Morgunblaðið - 01.06.2004, Side 27

Morgunblaðið - 01.06.2004, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 2004 C 27 Kynntu þér kosti www.hus.is Sími 568 2444 a sb yr g i@ a sb yr g i. is • w w w .a sb yr g i. is • w w w .h u s. is STÆRRI EIGNIR ÞVERÁS - PARHÚS Glæsilegt 146,9 fm parhús með 24,5 fm bílskúr á besta stað í Árbæ. Eignin lítur mjög vel út í alla staði, halogen lýsing í lofti, parket á herbergjum, flísar á baði. (tilv.34026) Verð 25,9 millj. HÆÐARGARÐUR - LAUS STRAX Mjög skemmtileg 5 herbergja íbúð með sérinngangi á besta stað í klasahúsi við Hæðargarð. Fallegur sólpallur, stór sam- eiginleg lóð móti suðri. (33747) Verð 18,9 millj. 4RA - 5 HERB. BREIÐAVÍK - ÚTSÝNI Mjög falleg 115,3 fm endaíbúð á 3. hæð (efstu) með glæsilegu útsýni. Íbúðin skipt- ist í forstofu, þvottahús, 3 svefnherbergi, baðherbergi, stofa, eldhús, svalir, og geymslu í kjallara. (33934) Verð 16,9 millj. 3JA HERBERGJA ÁLFATÚN - FOSSVOGUR Fal- leg 88,5 fm íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýli við Fossvoginn. Fábært útsýni, svalir í norður og suður. Þvottahús innan íbúð- ar. Einstaklega falleg eign á yndisleg- um stað. Verð 13,9 millj. STAPASEL Glæsilegt einbýli á fal- legum stað ásamt stórum bílskúr. Hornhús með miklu útsýni og stórum garði. Eigninni hefur verið haldið mjög vel við á ári hverju, lítur mjög vel út. 5 svefnherbergi, 3 baðherbergi, opið eld- hús. Falleg eign. Nánari upplýsingar gefur Gunnar í síma 690 3408. (tilv. 33878) RAUÐHELLA - LAUS STRAX Nýtt 1.557 fm iðnaðar og lagerhúsnæði sem selst í einingum í stærðum frá 130 fm. Mikil lofthæð, stórar innkeyrsludyr. Stór malbikuð lóð. Allar nánari upplýsing- ar hjá sölumönnum Ásbyrgis í síma 568- 2444. (tilv. 31675) SKÓLASTRÆTI - HÓTELÍBÚÐIR Til sölu glæsilega uppgert gamalt hús er 4 samþykktum íbúðum og 2 ósamþykkt- um íbúðum, stærð hússins er samtals 262 fm. Húsið er allt endurnýjað frá grunni á mjög vandaðan með glæsilegum innréttingum. Sérinngangur í hverja íbúð. Hentar vel fyrir félagasamtök eða sem hótelíbúðir. Selst í einu lagi. Afhendingar strax. Allt um húsið á asbyrgi.is. Verð 59 millj. SUNDAGARÐAR - LEIGA Til leigu í Olíshúsinu við Sundagarða 160 fm verslunar- og skrifstofuhúsnæði á jarðhæð. Mjög vandaðar innréttingar, stórir verslunargluggar. Húsnæðið hentar vel fyrir hvers konar verslun og þjónustu. Nánari upplýsingar veitir Ingileifur Einars- son hjá Ásbyrgi í síma 568-2444. Laust strax. VANTAR ALLAR GERÐIR EIGNA Nú vantar okkur allar gerðir eigna á skrá, höfum ákveðna kaupendur að eign- um í Kópavogi og Árbæ. Við hjá Ásbyrgi komum og metum eignina þér að kostnaðarlausu, ásamt því að finna eign sem þér hentar. Við erum með sam- tengdann gagnagrunn sex fasteignasala, þú setur eignina þína í einkasölu hjá okkur en ferð inn á sameiginlegan grunn hjá HUS.IS. Kynntu þér kosti HUS.IS og vertu í sambandi við sölumenn okkar. SAMTENGD SÖLUSKRÁ SEX FASTEIGNASALA - EIN SKRÁNING - MINNI KOSTNAÐUR - MARGFALDUR ÁRANGUR Suðurlandsbraut 54 - við Faxafen - 108 Reykjavík Sími 568 2444 - Fax 568 2446 INGILEIFUR EINARSSON, löggiltur fasteignasali. SJÖFN ÓLAFSDÓTTIR SKJALAGERÐ, MARÍA ÞÓRARINSDÓTTIR. GUNNAR BERGMANN JÓNSSON SÖLUMAÐUR SÍMI 690 3408 GUNNAR HALLGRÍMSSON, SÖLUMAÐUR SÍMI 898 1486 Við erum í Félagi fasteignasala GNOÐARVOGUR Vel skipulögð 73,9 fm íbúð á 2. hæð. For- stofa, 2 svefnherbergi, baðherbergi, eld- hús, stór stofa, svalir, sameiginlegt þvotta- hús og sérgeymsla í kjallara. Verð 11,9 millj. AUÐARSTRÆTI Mjög falleg og vel skipulögð 95,7 fm íbúð í kjallara á þessum eftirsótta stað í Reykja- vík. Íbúðin lítur mjög vel út, mikið verið endurnýjað. Fallegur garður. (tilv.34068) Verð 13,5 millj. ATVINNUHÚSNÆÐI HAFNARSTRÆTI - SKRIF- STOFUR Til leigu eða sölu 4x19 fm skrifstofupláss á 4. hæð með miklu útsýni m.a. yfir höfnina. Herbergin eru með parketi og eða teppi á gólfum. Góð sameign. Nánari upplýsingar hjá Ásbyrgi fasteignasölu. (tilv. 33676) KLEPPSVEGUR - LYFTUHÚS Mjög falleg og björt 81,5 fm íbúð á 3. hæð í góðu lyftuhúsi. Nýjar skápahurð- ir og fleira endurnýjað. Íbúðin er LAUS STRAX. (tilv. 33833) Verð 12,6 millj. www.hus.is SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI Köllunarklettsvegur til sölu eða leigu ný- uppgert skrifstofu og fundarhúsnæði með fallegu útsýni yfir sundin og til Esju, sam- tals ca 615 fm Húsnæðið hentar vel t.d. fyrir skrifstofur eða félagasamtök. Öll skipti möguleg, öll tilboð skoðuð. Laus strax. Allar nánari upplýsingar hjá sölu- mönnum Ásbyrgi í síma 568 2444. TIL sameignar fjöleignarhúss telst allt ytra byrði svala, stoð- og burðarvirki þeirra, svo og svala- handrið. Til séreignar telst hins veg- ar innra byrði svalaveggja og gólf- flötur en húsfélag hefur ákvörðunar- vald um allar breytingar, búnað og annað á svölum er hefur áhrif á útlit og heildarsvip hússins. Þá eru svala- hurðir séreign og húsfélagið hefur ákvörðunarvald um útlit og heild- arsvip. Við túlkun á því hvort um sameign eða séreign er að ræða verður að hafa í huga að í fjöleignarhúsum er sameignin meginregla, sem þýðir að jafnan eru löglíkur fyrir því að hlut- ar húss og búnaður sé í sameign. Um kostnað og kostnaðarskiptingu Kostnaður, hverju nafni sem hann nefnist, sem snertir sameign fjöl- eignarhúss, enda sé löglega til hans stofnað getur m.a. verið fólginn í endurbótum, endurnýjunum, við- haldi eða viðgerðum. Þá er um að ræða sameiginlegan kostnað og er meginreglan sú, að hann skiptist á eigendur eftir hlutfallstölum eign- arhluta í viðkomandi sameign. Hver einstakur eigandi skal hins vegar sjá um og kosta allt viðhald á séreign sinni og telst allur slíkur kostnaður þess vegna sérkostnaður. Líkur eru á því að fram- kvæmdakostnaður í fjöleignarhúsi sé sameiginlegur en ekki sérkostn- aður, þannig að í vafatilvikum ber fremur að heimfæra kostnað undir heildina fremur en eiganda sér- eignar. Kostnaður vegna viðgerða, end- urbóta og endurnýjana á ytra byrði svala og stoð- og burðarvirki þeirra, svo og svalahandriðs er sameigin- legur kostnaður og skiptist á alla eigendur viðkomandi fjöleignarhúss eftir hlutfallstölum. Kostnaður vegna innra byrðis svalaveggja, svalagólfs og svala- hurðar er hins vegar sérkostnaður hvers eiganda fyrir sig en í því felst að eigandi íbúðar með svölum ber að annast allt venjulegt viðhald á yf- irborði þeirra og er hugtakið skýrt mjög þröngt. Hér að framan hefur grundvall- arreglunum um kostnaðarskiptingu verið lýst og hana verður að túlka og skýra í samræmi við þau sjónarmið, sem að ofan getur, um að sameig- inlegur kostnaður sé meginreglan og því beri að fella allan vafakostnað undir sameiginlegan kostnað en ekki sérkostnað. Þak eins er annars gólf Þegar um er að ræða svalir sem innbyggðar eru í þak fjöleignarhúss, þannig að gólf svalanna er jafnframt þakflötur næstu hæðar fyrir neðan, kann að rísa vafi um mörk séreignar og sameignar og einstaka kostn- aðarþætti og ber þá að beita þeirri löglíkindareglu, sem nefnd hefur verið, og túlka sérkostnað þröngt en sameiginlegan kostnað rúmt. Álit kærunefndar Eins og fram kemur hér að ofan er innra yfirborð svalaveggja og gólfflötur svala séreign eiganda íbúðar með svölum. Einungis er um að ræða ysta lag innra byrðis og er skilgreiningin þröng. Komi upp vafi verður að telja að um sameiginlegan kostnað sé að ræða. Í áliti kærunefndar fjöleign- arhúsamála frá árinu 1996 var deilt um skiptingu kostnaðar vegna við- gerða á þakdúki á svalagólfi tiltek- innar íbúðar. Eigandi íbúðarinnar taldi að um væri að ræða sameig- inlegan kostnað en annar eigandi í húsinu taldi að um sérkostnað við- komandi íbúðar væri að ræða. Nið- urstaða kærunefndar var sú að kostnaður við endurnýjun á dúknum væri sameiginlegur þar sem um væri að ræða dúk sem ekki þjónaði tilgangi sem efsta lag gólfflatarins og að með réttu hefði átt að leggja sérstaka slitvörn ofan á dúkinn. Þetta álit sýnir glögglega hversu þrönga skilgreiningu er um að ræða. Einnig hefur verið nokkuð deilt um skiptingu kostnaðar vegna við- gerðar á svölum sem einnig eru þak. Í áliti kærunefndar frá árinu 1999 var deilt um skiptingu kostnaðar vegna framkvæmda á svalagólfi til- tekinnar íbúðar í fjöleignarhúsi. Ágreiningurinn laut einkum að því hver ætti að bera kostnað af viðgerð til að koma í veg fyrir leka af svölum á fjórðu hæð sem jafnframt var þak þriðju hæðar. Í forsendum álitsins kemur fram að eigendum íbúða með svölum beri að annast allt venjulegt viðhald á yfirborði svalanna. Allt annað viðhald ætti að falla á sameign fjöleignarhússins enda verði viðgerð ekki rakin til vanrækslu á viðhalds- skyldu íbúðareiganda. Í álitinu er tekið fram að regla þessi gildi einnig þegar um er að ræða svalir sem jafn- framt eru þak. Niðurstaðan var því sú að kostnaður vegna viðgerða á téðu svalagólfi væri sameiginlegur og ætti að skiptast á alla eigendur hlutaðeigandi fjöleignarhúss eftir hlutfallstölum. Morgunblaðið/Golli Kostnaður vegna ytra byrðis svala, á stoð- og burðarvirki þeirra, og svalahand- riðs er sameiginlegur, kostnaður vegna innra byrðis svalaveggja, svalagólfs og svalahurða er á ábyrgð eigandans. Svalir í fjöleignarhúsum Hús og lög eftir Hrund Kristinsdóttur, lögfræðing hjá Húseigenda- félaginu/huso2@islandia.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.