 51
BRÉF TIL BLAÐSINS
Vilt þú styrkja eitt eða eiri íslensk börn til vikudvalar í sumarbúðir 2004?
Ef svarið er játandi þá leggur þú inn á reikning 101-26-66090 í Lands-
bankanum eða á reikning 0546-26-6609 í Íslandsbanka.
Eitt barn 27.000 kr. í Vindáshlíð, tvö börn 54.000 kr. í Vatnaskóg.
Bókhald verkefnisins verður gert opinbert í lokin.
Með sumarkveðju,
Fjölskylduhjáp Íslands
í þágu þeirra sem minna mega sín.
Íslendingar lítum okkur nær
S
kr
ý m
ir
h
ö
n
n
u
n
2
0
0
4
Guðrún og Gróa unnu
Súgfirðingaskálina
Guðrún K. Jóhannesdóttir og
Gróa Guðnadóttir tóku góðan enda-
sprett og náðu að tryggja sér Súg-
firðingaskálina. Þær náðu að snúa á
Guðbjörn og Steinþór sem höfðu
unnið tvö fyrstu mótin.
En fjórða og síðasta lota í tví-
menningsmóti Súgfirðingafélagsins
var spiluð um helgina í sal Stanga-
veiðifélags Reykjavíkur. Keppnin
var í fjórum lotum og giltu þrjú
bestu skorin til verðlauna. Alls
spiluðu 13 pör í mótinu.
Lokastaðan, meðalskor 390 stig.
Guðrún K. Jóhannesd. – Gróa Guðnad. 459
Guðbjörn Björnss. – Steinþór Bened. 440
Már Hinrikss. – Guðmundur Gissurars. 427
Valdimar Ólafsson – Karl Bjarnason 407
Finnbogi Finnbogas. – Magnús Jónss. 405
Einar Ólafsson – Sigurður Kristjánss. 402
Þorvarður Guðms. – Jóhann Guðm. 397
Arngrímur Þorgr. – Leifur Harðarson 397
Úrslit í fjórðu lotu, meðalskor 130
stig.
Þorvarður Guðm. – Haukur Guðm. 146
Óskar Kristjánss. – Þorleifur Hallb. 140
Einar Ólafsson – Sigurður Kristjánss. 139
Guðrún K. Jóhannesd. – Gróa Guðnad. 137
Guðni Ólafsson – Ásgeir Sölvason 131
Spilastjóri var Sigurpáll Ingi-
bergsson. Keppni um Súgfirðinga-
skálina hefst aftur í haust. Formaður
Súgfirðingafélagsins er Björn Guð-
björnsson.
Bridsfélag Suðurnesja
Meistaratvímenningur félagsins
er hafinn og staðan eftir fyrsta
kvöldið er þessi:
Kjartan Ólason – Heiðar Sigurjónss. 14
Arnór Ragnarss. – Svala Pálsd. 5
Kristj. Kristjánss. – Garðar Garðarss. 3
Önnur umferð verður spiluð nk.
mánudagskvöld kl. 19.30.
Dvergarnir, Daníel
og Strumparnir efstir hjá
Bridsfélagi Hreyfils
Lokið er sveitakeppni félagsins
með sigri sveitar Einars Gunnars-
sonar sem hlaut 183 stig. Næstu
sveitir urðu:
Dvergarnir 166
Daníel Halldórsson 161
Strumparnir 140
Með Einari spiluðu Ágúst Bene-
diktsson, Sigurður Ólafsson og Flosi
Ólafsson.
Síðasta keppni félagsins verður
nk. mánudagskvöld að þessu sinni.
Þá verður eins kvölds tvímenningur
spilaður í Hreyfilshúsinu kl. 19.30.
Haukarnir beittir fyrir norðan
Haukur Harðarson og Haukur
Jónsson hafa forystu eftir fyrsta
kvöldið af þremur í Alfreðstvímenn-
ingi Bridsfélags Akureyrar. Úrslit
voru:
Haukur Harðarson – Haukur Jónsson 43
Jón Sverrison – Una Sveinsdóttir 26
Stefán Vilhjálmsson – Guðmundur Víðir 21
Ragnheiður Haraldsd. – Kolbrún Guðv. 17
Hans V. Reisenhus – Gissur Gissurars. 2
Steinarr Guðm. – Magnús Magnússon 2
Sunnudagskvöldið 18. apríl var
spilaður eins kvölds tvímenningur.
Úrslit voru:
Stefán Vilhjálmss. – Hermann H. Huijb. 45
Pétur Örn Guðjónss. – Tryggvi Ingason 27
Stefán G. Stefánsson – Björn Þorláksson 24
Magnús Magnússon – Gylfi Pálsson 24
Jón Sverrisson – Una Sveinsdóttir 13
Spilað er á sunnudags- og þriðju-
dagskvöldum klukkan 19.30 í Fé-
lagsheimilinu Hamri. Á sunnudags-
kvöldum er spilaður eins kvölds
tvímenningur. Á þriðjudagskvöldum
eru forgefin spil með keppnisstjóra á
staðnum.
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélag kvenna
Mánudagskvöldið 19. apríl munu
félagar frá Bridgefélagi Hafnar-
fjarðar koma í heimsókn og keppa
gegn Bridsdeild Barðstrendinga og
Bridsfélagi kvenna í Síðumúla 37.
Hafnfirðingar eru þar að endur-
gjalda Barðstrendingum og konum
heimsókn þeirra á síðasta ári. Þar
voru spilaðir tveir 16 spila sveita-
keppnisleikir milli félaganna og
höfðu Barðstrendingar betur í það
skiptið. Hafnfirðingar hyggja örugg-
lega á hefndir í heimsókn sinni
næsta mánudag. Spilarar hjá Barð-
strendingum og konum eru hvattir
til þess að mæta til leiks, annaðhvort
sem sveitir eða pör til að etja kappi
við Hafnfirðinga. Hjálpað verður til
við myndun sveita.
Síðustu þrjú kvöldin hjá félaginu
verða spilaðir eins kvölds tvímenn-
ingar (26. apríl, 3. og 10. maí). Spilað
verður um verðlaun.
Brids í Borgarfirði
Nú stendur yfir Opna Borgar-
fjarðarmótið í tvímenningi sem er
samstarfsverkefni Bridsfélaganna á
Akranesi, í Borgarnesi og í Borgar-
firði. Tuttugu pör taka þátt í mótinu
sem spilað er til skiptis á fyrrnefnd-
um stöðum. Mótstjóri og skipuleggj-
andi er Guðmundur Ólafsson í
Lambhaga en keppnisstjóri er Haf-
dís Guðmundardóttir og er fram-
kvæmdin þeim báðum til sóma.
Fyrsta kvöldið var spilað á Akranesi
15. apríl og þá urðu úrslit þessi.
Guðmundur Ólafss. – Hallgr. Rögnv. 37
Kjartan Guðm. – Hörður Jóhannesson 32
Þorvaldur Pálmason – Lárus Pétursson 30
Alfreð Kristjánsson – Alda Guðnadóttir 23
Keppninni var fram haldið í Loga-
landi 19. apríl og þá urðu úrslit þessi:
Tryggvi Bjarnason – Þorgeir Jósefsson 54
Tómas Sigurðsson – Hlöðver Tómasson 49
Lárus Pétursson – Sveinbjörn Eyjólfss. 35
Örn Einarsson – Kristján Axelsson 33
Dóra Axelsdóttir – Rúnar Ragnarsson 27
Staðan eftir tvö kvöld er því þessi:
Sveinbjörn – Lárus – Þorvaldur 65
Guðmundur Ólafss. – Hallgr. Rögnv. 53
Alfreð Viktorsson – Þórður Elíasson 49
Tryggvi Bjarnason – Þorgeir Jósefsson 42
Dóra Axelsdóttir – Rúnar Ragnarsson 38
Síðasta kvöldið verður spilað á
Mótel Venus miðvikudaginn 28. apr-
íl.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Gróa Guðnadóttir og Guðrún Jó-
hannesdóttir sigruðu í keppninni
um Súgfirðingaskálina.
Á ALÞINGI liggur fyrir frumvarp
til laga um verslun með áfengi og
tóbak. Verði frumvarpið að lögum
verður væntanlega hægt að kaupa
léttvín og bjór í öllum verslunum,
sjoppum og bensínstöðvum. Reynd-
ar kemur fram í frumvarpinu að
óheimilt sé að veita smásöluleyfi
fyrirtækjum sem stunda blandaða
smásöluverslun aðra en rekstur
stórmarkaða eða matvöru- og ný-
lenduvöruverslunar. Ætli slíkt
standist jafnræðislög? Og hvaða
skilyrði þarf verslun að uppfylla til
að teljast nýlenduvöruverslun? Í
frumvarpinu stendur að áfengið
verði ekki selt í söluturnum, sölu-
turnum með ís eða samlokugerð,
matsöluvögnum og blaðsöluturnum.
Hvar eru söluTURNAR í dag? Ef
það eru hefðbundnar sjoppur,
munu þær þá ekki hætta að selja ís
og búa til samlokur? Og verður
hlutfall matvöru ekki aukið í þeim
til að þær geti talist til nýlendu-
vöruverslana? Það liggur í augum
uppi að smásalar munu græða
meira á áfengissölu en ís eða sam-
lokugerð. Hvað er kaupmaðurinn á
horninu og bensínstöðvar með fjöl-
breytt ,,nýlenduvöruúrval“ annað
en nýlenduvöruverslun?
Í frumvarpinu kemur fram að af-
greiðslutími skuli ekki vera lengri
en til kl. 20.00. Munu stórmarkaðir
og/eða nýlenduvöruverslanir loka
verslunum sínum klukkan 20.00?
Ætla verslanirnar að hafa sérher-
bergi með áfengi sem verður læst
kl. 20.00? Verða rimlar fyrir rekk-
unum sem skella í lás kl. 20.00?
Hverra er að fylgja þessu eftir?
Fram til þessa hafa lög um tóbaks-
varnir verið þverbrotin á veitinga-
og kaffihúsum og skemmtistöðum
sem og í smásölu tóbaks í 20 ár.
Kannski vegna þess að eftirlitið
hefur verið óframkvæmanlegt eða
vegna þess að vinnutíma eftirlits-
aðila lýkur kl. 16.00. Verður gerð
uppstokkun á eftirlitskerfinu ef
frumvarpið um verslun með áfengi
verður að lögum?
Fyrir nokkrum misserum var
niðurstöðum könnunar um afstöðu
almennings til sölu á léttvíni og
bjór í stórmörkuðum flaggað víða.
Líklega vegna þess að spurningin
laut að stórmörkuðum. Hver er vilji
þjóðarinnar ef selja á léttvín og
bjór á nánast hverju götuhorni,
eins og mun líklega gerast ef frum-
varpið verður að lögum? Hver er
afstaða ábyrgra foreldra sem eru
undir stöðugum þrýstingi neyslu-
samfélagsins og áfengisauglýsinga
– þótt þær séu bannaðar með lög-
um? Hvar er eftirlitsaðilinn í þeim
efnum? Vinnudegi lokið? Óþægilegt
mál? Skortir hugrekki? Eða hentar
að hafa þessi mál aftast á ,,for-
gangslista“.
Í greinargerð með frumvarpinu
er þess getið að samtök ferðaþjón-
ustunnar haldi því fram að hátt
áfengisverð á Íslandi aftri því að
ferðamenn komi til Íslands. Hefur
ferðaþjónustan gert úttekt á álagn-
ingu á áfengi á veitinga- og
skemmtistöðum? Ef lágt verð á
áfengi á að selja Ísland sem áhuga-
vert land erum við á hálum ís. Það
er erfitt að sjá fyrir sér útlendinga
útiloka Ísland sem ferðamöguleika
sökum þess hversu dýrt það er að
drekka á Íslandi. Á tyllidögum
hentar að flagga hreinu og fögru
landi, besta vatni í heimi en þess á
milli er ,,sölutrikkið“ ódýrt áfengi
og reykmettuð veitingahús. Erum
við sjálfum okkur samkvæm? Hvar
er stoltið?
Vissulega væri æskilegt ef fólk,
sem ætlar að neyta áfengis á annað
borð, drykki síður sterkar veigar.
En hverju erum við tilbúin til að
fórna til að breyta HUGSANLEGA
drykkjuvenjum þjóðarinnar? Börn-
unum okkar sem verða fyrir stöð-
ugu áreiti þeirra sem vilja selja
sem mest og græða sem mest? Eru
ungmennin ekki heppileg tilrauna-
dýr? Það liggur í hlutarins eðli að
aukið aðgengi kallar á aukna
neyslu. Að halda öðru fram er
kjánaskapur. Það má vel vera að
flutningsmenn frumvarpsins telji
sig leggja það fram með frelsis-
sjónarmið að leiðarljósi. Í sið-
menntuðu þjóðfélagi verður að
setja hömlur á frelsi því annars fer
allt úr böndum. Auknu frelsi fylgir
aukin ábyrgð – sem fæstir eru til-
búnir til að axla.
Í nánast hverri einustu fjöl-
skyldu eru einstaklingar sem hafa
lagt líf sitt og heilmargra annarra í
rúst með áfengisneyslu. Mörg okk-
ar horfa aðgerðalaus upp á maka,
feður, mæður, systkini eitra allt í
kringum sig, misþyrma tilfinning-
um. Við forðumst að tala um
vandamálið og eftir erfiða helgi má
ekki minnast á það þótt heimilisfað-
irinn hafi haldið fjölskyldunni í hel-
greipum – ,,undir áhrifum“ eða
hreinlega blindfullur. Allir eru
meðvirkir. En frumvörp um aukið
frelsi í þessum efnum hljóta að
bjarga þjóðinni undan skaðvaldin-
um. Loksins!
Á hinu háa Alþingi liggja fyrir
þrjú frumvörp sem lúta öll að til-
slökunum í áfengismálum – sökum
misskilinnar frelsisáráttu. Nái eitt
eða fleiri fram að ganga mun enn
auka á áfengisböl þjóðarinnar. Lík-
lega munu einhverjir samþykkja
frumvörpin með lokuð augun
(vegna þrýstings hagsmunaaðila?),
aðrir með bros á vör (til að fá klapp
á bakið?) en í ,,í leiðinni“ verður
fjármagn til forvarna líklega aukið
– svo að þingmönnum líði betur,
sýni lit. Er aukið fjármagn plástur
á sárið? Hvar er hugrekkið? Ábyrg
afstaða?
Áður en þingmenn leiða hugann
að því að samþykkja frumvörpin
ættu þeir að velta því fyrir sér
hversu margir þeirra, sem verða
eiturlyfjum að bráð, neyta hvorki
tóbaks né áfengis. Líklega enginn!
Eitt leiðir af öðru í þessum efnum.
Þingmenn ættu að heimsækja með-
ferðarheimili fyrir ólánsöm ung-
menni og fá tölulegar, sláandi stað-
reyndir beint í æð – áður en þeir
ýta á já-takkann.
ÞORGRÍMUR ÞRÁINSSON,
starfsmaður Lýðheilsustöðvar.
Tíu bjóra og tvo
banana, takk!
Frá Þorgrími Þráinssyni:
GREIN sem birtist í Lesbók Morg-
unblaðsins 17/4 sl. um myndlistar-
sýningu Sigurðar Örlygssonar í List-
húsi Ófeigs virðist nokkuð dæmigerð
fyrir efnistök á þessum vettvangi.
Hún er því gerð að umtalsefni af
undirrituðum leikmanni í trausti
þess að myndlistarumræða Morgun-
blaðsins sé ætluð íslenskum almenn-
ingi. Í grein ritrýnis, Þórodds
Bjarnasonar, sem er laglega skrifuð
og læsileg, er ýmsum einkennum
Sig. Örl. sem málara lýst og auk þess
dregin fram í dagsljósið ummæli Sig-
urðar um breytta heimilishagi og
viðhorf ma. til vals á myndefni. Jafn-
framt er ályktað að „listamaðurinn
sé að koma sér fyrir í þjóðfélagsum-
ræðunni“. Þá er mælt með því að
hann ætti að „hugleiða sterkari
framsetningu, jafnvel utan mál-
verksins“, ef hann vilji vekja athygli
á „þjóðþrifamálum“. Tækni Sigurðar
eru gerð skil og nýstárlegu myndefni
hans (viftur, keðjur, mótorar og ann-
ar „úrgangur“). Það sé svo umhugs-
unarefni að hið persónulega í mál-
verki Sig., það sem geri list yfirleitt
„spennandi“, sé nánast horfið. Það
athyglisverðasta við sýninguna sé
kannski „hinn ágæti samruni at-
vinnulífsins og listarinnar“, en sýn-
ingin er styrkt af endurvinnslufyr-
irtækinu Hringrás.
Leikmaðurinn þakkar fyrir sig, en
finnst eins og stundum áður, að ekki
hafi verið rýnt í sjálfa sýninguna,
einstakar myndir hennar 32 að tölu,
og þeim gerð skil frá listrænu sjón-
armiði. Þótt vissulega sé getið um
„áberandi notkun á tvenndum“, og
látið að því liggja að stemmningin sé
„heimsendaleg og draumkennd“, er
sjálf umsögnin, listrýnin heldur rýr.
Hinn almenni lesandi, leikmaðurinn,
vill fá að njóta leiðsagnar hins sér-
fróða fagmanns. Var þetta skapandi
list, og hver eru rökin? Var einhver
myndanna, ein eða fleiri, sérlega at-
hyglisverð frá listrænu sjónarmiði?
Og svo mætti telja. Hafi rýnirinn
ekki gert upp hug sinn, situr leik-
maðurinn uppi, illa svikinn, með sín-
ar einkaskoðanir, en þær eiga að
sjálfsögðu ekki heima hér. Því skal
þó ekki leynt, að myndverk Sigurðar
verkuðu sannfærandi á undirritaðan
á sinn hátt, og þykir því meir en lík-
legt, hvað sem þjóðþrifamálum líður,
að Sig. hafi hrifist af sínum keðjum
og mótorum, þau þannig verið list-
rænt hvetjandi.
ÞORGEIR ÞORGEIRSSON,
Birkibergi 40,
Hafnarfirði.
Um mynd-
listarum-
ræðu
Frá Þorgeiri Þorgeirssyni:
Morgunblaðið/Golli
Sigurður Örlygsson hengir eitt
verka sinna á vegg Listhúss Ófeigs.