Morgunblaðið - 01.06.2004, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 2004 C 37
Engjasel Sérlega björt og vel skipulögð
94,9 fm, 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í góðu,
barnvænu, 3ja hæða fjölbýlishúsi á góðum
stað í Seljahverfinu. Eigninni fylgir 36,6 fm
stæði í bílskýli. Frábært umhverfi og ekki
spillir útsýnið. Verð 12,9 millj.
Grænlandsleið, nýbygging Glæsilegar 3ja
herbergja, 117 fm, neðri sérhæðir á góðum
stað í Grafarholti. Íbúðirnar eru tilbúnar án
gólfefna. Vandaður frágangur og skemmti-
leg hönnun. Sjón er sögu ríkari. Lækkað
verð!!! Verð 16,9 millj.
4ra herb.
Álfholt, Hafnarfj. Falleg 99 fm, 4ja her-
bergja íbúð á 3. hæð í góðu fjölbýli. Útsýni
er til suðurs og norður. Íbúðin er öll nýend-
urgerð, þ.e. innrétttingar, málning og gólf-
efni. GETUR LOSNAÐ FLJÓTT. Áhv. 9,1
millj. Verð 13,6 millj.
www.eignir.is
Þorláksgeisli
Glæsilegt og vel skipulagt raðhús
(endahús) í suðurhlíðum Grafarholts
með golfvöllinn í næsta nágrenni.
Húsið eru úr forsteyptum einingum
og er því að verða tilbúið undir tré-
verk. Húsinu verður skilað fullbúnu að
utan, með grófjafnaðri lóð. Verð 19,3
millj.
Jónsgeisli
Fallegt og vel hannað, 196 fm, tvílyft
parhús í norðuhluta Grafarholts byggt
úr forsteyptum einingum. Húsið er
sérlega rúmgott. Húsið afhendist að
innan langt komið tilbúið undir tré-
verk, rör í rör lagnakerfi, veggir tilbún-
ir til spörslunar, hluti raflagna komin
og fl. Lóð grófjöfnuð. Húsið skilast
fullb. að utan. Verð 20,9 millj.
Lómasalir
Stór og sérlega rúmgóð, 3ja her-
bergja, 102 fm íbúð á fyrstu hæð
með suðurgarði. Sérinngangur af
svölum. Stæði í bílageymslu fylgir
íbúð. Parket og flísar á gólfum. Verð
15,7 millj.
2ja herb.
Búðagerði 2ja herbergja íbúð á 1. hæð
með svölum sem snúa í vestur. Komið er
inn í hol með ljósum flísum og góðum fata-
skáp. Baðherbergið er með dúk á gólfi,
hvítri innréttingu og baðkari. Í eldhúsi er
eldri innrétting með dúkaflísum á gólfi.
Svefnherbergið er dúkalagt. Rúmgóð og
björt stofa með teppi á gólfi. Verð 9,2 millj.
3ja herb.
Torfufell FALLEG 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ
Á 3. HÆÐ Í GÓÐU FJÖLBÝLI. Íbúðin er öll
nýmáluð, falleg hvít eldhúsinnrétting og
parket á stofu og svefnherbergi. Sameign er
mjög falleg. Stutt í alla þjónustu. Góð fyrstu
kaup. Verð 9,7 millj.
Bogahlíð Mjög falleg, 3ja herbergja íbúð á
jarðhæð í fallegu húsi við Bogahlíð í Reykja-
vík. Rúmgóða stofa, tvö góð svefnherbergi,
eldhús og baðherbergi. Sameiginlegt
þvottahús og sérgeymsla í risi. Nýtt gler er í
allri íbúðinni. Frábær staðsetning. Verð 12,9
millj.
Engihjalli 3ja herbergja, 89,2 fm íbúð á 10.
hæð með stórglæsilegu útsýni í vestur og
norður. Esjan, Faxaflói og Reykjanes blasa
við í öllu sínu veldi. Eign á góðum stað.
Verð 12,2 millj.
Blásalir Glæsileg 4ra herbergja íbúð á 10.
hæð. Stórkostlegt útsýni er úr íbúðinni. Park-
et er á allri íbúðinni nema dúkur á baðgólfi og
þvottaherbergi. Allar innréttingar eru úr ma-
hóní sem og innihurðir. Gott skápapláss er í
öllum herbergjum. Verð 20,7 millj.
Básbryggja Stórglæsileg 4-5 herbergja,
146 fm „penthouse“-íbúð á tveim hæðum.
Íbúðin er frábærlega hönnuð með skemmti-
legt skipulag og allt fullklárað á hinn vand-
aðasta hátt. Parket og flísar á gólfum, rúm-
góð herberg og góðir skápar, vestursvalir,
fallegur garður. Eign fyrir vandláta. Verð
20,5 millj.
Nýbygging/fjölbýli
Andrésbrunnur Erum með glæsil. 4ja og 5
herb. íbúðir í nýju, 3ja hæða lyftuhúsi. Bíla-
geymsla. Vandaður frágangur. Íbúðirnar eru
allar afhentar fullb. án gólfefna, tilb. til af-
hendingar. Verð frá 17,9 millj.
ve
rð
Læ
kk
að
Grænlandsleið í Grafarholti
Til sölu er búseturéttur í nokkrum íbúðum við Grænlandsleið í Grafarholti.
Íbúðirnar eru 3ja herb., um 94 fm að stærð. Um er að ræða tveggja hæða
hús með sér íbúð á hvorri hæð og fylgir stæði í bílakjallara öllum íbúðun-
um. Íbúðirnar eru í byggingu og verða afhentar fullbúnar með miklu út-
sýni. Sérinngangur er í allar íbúðirnar. Stefnt er að því að fyrstu íbúðirnar
verði til afhendingar um áramótin.
Lóuland í Garði
Til sölu er búseturéttur í fjórum íbúðum í 2 parhúsum við Lóuland í Garði.
Um er að ræða þrjár 3ja herb. íbúðir um 90 fm að stærð og eina 4ra her-
bergja íbúð um 105 fm. Bílskúr fylgir íbúðunum. Íbúðirnar eru í byggingu
og er áætlað að þær verði til afhendingar um áramótin.
Suðurtún Álftanesi
Til sölu er búseturéttur í nýlegri 90 fm íbúð í raðhúsi á einni hæð við Suð-
urtún á Álftanesi. Íbúðinni fylgir um 25 fm bílskúr. Íbúðin getur verið til
endurúthlutunar fljótlega.
Prestastígur Grafarholti
Til sölu er búseturéttur í nýlegri rúmlega 95 fm, 3ja herbergja íbúð í fjög-
urra hæða lyftuhúsi. Íbúðin getur verið til endurúthlutunar fljótlega og fylg-
ir stæði í bílakjallara.
Ýmsir staðir
Eigum lausa íbúð í Hveragerði, í Sandgerði og á Höfn í Hornafirði.
Umsóknarfrestur er til 7. júní nk.
Réttur til kaupa miðast við 50 ára og eldri.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu félagsins
á Suðurlandsbraut 54 eða í síma 552-5644 milli kl. 9-15.
um nýtt brunabótamat.
Hússjóður – Hér er um að ræða yf-
irlit yfir stöðu hússjóðs og yfirlýsingu
húsfélags um væntanlegar eða yf-
irstandandi framkvæmdir. Formaður
eða gjaldkeri húsfélagsins þarf að út-
fylla sérstakt eyðublað Félags fast-
eignasala í þessu skyni.
Afsal – Afsal fyrir eign þarf að liggja
fyrir. Ef afsalið er glatað, er hægt að fá
ljósrit af því hjá viðkomandi sýslu-
mannsembætti og kostar það nú kr.
100. Afsalið er nauðsynlegt, því að það
er eignarheimildin fyrir fasteigninni og
þar kemur fram lýsing á henni.
Kaupsamningur – Ef lagt er fram
ljósrit afsals, er ekki nauðsynlegt að
leggja fram ljósrit kaupsamnings. Það
er því aðeins nauðsynlegt í þeim til-
vikum, að ekki hafi fengist afsal frá
fyrri eiganda eða því ekki enn verið
þinglýst.
Eignaskiptasamningur – Eigna-
skiptasamningur er nauðsynlegur, því
að í honum eiga að koma fram eign-
arhlutdeild í húsi og lóð og hvernig af-
notum af sameign og lóð er háttað.
Umboð – Ef eigandi annast ekki
sjálfur sölu eignarinnar, þarf umboðs-
maður að leggja fram umboð, þar sem
eigandi veitir honum umboð til þess
fyrir sína hönd að undirrita öll skjöl
vegna sölu eignarinnar.
Yfirlýsingar – Ef sérstakar kvaðir
eru á eigninni s. s. forkaupsréttur, um-
ferðarréttur, viðbyggingarréttur o. fl.
þarf að leggja fram skjöl þar að lút-
andi. Ljósrit af slíkum skjölum fást yf-
irleitt hjá viðkomandi fógetaembætti.
Teikningar – Leggja þarf fram sam-
þykktar teikningar af eigninni. Hér er
um að ræða svokallaðar bygging-
arnefndarteikningar. Vanti þær má fá
ljósrit af þeim hjá byggingarfulltrúa.
Kaupendur
Þinglýsing – Nauðsynlegt er að
þinglýsa kaupsamningi strax hjá við-
komandi sýslumannsembætti. Það er
mikilvægt öryggisatriði. Á kaupsamn-
inga v/eigna í Hafnarfirði þarf áritun
bæjaryfirvalda áður en þeim er þing-
lýst.
Greiðslustaður kaupverðs – Al-
gengast er að kaupandi greiði afborg-
anir skv. kaupsamningi inn á banka-
reikning seljanda og skal hann
tilgreindur í söluumboði.
Greiðslur – Inna skal allar greiðslur
af hendi á gjalddaga. Seljanda er
heimilt að reikna dráttarvexti strax
frá gjalddaga. Hér gildir ekki 15 daga
greiðslufrestur.
Lánayfirtaka – Tilkynna ber lánveit-
endum um yfirtöku lána.
Lántökur– Skynsamlegt er að gefa
sér góðan tíma fyrir lántökur. Það get-
ur verið tímafrekt að afla tilskilinna
gagna s. s. veðbókarvottorðs, bruna-
bótsmats og veðleyfa.
Afsal – Ef skjöl, sem þinglýsa á,
hafa verið undirrituð samkvæmt um-
boði, verður umboðið einnig að fylgja
með til þinglýsingar. Ef eign er háð
ákvæðum laga um byggingarsam-
vinnufélög, þarf áritun byggingarsam-
vinnufélagsins á afsal fyrir þinglýsingu
þess og víða utan Reykjavíkur þarf
áritun bæjar/sveitarfélags einnig á af-
sal fyrir þinglýsingu þess.
Samþykki maka – Samþykki maka
þinglýsts eiganda þarf fyrir sölu og
veðsetningu fasteignar, ef fjölskyldan
býr í eigninni.
Gallar – Ef leyndir gallar á eigninni
koma í ljós eftir afhendingu, ber að til-
kynna seljanda slíkt strax. Að öðrum
kosti getur kaupandi fyrirgert hugs-
anlegum bótarétti sakir tómlætis.
Gjaldtaka
Þinglýsing – Þinglýsingargjald
hvers þinglýsts skjals er nú 1.200 kr.
Stimpilgjald– Það greiðir kaupandi
af kaupsamningum og afsölum um
leið og þau eru lögð inn til þinglýs-
ingar. Ef kaupsamningi er þinglýst,
þarf ekki að greiða stimpilgjald af af-
salinu. Stimpilgjald kaupsamnings eða
afsals er 0,4% af fasteignamati húss
og lóðar, þ. e. 4.000 kr. af hverri millj-
ón.
Skuldabréf – Stimpilgjald skulda-
bréfa er 1,5% af höfuðstóli (heildar-
upphæð) bréfanna eða 1.500 kr. af
hverjum 100.000 kr. Kaupandi greiðir
þinglýsingar- og stimpilgjald útgefinna
skuldabréfa vegna kaupanna, en selj-
andi lætur þinglýsa bréfunum.
Stimpilsektir– Stimpilskyld skjöl,
sem ekki eru stimpluð innan 2ja mán-
aða frá útgáfudegi, fá á sig stimp-
ilsekt. Hún er 10% af stimpilgjaldi fyrir
hverja byrjaða viku. Sektin fer þó aldr-
ei yfir 50%.
Skipulagsgjald – Skipulagsgjald er
greitt af nýreistum húsum. Af hverri
byggingu, sem reist er, skal greiða
3‰ (þrjú pro mille) í eitt sinn af
brunabótavirðingu hverrar húseignar.
Nýbygging telst hvert nýreist hús,
sem virt er til brunabóta svo og við-
byggingar við eldri hús, ef virðing-
arverð hinnar nýju viðbyggingar nem-
ur 1/5 af verði eldra hússins. Þetta á
einnig við um endurbætur, sem hækka
brunabótavirðingu um 1/5.
Húsbyggjendur
Lóðaumsókn – Eftir birtingu aug-
lýsingar um ný byggingarsvæði geta
væntanlegir umsækjendur kynnt sér
þau hverfi og lóðir sem til úthlutunar
eru á hverjum tíma hjá byggingaryf-
irvöldum í viðkomandi bæjar- eða
sveitarfélögum – í Reykjavík á skrif-
stofu borgarverkfræðings, Skúlatúni
2. Skilmálar eru þar afhentir gegn
gjaldi, ef tilbúnir eru. Umsækjendur
skulu fylla út nákvæmlega þar til gert
eyðublað og senda aftur til viðkom-
andi skrifstofu. Í stöku tilfelli þarf í um-
sókn að gera tillögu að húshönnuði en
slíkra sérupplýsinga er þá getið í
skipulagsskilmálum og á umsókn-
areyðublöðum.