Morgunblaðið - 01.06.2004, Page 47

Morgunblaðið - 01.06.2004, Page 47
gamlir eru þeir ónýtir, jafnvel þótt yngri séu. Gamla retúrlokahlunka notar enginn í dag, þú færð þér loka sem stjórnast af lofthitanum í herberg- inu. Kannski eru lokarnir í lagi, en þig vantar nýja stýringu, nýja nema, nýja hitastilla. Fram að þessu hefur þetta allt verið á ofninum og það getur vel gengið í eldhúsi, baði og forstofu, en nú gerum við bragarbót í stof- um og svefnherbergjum. Þar færðu þér nýja stýringu þar sem hitaneminn er undir ofninum en hitastillirinn uppi á vegg í augn- hæð og alltaf hægt að komast að honum. Líttu á myndina af hitastillinum og hugsaðu þér að þú sért kominn með slíkan upp á vegg við hliðina á hjónarúminu eða á vegg við stóra gluggann í stofunni. Stillinguna miðarðu við punktinn efst, þar und- ir er talan þrír sem þýðir að þú ert að biðja um 20°C hita. (Það er ágætt í stofunni en að sjálfsögðu allt of heitt í hjónaherberginu, eða hvað?) Nú kemur að því að þér finnst þér of kalt, þá er að hækka stillinguna. En farðu nú varlega, ekki stór- karlalegar breytingar, hækkaðu að- eins á næsta punkt. Það gerist ekk- ert á svipstundu en vertu viss; það mun hitna. Ef það hefur hefur ekki hitnað nóg eftir segjum klukkutíma þá er sjálfsagt að bæta við, fara á næsta punkt. En umfram allt, taktu lítil skref. En nú kemur það mikilvægasta. Svo getur farið að þér finnist of heitt og er þá ekki sjálfsagt að færa niður um einn punkt eins og þegar átti að auka hitann? Nei það er ekki sjálfgefið. Taktu fyrst á ofninum, það getur verið að þú finnir nokkuð skrítið. Ofninn er kaldur. En það er samt of heitt. Svo sannarlega getur það verið en ef ofninn er kaldur kemur hit- inn ekki frá honum og þá verður ekki svalara þótt þú lækkir á hita- stillinum, ef þú gerir það getur það hefnt sín síðar, Af hverju er þá of heitt? Það skyldi þó ekki hafa verið sterkt sólskin inn um gluggann all- an daginn. Var verið að baka og steikja all- an daginn og nú eru allir gestirnir komnir? Það er fleira en ofnarnir sem gefa hita, það er sólin, eldavél- in og hver maður er góður hita- gjafi, það hafa allir fundið ekki satt? Þá er ráðið að opna glugga og svaladyr, í slíkum tilfellum er það sjálfsagt. En ef þú í fljótræði hefðir lækk- að á öllum hitastillum þá kann að vera að þú hefðir vaknað upp við vondan draum morguninn eftir. Þá er orðið of kalt í húsinu. Allur ókeypis varminn farinn því partýið er búið og ofnarnir hita ekki, þú skipaðir þeim að hafa hægt um sig. Feiri góð ráð eru uppi í erminni en þetta verður að nægja að sinni. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 2004 C 47 Blikahöfði - 3ja herb. *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá mjög fallega 77 fm 2ja-3ja herbergja íbúð á efstu hæð í 3ja hæða fjölbýli. 2 svefnherbergi, baðherbergi m/kari, eldhús með kirsuberjainnréttingu og stór stofa. Eikarparket og flísar á gólfum. Svalir í suðvestur með fallegu út- sýni - stutt í skóla og leikskóla, sem og á golfvöll- inn. Verð 12,8 m. - áhv. 7,0 m. Klapparhlíð - 3ja herb. *NÝTT Á SKRÁ* Mjög falleg 74,6 fm 3ja herbergja íbúð á 2. hæð við Klapparhlíð. Stórt hjónaherbergi með mahony skáp, gott barnaherbergi, baðherbergi með kari, geymsla/vinnurými í íbúð, stofa og mjög fallegt eldhús. Þetta er glæsileg eign í nýju húsi, stutt í skóla og á golfvöllinn. Verð 13,4 m. - áhv. 8,0 m. Þverholt - penthouse íbúð Erum með 159,9 fm, 5 herbergja penthouse- íbúð á efstu hæð í 3ja hæða fjölbýli. Íbúðin er 113 fm að grunnfleti en auk þess er 46,9 fm risloft. 3 svefnherbergi, stórt eldhús, sér þvottahús, geymsla, borðstofa og baðher- bergi á aðalhæð en stór stofa og svefnher- bergi er á rislofti. Íbúðin er björt og rúmgóð og stutt er í alla þjónustu. Verð 16,2 m. - áhv. 8,4 m (5,9 m í bygginga- sjóð) Hlíðarás - 195 fm parhús *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá 195 fm parhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr. Á efri hæð er stór stofa, eldhús, gestasalerni, forstofa og bíl- skúr og á neðri hæð eru 3 svefnherbergi, sjón- varpsstofa, baðherbergi og þvottahús. Mjög mik- ið útsýni er yfir Leirvoginn, til Reykjavíkur og að Esjunni. Húsið stendur innarlega í botnlanga við óbyggt svæði. Verð 21,9 m. - áhv. 11,8 m. Bollatangi - raðhús m/bílskúr *NÝTT Á SKRÁ* Mjög fallegt 145,5 fm raðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr. 3 góð svefn- herbergi, eldhús, baðherbergi m/kari, stofa/sól- stofa, stór borðstofa og sjónvarpshol. Gott þvottahús og 23,5 fm bílskúr. Flísar og plastpark- et á gólfum og mikil lofthæð. Stór timburverönd og gott bílastæði. Frábær staðsetning. Verð 23,4 m - áhv. 8,0 m. Álmholt - 142 fm hæð + tvöf. bílskúr *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá 142,8 fm efri hæð ásamt 50 fm tvöföldum bílskúr með glæsilegu útsýni yfir Leirvoginn og að Esjunni. Fjögur góð svefnherbergi, eldhús m/borðkrók, stór stofa með arni og björt borðstofa, sjónvarps- hol, baðherbergi og gestasalerni ásamt góðu þvottahúsi. Frábær staðsetning, neðst í botn- langa í grónu hverfi. Verð 23,9 m. - áhv. 8,6 m. Skólabraut - einbýli *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá til sölu 160,9 fm einbýlishús með bíl- skúr við Holtahverfið í Mosfellsbæ. Í húsinu eru 4 svefnherbergi, nýupptekið baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, eldhús með nýrri kirsuberjainnrétt- ingu, stór stofa, hol, geymsla og þvottahús. Húsið stendur á 1.032 fm hornlóð í göngufæri við grunnskóla, íþróttasvæði og sundlaug. Verð 22,4 m. - áhv. 11,1 m. Skeljatangi – 3ja herb. jarð- hæð *NÝTT Á SKRÁ* 85 m2, 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í litlu fjölbýli með sérinngangi og sérgarði. Forstofa, gangur, tvö góð svefnherbergi með góðu skápaplássi, baðherbergi með sturtu, geymsla, stofa og rúmgott eldhús. Íbúðinni fylgir sérafnota af lóð. Gangstétt er hellulögð með snjóbræðslu. Leikskóli og grunnskóli í næstu götu. Verð kr. 12,7 m. Sumarbústaður í Mosfellsdal *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá ca 78 fm sumarbú- stað í skógi vöxnu landi á sérstaklega fallegum stað í Mosfellsdal. Einnig fylgir bústaðnum 10 fm gestahús og 15 fm gróðurhús. Bústaðurinn stendur á 2.852 fm eignarlandi sem er skógi vaxið og skjólgott. Lítill lækur rennur í gegnum landið, meðfram bústaðnum. Sjón er söguríkari. Verð 11,5 m. Háls í Kjósarsýslu *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá 40 fm bjálkabústað í skipulögðu sumarhúsalandi við Háls í Kjós. Húsið er á tveim- ur 30 fm hæðum, en efri hæð er að hluta undir súð. Á jarðhæð er stofa, eldhúskrókur og baðher- bergi, en tvö svefnherbergi og svalir á 2. hæð. Kalt vatn og rafmagn í bústaðnum, rafmagnsofnar og 150 l. hitatúba. Mjög fallegt útsýni er frá bú- staðnum yfir Hvalfjörðinn. Verð 4,99 m. ÁBENDING! Hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar er það aðeins löggilt- ur fasteignasali sem skoðar allar eignir, verðmetur og sér um allan skjalafrágang varðandi kaup og sölu á fasteignum. - Þetta virðist ekki vera sjálfgefið í dag! Vertu viss um að löggiltur fasteignasali sjái um fast- eignaviðskipti þín - frá upphafi til enda! ERUM VIÐ MEÐ KAUPANDA AÐ ÞINNI EIGN? Hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar er fjöldi kaupenda á skrá sem bíður eftir draumaeigninni í Mosfellsbæ. Hver veit nema að kaupandi bíði eftir þinni eign. Hafðu samband við okkur hjá Fasteignasölu Mosfells- bæjar og kannaðu málið. Klapparhlíð 5 - 50 ára og eldri Erum með 11 íbúðir í sölu í 4ra hæða lyftuhúsi með 20 íbúðum fyrir 50 ára og eldri í Klapparhlíð í Mosfellsbæ. Sérinngangur er í hverja íbúð af svalagangi með glerskermum. Innangengt er í bílageymslu með 16 bílastæðum. Húsið er einangrað að utan og klætt með bárumálmklæðn- ingu og harðvið. Þetta eru 3ja herbergja íbúðir 107 - 120 fm. Íbúðirnar verða afhentar í október nk. Verð frá 15,6 - 19,5 m. Klapparhlíð - 2ja herbergja Erum með 2ja herbergja íbúðir til sölu í nýbygg- ingum við Klapparhlíð. Íbúðirnar eru 63 - 66 fm á 1., 2. og 3. hæð. Þeim verður skilað fullfrágengn- um án gólfefna, en baðherbergis- og þvottahús- gólf verða flísalögð. Fallegar mahony innréttingar í eldhúsi og svefnherbergi, en sprautulökkuð inn- rétting á baði. Verð frá 10,6 - 11,1 m. Helgugrund - 170 fm ein- býli - Kjalarnesi Erum með nýlegt 122,9 fm einbýlishús á einni hæð ásamt 47,4 fm bílskúr. Þetta er kanadískt timburhús og skiptist í 3 góð svefnherbergi, baðherbergi m/kari, stofu og eldhús með fallegri innrétt- ing. Húsið er byggt 2001 og er ýmis lokafrá- gangur eftir. Verð 18,9 m. Frostafold - 3ja herb. - Grafarvogi Rúmgóð 96 fm, 3ja her- bergja íbúð á efstu hæð í 3ja hæða fjölbýlis- húsi. Sérinngangur er af opnum svalagangi. Íbúðin skiptist í hol, stóra stofu, setustofu, eldhús með borðkrók, baðherbergi m/kari, gott hjónaherbergi og barnaherbergi. Eikar- parket á stofu, flísar á setustofu en linoleum dúkur á öðrum gólfum. Þetta er falleg og björt íbúð á góðum stað í Grafarvogi. Verð 12,9 m - afhending í júlí nk. SELT BOLUNGARVÍKURBÆR seldi á dögunum þrjár íbúðir í fjölbýlishúsi í bænum á samtals eina milljón. Að sögn Einars Péturssonar, bæjar- stjóra Bolungarvíkur, er skýringin á þessu lága verði sú, að ástand íbúð- anna hafi verið orðið afar hrörlegt. „Það eru fimm íbúðir í þessum stiga- gangi. Bærinn átti þrjár íbúðir og Íbúðalánasjóður tvær. Stigagangur- inn var búinn að vera lokaður í nokk- ur ár og allt orðið óíbúðarhæft, skólp- og vatnslagnir ónýtar og fleira að. Því var ákveðið að láta þetta fara svona ódýrt,“ segir Einar. Einar segir að aðilar hafi komið með góðar hugmyndir um nýtingu íbúðanna til íbúðagistingar í þessum nyrsta kaupstað Íslands. Þá verði þær leigðar út í daga eða vikur í senn. Íbúðalánasjóður seldi þessum aðilum sínar tvær íbúðir, þannig að nú eiga þeir allan stigaganginn. Spurður um hvort þetta sé dæmigert fyrir ástand mála á fasteignamark- aði í Bolungarvík segir Einar langt því frá. „Þetta var mjög sérstakt ástand vegna ásigkomulags íbúð- anna. Það hefur ekki verið mikil velta á blokkaríbúðum, en það er alltaf einhver hreyfing á markaðnum þótt verðið sé náttúrlega lágt,“ segir Einar. Þrjár íbúðir seldar á eina milljón Morgunblaðið/Gunnar Frá Bolungarvík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.