Morgunblaðið - 24.04.2004, Page 57
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 57
KÚBÖNSK stemning svífur yfir
vötnum í sýningarsal MÍR í dag en
þar sýnir leikstjórinn Rachael K. Le-
Valley stuttmyndina Strange Mem-
ory of Irene A (El Extraño Recuerdo
de Irene A). Rachael, sem er líka
handritshöfundur myndarinnar, tók
hana upp í Havana á Kúbu. Myndin
er líka hluti af stærra innsetningar-
verki og geta áhorfendur búist við því
að taka þátt í eftirhermu af flugferð.
Innblástur myndarinnar er kominn
frá kúbönsku listakonunni Belkis
Ayón, sem framdi sjálfsmorð árið
1999, að því er segir í tilkynningu.
„Fylgst er með vinnu hennar í mynd-
inni samkvæmt kenningu hins frá-
bæra gagnrýnanda Adre Bazin, sem
nú er fallinn frá – Kvikmyndir eru
önnur leið til að færa dýrgripi list-
heimsins til fólksins.“
Kúbanski tónlistarmaðurinn Polito
Ibáñez sér um tónlist í myndinni en
leikstjórinn sér sjálfur um píanóverk í
lokin og „í anda pönkrokksins“ semur
hann það og spilar.
Kúbuvinurinn Tómas R. Einarsson
og félagar hans halda uppi stemningu
á svæðinu og einnig má búast við því
að kúbanskar veigar verði á staðnum.
Kúbönsk
stemning
Myndin verður sýnd í MÍR við
Vatnsstíg 10 kl. 13, 14, 15, 16
og 17 í dag. Aðgangseyrir er
300 kr.
Reuters
Ekki er vitað hvort hin áttræða
Graciela Gonzalez kemur við sögu í
myndinni en hér er hún að reykja
vindil í miðbæ gamla hluta Havana.
Gonzalez vinnur fyrir sér með því
að sitja fyrir á ljósmyndum fyrir
ferðamenn og tekur dal fyrir vikið.
Stjörnuleitardómarinn
þekkti, Simon Cowell,
tekur þátt í nýjum
hæfileikakeppnisþætti
á ITV1 þar sem dóm-
arar keppa hver á
móti öðrum. Þátturinn
gengur undir nafninu
The X Factor og kepp-
endum í úrslitum verð-
ur skipt niður í þrjá
hópa. Einn dómari
verður yfir hverjum
hópi og sér um að und-
irbúa keppendurna
fyrir úrslitin.
Ólíkt núverandi
Stjörnuleitarþáttum
verða engin efri ald-
urstakmörk fyrir þátt-
takendur og geta allir
eldri en 16 ára verið með. „Við er-
um að reyna að búa til öðruvísi
keppni,“ sagði Simon Cowell í sam-
tali við BBC. Hann segir þetta vera
gert vegna velgengni eldri lista-
manna á vinsældalistum. „Það er
ótrúlegt en við höfum ekki verið að
huga að eldri plötu-
kaupendum sem vilja
heyra í hinum nýja
Cliff Richard eða eitt-
hvað álíka,“ sagði
hann.
Bæði einstaklingar
og hljómsveitir geta
tekið þátt í áheyrn-
arprufum fyrir þátt-
inn en alls verða 120
vonglaðir valdir til að
taka þátt. Verður
þeim skipt niður í þrjá
hópa, eldri listamenn,
yngri listamenn og
hljómsveitir.
„Keppnin er á milli
dómaranna rétt eins
og listamannanna. Í
þetta skiptið er ég að
leggja orðspor sjálfs mín að veði,“
sagði hann.
Ekki er enn búið að ljóstra upp
hverjir hinir tveir dómararnir
verða en fyrrverandi umboðsmaður
Westlife, Louis Walsh, er orðaður
við þáttinn líkt og kryddpían Mel B.
Simon Cowell með nýjan þátt í anda Idol
Dómararnir
keppa líka
„Í þetta skiptið er ég að
leggja orðspor sjálfs
mín að veði,“ segir Sim-
on Cowell.
MIÐASALA á tónleika bandarísku
söngkonunnar Pink hefst í dag kl. 9
í Reykjavík, á Egilsstöðum og Ak-
ureyri.
Pink heldur tónleika í Laug-
ardalshöll 10. ágúst nk.
Tónleikarnir
verða liður í Try
This-tónleika-
ferðinni sem
staðið hefur yfir
undanfarna mán-
uði í Evrópu og
Ástralíu. Þykja
tónleikarnir mik-
il sýning og hafa
fjölmiðlar bæði í
Evrópu og Ástralíu gert að umtals-
efni hversu ögrandi Pink er á svið-
inu og þykir jafnvel slá sjálfri Ma-
donnu við í þeim efnum. Ku vera
mikið um dans og fjölskrúðuga
búninga en Pink sjálf skiptir næst-
um um útlit fyrir hvert einasta lag.
Með Pink í för verður stór hljóm-
sveit og dansarar.
Meðal þess sem Pink hefur óskað
eftir að fá að gera hér á landi þegar
hún er ekki á sviðinu í Höllinni er
að leika sér á sérútbúnum torfæru-
jeppa og að skoða næturlíf höf-
uðborgarinnar.
Miðaverð á tónleikana er 5.000
kr. í stæði og 5.900 í stúku.
Bleikur
laugardagur