Morgunblaðið - 01.06.2004, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 2004 C 31
nýtt og það strax,“ heldur Eiríkur
Óli áfram. „Það vill komast tafar-
laust í fína íbúð eða raðhús.
Breyttur hugsunarháttur
Við þessu er kannski ekkert að
segja og það lýsir aðallega breyttum
hugsunarhætti. Í gamla daga byrjaði
fólk á því að flytja inn í bílskúrinn og
bjó þar á meðan verið var að koma
húsinu upp. Þetta þekkist varla leng-
ur.“
Eftirspurnin eftir íbúðum í nýjum
hverfum er líka meiri en var. Áður
fyrr guldu nýhverfin gjarnan fyrir
frumbýlingsbraginn, sem á þeim var,
oft í langan tíma. Það var byrjað á
framkvæmdum og lítið hugsað um
grundvallarþætti eins og umferðar-
mannvirki. Afleiðingin var sú, að á
álagstímum gátu íbúarnir hvorki
komist út úr þessum hverfum né inn
í þau.
Nú eru umferðarmannvirkin yfir-
leitt hönnuð fyrirfram. Þannig var
þetta í Grafarholti, þar sem hiti var
lagður í aðalgöturnar inn í hverfið
strax í upphafi. Af þessu hlýzt mikið
hagræði, enda er Grafarholt að
verða mjög vinsælt hverfi og nú
flykkist þangað fólk á öllum aldri.“
m lántakenda
magnuss@mbl.is
LÁNSTÍMI er allt að 40 ár, veð-
setningarhlutfall m.v. markaðs-
verð er 80%, farið er fram á
greiðslumat ef lánveiting er á
bilinu 75%–80%, lánað allt að
100% af brunbótamati en þó ekki
hærra en 80% af markaðsverði.
Boðið er upp á endurgreiðsluform,
jafnar afborganir og jafnar
greiðslur, en nær allir velja jafnar
greiðslur. Grunnvextir eru 5% og
vaxtaálag m.v. veðsetningarmörk.
Lægstu vextir er 5,4% og hæstu
vextir 8,0%.
Bankinn ráðleggur viðskipta-
vinum sínum að taka lán í íslensk-
um krónum, þó svo að bankinn bjóði einnig lán í erlendri mynt. Krónan hefur
verið sterk og þetta er því ekki besti tíminn til þess að taka erlend lán. Einnig
eru vextir á erlendum gjaldmiðlum í lágmarki sem gefur ekki rétta mynd af
því hvernig greiðslubyrði lána í erlendri mynt mun verða í framtíðinni. Þar af
leiðandi miðast tillögur bankans við lán í íslenskum krónum.
Öll lán frá Frjálsa fjárfestingarbankanum og Íbúðalánasjóði miðast við
jafnar greiðslur.
Dæmi: Par að kaupa sína fyrstu íbúð, kaupverð 15.000.000 kr., notuð
íbúð. Parið stenst greiðslumat.
Í þessu tilviki myndu lánafulltrúar Frjálsa fjárfestingarbankans ráðleggja
að taka húsbréfalán og síðan viðbótarlán allt að 90% frá Íbúðalánasjóði, ef
gengið er út frá að tekjurnar séu lægri en 270 þús. kr. á mánuði og hrein eign
sé undir 2.505.000 kr. Miðað er við að viðkomandi fái hámarksviðbótarlán sem
nemur 25% af markaðsverði íbúðar. Upphæð viðbótarláns miðast við þætti
líkt og húsnæðisstærð og fjölskyldustærð.
Áhrif vaxtabóta
Þar sem fólkið stenst ekki greiðslumat, hefur lágar tekjur eða gefur upp á
sig lágar tekjur, fær það því vaxtabætur frá RSK. Ekki kemur til skerðingar
vegna eignar.
Dæmi um smið sem starfar einn eða með einn ófaglærðan mann í vinnu.
Lágmarks reiknað endurgjald er 230.000 kr. á mánuði. Til einföldunar er gert
ráð fyrir að viðkomandi eigi fyrir útborgun og beri ekki aðrar skuldir né eigi
aðrar eignir. Maki er heimavinnandi án launa.
Vaxtagjöld á ári 703.125 kr.
Vaxtagjöld geta að hámarki numið 5,5% af eftirstöðvum lána m.v. 2004 618.750 kr.
Hámark vaxtagjalda til ákvörðunar vaxtabóta árið 2004 hjá hjónum er: 618.750 kr.
Stofn til ákvörðunar vaxtabóta verður því: 618.750 kr.
Frá dragast 6% af launum eða af (230.000*12) -165.600 kr.
453.150 kr.
Hámarksvaxtabætur eru skv. RSK fyrir hjón 239.010 kr.
Hjónin fá því vaxtabætur 239.010 kr. á ári eða 19.918 kr. á mánuði.
Greiðslubyrði á mánuði 63.871
Vaxtabætur -19.918
Greiðslubyrði á mánuði að teknu tilliti til vaxtabóta 43.953 kr.
Þar sem hámarksvaxtabætur 239.010 kr. fyrir hjón takmarka vaxtabætur,
gætu laun þeirra hjóna hækkað um tæpar 300.000 kr. á mánuði án þess að það
hefði áhrif á vaxtabætur að því gefnu að ekki kæmi til skerðingar vegna eigna
en vaxtabætur byrja að skerðast m.v. eign hjóna 5.843.331 kr.
Heimilt er að flytja lánið með sér ef veðstaða á nýrri eign er sú sama eða
betri, hægt er að breyta lánstíma, einnig er mögulegt að sækja um að skil-
málabreyta vanskilum og skeyta við höfuðstól.
Frjálsa
bankans
EKKI er allt gull sem glóir, segir
gamalt máltæki. Það má velta því
fyrir sér hvort það geti átt við túnfíf-
ilinn sem glóir eins og gull hvar sem
nokkurn jarðveg er að finna.
Túnfífillinn virðir engin landa-
mæri. Hann er afskaplega harðger
og fjölgunargetan er gríðarleg.
Hann þarf hvorki mikinn né merki-
legan jarðveg til að geta skotið rót-
um og kærir sig kollóttan þótt nær-
veru hans sé ekki óskað.
Ýmsilegt hefur verið fundið upp
og framleitt fíflinum til höfuðs. En
þrátt fyrir mikla eljusemi getur ver-
ið erfitt að uppræta hann. Víða má
sjá logagylltar brekkur þar sem fíf-
illinn hefur algjöra yfirhönd og alltaf
bætist við mergðina. Fljótlega um-
breytist fífillinn í biðukollu sem svíf-
ur um hverfið líkt og skæðadrífa
þegar verst lætur. Mótmæli garðeig-
enda mega sín lítils og þótt þeir
standi með fíflajárn í hendi og pjakki
allan daginn tekst fíflinum alltaf að
hreiðra einhvers staðar um sig.
En hvað er til ráða þegar túnfífill
hefur tekið yfirráðin í flöt skrúð-
garðeigandans?
Fjölær planta
Leitað var í smiðju Sigríðar
Hjartar, en hún hefur haldið úti
þættinum Blóm vikunnar sem verið
hefur hér í blaðinu áratugum saman.
Sigríður segir að fíflajárnið dugi oft
ágætlega, sérstaklega þar sem ekki
er mjög mikið af fíflum. Það þarf
svolitla lagni til að nota það en það
tekst með æfingunni. Ekki er nóg að
slá blettinn því rótin situr eftir og
vex og dafnar þrátt fyrir að það sem
stendur upp úr jörðinni hverfi. Síðan
vex nýtt blóm upp af rótinni, enn
sterkara og öflugra en hið fyrra.
Guðbjörg Kristjánsdóttir í Garð-
heimum er flestum fróðari um eitur-
efni fyrir plöntur. Hún segir að eit-
urefnið Herbamix sé hormónaefni
sem vinni á tvíkímblöðungum svo
sem fífli og sóley, en ekki á grasi.
Efninu er blandað í vatn, t.d. í garð-
könnu eða úðara, og blöð plöntunnar
sem á að drepa eru vætt með lausn-
inni. Guðbjörg segir að einnig megi
setja lausnina í skál og pensla blöðin
með henni, en þannig verður efnið
mun drýgra. Þetta ber að gera í
þurrviðri því efnið þarf að þorna á
blöðunum. Síðan má ekki slá í 5–6
daga á meðan efnið er að virka.
Fyrst hleypur ofvöxtur í blöðin og
leggur og blöð krullast upp, en síðan
sígur efnið niður í rótina og sprengir
hana. Og þá, en ekki fyrr, er fífillinn
dauður. Efnið má ekki komast í
snertingu við tré eða runna, sem eru
einnig tvíkímblöðungar.
Guðbjörg segir að plöntueitrið
Roundup henti betur t.d. í stéttar
eða á þá staði þar sem enginn gróður
á að vera. Roundup drepur allt
grænt sem það lendir á, þar með tal-
ið gras, tré og runna sem og aðrar
plöntur. Efnið skilar sínu á u.þ.b.
þremur vikum, en það drepur ekki
fræ eða rætur sem enn eru niðri í
jörðinni.
Síðast má nefn efnið Casaron, það
má nota í trjábeð en gæta þarf að
sumar plöntur þola það ekki.
Lesið leiðbeiningarnar
Öll þessi eiturefni eru með ís-
lenskum leiðbeiningum og Guðbjörg
segir að afar mikilvægt sé að fólk
kynni sér þær vandlega áður en það
fer að sprauta þessu í allar áttir. Þá
þurfi einnig missterka upplausn eft-
ir því hvort verið er að fást við ungar
plöntur eða gamlar og þetta þarf
fólk að kynna sér sérstaklega vel.
Hún segist hafa heyrt um tilvik þar
sem röngu efni, svo sem roundup,
var blandað í úðabrúsann og úðað
þar sem átti að útrýma grasmaðki.
Þar með voru heilu trjálundirnir fyr-
ir bí.
En með góðum vilja er hægt að
hafa einhver not af túnfíflinum. Það
er sagt að ung fíflablöð séu ágæt í
salat og mjólkin úr leggnum er talin
eyða vörtum.
Það má svo í lokin velta því einnig
fyrir sér hvort manískir garðeig-
endur verða ekki bara að endur-
skoða fagurfræðilegt mat sitt og
fullkomnunaráráttu og bjóða túnfíf-
ilinn, sóley eða njóla, þessar þjóð-
legu íslensku jurtir, velkomnar í
partíið.
Fífill: Eitt eilífðar smáblóm sem erfitt er að uppræta.
Fífilbrekka, gróin grund
Frumstæðari útgáfa af fíflajárni, en þetta verkfæri má nota í
ýmislegt fleira.
Roundup fæst bæði tilbúið til notkunar og til blöndunar.
Það drepur allt grænt.
Aldrei verður ofbrýnt fyrir fólki að
lesa leiðbeiningarnar, sem eru á ís-
lensku.
Herbamix er hormónaefni sem vinnur
á tvíblöðungum, s.s. fífli og sóley, en
ekki á grasi.
Fíflajárni er stungið niður með rót-
inni, síðan er snúið upp á og rótin tog-
uð varlega upp.