Morgunblaðið - 23.06.2004, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 23.06.2004, Blaðsíða 28
MINNINGAR 28 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Ég hrópaði hátt í símtólið miðvikudags- morguninn 19. maí, þegar símtalið kom um að Þórir frændi hefði látist í bílslysi. Fyrst varð tómleiki og síðar sár söknuður. Fjölskyldur okkar Þóris áttu heima á sömu þúfunni við Hring- brautina og lékum við krakkarnir okkur í fótbolta allan daginn á Mössutúni eða veiddum ál í lækn- um. Ég flutti í miðbæinn og síðar til útlanda og hittumst við Þórir ein- ungis í afmælum og fjölskylduboð- um eða þar til við báðir vorum orðn- ir ráðsettir fjölskyldumenn. Á Svíþjóðarárum Þóris heimsótti ég þau Önnu alloft, kynntist þeim vel og náði t.a.m. að hitta félagana úr tippsforeningen, en þeir spiluðu einnig fótbolta saman. Ég held að dvergasögurnar hafi verið að mynd- ast á þessu tímabili. Fljótlega eftir heimkomu Þóris frá Svíþjóð fór hann að starfa fyrir knattspyrnu- deild FH og varð síðar formaður 1988. Þórir hafði samband við mig og sagði einu sinni sem oftar: „Kiddi lilli, þú þetta skipulagða félagsmála- tröll úr JC hlýtur að geta gert gagn fyrir okkur í FH,“ og þar við sat. Ég kom í stjórn með Þóri og höfum við unnið frá þeim tíma sleitulaust fyrir knattspyrnudeild FH. Byggt var upp unglingaráð, endurreist kvennaknattspyrnan, erlend tengsl efld enn frekar, meistaraflokksráði komið á laggirnar og stofnaður FH- klúbbur. Samstarf okkar Þóris einkenndist af gleði, einlægni, metnaði og var auðugt af einstökum ógleymanleg- um atvikum, sbr. FH-ferðin til Jam- aíka, og öðrum tímabilum fullum af ánægju og stundum vonbrigðum en alltaf héldum við ótrauðir áfram hvað sem á bjátaði. Hann Þórir Jónsson einn og sér var þjóðfélag. Hann var stórmenni. Hann byggði upp tengsl manna á milli, fagnaði öllum af einlægni, labbaði yfir fjöll til að tengja fólkið sitt saman og braut niður múra ef þeir hindruðu aðgengi barna hans ÞÓRIR JÓNSSON ✝ Þórir Jónssonfæddist í Hafnar- firði 25. mars 1952. Hann lést af slysför- um að morgni 19. maí síðastliðins og var útför hans gerð frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði 27. maí. sín á milli. Þórir var heimakær og átti hátíðar- og veislustundir með vin- um og fjölskyldu, enda sérfræðingur í að grilla og bauð í tudda eins og hann orðaði það og mest þótti hon- um til koma að bjóða á pallinn á hverju hausti. Hann hélt síðast pall- inn 14. nóv. 2003 og var byrjaður að skipu- leggja pallinn 2004. „Kiddi, þú verður á pí- anóinu og sérð um að setja hita og ljós í tjaldið. Taktu eig- hteen yellow með Henson.“ Þetta var Þórir, en allir fengu verkefni að sjá um. Þórir var sannur félagsmaður og hugsaði ekki í veraldlegum farvegi en því ríkari í góðmennsku og rausnarskap, sem leiddi til þess að hann var elskaður og dáður af öll- um. Nú er innáskipting fyrir Þóri ein- mitt á þeirri stundu sem honum fannst spilið vera að smella saman og liðið að ná yfirhöndinni. Röðin er komin að okkur hinum að spila leikinn til sigurs. Elsku Þórir frændi, þín er sárt saknað og mun minning þín lengi lifa. Þakka þér fyrir allt sem þú hef- ur gefið mér og fjölskyldu minni. Himneski faðir, ég bið þig að blessa börnin hans Þóris, foreldra og systkini og aðra þá sem Þórir elskaði. Kristinn Arnar Jóhannesson (Kiddi frændi). Við fyrrverandi nemendur Þóris Jónssonar viljum með nokkrum orðum minnast látins vinar. Það var haustið 1977 sem hópur- inn hóf nám við Öldutúnsskóla í Hafnarfirði. Snemma á skólagöng- unni kynntist hópurinn Þóri. Á milli hans og hópsins tókst einstakt sam- band sem haldið hefur allar götur síðan. Þórir var ekki aðeins góður kennari heldur einnig einstakur fé- lagi allra í hópnum. Tíminn í Öldutúnsskóla var eft- irminnilegur og skemmtilegur og það var ekki síst Þóri að þakka. Hann var drifkraftur í félagslífi skólans á þessum árum. Í félags- og tómstundastarfi nemenda var Þórir stórhuga og hjá honum dugði ekk- ert minna en sjónvarpsþátta- og kvikmyndagerð, utanlandsferð og hljómplötuútgáfa. Á þessum árum var horft til skólans fyrir öflugt fé- lagslíf nemenda. Oft fannst hópnum hugmyndir Þóris óframkvæmanlegar en eftir að hann hafði kynnt þær fyrir hópn- um og fengið alla til að hefjast handa var árangurinn oft ótrúlegur. Stórhugur Þóris og samstaða hóps- ins náði hámarki í útskriftarferð til Hollands vorið 1987 en sú ferð mun seint líða okkur úr minni. Þórir var eins og áður sagði ekki bara góður kennari heldur einnig einstakur félagi allra í hópnum. Til hans var gott að leita og hann var ávallt boðinn og búinn til að aðstoða og leiðbeina öllum eins og hann frekast gat hvort sem það varðaði námið, félagslífið eða eitthvað allt annað. Þórir hafði einstakt lag á að virkja alla og draga fram það besta í öllum. Hann sá kostina í einstak- lingnum og fékk hann til að blómstra. Þá átti hann auðvelt með stilla saman hópi af ólíkum einstak- lingum og fá alla í hópnum til að vinna saman sem ein heild. Eftir að námi okkar við Öldutúns- skóla lauk hélt Þórir góðu sambandi við hópinn. Í hvert skipti sem hann hitti einhvern úr hópnum spurði Þórir frétta af öðrum. Tvö nem- endamót hafa verið haldin hjá hópn- um og í bæði skiptin hefur Þórir mætt og verið hrókur alls fagnaðar. Síðast þegar hópurinn hittist fyrir um ári yfirgaf Þórir eigið matarboð til þess að geta verið með gömlu nemendunum sínum. Fjölskyldu Þóris sendum við inni- legustu samúðarkveðjur. F.h. Útskriftarárgangs Öldutúns- skóla 1987, Ingvar, Þyri, Hildur, Guðmundur og Bjarni. Fullur af lífi. Það er svo skrítið þegar fólk sem er fullt af lífi fellur frá. Einstaklingar sem iða af krafti og lífsneista. Þannig var hann Þórir. Hann gaf og gaf, var alltaf á fullu spani, en alltaf hafði hann samt tíma til að gefa. Það var haustið 1985 að bekkurinn okkar tók það stóra stökk að byrja í unglingadeild Öldu- túnsskóla. Litlir villingar sem héldu að þeir væru orðnir fullorðnir. Á móti okkur tók nýi kennarinn. Það var hann Þórir, í íþróttafötum og klossum, með krullurnar sínar og við vorum liðið hans. Þórir Jóns var hressasti kennar- inn í skólanum, ef marka mátti sögusagnir og vorum við ekki svikin af þessum einstaka kennara, sem átti eftir að verða mikill áhrifavald- ur í lífi margra okkar. En Þórir okkar var svo miklu meira en bara hress. Hann var strangur kennari sem við virtum, hann var félagi okkar og vinur og hann vissi svo margt sem ekki þurfti að útskýra. Hann átti traust okkar, vináttu og virðingu. Hann var mikill húmoristi og kennslustundirnar einkenndust oft af því. Hann lagði mikinn metnað í kennsluna. Hann var duglegur að aðstoða þá sem þurftu á því að halda. Hann skapaði skemmtilegt andrúmsloft og átti stóran þátt í því að gera námsefnið áhugavert. Á föstudögum fórum við upp í pontu og ræddum um lífið og tilveruna, með því gaf hann okkur stóra gjöf. Landafræðitímarnir urðu stundum að spennandi keppni sem enginn vildi missa af. Að eiga kennara sem trúir á mann og hvetur er einstakt. Að eiga kennara sem fylgist með manni þó árin líði er einstakt. Fyrir það þökkum við. Við biðjum Guð að vaka og vernda fjölskyldu, ættingja og nánustu vini Þóris, sem misst hafa svo mikið. Minningin um einstakan mann mun lifa með okkur öllum. Kveðja. Útskriftarárgangur ársins 1988 (9-L). Kveðja frá Umf. Einherja á Vopnafirði Góður drengur er fallinn frá langt fyrir aldur fram. Við félagar hans á Vopnafirði urð- um slegnir er við fréttum af þessu hörmulega slysi og sjáum eftir góð- um félaga. Það var mikill fengur fyrir knatt- spyrnuna á Vopnafirði þegar Þórir Jónsson var ráðinn þjálfari Ein- herja árið 1976. Þá vorum við rétt að slíta barnsskónum á knatt- spyrnuvellinum og því lyftistöng að fá einn af betri knattspyrnumönn- um þjóðarinnar, sem Þórir var, til liðs við okkur. Þórir var ekki aðeins góður knattspyrnumaður heldur frábær félagi, léttur og skemmtilegur, sem okkur öllum er minnisstætt. Árin liðu og samskiptin voru ekki mikil eins og gerist og gengur. Engu að síður var alltaf eins að hitta Þóri. Eins og mun styttri tími hefði liðið frá því hann var á Vopnafirði því þetta ár var honum greinilega minnisstætt. Spurningarnar um strákana sem hann hafði þjálfað, hvar þeir væru, hvað þeir störfuðu og upprifjun á skemmtilegum hlut- um rigndi yfir þann sem hann hitti hverju sinni. Og það var hlegið og grínast. Þannig var Þórir. Fjölskyldu Þóris sendum við okk- ar innilegustu samúðarkveðjur. Ég veit ekki hvernig orð geta lýst frænda mínum Þóri Jónssyni, en ég get byrjað á að minnast þess að Þór- ir er uppáhalds frændi, kennari, og frábær félagi til að vera í kringum, alltaf hress, það hreinlega geislaði allt af orku í kringum Þóri frænda. Ég man eftir eins og það hefði gerst í gær þegar Þórir mætti til kennslu í Öldutúnsskóla í Hafnarfirði í fyrsta sinn og kallaði yfir bekkinn „Svenni frændi“ þegar hann las upp kladd- ann. Maður fann að nærvera Þóris var hlýleg, hann var hress og góður kennari, það finnst mér virkilega vænt um í dag. Eftir fyrsta kennslu- tíma með Þóri í Öldutúnsskóla öðl- aðist Þórir hvílíkar vinsældir hjá nemendum að maður naut þess ítrekað að Þórir kennari væri frændi minn. Hann var elskaður af okkur strákunum og stelpunum, það var enginn jafnvinsæll og Þórir. Þegar maður hittir gamla skóla- félaga tala allir í fyrstu eða annarri setningu um Þóri kennara rétt eins- og sjálfsagðan hlut. Þvílíkra vin- sælda naut Þórir og mun hafa í minningunni. Maður var byrjaður í fótbolta hjá FH og hitti Þóri þar af leiðandi líka við æfingar og störf hjá FH. Ég var stoltur af Þóri Jónssyni, mér fannst hann halda mikið upp á mig, hann hvatti mig mikið áfram, hann var eitthvað meira en uppáhalds frændi og skemmtilegi kennarinn minn. Mörgum árum síðar lágu leiðir okkar aftur saman reglulega þegar Þórir starfaði við ferðamannabrans- ann hjá Úrvali-Útsýn og ég við ferðabransann á allt öðru sviði en báðir við störf í Lágmúlanum. Þórir kíkti alltaf við þegar hann þurfti í Landsbankann sem var við hliðina á þar sem ég starfaði. Það var alltaf gaman að fá hann í heimsókn. Mér fannst Þórir vera að gefa til kynna að ég væri á réttri leið. Þóri frænda fannst mikið koma til þess sem ég var að gera, það gerði mig stoltan að hann væri að hvetja litla frænda áfram eins og honum var einum lag- ið, þó svo ég væri orðinn miklu stærri og þyngri en hann á þeim tíma. Þórir kom oft með félaga sína í heimsókn til mín og alltaf gátum við glaðst saman, það var alltaf gaman að fá hann í heimsókn. Það er erfitt fyrir mig að vita að Þórir kemur ekki í heimskókn til mín oftar í vinnuna en ég minnist hans með miklum söknuði. Þórir frændi, blessuð sé mining þín. Sveinbjörn Árnason og fjölskylda. Þegar ég var lítill sá ég viðtal í FH-fréttum við Þóri Jónsson sem þá var nýtekinn við sem formaður Knattspyrnudeildar. „Ekki spyrja hvað FH getur gert fyrir þig heldur hvað þú getur gert fyrir FH“ var yf- irskrift viðtalsins. Þetta fannst mér flott og hugsaði með mér að það hlyti að vera mikill spekingur, jafn- vel hugsuður, sem léti svo kjarnyrta setningu út úr sér. Þórir var nátt- úrlega yfir og allt um kring á þess- um árum. Hann var kallinn sem kom á klossunum sínum til okkar eftir æfingar með happdrættismiða og sagði að nú þyrftum við að fara út um allan bæ og selja Gunnu frænku, Nonna frænda, ömmu og afa og mömmu og pabba happ- drættismiða. Í vinning voru yfirleitt nokkur málverk eftir Tarnus, ein- hverjar Adidas-vörur og svo kannski utanlandsferð. Svo hent- umst við strákarnir um allan bæ að selja happdrættismiða og ef ekkert gekk fór maður bara til Benna Steingríms sem keypti restina! Ég kynntist Þóri þó ekki vel fyrr en ég varð framkvæmdastjóri Knattspyrnudeildar fyrir þremur árum. Hann var þá nýtekinn við sem formaður rekstrarstjórnar meistara- og 2. flokks karla. Ég starfaði því náið með Þóri og fleiri góðum mönnum á annað ár. Það var gott að vinna með Þóri, hann var hreinn og beinn, sagði skoðun sína umbúðalaust en átti alltaf hlý orð yfir vel unnu verki. Að vísu fannst mér stundum hinir tíðu morgun- fundir rekstrarstjórnar á skrifstofu Úrvals-Útsýnar vera þreyttir, eða réttara sagt tímasetningin. Þóri fannst upplagt að halda fundina kl. 8.15 þar sem framkvæmdastjórinn þurfti að vera með „allt í teskeið“ og það kom fyrir einu sinni eða tvisvar að ég svaf yfir mig. Þórir tók þá upp á því að boða mig einan kl. 7.45 og þar sem ég trúi yfirleitt öllu sem mér er sagt, mætti ég í nokkur skipti á þeim tíma og furðaði mig á seinkomu allra hinna! Kallinn hafði gaman af þessu. Þórir hafði létta lund og almættið sáldraði í hann óvenjumikilli bjart- sýni og hæfilegu kæruleysi og svo hafði hann skemmtilegt tungutak. „Orri, taktu þetta á punginn,“ kall- aði hann einhvern tímann á eftir mér, þar sem hann sat kóngur í ríki sínu á skrifstofu Úrvals-Útsýnar, þegar ég var búinn að ræða við hann eitthvað sem hafði komið uppá. Ég vissi að ekki þýddi að fletta í riti Sölva Sveinssonar, Íslensk orðtök og málshættir, til að komast til botns í þessari setningu. Ég átti ein- faldlega að redda málunum! Fleiri setningar sem voru í uppáhaldi hjá mér voru „við eyðum ekki mínútu í vitleysinga“ og „við töpum ekki krónu á þessu“. Í minningargreinum er ekki óal- gengt að jafnvel mestu leiðinda- durgum sé gefin sú einkunn að þeir hafi verið hrókar alls fagnaðar. En Þórir var hrókurinn. Það var upp- lifun að sjá hann í ham á upp- skeruhátíðum. Hann greip hljóð- nemann traustataki og byrjaði á því að hita upp salinn með því að segja að hann hefði þurft að hækka míkrafónstatífið því Kiddi frændi (sem oftar en ekki var kynnir) væri svo lítill! Svo hófust vanalega sam- hengislausustu ræður sem ég hef heyrt, en samt var ómögulegt annað en hrífast með. Hann var eins og barn á jólunum. Ræðurnar enduðu einatt á einn veg, Þórir fékk áhorf- endur með sér í fjöldasöng, ÓLE- ÓLE-ÓLE-ÓLE, Manóló hinn spænski hefði ekki gert betur. Ég á eftir að sakna þessa á næstu uppskeruhátíð. „Ekki spyrja hvað FH getur gert fyrir þig heldur hvað þú getur gert fyrir FH.“ Seinna, þegar ég var bet- ur lesinn í mannkynssögunni, upp- götvaði ég að þetta var nokkurn veginn það sama og John F. Ken- nedy sagði við embættistöku sína sem forseti Bandaríkjanna. Þórir var kannski ekki eins frumlegur og ég hélt fyrst, en hann fór svo sann- arlega eftir því sem hann boðaði. Hann bauð sig fram þegar þægi- legra var að standa hjá, hann var formaður, stóð í stafni og fiskaði. Í áratugi. Hann var alvöru maður. Sorgin hefur víða knúið dyra. Sárastur er söknuður fjölskyldu og ástvina. Ég votta börnum Þóris, for- eldrum, systkinum, unnustu og öðr- um ástvinum mína dýpstu samúð. Minningin um Þóri er björt og glað- vær. Blessuð sé minning Þóris Jónssonar. Orri Þórðarson.  Fleiri minningargreinar um Þóri Jónsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar elskulega NJÁLS HÓLMGEIRSSONAR frá Fossseli, síðast til heimilis á Hvammi á Húsavík. Sérstakar þakkir til starfsfólkins á Hvammi. Stjúpdætur, afabörn, langafabörn, frændsystkin og vinir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug vegna andláts og útfarar elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, AÐALSTEINS HJALTASONAR, Vallargerði 4b, Akureyri. Anna Aðalsteinsdóttir, Hilmar Hansson, Björn Aðalsteinsson, Sólveig Brynjarsdóttir, Freyr Aðalsteinsson, Lilja Aðalsteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.