Morgunblaðið - 21.06.2004, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 21.06.2004, Blaðsíða 54
54 C MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Opið mán.–fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9–17 Hilmar Óskarsson, Guðjón Sigurjónsson, Rósa Guðmundsdóttir, Benedikt G. Grímsson. Lögfr.: Pétur Þ. Sigurðsson hrl. www.fjarfest.is - fax 562 4249 FJÁRFESTING FASTEIGNASALA ehf. Sími 562 4250, Borgartúni 31 Eiðistorg - Seltjarnarnes Fal- leg og sólrík 117 fm, 4ra herbergja á 4. hæð með sérinngangi af svölum. Lyfta er í húsinu. Íbúðin er tveimur hæðum, á neðri hæð er eldhús, gestasnyrting, stofa og sólstofa með útgangi á suðursvalir. Á efri hæð er baðherbergi, sjónvarpsher- bergi og tvö góð svefnherbergi, útgangur er á norðursvalir úr hjónaherbergi. Stæði í bílageymslu, auk þess er sérmerkt útibíla- stæði. Innangengt er í verslunarmiðstöð- ina Eiðistorg. Frábær staðsetning. Vesturberg - 4ra herb. Góð, 4ra herbergja íbúð á 4. hæð í góðu ástandi. Um er að ræða þrjú svefnher- bergi, stofu, eldhús og baðherbergi. Stór- ar norðvestursvalir. Frábært útsýni. Tengi er fyrir þvottavél í baðherbergi. Húsið og sameign eru í góðu ástandi. Sérgeymsla er á jarðhæð. Leiktæki eru í garði. Stutt er í sundlaug og flest alla þjónustu. Verð 11,4 millj. Kristnibraut - 4ra herbergja Vönduð og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð ásamt stæði í bílageymslu í litlu fjöl- býlishúsi. Vandaðar innréttingar, mjög mikið og fallegt útsýni. Tilbúin til afhend- ingar í sept. 2004. Núpalind - 4ra herb. Nýleg, 118,9 fm mjög glæsileg 4ra herbergja íbúð í lyftuhúsi, ásamt stæði í bíla- geymslu. Eikarparket er á allri íbúðinni, flísar eru á anddyri, þvotta- og baðher- bergi. Mahogny innréttingar. Stórar vest- ursvalir. Frábært útsýni og stutt í alla þjónustu. Verð 19,5 millj. 2ja - 3ja herbergja íbúðir Kirkjustétt - 3ja herb. Vönduð, ný, 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í nýju ál- klæddu fjölbýlishúsi. Vandaðar innrétting- ar. Suðurverönd. Stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni. Tilbúin til afhendingar án gólfefna. Verð 15,3 milljónir Naustabryggja 12-18-20-22 - NÝTT Nýjar og glæsilegar 3ja-6 herbergja íbúðir frá 95-207 fm og „penthouse“-íbúðir á tveimur hæðum. Íbúðirnar verða afhentar fullbúnar án gólfefna nema á baðherbergi og þvottahúsi þar sem verða flísar. Íbúðirnar eru með vönduðum innréttingum. ,,Penthouse”-íbúðirnar verða afhentar tilbúnar til innréttinga. Allar íbúðirnar verða með sérþvottahúsi. Stæði í bílageymslu fylgja öllum íbúðum. Að utan eru húsin ál- klædd. Til afhendingar nú þegar. Byggingaraðili er Byggingarfélag Gylfa og Gunn- ars. Teikningar og nánari upplýsingar hjá sölumönnum Fjárfestingar. Til sölu vandaðar og rúmgóðar 3ja og 4ra herb. íbúðir í 15 hæða álklæddu fjöl- býlishúsi. Í húsinu verða 2 lyftur, sjón- varpsdyrasími, vandaðar innréttingar og möguleiki á stæði í bílageymslu. Mjög fallegt útsýni. Góð staðsetning og stutt í alla verslun og þjónustu. Byggingarað- ili er Byggingarfélag Gylfa og Gunn- ars. Teikningar og nánari upplýsingar hjá sölumönnum Fjárfestingar. Rjúpnasalir 14 Glæsilegt álklætt lyftuhús - NÝTT Sjáland - Garðabæ - NÝTT Norðurbrú 3-5 og Strandavegur 18-20 Nýjar og glæsilegar 2ja-5 herbergja íbúðir í 4ra hæða fjölbýlishúsi með lyftum. Íbúð- irnar verða 64-140 fm með suður- eða vestursvölum. Þær verða afhentar fullbúnar án gólfefna nema á baðherbergi og þvottahúsi en þar verða flísar. Þá verða þær búnar vönduðum innréttingum með möguleika á stæði í bílageymslu sem innan- gengt verður í úr húsinu. Stutt í miðbæ Garðabæjar og Smáralind. Afhending á haustmánuðum 2004. Byggingaraðili er Byggingarfélag Gylfa og Gunnars. Teikn- ingar og nánari uppýsingar hjá sölumönnum Fjárfestingar. Einbýlishús, parhús og raðhús Aratún - einbýli Mjög gott einbýl- ishús á tveimur hæðum ásamt stórum bíl- skúr. Stór sólstofa. Aukaíbúð með sérinn- gangi í kjallara, einnig er innangengt úr húsi í íbúðina. Húsið er í góðu ástandi. Ræktaður garður er í kringum húsið. Hús- ið er samtals um það bil 400 fm með óskráðu rými. Mjög góð staðsetning, stutt í alla þjónustu. Verð 35 millj. Suðurgata - HF - einbýli Til sölu 159,9 fm einbýlishús á þremur hæð- um, auk 32 fm bílskúrs sem er á tveimur hæðum og er neðri hæð hans notuð í dag sem geymsla. Íbúðin skiptist þannig: á miðhæðinni er anddyri, hol, eldhús og tvær samliggjandi stofur. Á rishæðinni eru tvö góð svefnherbergi og sjónvarpsher- bergi með parketi á gólfum auk baðher- bergis. Í kjallara er aukaíbúð með sérinn- gangi, tvö góð herbergi, eldhús og sal- erni. Einnig þvottaherbergi fyrir íbúðina. Víðilundur - einbýli Til sölu 144,6 fm einbýlishús á einni hæð ásamt 46 fm tvöföldum bílskúr. Sólstofa og stór garður er við húsið. Húsið er í rólegu hverfi í lok- aðri götu. Hæðir Ársalir - penthouse Mjög glæsi- leg og vel skipulögð 122 fm penthouse íbúð á 12. hæð í álklæddu fjölbýlishúsi með tveimur lyftum ásamt stæði í bíla- geymslu. Sjónvarpsdyrasími er í íbúðinni. Íbúðin er með mahogny innréttingum og skápum. Eikarparket er á gólfum. Í eld- húsi og stofu er hátt til lofts og þar er inn- felld halogen lýsing. Úr stofu er gengið út á flísalagðar suðvestursvalir. Góð innrétt- ing er á baðherbergi, flísar á gólfi og veggjum, upphengt salerni, sturtuklefi og handklæðaofn. Sérgeymsla er í kjallara. Um er að ræða sérstaka og fallega íbúð á einum besta stað í Kópavogi, með útsýni sem er frá Suðurnesjum yfir til Snæfells- ness og Esjunnar og allt þar á milli. 4ra - 6 herbergja íbúðir Kirkjustétt - 5 herb. Vönduð, ný, 147,1 fm, 5 herbergja íbúð í nýju ál- klæddu fjölbýlishúsi. Vandaðar innrétting- ar. Suðurverönd. Stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni. Tilbúin án gólfefna á næstu dögum. Verð 21,5 millj. Bárugata - 3ja herb. Miðbær. Til sölu mjög falleg og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð með sérinngangi. Ný eldhúsinnrétting og endurnýjað baðher- bergi. Nýir skápar í herbergi. Nýtt parket á stofu og herbergjum, flísar á eldhúsi, holi og baðherbergi. Sérgeymsla og þvottahús í íbúð. Góð staðsetning í mið- bæ Reykjavíkur. Verð 13,3 millj. Kristnibraut - 3ja herb. Vand- aðar og glæsilegar 3ja herb. 119 fm íbúðir í 6 íbúða fjöleignahúsi. Vandaðar innrétt- ingar, mikið og gott útsýni. Tilbúnar án gólfefna í sept. 2004. Torfufell - 2ja herb. Til sölu mjög snyrtileg og töluvert endurnýjuð 2ja her- bergja, 57 fm íbúð á 2. hæð í góðu fjöl- býli. Stórar suðvestursvalir. Nýleg eldhús- innrétting. Nýlegt parket, merabau, á stofu, eldhúsi og holi. Sérgeymsla og sameiginlegt þvottahús með vélum á jarð- hæð ásamt hjólageymslu og annarri sam- eign. Verð 7,9 millj. Torfufell - 3ja herb. Til sölu 79 fm, 3ja herbergja íbúð í góðu ásigkomulagi á 3. hæð í fjölbýlishúsi. Tvö góð herbergi, eldhús, stofa með parketi á gólfum. Út- gangur er úr stofu á vestursvalir. Baðher- bergi með tengingum fyrir þvottavél og þurrkara. Á 1. hæð er sérgeymsla og sam- eiginlegt þvottahús. Öll sameign snyrtileg. Verð 9,4 millj. Sjáland - Garðabær Í nýja Bryggj- uhvefinu í Garðabæ, eru til sölu mjög vandaðar 2ja - 4ra herb. íbúðir. Möguleiki á stæðum í bílageymslu. Vandaðar inn- réttingar. Sameign fullfrágengin. Íbúðir til- búnar til afhendingar á haustdögum 2004. Nánari upplýsingar hjá sölumönnum. Krummahólar - 3ja herb. MIKIÐ ÚTSÝNI Til sölu falleg, 80fm, 3ja herbergja íbúð í fjölbýlishúsi með lyftu, ásamt stæði í bílageymslu. Góðar innréttingar, eru í íbúðinni, nýtt parket (japanskur hlynur) á stofugólfi, eld- húsi og aukaherbergi. Stórar suðursvalir, útgangur er úr stofu og hjónaherbergi. Á baðherbergi er baðker og tenging fyrir þvottavél. Í sameign eru nýjar vélar í þvottahúsi. Húsið hefur verið tekið í gegn að utan á síðustu árum og m.a. skipt um gler. Verð 11,9 millj. Sumarhús Sumarhús - Biskupstungur Til sölu sumarbústaður í landi Drum- boddsstaða í Biskupstungum, rétt við Ein- holt. Um er að ræða svokallaðan A-bú- stað, byggðan 1981, 46,2 fm með 13 fm svefnlofti. Bústaðurinn stendur á afgirtum, hálfum hektara eignarlands. Vegalengd frá Reykjavík ca 100 km. Nánari upplýsingar hjá sölumönnum Fjárfestingar. Til sölu sérlega glæsileg 221 fm þakíbúð á 15. hæð með frábæru útsýni. Íbúðin af- hendist tilbúin til innréttinga. Umhverfis íbúðina eru ca 200 fm upphitaðar svalir sem gefa mikla möguleika, t.d. að setja heitan pott. Íbúðinni fylgja tvö stæði í bíla- geymslu. Tvær hraðgengar lyftur verða í húsinu. Umhverfi hússins og fyrirkomulag er mjög gott. Í nágrenninu eru frábær útivistarsvæði og stutt er í einn besta golfvöll höfuðborgarsvæðisins. Byggingaraðili er BYGG, Byggingafélag Gylfa og Gunnars. Teikningar og nánari upplýsingar gefa sölumenn Fjárfestingar ehf. Rjúpnasalir 14 - „penthouse“ Vantar eignir Mikil sala Seljendur hafið samband við sölumenn okkar SAURBÆJARKIRKJA er stærst þeirra fáu torfkirkna sem varðveist hafa á landinu. Hún var reist árið 1858 af timburmeistaranum Ólafi Briem (1808-59), sem lærði trésmíði í Kaupmannahöfn á árunum 1825- 1831. Ólafur var mikilvirkur forsmiður í Eyjafirði um sína daga og er hann einnig höfundur Hólakirkju í Eyjafirði og Gilsstofu sem nú stendur við Glaumbæ í Skagafirði. Í dyraumbúnaði Saurbæjarkirkju gætir áhrifa úr klassískum byggingarstíl sem Ólafur timb- urmeistari hefur kynnst í Danmörku. Klukkur hanga í gálgum á vesturstafni. Grind kirkjunnar er af bindingsverki sem timburþil er fest innan á. Þilið sjálft er standþil með fornlegri ásýnd, þar sem þilborð eru grópuð inn í önnur, mjórri og þykkari, en á þessum tíma voru spjaldaþil orðin algeng í kirkjum. Þau eru hins vegar gerð úr láréttum syllum og lóðréttum stöfum, er mynda reiti, sem spjöld eru felld í. Lágt þil með pílárum skilur kór frá framkirkju. Bekkur er meðfram veggjum í kór og bekkir með einföldum bríkum, bekkgöflum, eru í allri framkirkjunni. Saurbæjarkirkja hefur verið í vörslu Þjóðminjasafnsins frá árinu 1962 en skömmu áður fóru fram miklar viðgerðir að forsögn þjóðminjavarðar. Kirkjan er notuð sem sóknarkirkja. Um- fangsmikil viðgerð stendur nú yfir á kirkjunni og stefnt er að því að henni ljúki í ár. Í Sólgarði, í næsta nágrenni Saurbæjar, var síðast liðið sumar opnað Smámunasafn Sverris Her- mannssonar smiðs á Akureyri. www.thjodminjasafn.is Úr húsasafni Þjóðminjasafnsins Saurbæjarkirkja í Eyjafirði Saurbæjarkirkja í Eyjafirði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.