Morgunblaðið - 24.04.2004, Blaðsíða 54
ÚRSLIT ÍÞRÓTTIR
54 LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
Laugardagur:
Áskorendakeppni Evrópu, seinni leikur í
undanúrslitum kvenna:
Vestmannaeyjar: ÍBV – Nürnberg......16.15
KNATTSPYRNA
Deildabikarkeppnin
Laugardagur:
Neðri deild karla, B-riðill:
Fífan: Breiðablik – Reynir S. ....................14
Leiknisvöllur: ÍR – Númi ..........................16
Selfoss: Selfoss – KFS ...............................14
Neðri deild karla, A-riðill:
Leiknisvöllur: Leiknir R. – Sindri ............14
Garðskagavöllur: Víðir – BÍ ......................16
Efri deild kvenna:
Vestmannaeyjar: ÍBV – KR......................17
Neðri deild kvenna:
Laugardalur: Þróttur R. – Sindri .............16
Sunnudagur:
Neðri deild karla, A-riðill:
Fífan: Sindri – BÍ ..................................13.10
Neðri deild karla, D-riðill:
Boginn: Leiknir/Dalvík – Tindastóll....13.15
Grenivík: Magni – Völsungur....................14
Fellavöllur: Höttur – Fjarðabyggð ..........14
Neðri deild karla, C-riðill:
Tungubakkar: KS – Afturelding...............14
Fífan: HK – Skallagrímur .........................15
Neðri deild kvenna:
Boginn: Þór/KA/KS – Fjölnir ..............15.15
GLÍMA
Íslandsglíma og Freyjuglíma fer fram í dag
í íþróttahúsi Víkings, Víkinni. kl. 13.
JÚDÓ
Íslandsmeistaramót einstaklings- og
sveitakeppni fer fram um helgina í íþrótta-
húsinu við Austurberg í Reykjavík. Í dag
kl. 14 verður keppt í einstaklingsflokkum
og á morgun, sunnudag, hefst sveitakeppn-
in kl. 11. Strax að lokinni sveitakeppni, um
kl. 13, mun fara fram kynning á íþróttinni
sambo frá Rússlandi.
KRAFTLYFTINGAR
Íslandsmótið fer fram í íþróttahúsi fatlaðra
við Sigtún í Reykjavík í dag kl. 13.
SKVASS
Íslandsmótið í skvassi stendur yfir um
helgina í Veggsporti. Úrslitaleikir verða
leiknir á morgun, sunnudag.
FIMLEIKAR
Norðurlandamót unglinga í hópfimleikum
fer fram í dag kl. 11.45 til 16.30 í Laug-
ardalshöll. Keppt verður í flokkum kvenna,
karla og blönduðum liðum og keppendur
eru á aldrinum 13–18 ára.
UM HELGINA
SIGURVIN Ólafsson, miðjumað-
urinn frá Vestmannaeyjum, leik-
ur væntanlega ekki með Íslands-
meisturum KR í knattspyrnu fyrr
en í fyrsta lagi undir lok júní. Sig-
urvin á við þrálát meiðsli í kvið að
stríða en hann missti mikið úr síð-
asta sumar, lék þá aðeins 10 af 18
leikjum KR í úrvalsdeildinni, og
hann fór í aðgerð fyrir tveimur
mánuðum.
„Útlitið er ekki gott hjá Sig-
urvini og ég á ekki von á að hann
verði með okkur fyrr en eftir tvo
mánuði eða svo,“ sagði Willum
Þór Þórsson, þjálfari KR, við
Morgunblaðið.
Það er einnig óvíst að Garðar
Jóhannsson og Arnar Gunn-
laugsson verði tilbúnir í slaginn
þegar Íslandsmótið hefst þann 15.
maí með leik KR og FH. Garðar,
sem skoraði 8 mörk í Reykjavík-
urmótinu í vetur, hefur ekkert
spilað síðan í febrúar vegna nára-
meiðsla og Arnar er frá um sinn
vegna meiðsla í hné.
„Það hafa verið mikil forföll í
okkar hópi í vetur og staðan hjá
okkur er sannast sagna ekki of
glæsileg. En í staðinn hafa fjöl-
margir ungir leikmenn fengið
tækifæri hjá okkur í vetur og þó
margir hafi fullyrt annað hefur
það verið stefnan hjá okkur að
gefa þeim tækifæri og byggja upp
nýtt lið. Endurnýjunin hefur hins-
vegar verið mun hraðari síðustu
tvö árin en ég reiknaði með,“
sagði Willum Þór.
Sigurvin Ólafsson frá
í tvo mánuði í viðbót
SAMSTARF Gróttu og KR um meist-
araflokka kvenna og karla í hand-
knattleik sem staðið hefur frá 1997
er úr sögunni. Í gærkvöld sendu bæði
Æskulýðs- og íþróttaráð Seltjarn-
arness og meirihluti stjórnar Gróttu/
KR frá sér yfirlýsingar um að sam-
komulag ÆSÍS og Íþrótta- og tóm-
stundaráðs Reykjavíkur um rekstur
Gróttu/KR yrði ekki endurnýjað.
Kristján Guðlaugsson, Jóhannes
Geir Benjamínsson, Þórður Þórð-
arson og Erla Gísladóttir sögðu í yf-
irlýsingu sinni að formleg stjórn
meistaraflokka Gróttu yrði kjörin í
lok næstu viku en þá myndi núver-
andi stjórn Gróttu/KR skila af sér
uppgjöri.
Þau sögðu ennfremur að þau hefðu
þegar rætt við þjálfara meist-
araflokka karla og kvenna um að
þeir kæmu til starfa undir merkjum
Gróttu fyrir næsta tímabil. Ágúst Jó-
hannsson stýrði karlaliði Gróttu/KR
og Alfreð Örn Finnsson stýrði
kvennaliðinu. Jafnframt eru leik-
menn og þeir sem starfað hafa fyrir
meistaraflokkana undanfarin ár
boðnir velkomnir í starfið hjá Gróttu.
Í tilkynningu sem Ásgerður Hall-
dórsdóttir, formaður ÆSIS, und-
irritar, segir m.a. að ráðið telji að of
mikið skilji á milli aðilanna til að
hægt sé að endurnýja fyrra sam-
komulag. Það hafi verið tilraun sem
hafi átt að skila betri íþróttalegum
árangri, fleiri stuðningsmönnum,
fleiri áhorfendum og auknu fjár-
magni, en það hafi því miður ekki
skilað sér.
Samstarf Gróttu og KR í
handboltanum úr sögunni
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla
Neðri deild, A-riðill:
Fjölnir - ÍH ............................................... 4:1
Staðan:
Fjölnir 5 5 0 0 18:3 15
ÍH 5 3 0 2 9:8 9
Víðir 4 2 1 1 7:5 7
Leiknir R. 4 1 1 2 4:6 4
BÍ 3 0 0 3 1:7 0
Sindri 3 0 0 3 2:12 0
Fjölnir er kominn í undanúrslit.
Neðri deild, C-riðill:
Huginn - KS .............................................. 5:3
Staðan:
HK 4 4 0 0 12:5 12
Víkingur Ó 4 2 1 1 11:6 7
Huginn 5 2 0 3 20:16 6
Afturelding 3 2 0 1 3:2 6
Skallagr. 4 1 1 2 4:14 4
KS 4 0 0 4 6:13 0
Holland
Roda - Utrecht.......................................... 1:1
Staða efstu liða:
Ajax 30 22 4 4 67:29 70
PSV 30 19 5 6 77:26 62
Feyenoord 30 17 8 5 57:34 59
Heerenveen 30 16 6 8 44:32 54
Alkmaar 30 16 5 9 54:35 53
Roda 31 12 10 9 54:38 46
Willem II 30 12 9 9 42:47 45
Utrecht 31 12 7 12 40:48 43
Twente 30 13 2 15 48:48 41
Belgía
Moeskroen - Club Brugge ....................... 1:1
Staða efstu liða:
Anderlecht 30 23 4 3 71:24 73
Club Brugge 31 19 6 6 64:31 63
Standard Liège 30 16 10 4 61:27 58
Moeskroen 31 14 13 4 60:38 55
Genk 30 14 8 8 52:36 50
Westerlo 30 13 8 9 48:42 47
Germinal B. 30 9 11 10 26:33 38
La Louviere 30 8 12 10 37:40 36
Lierse 30 7 14 9 27:34 35
Anderlecht er meistari.
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA-deildin
16-liða úrslit, leikir númer þrjú:
Austurdeild:
New York - New Jersey .......................78:81
New Jersey er yfir, 3:0.
Vesturdeild:
Memphis - San Antonio ........................93:95
San Antonio er yfir, 3:0.
Marga sterka leikmenn vantarí lið KR að þessu sinni.
Arnar Gunnlaugsson, Sigurður
Ragnar Eyjólfsson, Garðar Jó-
hannsson, Sigurvin Ólafsson og
Theodór Elmar Bjarnason verða
ekki með vegna meiðsla og þá er
tvísýnt að Ágúst Gylfason, Bjarni
Þorsteinsson og Bjarki Gunn-
laugsson geti tekið þátt í leikn-
um, enda þótt þeir hafi farið með
til Færeyja.
„Við eigum ekki auðvelt með að
stilla upp liði um þessar mundir
og svo setti það stórt strik í
reikninginn hjá okkur að sex af
okkar yngri leikmönnum, sem
hafa spilað mikið í vetur, gátu
ekki farið með til Færeyja vegna
stúdentsprófa. Það var því með
herkjum að við náðum að setja
saman leikmannahóp fyrir þessa
ferð. En auðvitað förum við til
Færeyja til að sigra, það er ekk-
ert annað inni í myndinni,“ sagði
Willum Þór Þórsson, þjálfari KR,
við Morgunblaðið.
Danskur markaskorari
þjálfar og leikur með HB
HB hefur orðið færeyskur meist-
ari undanfarin tvö ár. Kunnustu
leikmenn liðsins eru miðjumaðurinn
hávaxni Rógvi Jacobsen, sem skor-
aði í báðum landsleikjum Færeyja
og Íslands á síðasta ári, og sókn-
armaðurinn Heðin á Lakjuni, sem
einnig er í landsliðshópi Færeyinga.
Þjálfari og leikmaður HB er
Heine Fernandez frá Danmörku en
hann hefur spilað einn A-landsleik
fyrir Danmörku og er markahæsti
leikmaður HB það sem af er tíma-
bilinu í Færeyjum.
Hann lék með AB, Silkeborg, Vi-
borg og FC Kaupmannahöfn og
skoraði mikið af mörkum í dönsku
úrvalsdeildinni fyrir þessi félög en
hann lék kveðjuleik sinn með AB í
desember.
KR-ingar með væng-
brotið lið til Færeyja
ÍSLANDSMEISTARAR KR eru komnir til Færeyja þar sem þeir leika
gegn færeysku meisturunum HB í dag. Þetta er þriðja árið í röð sem
meistaralið Íslands og Færeyja leika um Atlantic-bikarinn og hafa
íslensku liðin haft betur til þessa. ÍA vann B36 í fyrsta leiknum árið
2002, 2:1 í Þórshöfn, og KR lagði HB, 2:0, á KR-vellinum í fyrra.
Willum Þór
Íslandsglíman, keppnin um Grett-isbeltið, fer nú fram í 93. sinn.
Fyrst var keppt um það 1906 en
hlé varð á því á fimm ára tímabili í
kringum fyrri heimsstyrjöldina.
Grettisbeltið er elsti verðlauna-
gripur sem keppt er um hér á
landi. Konurnar glíma nú í fimmta
sinn um Freyjumenið sem 19. júní
sjóður Garðabæjar gaf í tilefni
þess að tíu ár voru liðin frá því að
konur tóku þátt í glímumóti í
fyrsta sinn.
Svana Hrönn Jóhannsdóttir,
GFD, handhafi Freyjumensins,
verður á meðal keppenda að þessu
sinni og einnig Inga Gerða Péturs-
dóttir, HSÞ, sem vann menið í
fyrsta sinn sem keppt var um það,
árið 2000. Hún vann einnig tveim-
ur árum síðar, en varð að sjá á eft-
ir meninu í hendur Svönu á síðasta
ári.
Ólafur Oddur Sigurðsson, HSK,
vann Grettisbeltið á síðasta ári og
hann hyggst freista þess að vinna
það annað árið í röð. Sjö ár þar á
undan vann Ingibergur Sigurðsson
Grettisbeltið en hann hefur dregið
saman seglin í glímunni og verður
ekki með að þessu sinni fremur en
í fyrra.
Bræðurnir Pétur og Jón Smári
Eyþórssynir eru einnig skráðir til
leiks að þessu sinni. Faðir þeirra,
Pétur Eyþórsson, vann beltið 1983
og 1987. Takist öðrum hvorum
bræðranna að vinna þá gerist það í
annað sinn að feðgum tekst að
vinna Íslandsglímuna. Aðeins ein-
um feðgum hefur tekist það til
þessa, Lárusi Salómonssyni á fyrri
hluta síðustu aldar og Ármanni J.
Lárussyni, syni hans.
Arngeir Friðriksson, HSÞ, er sá
keppenda að þessu sinni sem oftast
hefur tekið þátt í Íslandsglímunni,
15 sinnum. Honum hefur þó aldrei
tekist að vinna Grettisbeltið og fá
nafn sitt skráð á skjöld sem festur
er á Grettisbeltið og hyggst eflaust
gera breytingu á að þessu sinni.
Konur jafnmargar körlum
á meistaramóti í glímu
Morgunblaðið/Sverrir
Inga G. Pétursdóttir, HSÞ, og Svana Hrönn Jóhannsdóttir, GFD,
hafa handleikið Freyjumenið undanfarin ár.
FJÓRTÁN keppendur, sjö karlar og sjö konur, taka þátt í Íslands-
glímunni og Freyjuglímunni sem fram fer í íþróttahúsi Víkings í Vík-
inni á laugardag. Þetta verður í fyrsta sinn sem konur eru jafn-
margar og karlar í keppninni um æðstu sigurlaun í þjóðaríþróttinni,
íslenskri glímu.
HELGA Magnúsdóttir er eftir-
litsmaður Handknattleikssambands
Evrópu á síðari úrslitaleik Skövde
og Dunkerque í Áskorendabikar
karla sem fram fer í Skövde í dag.
Ragnar Óskarsson og félagar í
Dunkerque eru þar með naumt for-
skot úr fyrri leiknum í Frakklandi,
21:20.
SIR Alex Ferguson, knattspyrnu-
stjóri Manchester United, segir að
fregnir þess efni að Roy Keane og
Rio Ferdinand verði seldir frá fé-
laginu í sumar vera „algjört bull“
sem eigi ekki við nokkur rök að
styðjast. Ekki komi til greina að
selja þá tvo.
RUUD van Nistelrooy, framherji
Manchester United, segir að til þess
að vinna Liverpool í dag, verði að
stöðva Steven Gerrard. Hann sé
hjartað og sálin í leik Liverpool og
ekki megi undir neinum kringum-
stæðum láta hann leika lausum hala.
BARRY Ferguson, leikmaður
Blackburn og fyrirliði skoska lands-
liðsins, sér fram á að geta leikið með
Blackburn á ný á næstunni eftir að
hafa verið fjarri í fjóra mánuði.
FÓLK