Morgunblaðið - 07.06.2004, Side 36
36 MÁNUDAGUR 7. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“
OG „THE MUMMY RETURNS“
Nýjasta og mest spennandi myndin
um Harry Potter er komin í bíó.
Stórkostlegt ævintýri fyrir alla
fjölskylduna sem enginn má missa af!
Ráðgátur leysast, leyndarmál
verða uppljóstruð.
Stórviðburður ársins er kominn!
Brad Pitt, Orlando Bloom og Eric Bana í magnaðri
stórmynd undir leikstjórn Wolfgang Petersen.
B rad P i t t , O r lando B loom , E r ic Banai l l i
SV MBL
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5 OG 8.
KRINGLAN
Sýnd kl. 10. B.i. 14 ára
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 14 ára
Kvikmyndir.is
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 5, 6, 8 og 10.
Ó.H.T Rás2
Frábær ævintýramynd hlaðin tæknibrellum
eins og þær gerast bestar í anda
IndianaJones.Fyrsta stórmynd sumarsins þar
sem hetjan Van Helsing á í höggi við Drakúla
greifa, Frankenstein og Varúlfinn.Í SNERTINGU VIÐ TÓMIÐ
Sýnd kl. 6 og 9. Sýnd kl. 6 og 8.
Sýnd kl. 6, 9 og 10. B.i.14 ára.
Sýnd kl. 6, 7, 9 og 10. Sýnd í stóra salnum 6 og 9.
Nýjasta og mest spennandi myndin um Harry Potter er komin í bíó.
Stórkostlegt ævintýri fyrir alla fjölskylduna sem enginn má missa af!
Ráðgátur leysast, leyndarmál verða uppljóstruð.
B rad P i t t , O r lando B loom , E r ic Banai l l i
SV MBLKvikmyndir.is
ÓENDANLEG ÁSTRÍÐA
ÓDAUÐLEGAR HETJUR
GOÐSÖGNIN SEM MUN LIFA
AÐ EILÍFU!
L Í
L J
I LIF
ILÍF !
Ó.H.T Rás2
FANGINN í Azkaban, þriðja mynd-
in um Harry Potter, hefur slegið
met í miðasölu í Bretlandi, en sýn-
ingar á myndinni hófust á mánu-
dag. Á þremur fyrstu dögunum,
sem myndin var í sýningu, seldust
miðar að virði 11,5 milljóna punda,
sem jafngildir um 1,5 milljörðum ís-
lenskra króna. Til samanburðar má
geta þess að á næstu mynd á undan,
Harry Potter og leyniklefinn, seld-
ust miðar fyrir andvirði 10,8 millj-
ónir punda á fyrstu þremur dög-
unum og var sú upphæð met.
Í þriðju myndinni um Harry Pott-
er, er söguhetjan komin á unglings-
aldur, en hún var tekin til sýningar
á 535 stöðum í Bretlandi á mánu-
dag.
Reuters
Leikarinn Daniel Radcliffe, sem fer með hlutverk Harry Potter, umkringdur aðdáendum.
Harry Pott-
er slær að-
sóknarmet
STUTTMYNDAHÁTÍÐ Grand Rokks fór fram á
laugardaginn og var þetta í þriðja sinn sem hátíðin
er haldin. Sex myndir voru sýndar á hátíðinni að
þessu sinni og sigurvegarar urðu þeir Örn Marinó
Arnarson og Þorkell Harðarson með mynd sína Vín
hússins. Mynd Lísu Páls, Ungmennafélagið, hafnaði
í öðru sæti og Þeir kalla mig Lilla eftir Árna Sveins-
son í því þriðja. Dómnefndina skipuðu Örnólfur
Árnason, Sigurður Snæberg og Elísabet Rónalds-
dóttir.
„Hátíðin var vel sótt og það var fullt út úr dyrum
hér á Grand Rokk,“ segir Ingvar Sigurður Stef-
ánsson, forsvarsmaður hátíðarinnar. „Þetta eru
orðin hálfgerð vandræði hjá okkur og ef þetta held-
ur áfram á þessari braut getur vel verið að við þurf-
um að finna hátíðinni annan samastað. Þó er stemn-
ingin alltaf mest hér og það er hún sem gildir.“
Stefna að því að fullkomna þrennuna
Sigurmynd hátíðarinnar, Vín hússins, fjallar um
timburmenn, traust, brask og Guð. Þeir Örn Marinó
Arnarson og Þorkell Harðarson, leikstjórar sig-
urmyndarinnar, báru einnig sigur úr býtum á síð-
ustu hátíð með mynd sinni Fullt hús. Örn var að
vonum ánægður með úrslitin en sagði þau ekki hafa
komið sér mikið á óvart. „Við vorum með góða
mynd og ef maður gerir sitt besta þá er ávallt von á
góðu. Einnig vann með okkur að myndinni mikið af
góðu fólki og færi ég þeim öllum bestu þakkir fyrir.
Það liggur því beint við að fullkomna þrennuna
næsta ár. Þá getum við snúið okkur að einhverju
öðru,“ segir Örn.
Peningaverðlaun eru veitt fyrir þrjú efstu sætin
og fengu þeir Örn og Þorkell því 500.000 kr. í sinn
hlut fyrir sigurinn. „Þeir eiga hrós skilið Grand
Rokks-menn fyrir að halda þessa keppni og veita
svo vegleg verðlaun. Þetta kemur sér mjög vel,
enda eru menn ávallt fjársveltir í þessum bransa,“
segir Örn að lokum.
Morgunblaðið/Eggert
Þorkell Harðarson og Örn Marinó Arnarson, leik-
stjórar sigurmyndarinnar.
Vín hússins
bar sigur
úr býtum
Stuttmyndahátíð Grand Rokks
FYRSTA Sumarmót Bylgjunnar var haldið á
Tjarnargötutorgi í Reykjanesbæ á laugardaginn.
Idol stjarnan Kalli Bjarni var kynnir hátíðarinnar,
en hann stjórnaði Idol-keppni barna og tók auk
þess lagið. Fjölmörg skemmtiatriði voru í boði og
skemmtu gestir og gangandi sér vel þrátt fyrir
votviðri.
Kalli Bjarni gefur hér ungum aðdáendum sínum eig-
inhandaráritanir.
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Töfrabrögð þeirra Bjarna töframanns og Péturs pókuss vöktu mikla kátínu.
Sumarmót
Bylgjunnar hófst
í Reykjanesbæ