Morgunblaðið - 24.04.2004, Síða 58
58 LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 13.20
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
„Frábær
skemmtun
fyrir alla
fjölskylduna“
Þ.Þ. Fbl.
Sýnd kl. 3.20 og 5.40. Með ensku tali
Sýnd kl. 2 og 4.30. Með íslensku tali
(Píslarsaga Krists)
HP. Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
Skonrokk
HL MBL
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40. B.i. 16.Sýnd kl. 2, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 8 og 10.40.
Til að tryggja réttan dóm
réðu þeir utanaðkomandi sérfræðing
En það var einn sem sá við þeim...
Eftir metsölubók John Grisham
Með stórleikurunum John Cusack, Gene
Hackman, Dustin Hoffman og Rachel Weisz
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 2.20, 5.10, 8 og 10.50. B.i. 16 ára.
kl. 3, 5.40, 8.30 og 11.20. B.i. 16.
Blóðbaðið nær hámarki.
FRUMSÝNING
HP
Kvikmyndir.com
„Gargandi snilld“
ÞÞ FBL
Jimmy the Tulip er mættur aftur í
hættulega fyndinni grínmynd!
Sýnd kl. 8.Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16 ára.
Blóðbaðið nær hámarki.
FRUMSÝNING
Sýnd kl. 2 og 4. Með íslensku tali
HL MBL
HP
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 6. Sýnd kl. 10.10.Sýnd kl. 2 og 3.45. Með íslenskum texta
„Gargandi snilld“
ÞÞ FBL
JÓN Jósep Snæbjörnsson, Jónsi,
kenndur við Í svörtum fötum, hefur í
nógu að snúast þessa dagana. Ekki
aðeins hefur hann nóg að gera við að
undibúa aukna frægð í útlöndum í
Evróvisjón heldur leikur hann einnig
eitt aðalhlutverkið í söngleiknum
Fame sem settur verður upp í Vetr-
argarðinum í Smáralind í sumar.
– Nú er lagið Heaven komið út á
smáskífu?
„Ég er hæstánægður með það. Það
er ákveðinn endapunktur á því að skila
laginu aftur til Íslendinga sem eiga
þetta lag í Evróvisjón. Ég get glaður
við unað þar til ég fer í keppnina.“
– Hvernig stendur undirbúningur-
inn?
„Það er mikið að gera í undirbún-
ingi þessa dagana, bæði við að kom-
ast að því í hvaða spjörum ég eigi að
vera og hvernig ég eigi síðan að
geifla mig á sviðinu. Það eru mikil
vísindi á bak við þetta. En þetta er
hrikalega gaman, lærdómsríkt og
skemmtilegt. Ég er með fólk sem
hefur mjög skemmtilegar og góðar
skoðanir á þessu öllu, en þær eru
mismunandi. Ég reyni að vera eins
dipló og ég mögulega get. Ég er bú-
inn að fá dagskrá senda og ef ég er
ekki að undirbúa mig þá held ég að
ég verði bara að hvíla mig þess á
milli. Þetta verður heilmikil törn.“
– Spenningurinn farinn að aukast?
„Nei, ég hef alveg haldið mér róleg-
um. Það er búið að vera svo mikið af
öðrum skemmtilegum verkefnum í
gangi. Stressið mundi bara spilla fyrir
hérna heima en það kemur. Þetta
verður skemmtilegt þegar þar að
kemur og fiðrildin koma í magann.“
– Núna ertu að fara að leika eitt
aðalhlutverkanna í Fame?
„Ég er í hlutverki stráks sem heitir
Nick. Hann er leikaranemi í Listahá-
skólanum Fame. Þetta verður mjög
fyndið og fjörlegt. Ég var ekki búinn
að gera mér í hugarlund að leika eitt-
hvað meira eftir Grease og hélt að það
yrði svona „once in a lifetime“. Að-
spurður var ég búinn að svara því
neitandi að ég ætlaði að leggja leik-
listina fyrir mig. Núna má ég bara
bakka með það. Ég veit ekkert hvar
ég stend í þessum efnum en ég veit að
þetta er rosalega skemmtilegt. Þeir
krakkar sem voru að ráða sig í þetta
eru alveg æðislega skemmtilegir og
ég hlakka til að vinna með þeim. Leik-
ritið er mjög skemmtilegt og tónlistin
er algjör draumur í dós. Íslendingar
þekkja kannski ekki öll þessi lög
nema titillagið en tímabilið er alveg
frábært. Þetta verður mikill dans og
ég verð að gera teygjuæfingar fyrir
þetta. Og borða hollan mat og svona.“
Samleikarar Jónsa í Fame verða
m.a. Sverrir Þór Sverrisson, betur
þekktur sem Sveppi, og Esther
Thalía Casey, Elma Lísa Gunnars-
dóttir, Álfrún Örnólfsdóttir, Ívar Örn
Sverrisson, Guðmundur Ingi Þor-
valdsson, Friðrik Friðriksson og
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, sem
er góður dansari til viðbótar við að
vera Ungfrú Ísland 2003.
Söngleikurinn er byggður á sam-
nefndri Óskarsverðlaunamynd og
vinsælum sjónvarpsþáttum sem
fylgdu í kjölfarið. Söngleikurinn sýnir
væntingar, sigra og vonbrigði, áhuga
og hæfileika nemenda með mismun-
andi bakgrunn og úr mismunandi
menningarheimum, sem sækja um
skólann og vinna síðan hörðum hönd-
um í fjögur ár þar til þeir útskrifast.
Ástarævintýri eiga sér stað, vinátta
verður til og grunn skilaboð sögunnar
um réttar og rangar leiðir eiga erindi
við æsku nútímans.
Leikstjóri er Bjarni Haukur Þórs-
son en verkið er þýtt og staðfært af
Úlfi Eldjárn. Tónlistarstjórn er í
höndum Barða Jóhannssonar í Bang
Gang og Karls Olgeirssonar. Leik-
mynd er eftir Ólaf Egilson og bún-
ingar eftir Helgu Rós V. Hannam.
Danshöfundar eru systurnar Birna
og Guðfinna Björnsdætur.
Jónsi pælir í fötum fyrir Evróvisjón og gerir teygjuæfingar vegna Fame
Frægð og Fame
Ljósmynd/Árni Torfason
Sveppi og Jónsi á framabraut á fyrstu samkomu leikhópsins.
Danssporin eru ófá í Fame en Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, Ungfrú Ís-
land 2003, er með taktana á hreinu.
ingarun@mbl.is
LÖGGULÍF, þriðja myndin um
þá félaga Þór og Danna verður
sýnd á morgun, laugardaginn
24. apríl, í Bæjarbíói á vegum
Kvikmyndasafns Íslands. Þessi
þriðja Lífs-mynd Þráins Bert-
elssonar er frá 1985. Þeir Þór
og Danni hafa að þessu sinni
stofnað fyrirtækið Gælu-
dýraathvarfið sem hefur það
að markmiði að hafa uppi á
gæludýrum sem ráfað hafa í
burtu frá eigendum sínum.
Einn viðskiptavinur þeirra er
frú Friðbjörg, kona dóms-
málaráðherra. Hún kemur því
til leiðar að þeir félagar eru
skipaðir í lögregluna, reyndar í
óþökk Þorvarðar varðstjóra.
Það er ekki að sökum að
spyrja, Þór og Danni lenda í
ýmsum æfintýrum. Þeir bjarga
manni úr klóm mannræningja
og lenda í miklum eltingaleik
um götur borgarinnar.
Bílaeltingaleikurinn í mynd-
inni er sá fyrsti sinnar teg-
undar í íslenskri kvikmynda-
sögu ef frá er talinn
eltingaleikurinn í Reykjavík-
urævintýri Bakkabræðra.
Keyptir voru gamlir bílar og
þeir lagaðir til svo þeir sýndust
nýir. Síðan voru reyndir rallý-
kappar fengnir til þess keyra
druslurnar, klessa, velta
o.s.frv.
Sýningin verður í sýning-
arsal safnsins í Bæjarbíói,
Strandgötu 6, Hafnarfirði
og hefst kl. 16:00. Miða-
sala opnar hálftíma fyrir
sýningu og miðaverð er
500 krónur.
Löggulíf
í Bæjar-
bíói