Morgunblaðið - 01.06.2004, Side 30

Morgunblaðið - 01.06.2004, Side 30
30 C ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ H lutverk banka í fjármögnun fast- eignakaupa hefur verið mikið undan- farin ár. Verð á íbúðarhúsnæði hef- ur haldizt hátt og hámarkslán Íbúðalánasjóðs oft ekki dugað til að greiða kaupverðið nema að hluta. Eigi fólk sjálft ekki því meira eigið fé, þarf að leita til banka og annarra lánastofnana eins og líf- eyrissjóða. Þar við bætist, að þeir sem byggja sjálfir, fá ekki lán hjá Íbúðalánasjóði fyrr en þeir eru komnir með fokhelt hús og það kostar að sjálfsögðu mik- ið fé að koma húsinu í það ástand. Þáttur banka í fjármögnun húsnæð- iskerfisins hefur því verið mikill að undanförnu og sennilega meiri en margir gera sér grein fyrir. Blaðamaður Morgunblaðsins sneri sér til Frjálsa fjárfestingar- bankans og spurðist fyrir um lána- möguleika og lánskjör hjá bankan- um fyrir fólk í fasteignahugleiðing- um. Fyrir svörum urðu þeir Kristinn Bjarnason, framkvæmdastjóri Frjálsa fjárfestingarbankans, og Ei- ríkur Óli Árnason, deildarstjóri hjá bankanum. Allt upp í 80% lán „Til þess að mæta þörfum fólks í fasteignahugleiðingum hefur Frjálsi fjárfestingarbankinn jafnt og þétt verið að auka lán sín á undanförnum árum, bæði til húsbygginga og íbúð- arkaupa,“ segir Kristinn Bjarnason, en hann er viðskiptafræðingur að mennt og hefur starfað hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum í 8 ár. „Við lækkuðum lægstu vexti okkar ný- lega úr 5,95 niður í 5,4%, sem er mik- il lækkun, og við lánum allt upp í 80%, bæði á undan og á eftir lánum Íbúðalánasjóðs. Við lánum fólki sem er að byggja einbýlishús fyrir sjálft sig eða að kaupa. Við lánum einnig til kaupa á einstökum íbúðum í fjölbýlishúsum, bæði notuðum og nýjum, og að sjálf- sögðu byggingaraðilum sem eru að byggja til að selja, allt upp í stærstu fjölbýlishús, en margir af nýbygg- ingaraðilunum eru í viðskiptum hjá okkur.“ Framundan er mikil breyting á lánakerfi Íbúðalánasjóðs, en bein peningalán leysa húsbréfin af hólmi 1. júlí nk. Öllum breytingum fylgir nokkur óvissa og ýmsar spurningar vakna í hugum fólks í fasteignahug- leiðingum af þeim sökum. Á eftir- spurn á íbúðum enn eftir að aukast og verð enn eftir að hækka? Þessari spurningu svarar Kristinn Bjarnason á þann veg, að ekki verði um neina stórfellda breytingu á fast- eignamarkaði að ræða, er peninga- lánin taka við af húsbréfunum. „Ég tel ekki, að það verði nein holskefla á fasteignamarkaðnum í kjölfar þess- arar breytingar og enn sem komið er virðist fólk ekki byggja mikið á þess- um nýju lánum í kauptilboðum sín- um," segir Kristinn. „Við höfum þó séð tilboð, þar sem fólk bíður eftir peningaláni frá Íbúðalánasjóði og setur það inn í til- boðið. Einhverjir eru því farnir að gera ráð fyrir þessum lánum í greiðslutilhögun sinni og telja, að á þeim verði mun lægri vextir. En það veit enginn fyrir víst, hvað vextir á þeim verða háir. Þessi skuldabréfa- flokkur verður boðinn út og það verður markaðurinn, sem ákveður vextina. Lækkandi ávöxtunarkrafa á hús- bréfum, sem endurspeglast í hækk- andi yfirverði, hefur virkað sem inn- spýting á fasteignamarkaðinn. Það kæmi mér ekki á óvart, ef það drægi aðeins – að minnsta kosti í bili – úr þeim krafti og umsvifum, sem einkennt hafa markaðinn. Fólk er hrætt við breytingar og vill kaupa núna og ljúka því, áður en lánabreyt- ingin gengur í garð. Það er mikil og löng reynsla komin á húsbréfin og fólk hefur því yfirsýn yfir hlutina eins og þeir eru nú en veit ekki hvað tekur við. Það má því gera ráð fyrir, að það komi eitthvert hik í markaðinn, á meðan fólk er að átta sig á breyting- unni. En það má alveg eins búast við, að verð á íbúðarhúsnæði hækki, þar sem fólk fær ekki lengur það yfir- verð sem nú er á húsbréfunum og vill þá fá hærra verð í staðinn. Samt er engin ástæða til annars en að vera bjartsýnn á markaðinn. Fram er komið, að fasteignaverð hækkaði að meðaltali um 2,5% milli marz og aprílmánaðar á höfuðborg- arsvæðinu og um 13,4% á síðustu 12 mánuðum. Eftirspurn er nú mikil og bygg- ingaverktakarnir telja sig sjá fram á mikla eftirspurn næstu tvö árin að minnsta kosti. Margir þeirra eru því núna ákaft að leita sér að lóðum, en það er mikill lóðaskortur á markaðn- um. Þeir vilja helzt geta byrjað strax til þess að geta selt á jafn háu verði og fæst nú, en enginn veit með vissu, hvernig ástandið verður, þegar lengra er litið fram í tímann.“ Mikill sveigjanleiki „Við getum veitt fólki lán með lánstíma frá 1 viku og upp í 40 ár,“ segir Eiríkur Óli Árnason, sem nú hefur orðið. Hann er löggiltur fast- eignasali og starfaði áður á fast- eignasölunni Ásbyrgi í þrjú ár sem sölustjóri. „Það var mjög lærdóms- ríkur tími og ég öðlaðist mikla reynslu, sem kemur mér að góðu gagni í dag," segir hann. „Aðstæður fólks eru afar mismun- andi, hvað varðar greiðslugetu, veð- hæfni og hvers konar eignir það er að kaupa," heldur Eiríkur Óli áfram. „Það verður því að byrja á því að skoða öll þessi atriði og það má segja, að lán og lánskjör séu klæð- skerasaumuð eða sérsniðin að þörf- um og getu hvers og eins lántak- anda,“ Eiríkur Óli segir óskir fólks líka afar mismunandi. Lántakandinn vill kannski fá lán með léttri greiðslu- byrði næstu 5–10 ár af því að hann er að koma sér fyrir. Hann er ef til vill að koma úr skóla og þarf að byrja á því að kaupa sér innbú og bíl en gerir sér raunhæfar vonir um hærri tekjur eftir eins og fimm ár og getur þá tek- ið á sig þyngri greiðslubyrði en nú. „Léttari greiðslubyrði fyrstu árin getur hentað sumum," segir Eiríkur Óli. „Því bjóðum við upp á lán, þar sem ekki þarf að greiða afborgunar- þáttinn fyrstu 5–10 árin af lánstím- anum. Greiðslubyrðin er þá mjög létt til að byrja með en þyngist síðar, er hagur lántakans hefur vænkazt og hann á betra með að standa undir henni.“ Vextir bankans eru líka mismun- andi, 5,40–7,25% á verðtryggðum lánum, en vaxtakjör eru metin í hverju tilviki fyrir sig og vextir ráð- ast af heildarveðsetningu eignar og áhættumati. „Það er ljóst, að áhætt- an er minni, ef lánið er tryggt með 1. veðrétti á undan Íbúðalánasjóði en meiri ef lánið kemur á eftir," segir Eiríkur Óli. „Vaxtakjörin taka mið af þessu og því geta þau verið mjög mismunandi. Vextir eru jafnframt breytilegir og miðast við vaxtakjör á hverjum tíma og geta því breytzt án fyrirvara.“ „Það er áberandi að fólk nú á dög- um, ekki hvað sízt unga fólkið, vill fá Horft yfir austurhluta Grafarholts. Frjálsi fjárfestingarbankinn hefur tekið mikinn þátt í þeirri miklu uppbyggingu, sem átt hefur sér stað í Grafarholti. Sérsníða þarf fasteignalán að þörfum Aðstæður fólks eru mis- munandi hvað varðar greiðslugetu, veðhæfni og hvers konar eign það hyggst kaupa. Fast- eignalán þurfa því framar öðru að taka mið af að- stæðum lántakenda. Magnús Sigurðsson kynnti sér fasteignalán Frjálsa fjárfestingar- bankans. Eiríkur Óli Árnason deildarstjóri og Kristinn Bjarnason, framkvæmdastjóri Frjálsa fjárfestingarbankans. Fasteignalán fjárfestingar b Frjálsi fjárfestingarbankinn hefur aðsetur í Ármúla 13a. Bankinn hefur jafnt og þétt verið að auka lán sín á undanförnum árum til húsbygginga og íbúðarkaupa. Kaupverð: 15.000.000 Kjör Greiðslubyrði á mán. Veðsetning Útborgun 1.500.000 Húsbréf 40 ár 9.200.000 5,1% 44.973 61% Frjálsi fjárfestingarb. 550.000 6,75% 3.318 65% Viðbótarlán 40 ár 3.750.000 5,3% 18.834 90% Alls 15.000.000 67.125 Ekki er líklegt að viðkomandi fá fullt viðbótarlán. Ef við miðum við 2,5 m.kr. Útborgun 1.500.000 Húsbréf 40 ár 9.200.000 5,1% 44.973 61% Frjálsi fjárfestingarb. 1.800.000 6,75% 10.860 73% Viðbótarlán 40 ár 2.500.000 5,3% 12.556 90% Alls 15.000.000 68.389 Ef viðkomandi á ekki kost á viðbótarláni getur dæmið litið eftirfarandi út: Útborgun 3.000.000 Lán frá Frjálsa fb. 40 ár 1.300.000 5,40% 6.617 8,7% Ný húsbréf 40 ár 9.200.000 5,10% 44.973 70% Lán frá Frjálsa fb. 40 ár 1.500.000 7,25% 9.595 80% Alls 15.000.000 61.185 eða ..... Útborgun 3.000.000 Ný húsbréf 40 ár 9.200.000 5,10% 44.973 61% Lán frá Frjálsa fb. 40 ár 2.800.000 7,25% 17.911 80% Alls 15.000.000 62.884 eða ..... Útborgun 3.000.000 Lán frá Frjálsa fb. 40 ár 12.000.000 6,25% 68.129 80% Alls 15.000.000 68.129 Ef þau vilja ekki fara í greiðslumat eða standast það ekki Útborgun 3.750.000 Lán frá Frjálsa fb. 40 ár 11.250.000 6,25% 63.871 75% Alls 15.000.000 63.871

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.