Morgunblaðið - 01.06.2004, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 01.06.2004, Qupperneq 53
að er yfir aftur. Síðan er grunnolía borin á, en í henni eru ýmis efni sem hindra t.d. sveppamyndun og mosavöxt. Þegar búið er að grunna allan flötinn er málað með þekjandi viðarvörn, tvær eða þrjár umferðir. Þannig má halda tréverkinu við í mörg ár, hafi það fengið rétta með- höndlun í upphafi.“ Aldrei að spara undirvinnuna En hafi viðurinn ekki fengið rétta meðhöndlun í upphafi getur málið vandast. Fjármunum og vinnu hefur oft verið kastað á glæ með því að reyna að spara sér und- irvinnuna. Vigfús tekur sérstakan vara við því að málað sé beint á við- inn, án þess að hann hafi verið grunnaður fyrst. „Ef tréverkið flagnar óeðlilega mikið eru yfir- gnæfandi líkur á því að ekki hafi verið notaður réttur grunnur eða jafnvel enginn grunnur. Því miður er það svo að alltof margir hafa fallið í þá gryfju að mála beint á viðinn og ekki hirt um að grunna hann áður. Mjög fljótlega fer máln- ingin að flagna af á álagsflötum og síðan smátt og smátt af öllu tré- verkinu. Þá er ekki um annað að ræða en taka fram sköfuna og skafa málninguna eins vel af og kostur er. Síðan er mjög mikilvægt að gegnvæta viðinn með grunnefni. Að því loknu má mála aftur yfir. Í versta falli gæti þurft að skipta um klæðningu.“ Lóðrétt klæðning betri en lárétt Vigfús segir að nú sé fólk aðeins að vakna til vitundar um það að betra sé að hafa klæðningu á hús- um lóðrétta, en ekki lárétta eins og verið hefur ríkjandi um nokkurt skeið. „Kúpt, lárétt vatnsklæðning er mjög erfið í viðhaldi,“ segir hann. „Þetta er mjög falleg klæðn- ing, en hefur þann ókost að vatnið nær ekki að renna nógu vel af henni. Sums staðar í Svíþjóð er t.d. ekki leyft að hafa lárétta klæðningu á húsum, vegna þess hve erfið hún eru í viðhaldi. Þar sérðu bara lóð- rétta klæðningu á húsum, ef frá eru talin bjálkahúsin sem eru olíuborin en ekki máluð.“ En allt er forgengilegt og það á ekki síður við um timbur en aðra hluti. Vigfús segir að fólk þurfi að gera upp við sig hverju það vilji til kosta, bæði í vinnu og peningum, að halda við gömlu tréverki. „Það kemur að því að viðurinn eyðileggst með tímanum, sama hversu vel honum er haldið við. Fólk getur náttúrulega baslað við að skrapa og mála lungann úr sumrinu og lengt þannig í snörunni. En á einhverjum tímapunkti þarf hreinlega að skipta um klæðningu eða girðingu og þá hefst sama ferlið upp á nýtt.“ Rétt er að benda á að skynsam- legt er að leita til fagmanna um að- stoð og ráðgjöf áður en ráðist er í stórtækar aðgerðir. gudlaug@mbl.is Girðing með glærri viðarvörn. Í baksýn má sjá að gluggarnir á húsinu eru með hvítri, þekjandi viðarvörn. Grindverk og snúrustaurar hafa verið málaðir með hálfþekjandi viðarvörn í rauðum litatón. Ljósmynd/Odd Stefán MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 2004 C 53 4ra til 7 herb. Mjóahlíð. Hæð og ris + bíl- skúr. Tvær stórar samliggjandi stofur til suðurs sem snúa út að fallegum, grónum garði. Stórt eldhús sem gefur skemmtilega mögu- leika. Stórt hjónaherbergi á hæðinni. Í risi eru 3 herbergi undir súð, geymsla og sjón- varpshol. Bílskúrinn þarfnast viðgerðar. Þar mætti hugsanlega innrétta stúdíóíbúð. Verð 15.9 millj. Laufengi. Rúmgóð 107 fm endaíbúð á annarri hæð með sérinngangi. Þrjú góð svefnherbergi öll með skápum. Björt stofa með útgang út á svalir. Þvottahús innan íbúðar. Húsið er í góðu ástandi. Ódýrasta 4ra herbergja íbúðin í Grafarvogi verð aðeins 13,2 millj. Þverholt - rétt hjá Hlemm Snyrtileg íbúð sem leynir á sér á jarðhæð. Stór stofa sem mætti skipta. Gott svefnher- bergi sem snýr út að bakgarði. Rúmgott eldhús. Sérinngangur frá garði með sér- stöku holi. Stórt þvottahús/geymsla í íbúð- inni. Baðherbergi með baðkari. Verð 9.9 millj. Ásbúð - Garðabæ. Rúmgóð 73 fm íbúð á jarðhæð í þríbýlishúsi sem er á frá- bærum stað í Garðabæ. Þvottahús innan íbúðar. Gróið hverfi. Verð 9,9 millj. Jón Magnússon Hrl., löggiltur fast- eigna og skipasali Bergur Þorkelsson Sölufulltrúi gsm: 860 9906 Hilmar Viktorsson. Viðskiptafræðingur Valdimar R. Tryggvason Sölufulltrúi gsm: 897 9929 Valdimar Jóhannesson Sölufulltrúi gsm: 897 2514 Guðbjörg Einarsdóttir RitariFASTEIGNASALA Í smíðum Daggarvellir í Hafnarfirði. Erum með til sölu 120 fm íbúðir í fjórbýlishúsi. Sérinngangur í allar íbúðir. Garður og svalir snúa til suðurs. Mjög gott skipulag. Íbúðirn- ar skilast fullbúnar án gólfefna. Lóð og bíla- stæði skilast fullfrágengin. Traustur bygg- ingaraðili. Teikningar og frekari upplýsingar á skrifstofu Xhúsa. Verð aðeins 16.8 millj. Hæðir Nesvegur. 125,5 fm neðri-sérhæð í góðu tvíbýlishúsi. Björt og stór stofa með nýlegu parketi, útgangur út í suður garð. Nýlegt gler. Aðeins eru tvær íbúðir í húsinu. Góð staðsetning stutt á KR völlinn. Laus strax. Baldursgata. Var að koma til sölu- meðferðar 2ja herbergja íbúð á annarri hæð i góðu húsi. Íbúðin er vel skipulögð og björt. Svefnherbergið og stofan eru rúmgóð. Verð. 9 millj. Sumarbústaðir Góðar og mjög ódýrar sum- arbústaðalóðir í Grímsnesi. Hér er tækifæri til að kaupa eignalóðir fyrir sumarbústaði í skipulagðri byggð í Gríms- nesi á afar sanngjörnu verði. Landið er skjólgott og kjarrivaxið norðan þjóðvegarins rétt austan við Kerið og vestan Seyðihóla. Vegir og kalda vatnið innifalið. Stærð lóð- anna á bilinu 4.810- 8.210 fermetrar og kosta 529.100 - 903.100 kr. Kostur á heitu vatni. Rafmagn við lóðamörk. Hér þarf ekki að greiða leigu! 3ja herb. Asparfell Opin og björt 3ja herbergja íbúð á 1. hæð. Parket og flísar á gólfum. Tvö góð herbergi. Tengi fyrir þvottavél á baði. Frábært verð 9,9 millj. Laus strax. Veghús. Mjög björt og góð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérgarði. Rúmgóð stofa með plastparketi, útgangur út á hellulagða verönd til suðurs. Mjög stórt baðherbergi flísalagt í hólf og gólf. Verð 13,4 millj. Breiðavík - Lyftublokk. Mjög björt og vel skipulögð 98 fm 3ja herbergja íbúð á 2. hæð. Eikarparket og flísar á gólfum. Tvö góð herbergi. Sér þvottaherbergi innan íbúðar. Yfirbyggðar svalir sem hægt er að opna að stórum hluta. Frábær staðsetning innan hverfisins. Stutt í skóla - leikskóla og framhaldsskóla svo og alla þjónustu. 2ja herb. Þórufell Vorum að fá í einkasölu 2ja herbergja íbúð á 1. hæð (jarðhæð).Gott her- bergi með góðum skáp. Rúmgóð björt stofa með útgang út í sér garð. Verð 8,4 millj. Eign vikunnar Útsýnisíbúð á 1. hæð við Háaleitisbraut Góð uppgerð íbúð í húsi sem hefur verið mikið endurnýjað. Gott útsýni til Esjunnar og Akrafjalls, einnig til suðurs yfir Háaleitishverfið. Örstutt í Ár- múlaskóla. Prýðisíbúð á prýðisstað. Verð 12.9 millj. Leigufélag óskar eftir ÁTT ÞÚ 2ja, 3ja eða 4ra HERBERGJA ÍBÚÐ Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU? Okkur hefur verið falið að leita fyrir stórt leigufélag, eftir fjölda íbúða til kaups. Íbúðirnar mega vera hvar sem er á höfuðborgar- svæðinu. Staðgreiðsla í boði. Rúmur afhendingatími. Frekari upplýsingar hjá sölufulltrúum XHÚSS. Valdimar Tryggvason s: 897-9929 Bergur Þorkelsson s: 860-9906 Valdimar Jóhannesson s: 897-2514 www.xhus.is xhus@xhus.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.