Morgunblaðið - 23.06.2004, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 23.06.2004, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 2004 23 erið á Íslandi. uddu tóku virkan sninganna varð hafa síðan ekki rra a nefnt þegar um- nar. Ásgeir var af guðfræði og m. Hann var ins í V-Ísafjarð- ára gamall. Hann hennar var Þór- r hennar var orsætisráðherra í nna fyrir skýran inn forseti Sam- völlum þegar 0. 1 og eftir kosn- ppan var þá skoll- voru innan Fram- Ásgeir og Jónas töðu Jónasar amstjórn Fram- du til þess að allsson stofnaði nn flokk heldur óðan sigur. Bæði ir Alþýðuflokks- il að fella hann, sbanka Íslands þingstörfum. Þó nn virkan þátt í ti flutningsmaður 42 og hann studdi 1949. r kosningarnar sem Sveinn Björns- ar sjálfkjörinn fskipti af stjórn- málaflokkarnir embætti. Þó ljóst ti stuðnings fólks ert væri horft á ns. Stjórn- sóknarflokkur, anda gegn hon- ðanda sem sam- frestur rann út myndu styðja hafði aldrei tekið gsmaður Sjálf- ar Gísli Sveinsson enn Bjarna staða gæti tekist Tíminn studdu Sjálfstæðisflokks osningabaráttu kanna að kjósa ndsnúnir Ásgeiri ds í NATO. Aðeins að hafði tak- tar líkur á að Ás- orsetakjör, og „Fólkið velur u og mannkostum að velja forset- ð hluta til um kksræðið á bak u er að sá sem var virkan þátt í áðherra, en sá fði ekki haft nein geir var kjörinn munaði 1.879 at- stjórnarinnar m forsetakjörið ði umdeildur for- sátt um störf stjórnmála- nar. Átök voru þó hluta þess tíma- rkreppu 1953 en tillögu um amenn til að koma sér saman um myndun nýrrar ríkisstjórnar. Árið 1956 myndaði Hermann Jónasson, formaður Fram- sóknarflokksins, vinstri stjórn sem m.a. hafði brottför varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli á stefnuskrá sinni. Ás- geir taldi ekki ráðlegt að varnarliðið færi frá landinu enda var ekki mjög friðsamlegt í heiminum á þessum tíma. Kalda stríðið var í algleymingi og Sovétmenn höfðu ráðist með her inn í Ungverjaland. Ásgeir lét þessi sjónarmið sín koma fram, m.a. í áramótaávarpi í árslok 1956. Sjónarmið þau sem hann setti fram voru í andstöðu við meginmark- mið stjórnarinnar í utanríkismálum. Eftir að ríkisstjórn Hermanns féll 1958 myndaði Alþýðu- flokkurinn minnihlutastjórn sem átti frumkvæði að breyt- ingum á kjördæmaskipan. Í kjölfarið mynduðu Sjálfstæð- isflokkurinn og Alþýðuflokkurinn ríkisstjórn, viðreisnarstjórnina, sem sat að völdum í 12 ár. Ásgeir átti stóran þátt í því að leiða þessa tvo flokka saman. Benedikt Gröndal, fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins, telur að forseti Íslands hafi ekki í annan tíma haft meiri og ör- lagaríkari afskipti af flokkapólitík og stjórnarmyndun. Síðari hluta þess tímabils sem Ásgeir var forseti var meiri stöðugleiki í stjórnmálum en áður hafði verið og ekk- ert reyndi á aðkomu forsetans að stjórnarmyndun. Átök voru þó um einstök mál og 1966 var áskorunum beint til forsetans um að skjóta samningum um byggingu álverk- smiðju í Straumsvík til þjóðarinnar. Ásgeir fór ekki að þessum tilmælum. Þjóðminjavörður eða stjórnmálamaður? Alllöngu áður en kom að forsetakosningum 1968 hafði heyrst að Gunnar Thoroddsen, sendiherra og fyrrum borg- arstjóri, alþingismaður og ráðherra, stefndi að framboði. Gunnar var tengdasonur Ásgeirs forseta og var af mörgum talinn mjög vel hæfur til að gegna embættinu. Eftir að Kristján Eldjárn þjóðminjavörður tilkynnti framboð var ljóst að leið Gunnars í forsetastólinn yrði ekki eins greið og hann hafði vonast eftir. Kristján var frá Tjörn í Svarfaðardal. Hann lauk stúd- entsprófi frá MA og fór síðan til náms í Kaupmannahöfn í fornleifafræði, en fáir Íslendingar höfðu þá numið þau fræði. Kristján varð að gera hlé á námi sínu vegna heims- styrjaldarinnar síðari, en sneri sér að rannsóknum í forn- leifafræði á Íslandi. Hann gróf m.a. á Stöng í Þjórsárdal og víðar. Hann var skipaður þjóðminjavörður 1947 aðeins 27 ára gamall og átti þátt í að byggja upp safnið eftir að það fékk nýtt húsnæði 1950. Kristján tók þátt í uppgreftri í Skálholti 1954 þegar steinkista Páls biskups Jónssonar var grafin upp. Hann lauk doktorsprófi 1957, en doktorsritgerð hans Kuml og haugfé úr heiðnum sið á Íslandi varð met- sölubók þegar hún kom út. Þó að lengi hafi verið rætt um að Gunnar Thoroddsen myndi gefa kost á sér til forseta var það Kristján sem varð fyrri til að tilkynna framboð. Kosningabráttan 1968 varð bæði löng og hörð. Í kosningunum 1952 höfðu flokkarnir gert sérstakar samþykktir þar sem þeir lýstu yfir stuðn- ingi við einstaka frambjóðendur, en 1968 tóku þeir ekki af- stöðu til frambjóðenda. Eftir sem áður var í kosningunum tekist á um hvort æskilegt væri að væntanlegur forseti hefði tekið þátt í stjórnmálum. Gunnar hafði lengi verið í framlínu stjórnmálanna, en Kristján hafði enga reynslu á því sviði. Í kosningabaráttunni var þó talsvert reynt að staðsetja Kristján í pólitík. Almennt er talið að afskipti Gunnars af stjórnmálum hafi ekki hjálpað honum í forseta- kjörinu. Bæði var að margir töldu að forsetinn ætti ekki að vera pólitískur og eins minntu sumir á að Gunnar hafði gengið gegn samþykkt miðstjórnar Sjálfstæðisflokksins 1952 um að styðja séra Bjarna. Það gátu ekki allir fyr- irgefið þó að 16 ár væru liðin. Yfirburðir Kristjáns í kosningunum komu mörgum á óvart, en hann fékk 65,6% atkvæða. Forðaðist bein afskipti af stjórnmálum Kristján Eldjárn reyndi sem forseti að halda sig til hlés í stjórnmálabaráttunni. Hann ætlaðist til að stjórn- málamenn tækju þær ákvarðanir sem taka þyrfti og að for- setinn ætti að hafa sem minnst bein áhrif. Miklar svipt- ingar voru hins vegar í stjórnmálum þau ár sem hann var forseti, sem sést best á því að það urðu stjórnarskipti 1971, 1974, 1978, 1979 og tvívegis 1980. Kristján komst því ekki hjá því að taka ákvarðanir sem ekki voru alltaf óumdeildar, eins og um það hverjum ætti að fela stjórnarmyndunar- umboð. Kristján taldi það hins vegar alls ekki sitt hlutverk að reyna að hafa áhrif á hvernig stjórn yrði mynduð, en bæði Sveinn Björnsson og Ásgeir Ásgeirsson lögðu á stundum ekki eins mikið upp úr því að fylgja þeirri reglu. Þegar ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar féll árið 1974 rauf hann þing, en formenn hinna stjórnarflokkanna lögðu að Kristjáni að fallast ekki á þingrof. Kristján taldi sér ófært að fallast á þessa beiðni því þar með hefði hann blandað forsetaembættinu inn í stjónmálaátök. Eftir sigur vinstri flokkanna 1978 fól forsetinn Lúðvík Jósefssyni, formanni Alþýðubandalagsins, að mynda rík- isstjórn eftir að formönnum Alþýðuflokksins og Sjálfstæð- isflokksins hafði báðum mistekist að mynda stjórn. Þessi ákvörðun var gagnrýnd, m.a. af Morgunblaðinu sem sagði Alþýðubandalagið vera arftaka Sameiningarflokks alþýðu –Sósíalistaflokks. Þessir tveir flokkar hefðu frá upphafi barist gegn grundvallaratriðum íslenskrar utanríkis- og öryggismálastefnu.Kristján taldi það hins vegar brot á öll- um leikreglum í lýðræðisríki að sniðganga næststærsta stjórnmálaflokk landsins. Íslendingar fyrstir til að kjósa konu forseta Forsetakosningarnar 1980 voru sögulegar. Það hafði ekki áður gerst í heiminum að kona væri kosin þjóðhöfðingi í lýðræðislegum kosningum. Kjör Vigdísar Finnbogadóttur markaði því tímamót. Vigdís var fædd í Reykjavík og fór til náms í Frakklandi að loknu stúdentsprófi þar sem hún menntaði sig í frönsk- um bókmenntum og þá sérstaklega í leikhúsbókmenntum. Eftir að hún kom heim starfaði hún um tíma hjá Þjóðleik- húsinu og kenndi við menntaskóla. Hún varð þekkt mann- eskja á Íslandi þegar hún sá um frönskukennslu í Sjón- varpinu um tíma. Árið 1972 var Vigdís ráðin leikhússtjóri hjá Leikfélagi Reykjavíkur og starfaði þar í átta ár. Í forsetakosningunum gáfu fjórir frambjóðendur kost á sér, Albert Guðmundsson alþingismaður, Guðlaugur Þor- valdsson ríkissáttasemjari, Pétur Thorsteinsson sendi- herra og Vigdís Finnbogadóttir. Í kosningabaráttunni var rifjað upp að Vigdís hefði um tíma tekið þátt í baráttu gegn veru varnarliðsins í Keflavík. Töldu sumir að þetta kynni að draga úr fylgi hennar, en Vigdís svaraði spurningum fjölmiðla um þetta atriði á þann hátt að fæstir létu það ráða afstöðu sinni. Vigdís fékk 33,8% atkvæða í kosningunum, um 1,5% meira fylgi en Guðlaugur Þorvaldsson. Kjör Vigdísar vakti mikla athygli víða um heim og fullyrða má að hún hafi öðl- ast heimsfrægð. Aldrei áður hafði kona verið kjörin þjóð- höfðingi í lýðræðisríki. Kosning hennar var talin skref fram á við fyrir kvennabaráttu á Íslandi og í heiminum öllum. Vigdís fylgdi sömu stefnu og Kristján Eldjárn hafði fylgt um að hafa sem minnst bein afskipti af stjórnmálaþróun hér á landi. Hún lagði áherslu á sameiningarhlutverk for- setaembætisins. Eins og fyrri forsetar fór hún í heimsóknir um allt land og ræddi við landsmenn. Hún fór einnig í fjöl- margar heimsóknir erlendis sem vöktu jafnan mikla at- hygli. Henni tókst þannig að kynna Ísland og vekja áhuga annarra þjóða á landinu. Meiri stöðugleiki ríkti í stjórnmálum í forsetatíð hennar en Kristjáns. Stjórnarkreppa 1983 varð þó til þess að kveikja umræðu um hugsanlega skipan utanþingsstjórnar. 25. október árið 1985 voru tíu ár liðin frá kvennafrídeginum og tilkynnti Vigdís að hún hygðist taka sér frí frá störfum þennan dag eins og aðrar konur. Svo vildi hins vegar til að á sama tíma stóð yfir hörð kjaradeila milli flugfreyja og viðsemjenda þeirra. Henni lauk með lagasetningu og voru lögin færð forseta til staðfestingar 25. október. Vigdísi féll þungt að þurfa að staðfesta lögin þennan dag og bað um frest til að mega leita sér ráðgjafar um málið. Málið olli titringi innan ríkisstjórnarinnar sem að lokum varð til þess að Vigdís skrifaði undir lögin. Óskum um að lög um samninginn um Evrópskt efna- hagssvæði yrðu borin undir atkvæði þjóðarinnar var beint til Vigdísar árið 1993, en hún taldi sér ekki fært að synja lögunum staðfestingar. Hún sagði síðar að með því að hafna lögunum staðfestingar hefði hún verið að lýsa yfir stríði á hendur Alþingi og ríkisstjórn. Vigdís gegndi forsetaembættinu í 16 ár. Árið 1996 var Ólafur Ragnar Grímsson kjörinn forseti. Um feril hans var ítarlega fjallað í Tímariti Morgunblaðsins 2. og 9. maí sl. amstaða um sameiningartáknið Sveinn Björnsson ríkisstjóri 1941–1944 og forseti 1944–1952. Hann hafði talsverð afskipti af stjórnmálum í forsetatíð sinni og meðan hann var ríkisstjóri. Hann skipaði ut- anþingsstjórn 1942 í andstöðu við forystumenn stjórn- málaflokkanna og reyndi að hafa áhrif á hvernig staðið yrði að stofnun lýðveldis. Andstaða var meðal sumra al- þingismanna við hann þegar forseti var kjörinn árið 1944. Ásgeir Ásgeirsson forseti 1952–1968. Hann var kjörinn forseti eftir einhverjar hörðustu og sögulegustu kosingar sem fram hafa farið hér á landi. Ás- geir hafði talsverð áhrif á stjórnmálaþróun framan af. Hann lýsti andstöðu við utanríkisstefnu vinstri stjórn- arinnar 1956–58 og er talinn hafa átt beinan þátt í mynd- un viðreisnarstjórnarinnar 1959. Kristján Eldjárn forseti 1968–1980. Var kjörinn forseti með miklum yfirburðum. Hann taldi að forsetinn ætti að halda sig til hlés í stjórnmálabaráttunni. Sviptingar voru í stjórnmálum í forsetatíð hans og hann komst ekki hjá því að taka umdeildar ákvarðanir. Kristján hafnaði kröfum stjórnarandstöðunnar um að koma í veg fyr- ir þingrof 1974 og veitti formanni Alþýðubandalagsins stjórnarmynd unarumboð 1978 og 1980. Vigdís Finnbogadóttir forseti 1980–1996. Var fyrsta konan sem var kjörin þjóðhöfðingi í lýðræð- islegum kosningum í heiminum. Kjör hennar vakti heims- athygli og hún átti mikinn þátt í að kynna Ísland og vekja áhuga á landinu. Hún fylgdi sömu stefnu og Kristján Eld- járn um aðkomu forsetans að stjórnmálum og taldi að með því að synja lögum staðfestingar væri hún að lýsa yf- ir stríði á hendur Alþingi og ríkisstjórn. , þar að menn- ti af egol@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.