Morgunblaðið - 24.04.2004, Qupperneq 52
DAGBÓK
52 LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í
gær komu herskipin
Chilreu og Primaug-
uet.
Hafnarfjarðarhöfn: Á
morgun er Kroonborg
væntanlegt.
Mannamót
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Félags-
heimilið Hraunsel er
opið alla virka daga frá
kl. 9–17. Munið morg-
ungönguna á þriðju-
dögum kl. 10.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Fimmtudag-
inn 29. apríl kl. 13.15 er
félagsvist í samstarfi
við Hólabrekkuskóla.
Góð verðlaun. Allir vel-
komnir. S. 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Hörpuhátíð verður í
Gjábakka fimmtudag-
inn 29. apríl. Dag-
skráin, sem er sam-
starfsverkefni
Leikskólans Mar-
bakka, Digranesskóla
og Gjábakka, hefst kl.
14. Listvefarar úr hópi
Guðrúnar Vigfús-
dóttur, listvefara, leið-
beina ungum og öldn-
um í listvefnaði; ungir
og aldnir prjóna sam-
an. Um sköp-
unarhornið sjá starfs-
menn Marbakka og
myndlistarhópur Gjá-
bakka. Skákklúbbar
Gjábakka og Digranes-
skóla leiða saman
hróka sína. Benedikt
búálfur kemur í heim-
sókn. Nemendur
Digranesskóla og leik-
skólans Marbakka
syngja. Geiri Ragg
flytur nokkrar ógleym-
anlegar dæg-
urlagaperlur. Flutt
frumort kvæði. Flytj-
endur úr ljóðahópi Gjá-
bakka og ljóðamenn úr
Digranesskóla.
Gönguklúbbur Hana-
nú. Morgunganga kl.
10 laugardagsmorgna
frá Gjábakka.
Krummakaffi kl. 9.
Sunnuhlíð Kópavogi.
Söngur með sínu nefi á
laugardögum kl. 15.30.
Íbúar, aðstandendur
og gestir velkomnir.
Gigtarfélagið. Leik-
fimi alla daga vik-
unnar. Létt leikfimi,
bakleikfimi karla,
vefjagigtarhópar, jóga,
vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Uppl. á
skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Breiðfirðingafélagið.
Vorfagnaður Breiðfirð-
ingafélagsins verður
laugardaginn 24. apríl í
Faxafeni 14 frá kl. 22–
03. SMS sér um fjörið.
Allir velkomnir.
Skemmtinefndin.
GA-Samtök spilafíkla,
Fundarskrá:
Þriðjud.: Kl.18.15, Sel-
tjarnarneskirkja, Sel-
tjarnarnesi. Miðvikud.:
Kl. 18, Digranesvegur
12, Kópavogi og Egils-
staðakirkja, Egils-
stöðum. Fimmtud.: Kl.
20.30, Síðumúla 3–5,
Reykjavík. Föstud.: Kl.
20, Víðistaðakirkja,
Hafnarfirði. Laugard.:
Kl.10.30, Kirkja Óháða
safnaðarins, Reykjavík
og Glerárkirkja, Ak-
ureyri. Kl. 19.15 Selja-
vegur 2, Reykjavík.
Neyðarsími: 698 3888.
Félagsstarf SÁÁ. Fé-
lagsvist og dans verður
í sal I.O.G.T., Stang-
arhyl 4, laugardaginn
24. apríl. Spila-
mennskan hefst kl. 20.
Ferðaklúbbur eldri
borgara. Hringferð um
Reykjanes: Garðskagi,
Stafnes, Reykjanesviti,
Grindavík, Krýsuvík.
Upplýsingar í síma
892 3011. Allir eldri
borgarar velkomnir.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis,
fundir mánudaga kl. 20
að Sólvallagötu 12.
Stuðst er við 12 spora
kerfi AA-samtakanna.
Oa samtökin. Átrösk-
un / Matarfíkn / Ofát.
Fundir alla daga. Upp-
lýsingar á www.oa.is
og síma 878 1178.
Ásatrúarfélagið,
Grandagarði 8. Opið
hús alla laugardaga frá
kl. 14.
Kattholt. Flóamarkað-
ur í Kattholti, Stangar-
hyl 2, er opinn þriðjud.
og fimmtud. frá kl. 14–
17. Leið 10 og 110
genga að Kattholti.
Fífan Dalsmára 5 í
Kópavogi, tartan-
brautir eru opnar al-
mennu göngufólki og
gönguhópum frá kl.10–
11.30 alla virka daga.
Blóðbankabílinn.
Ferðir blóðbankabíls-
ins: sjá www.blodbank-
inn.is
Minningarkort
Minningarkort Kven-
félags Háteigssóknar.
Kvenfélagskonur selja
minningarkort, þeir
sem hafa áhuga á að
kaupa minningarkort
vinsamlegast hringi í
s.552 4994 eða
553 6697, minningar-
kortin fást líka í Há-
teigskirkju við Há-
teigsveg.
Minningarkort Kven-
félags Langholts-
sóknar fást í Lang-
holtskirkju s. 520 1300
og í blómabúðinni
Holtablómið, Lang-
holtsvegi 126. Gíró-
þjónusta er í kirkjunni.
Í dag er laugardagur 24. apríl,
115. dagur ársins 2004. Orð dags-
ins: Af því þekkjum vér kærleik-
ann, að Jesús lét lífið fyrir oss.
Svo eigum vér og að láta lífið
fyrir bræðurna.
(I. Jh. 3, 16.)
Jón G. Hauksson, ritstjóriFrjálsrar verslunar,
fjallar um margumrædda
skipan hæstaréttardóm-
ara í pistli á vefnum heim-
ur.is. „Umræða um jafn-
réttismál er þörf – en því
miður er hún oftast ómál-
efnaleg. Það er eins og
fjandinn verði laus,“ skrif-
ar Jón. „Karlar eru upp-
hrópaðir sem karlrembur
og konur sem kvenremb-
ur. Tískuorð skjóta upp
kollinum, eins og „jákvæð
mismunun“, (positive disc-
rimination) sem gengur út
á að mismuna fólki eftir
kynferði, kynþætti, lit-
arhætti og svo framvegis
og láta svonefnda minni-
hlutahópa njóta þess við
ráðningar í störf eða á
annan máta. „Jákvæð mis-
munun“ hefur einnig ver-
ið áberandi í umræðunni
um kynjakvóta í við-
skiptalífinu, t.d. að í stjórn
fyrirtækja skuli vera fyr-
irfram ákveðið hlutfall
kynja.“
Það þarf ekki mörg orðum það að ég er á
móti kynjakvótum í við-
skiptalífinu og að Alþingi
setji lög undir formerkj-
um jafnréttis þar sem í
prinsippinu er alið á
ójafnrétti. Ég spyr: Felst í
því jafnrétti að kona sé,
samkvæmt sérstökum lög-
um, tekin fram yfir karl ef
þau eru bæði jafnhæf?
Felst í því jafnrétti að það
sé sett í sérstök lög að
þrjár konur skuli sitja í
hverri fimm manna stjórn
fyrirtækis – en grundvöll-
ur kapitalísks þjóðfélags
er að fjármagni fylgja
völd og að eigendur fyr-
irtækjanna hljóta að ráða
því hverjir setjast í stjórn-
ir fyrirtækjanna?“
Jón segir að það sé slæmtef Kærunefndin sé far-
in að verða „eins og spillt-
ur stjórnmálaflokkur sem
veitir konum „pólitísk
skírteini“ að störfum og
embættum. Það er verr af
stað farið en heima setið
með slíkum jafnrétt-
islögum, jafnvel þótt þeim
sé ætlað að „brjóta
ísinn“,“ skrifar hann. Jón
bendir á að með aukinni
menntun kvenna geti svo
farið að eftir þrjátíu til
fjörutíu ár snúist umræð-
an um það hvort karlar
krefjist jafnréttis á við
konur í viðskiptalífinu
með sérstökum jafnrétt-
islögum. „Þau jafnrétt-
islög verða auðvitað jafn-
vitlaus og þau sem eru
núna.“
En bar Birni að veljakonu í starfið?“ spyr
Jón. „Auðvitað ekki. Þá
hefði átt að standa í aug-
lýsingunni að karlar gætu
ekki sótt um þetta dóm-
arastarf við Hæstarétt því
búið væri að ákveða að
ráða konu svo þær yrðu
þrjár af níu við réttinn –
og að dómsmálaráðherra
réði ekki í embættið held-
ur einhver nefnd jafn-
réttis úti í bæ. Björn gerði
rétt. Honum bar að velja
hæfustu manneskjuna
samkvæmt sinni eigin
sannfæringu – en ekki
samkvæmt einhverju
„pólitísku skírteini“ Jafn-
réttisnefndar.“
STAKSTEINAR
Björn breytti rétt
Víkverji skrifar...
Víkverji er afskaplega lítiðfyrir formlegheit.
Endrum og sinnum, þegar
tilefni er til, þykir honum
gaman að klæða sig í fínan
kjól og skemmta sér með
öðru prúðbúnu fólki. En
óþarfa fínheit eru Víkverja
ekki að skapi.
Víkverji sótti Pressuball
blaðamannastéttarinnar á
miðvikudagskvöld og
skemmti sér hreint ágæt-
lega. Fyrirfram hafði hann
haft nokkrar áhyggjur af
því að fínheitin á ballinu
yrðu svo mikil að það myndi
hafa af honum skemmt-
unina. Áhyggjurnar reyndust óþarf-
ar og sá Víkverji fljótlega að flestir
voru tiltölulega afslappaðir. Klæða-
burðurinn var vitanlega í fínni kant-
inum, eins og við mátti búast, en Vík-
verja þótti ánægjulegt að finna að
áherslan á að skemmta sér var mun
meiri en áherslan á að vera fín og
flott.
x x x
Morguninn eftir Pressuball fórVíkverji í boð í sendiráði ásamt
hópi fólks. Stjórnandi hópsins hafði
fyrirfram brýnt það fyrir meðlimum
hans að formlegur klæðnaður væri
nauðsynlegur af tilefninu. Engu var
líkara en sendiherrann sem sóttur
var heim hefði sérstaklega óskað eft-
ir prúðbúnu fólki sér til samsætis,
slíkar voru áhyggjur stjórnandans af
útliti hópsins. Þegar til kom virtist
sendiherranum vitanlega slétt sama
hvernig hópurinn var klæddur. Sjálf-
ur var hann tiltölulega „kasjúal“, ef
það má orða það svo. Fundurinn með
sendiherranum var haldinn í litlu
herbergi í sendiráðinu og hópnum
gert að raða sér um hringborð. Þegar
Víkverji ætlaði að fara að tylla sér við
borðið rak stjórnandinn upp vein og
sagði að þarna mætti hann ekki setj-
ast. Sendiherrann yrði að fá
að sitja við enda borðsins.
Hringborðsins! Sendiherr-
ann settist í umrætt sæti,
stjórnandanum til mikils
léttis. Víkverja virtist sendi-
herranum vera nokkurn
veginn sama hvar hann sat,
bauðst meira að segja til að
standa meðan hann ávarpaði
hópinn. Það þótti hinum
taugastrekkta stjórnanda
vart við hæfi.
Víkverji reyndi svo enn á
taugar hópstjórnandans
þegar hann tók upp farsím-
ann til að líta á klukkuna.
Mikið fát kom á manngreyið
og hann leit hvasst á Víkverja og bað
hann að leggja símann frá sér. Far-
símar þóttu honum ekki nógu fínir til
að láta sendiherrann sjá.
x x x
Fínheit og formfesta eru oftastóþarfir fylgifiskar skemmtana.
Við hátíðleg tækifæri getur auðvitað
verið gaman að vera fín og sæt. Eink-
um ef það verður til þess að fólk
skemmtir sér enn betur þannig en í
gallabuxum. En Víkverja þykir með
öllu ástæðulaust að hafa formlegheit
í hávegum ef þau eru einungis í þágu
leiðinda.
Morgunblaðið/Golli
Prúðbúin á Pressuballi.
Aðgát skal höfð
í nærveru sálar
KVEIKJAN að þessari at-
hugasemd er grein Arn-
heiðar Sigurðardóttur,
Ungabörn alin á skyndi-
bita, sem birtist í Morgun-
blaðinu síðasta vetrardag.
Inntakið í grein hennar
er sú hugmynd að stofnað-
ur sé mjólkurbanki með
móðurmjólk fyrir unga-
börn, þar sem velmjólkandi
mæður geta lagt inn og selt
umframmjólkina sína. Það
er góð tillaga og allrar at-
hygli verð.
Efnistök Arnheiðar, sem
og fyrirsögn greinar henn-
ar, er hins vegar með þeim
hætti að erfitt er að láta það
óátalið. Hún líkir þurr-
mjólk – sem er eini skyn-
samlegi valkosturinn sé
nægileg móðurmjólk ekki
fyrir hendi – við skyndibita
og varar við ýmsum lang-
tíma heilsufarsvandamál-
um þar að lútandi.
Í starfi sínu sem hjúkr-
unarfræðingur og brjósta-
gjafaráðgjafi ætti hún að
þekkja hve mikið tilfinn-
ingamál þetta er fyrir
mæður. Jafnvel þótt
alþjóðaheilbrigðisstofnunin
WHO fullyrði að hér um bil
hver einasta kona sé líkam-
lega fær um að mjólka
börnum sínum, þá geta þær
aðstæður vissulega komið
upp að það tekst ekki, hver
svo sem ástæðan er.
Með svona nálgun á um-
ræðuefninu eys hún salti í
sár þeirra mæðra sem af
einhverjum ástæðum geta
ekki mjólkað börnum sín-
um nægilega.
Arnheiður ætti að íhuga
þetta þegar hún undirbýr
frekari umfjöllun um mál-
efnið.
Móðir.
Villandi
auglýsingar
ÞEIR auglýsa mikið hjá
Iceland Express að flugfar
aðra leið til Kaupmanna-
hafnar og London sé 7.500
krónur. Gott ef svo væri.
En því miður er svo ekki,
ekki er minnst á flugvall-
arskatt og önnur gjöld. Ef
mig minnir rétt eru 7.500
krónur komnar upp í 15.000
krónur aðra leið eða 30.000
báðar leiðir og ekki má
gleyma því að ferðast er
upp á vatn og brauð, enginn
matur.
Rétt skal vera rétt. Mér
finnst það mjög áríðandi.
Mér finnst rétt að benda á
þetta.
Virðingarfyllst,
021033-3759.
Okurverð á
nikótíntyggjói
ÉG er sammála því sem
Víkverji skrifar miðviku-
daginn 21. apríl um okur-
verð á nikótíntyggjói.
Skil ég ekki hvernig
hægt er að réttlæta þetta
háa verð.
Þegar mánaðarskammt-
ur af nikótíntyggjói kostar
helming af mánaðar-
skammti af sígarettum er
peningalegur ávinningur
ekki nægilegur til að vera
hvöt til að hætta að reykja.
Skora ég á innflytjendur
að endurskoða nú verð á
nikótíntyggjói.
Neytandi.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 látlausa, 8 lygi, 9
bólgna, 10 keyri, 11 lof-
ar, 13 byggja, 15 sjá eftir,
18 reika stefnulítið, 21
ótta, 22 grandinn, 23
gyðja, 24 álappalegt.
LÓÐRÉTT
2 fram á leið, 3 auðugar,
4 hleypir, 5 sjúgi, 6 reyk-
ir, 7 karlfugls, 12 elska,
14 rengi, 15 skurn, 16
festi, 17 hægt, 18 manns-
nafn, 19 dreggjar, 20 fífl.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 svört, 4 fussa, 7 Auður, 8 ólmur, 9 Týr, 11
kugg, 13 barð, 14 álfur, 15 þröm, 17 álfa, 20 hag, 22
fagna, 23 urmul, 24 nælan, 25 lúrir.
Lóðrétt: 1 svark, 2 örðug, 3 tært, 4 flór, 5 summa, 6 af-
ræð, 10 ýlfra, 12 gám, 13 brá, 15 þúfan, 16 öngul, 18
lemur, 19 allar, 20 hann, 21 gull.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html