Morgunblaðið - 21.06.2004, Blaðsíða 52
52 C MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Einbýlishús
BARÐASTAÐIR - GRAFARVOGI
Til sölu nýtt svo til fullbúið 209 fm einbýli
í jaðri byggðar í Grafarvogi, rétt ofan við
golfvöllinn. Mjög stór sólpallur með heit-
um potti. 4 góð svefnherbergi. Innbyggð-
ur bílskúr. Arinn í stofu. Eign sem vert er
að skoða. Nánari uppl. á skrifstofu FM.
Sjá einnig fmeignir.is og mbl.is. 7910
Raðhús
FURUGERÐI
Erum með í sölu þrjár nýstandsettar
glæsiíbúðir á tveimur hæðum. Stærð frá
134 - 151 fm. Allar með sérinngangi.
Innréttingar frá HTH. Salerni upphengd,
lýsing frá Lumex. Nánari uppl. á skrif-
stofu FM. 6597
HRAUNTUNGA - KÓPAVOGI
Vorum að fá í einkasölu mjög vel stað-
sett fyrsta hús í keðjuhúsalengju, með
miklu útsýni. Garðstofa út frá stofu.
Stórar sólríkar svalir. Gufubað. Inn-
byggður bílskúr. Gólfefni eru flísar og
parket. Mjög vel með farin eign. Nánari
uppl. á skrifstofu. 6594
Opið
mán.-fim.
kl. 9-12 og 13-18
fös. kl. 9-12 og 13-17
SÝNISHORN ÚR
SÖLUSKRÁ
Sölumenn FM aðstoða.
Sjá mikinn fjölda eigna
og mynda á
fmeignir.is og mbl.is
BLÁSALIR
Erum með í sölu á 6. hæð í lyftuhúsi 3ja
herb. íbúð. Íbúðin er fullbúin án gólf-
efna. Sérmerkt stæði í bílageymslu fylg-
ir. Verð 15,9 millj. 21147
2ja herb. íbúðir
101 REYKJAVÍK
Erum með í einkasölu áhugaverða 78
fm íbúð á fimmtu hæð í nýlegu glæsi-
legu lyfthúsi við Lækjargötu. Glæsileg
sameign. Stæði í lokaðri bílageymslu.
Eign sem vert er að skoða. Íbúðin getur
verið laus strax. Frábær staðsetning.
Ákveðin sala. Nánari uppl. á skrifstofu
FM sími 550-3000. Sjá einnig fmeign-
ir.is og mbl.is 1815
AUSTURSTRÖND - SELTJARN-
ARNESI
Erum með í sölu fallega og bjarta 2ja
herb. endaíbúð á 4. hæð, sem snýr í
suður og austur. Ásamt stæði í bíla-
geymslu. Parket á gólfum. Þvottahús á
hæðinni. Verð 11,5 millj. 1822
Sumarhús
SUMARHÚS Í VAÐNESI
Glæsilegt sumarhús, byggt 1988.
Eignin skiptist í 3 svefnherb. stofu,
eldhús, baðherb. með sturtu. Einnig
geymsla. Spónarparket á öllu húsinu,
grenipanell á veggjum og í lofti. Tveir
inngangar. Stór verönd kringum húsið
á tvo vegu. Allur frágangur til fyrir-
myndar. Heitur pottur. 10 fm geymslu-
hús byggt 1995. Lóðin er 1,4 ha gróin
eignarlóð. Hitaveita og rafmagn. Húsið
er stutt frá ánni. Fallegt útsýni. Glæsi-
leg eign í alla staði á góðum stað.
13332
GRÍMSNES
Áhugavert sumarhús á eignarlóð í landi
Miðengis. Húsið er 61 fm að stærð með
30 fm svefnlofti. Í húsinu eru þrjú her-
bergi, stofa, eldhús bað og geymsla, en
uppi er svefnloft. Sjá ennfremur fmeign-
ir.is og mbl.is. 13743
EFRI REYKIR
Um er að ræða 45 fm sumarhús í landi
Efri Reykja, byggt 1980. Húsið selst að-
eins til flutnings. Það er fullbúið með
raflögn, en án lausamuna. Ástand húss
sagt allgott. 13758
fmeignir@fmeignir.is
www.fmeignir
4ra herb. íbúðir og stærri
KLAPPARHOLT - HAFNARFIRÐI
Erum með í sölu glæsilega 111 fm íbúð
ásamt 24 fm bílskúr. Mikið og fallegt út-
sýni. Hornbaðkar á baðherbergi.
Þvottahús í íbúð. Vandaðar innréttingar.
Tvær geymslur fylgja íbúðinni. Eign sem
vert er að skoða. Ásett verð 18 millj.
3843
3ja herb. íbúðir
MEISTARAVELLIR
Vorum að fá í einkasölu 3ja herbergja
82 fm íbúð á 1. hæð. Búið að klæða ga-
fla hússins. Gólfefni eru teppi og dúkur.
Ekkert áhvílandi. Ásett verð 12,9 millj.
21141
HRAUNBÆR
Vorum að fá í einkasölu 3ja herbergja
íbúð á efstu hæð. Parket á gólfum.
Tengi fyrir þvottavél í íbúð. Búið að
klæða húsið með Steni að utan. Stutt í
alla þjónustu. Áhvílandi 9 millj. húsbréf.
Ásett verð 11,7 millj. 21138
SEILUGRANDI - ÚTSÝNI
Erum með í sölu 3ja herbergja íbúð
með sérinngangi af svölum á 3. hæð
(efsta). Stæði í bílageymslu fylgir. Ásett
verð 12,8 millj. 21142
NÝBÝLAVEGUR - KÓPAVOGI
Vorum að fá í sölu 104 fm 3ja herb.
íbúð. Íbúðin er mjög opin. Hornbaðkar
á baðherbergi. Sólríkar suðursvalir.
Áhugaverð eign. Verð 14,8 millj. 21143
KRÍUÁS - HAFNARFIRÐI
Vorum að fá í einkasölu fallega 3ja
herb. íbúð á efstu hæð með sérinn-
gangi. Fallegar innréttingar. Frábært út-
sýni. Eign sem vert er að skoða. Verð
13,5 millj. 21136
BIRKIHVAMMUR - KÓPAVOGI
Erum með í sölu mikið endurnýjaða 85
fm jarðhæð í tvíbýlishúsi. Ný eldhúsinn-
rétting með Miele tækjum. Gólfefni eru
parket og flísar. Eign sem vert er að
skoða. Ásett verð 12,9 millj. 21145
VÍKURÁS
Vorum að fá í sölu fallega 3ja herb. íbúð
á jarðhæð. Tvö stæði í bílageymslu
fylgja íbúðinni. Íbúðin er nýmáluð. Eign
sem vert er að skoða. Stutt í alla þjón-
ustu. Verð 13,5 millj. 21122
ATVINNUHÚSNÆÐI TIL SÖLU EÐA LEIGU
Hjá FM eru á skrá ýmsar gerðir skrifstofu-, verzlunar-, þjónustu-,
lagers- og iðnaðarhúsnæðis. Sölumenn FM aðstoða. Síminn er
550 3000. Sjá einnig fmeignir.is og mbl.is.
RANGÁRÞING EYSTRA
Til sölu um það bil 50 ha spilda örstutt austan við Hvolsvöll. Vel
gróið land, mjög áhugavert fyrir t.d. hestamenn. Fjallasýn eins og
hún gerist best. Nánari uppl. á skrifstofu FM sími 550 3000. 11257
GRÍMSNES HRAUNBORGIR
Til sölu sumarhús í Hraunborgum í Grímsnesi og Grafningshreppi.
Áhugaverð staðsetning. Stutt í alla þjónustu. Ásett verð 5,8 millj.
Nánari uppl. á skrifstofu FM. Sjá einnig fmeignir.is og mbl.is.
13759
VANTAR - VANTAR
Vegna mikillar sölu að undanförnu bráðvantar allar tegundir eigna
á söluskrá, m.a. hæð í Vesturbæ. Staðgreiðsla í boði. Einnig vant-
ar 4ra herb. íbúð í sSáranum í Kópavogi.
VANTAR - KÚABÚ
Leitum að kúabúi fyrir ákveðinn kaupanda. Ýmsar staðsetningar
koma til greina. Nánari uppl. hjá sölumönnum FM. Sími 550 3000.
BÚJARÐIR - SUMARHÚS
Til sölu hjá okkur er nú fjöldi áhugaverðra jarða, m.a. hlunninda-
jarðir, jarðir með greiðslumark í sauðfé og mjólk, einnig jarðir fyrir
garðyrkju, skógrækt, hrossarækt, svínarækt, frístundabúskap og
ferðaþjónustu. Jarðir þessar eru víðs vegar um landið. Erum
einnig með á söluskrá fjölda sumarhúsa og hesthúsa. Fáið senda
söluskrá í pósti eða nálgist eintak á skrifstofu. Einnig er oft til á
sölu hjá okkur sauðfjár- og mjólkurframleiðsluréttur. Nánari upp-
lýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar sem er alhliða fast-
eignasala og selur fasteignir jafnt á landsbyggðinni sem á höfuð-
borgarsvæðinu. Sölumenn FM aðstoða. Minnum einnig á fmeign-
ir.is og mbl.is.
Íbúðalánasjóður mun gefa við-skiptavinum sínum kost á aðvelja milli 20 ára, 30 ára og 40ára peningalána frá og með 1.
júlí. Heimilt verður að stytta eða
lengja lánstíma ÍLS-veðbréfs að ósk
lántaka.
Slík skilmálabreyting er hins veg-
ar háð samþykki síðari veðhafa og
skal henni þinglýst. Stjórn Íbúða-
lánasjóðs setur nánari reglur um
breytingar á lánstíma. Þetta kemur
fram í nýrri reglugerð um ÍLS-
veðbréf og íbúðabréf sem er að finna
á vef Íbúðalánasjóðs.
Uppgreiðslur heimilaðar
Skuldurum hinna nýju lána, sem
munu byggja á svokölluðum ÍLS-
veðbréfum, verður heimilt að greiða
aukaafborganir af skuldabréfum sín-
um eða endurgreiða skuldina að
fullu fyrir gjalddaga.
Hins vegar verður félagsmálaráð-
herra heimilt, við sérstakar að-
stæður og að fenginni umsögn
stjórnar Íbúðalánasjóðs, að ákveða
að aukaafborganir og uppgreiðsla
ÍLS-veðbréfa verði aðeins heimilar
gegn greiðslu þóknunar sem jafni út
að hluta eða að öllu leyti muninn á
uppgreiðsluverði ÍLS-veðbréfs og
markaðskjörum sambærilegs íbúða-
bréfs.
Gjalddagar ÍLS-veðbréfa skulu
vera annaðhvort fjórir eða tólf á ári
hverju og bera upp á fyrsta dag við-
komaneftir Hall Magnússon sviðs-
stjóra þróunar og almannatengsla
Íbúðalánasjóðs/hallur@mbl.is eftir
Hall Magnússon sviðsstjóra þróunar
og almannatengsla Íbúðalánasjóðs/
hallur@mbl.is di mánaðar sem er
breyting frá því sem er með hús-
bréfalán þar sem gjalddagi er 15.
hvers mánaðar. Heimilt verður að
fjölga eða fækka árlegum gjald-
dögum þannig að þeir verði mán-
aðarlegir eða ársfjórðungslegir.
Peningar í stað
húsbréfa 1. júlí
Til og með 30. júní mun Íbúða-
lánasjóður afgreiða verðtryggð fast-
eignaveðbréf skiptanleg fyrir hús-
bréf til viðskiptavina sinna. Vextir
fasteignaveðbréfanna verða eins og
undanfarin ár, 5,1%.
Ef viðskiptavinir Íbúðalánasjóðs
koma með þinglýst fasteignaveðbréf
skiptanleg fyrir húsbréf til Íbúða-
lánasjóðs fyrir 1. júlí mun Íbúða-
lánasjóður skipta þeim fyrir húsbréf.
Ef viðskiptavinir Íbúðalánasjóðs
koma með fasteignaveðbréf skipt-
anlegu fyrir húsbréf til Íbúðalána-
sjóðs 1. júlí eða síðar mun Íbúða-
lánasjóður greiða í peningum sömu
fjárhæð og reiknað virði húsbréf-
anna hefði orðið.
Þetta þýðir að ef viðskiptavinir
Íbúðalánasjóðs sem hafa í höndum
þinglýst fasteignaveðbréf fyrir 1.
júlí óska frekar eftir því að fá greitt
út í peningum, þá þurfa þeir ein-
ungis að bíða til 1. júlí með að koma
með fasteignaveðbréfið til Íbúða-
lánasjóðs.
Þetta getur komið sér betur fyrir
viðskiptavinina ef það yfirverð sem
verið hefur á bréfunum undanfarna
mánuði hverfur og afföll myndast
síðustu dagana fyrir breytingarnar.
Íbúðalánasjóður mun greiða pen-
inga fyrir fasteignaveðbréf til 15.
september 2004. Eftir þá dagsetn-
ingu mun Íbúðalánasjóður ekki taka
við fasteignaveðbréfum sem afhent
hafa verið fyrir 1. júlí, enda verður
núverandi opnum flokkum húsbréfa
endanlega lokað hinn 15. september.
Eigendur fasteignaveðbréfa verða
þá annað tveggja að sjá um inn-
heimtu þeirra sjálfir eða semja að
nýju við kaupendur svo unnt sé að
gefa út hin nýju ÍLS-veðbréf.
ÍLS-veðbréf 1. júlí
Frá og með 1. júlí mun Íbúðalána-
sjóður afhenda hin nýju ÍLS-veðbréf
í stað fasteignaveðbréfa. Þegar við-
skiptavinir sjóðsins afhenda Íbúða-
lánasjóði þinglýstum ÍLS-veð-
bréfum mun sjóðurinn greiða lánið
út í peningum inn á tiltekinn reikn-
ing seljanda.
Þess ber að geta að fyrsti vaxta-
dagur ÍLS-veðbréfa er fimm dögum
eftir að bréfið er tilbúið til afhend-
ingar hjá Íbúðalánasjóði. Peninga-
greiðsla vegna þinglýstra ÍLS-
veðbréfa mun ekki fara fram fyrir
fyrsta vaxtadag þeirra.
Lán Íbúðalánasjóðs
verða til 20, 30 og 40 ára
Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir
Markaðurinn
eftir Hall Magnússon sviðsstjóra
þróunar og almannatengsla íbúða-
lánasjóðs/ hallur@ils.is