Lesbók Morgunblaðsins - 10.05.2003, Síða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 10.05.2003, Síða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 10. MAÍ 2003 7 Á SÍÐASTA áratug síðustu aldar birti Francis Fuku- yama grein um endalok sögunnar, þar sem því var haldið fram að með sigri lýðræðisins og markaðs- hagkerfisins hafi verið bundinn endi á þau stór- átök sem hefðu einkennt söguna hingað til, og þar með væri sögunni í þeim skilningi í raun lok- ið. Nokkrum árum áður hafði Paul Kennedy gefið út bókina The Rise and Fall of the Great Powers, þar sem hann reyndi að sýna fram á að ris og hnignun stórvelda réðist fyrst og fremst af langvarandi efnahagsþróun, og því skipti í raun ekki öllu máli hver væri við stjórnvölinn í hverju ríki fyrir sig eða hver vann hvaða orustu. Jafnvel voldugustu einstaklingar hefðu lítið um stóratburði sögunnar að segja. Hin svokallaða mikilmennakenning, þar sem því er haldið fram að helstu atburðir sögunnar væru afleiðingar ákvarðana mikilvægra einstaklinga, átti ekki mikið upp á pallborðið. Var óhjákvæmilegt að Þýskaland tapaði heimsstyrjöldunum, þar sem efnahagsgeta þess var hvergi nærri jafnmikil og bandamanna? Var það óhjákvæmilegt að Sovétríkin liðuðust í sundur? Eða skiptu einstaklingar eins og Lenin, Stalin og Gorbatsjov, Hitler, Churchill og Roosevelt miklu máli um hvernig fór? Hefðu at- burðir atvikast öðruvísi ef aðrir menn hefðu ver- ið við völd? Atburðir undanfarinna ára hafa sýnt fram á að sagan er síður en svo liðin undir lok, og að stórátök munu víst fylgja mannkyninu enn um sinn. Skiptir þá máli hvort Bush eða Gore sé við völd í Bandaríkjunum? Var það einstaklings- framtak Osama bin Laden sem ýtti af stað ein- hverri voveiflegustu atburðarás seinni ára? Eða var slíkt á einhvern hátt óhjákvæmilegt? Hvort sem það er vegna nýlegra atburða eða ekki er að minnsta kosti mikil gróska þessa dag- ana í svokallaðri sýndarsagnfræði (alternative history eða virtual history á ensku), þar sem menn velta því fyrir sér hvernig hefði farið hefðu aðrir menn verið við völd eða aðrar ákvarðanir verið teknar í sumum af lykilatburð- um sögunnar. Leiðtogarnir skipta máli Spurningin um hvað hefði getað gerst er ef til vill jafngömul manninum, og hafa margir líklega velt því fyrir sér hvernig hlutirnir hefðu getað farið öðruvísi hefðu aðrar ákvarðanir verið tekn- ar, bæði í eigin lífi og í stærra samhengi. Sá at- burður á liðinni öld sem hafði hvað mest áhrif á hvað flesta var seinni heimsstyrjöldin, og hafa því sumir velt vöngum yfir hvernig útkoman hefði getað orðið öðruvísi. Árið 1992 kom bókin Föðurland eftir Robert Harris út. Hún vakti mikla athygli. Er það kannski ekki tilviljun að hún kom út aðeins tveimur árum eftir samein- ingu Þýskalands, þegar margir höfðu áhyggjur af vaxandi veldi Þjóðverja á nýjan leik. Bókin gerist árið 1964, á 75 ára afmæli Hitlers sem drottnar yfir Evrópu. Hið þýska ríki nær til Úralfjalla, þar sem enn geisar grimmilegt stríð við skæruliða. Eðvarð VIII., sem í raun var fremur hliðhollur nasistum, er konungur Bret- lands í stað Georgs VI., sem í raun tók við af honum. Kalt stríð ríkir við Bandaríkin, undir stjórn Josephs Kennedy, sem var einnig fremur hlynntur þriðja ríkinu. Bókin er skrifuð sem reyfari, og fjallar um tilraunir SS-mannsins Xavier March til að komast að því hvað varð af gyðingunum sem fluttir voru austur. Þetta er helsti galli bókarinnar, því að lesandi veit frá upphafi hvað varð af þeim, og því kemur loka- uppljóstrunin lesandanum ekki á óvart eins og góðum reyfara sæmir. En Harris bendir á hinn bóginn réttilega á að Þýskaland fer smám sam- an halloka í kalda stríðinu við Bandaríkin, því að nútímahernaður gengur að miklu leyti til út á tækni, og alræðisríki eru ekki góður jarðvegur fyrir nýjar hugmyndir. Er þetta kannski ein ástæðan fyrir því að Sovétríkin þurftu að lúta í lægra haldi. Talsvert skemmtilegri lesning er bókin Mak- ing History eftir Stephen Fry frá árinu 1996. Í henni tekst söguhetjunni Michael Young að ferðast aftur í tímann og gera föður Hitlers ófrjóan. Þegar hann rankar aftur við sér í nú- tímanum sem hann heldur að sé mun betri fyrir vikið, kemst hann að því að seinni heimsstyrj- öldin hefur ekki einungis átt sér stað, heldur var Þýskalandi stjórnað af mun hæfari mönnum sem leiddi til þess að það vann stríðið. Kalt stríð geisar einnig í þessu tilfelli við Bandaríkin, en Bandaríkin eru hér afturhaldssamt afl sem of- sækir samkynhneigða og litað fólk. Bókin er afskaplega skemmtilega skrifuð, en niðurstaða hennar gæti komið illa við margan. Ef uppgangur nasismans var ekki Hitler að kenna, er þá öll þýska þjóðin sökudólgar? Þessi spurning er umdeild innan sagnfræðinnar, og hafa þýskir sagnfræðingar sérstaklega verið feimnir við að velta því fyrir sér hvernig hefði farið ef Hitler hefði ekki komist til valda. Árið 1997 gaf sagnfræðingurinn Daniel Goldhagen út bók með titlinum Hitleŕs Willing Executioners, þar sem hann hélt því fram að meirihluti þjóð- arinnar hafi verið hlynntur útrýmingu gyðinga, og varð sú kenning afskaplega umdeild. Hvort svo var mun ekki vera leitast við að svara hér, en svo virðist í fyrstu sem Fry taki einarða afstöðu gegn mikilmennakenningunni. Hann bendir á að þeir þættir sem komu Hitler til valda, svo sem Versalasamningarnir og kreppan hafi verið til staðar hvort eð er, og þannig hafi verið óhjá- kvæmilegt að eitthvað í ætt við nasismann kæmi til. En samt, með annan leiðtoga hefði stríðið fengið aðra útkomu, þannig að enn og aftur er það einstaklingurinn sem skiptir máli. Hvað ef Bretar hefðu samið frið við Hitler? En það eru ekki einungis rithöfundar sem velta fyrir sér spurningunni um hvað hefði getað gerst, því að á undanförnum árum hafa komið út nokkrar bækur með greinum eftir sagnfræð- inga sem spá í spilin. Enn er það seinni heims- styrjöldin sem er mönnum efst í huga, og bera tvær nýútkomnar bækur vitni um þetta. Á kápu bókarinnar More What If, ritstýrðri af Robert Crowley, er Hitler að keyra framhjá Big Ben í London, sem skreyttur er hakakrossinum. Hit- ler er einnig staddur framan á bókinni Virtual History, ritstýrðri af Niall Ferguson, í bak- grunninum eru skátar sem veifa breska fánan- um með hakakrossinum í miðjunni. Bretar sigruðu í seinni heimsstyrjöld, en glöt- uðu við það heimsveldinu og stöðu sinni sem stórveldi. Því eru sumir sem vilja velta því fyrir sér hvað hefði gerst ef Bretar hefðu samið frið við Hitler, en vitað er að margir innan bæði bresku og þýsku ríkisstjórnanna óskuðu eftir slíku. Árið 1993 kom út bókin Churchill: The End of Glory, eftir enska prófessorinn John Charmley. Þar lýsir hann því yfir að Churchill hefði átt að semja frið við Hitler árið 1940. Olli þetta miklu fjaðrafoki, og var eins og olíu væri hellt a eldinn þegar íhaldsmaðurinn Alan Clark lýsti sig sammála þessu. Jafnvel í Bandaríkj- unum, sem er það stórveldi sem kom best út úr stríðinu, eru til menn sem velta því fyrir sér hvort betra hefði verið fyrir Bandaríkin að reyna að halda sig fyrir utan átökin, og komast frekar að samkomulagi við Japan og Þýskaland. í bókinni A Republic, Not an Empire, frá 1999 lýsir einangrunarsinninn Patrick Buchanan því yfir að slíkt hefði verið æskilegt. Í báðum hinum nýútkomnu sýndarsagnfræði- ritum eru greinar eftir Andrew Roberts þar sem hann veltir fyrir sér hugsanlegu hlutleysi Breta. Í greininni „Prime Minister Halifax“ í bók Crowleys tekur Halifax við forsætisráð- herraembættinu í stað Winston Churchill árið 1940, og semur frið við Þýskaland. Við þetta er öllu snúið á haus. Japan ræðst á Bandaríkin og nýlendur Breta, en Hitler lýsir þá Japönum stríð á hendur. Hitler ræðst á Sovétríkin mánuði fyrr, þar sem hann þarf ekki að hafa áhyggjur af Bretum á Balkanskaga, en ræður þó ekki við mannafla og iðnað Sovétríkjanna, og Rússar taka Berlín árið 1946. Þar sem bandamenn hafa enga heri á meginlandinu halda þeir síðan áfram og leggja einnig undir sig Frakkland og Spán. Greinin endar síðan á því að Rússar finna upp kjarnorkusprengjuna fyrstir með aðstoð þýskra vísindamanna. Roberts virðist hér bæði hallur undir mik- ilmenna- og efnahagskenningar. Yfirburðir Sov- étríkjanna gerðu það að verkum að til lengri tíma litið hlutu þeir að vinna stríðið, en annar einstaklingur í Downingstræti hefði samt breytt gangi sögunnar svo um munar. Hverju sem því líður hefði friður við Hitler haft enn verri afleið- ingar í för með sér en þær sem urðu. Aðrir eru efins um afskipti Bretlands af meg- inlandsátökum. Í greininni „The Kaiser’s European Union“ lýsir Niall Ferguson því yfir að betra hefði verið fyrir Bretland að hafa ekki afskipti af fyrri heimsstyrjöld, jafnvel þótt það hefði leitt til sigurs miðveldanna. Hann segir að skjótur sigur Þjóðverja myndi hafa komið í veg fyrir ekki einungis seinni heimsstyrjöld, heldur einnig rússnesku byltinguna, kreppuna miklu, hnignun Bretaveldis og efnahagsleg yfirráð Bandaríkjanna í Evrópu. Útkoman í dag myndi vera sameinuð Evrópa undir forystu Þýska- lands, sem hann vill meina að sé raunin hvort eð er, en með sterku Bretlandi sem mótvægi. Slík- ar vangaveltur bera sterkan keim af Evrópuótta margra Breta, og óvíst er hvort sigursælt og hernaðarsinnað Þýskaland væri vænlegri kost- ur en það friðarsinnaða fjármálaveldi sem við þekkjum í dag. Það er gegnumgangandi í mörgum slíkum vangaveltum að sögunni er aftur beint í þekktan farveg. Sigur Þjóðverja í seinni heimsstyrjöld hefði leitt af sér kalt stríð í örlítið breyttri mynd, sigur þeirra í fyrri heimsstyrjöld hefði leitt af sér Evrópusambandið meira og minna eins og við þekkjum það. Í greininni „Enigma Uncrack- ed“ eftir David Kahn sigra Þjóðverjar í orrust- unni um Atlantshafið, svo að innrás banda- manna í Evrópu er afstýrt, en þeir tapa samt sem áður stríðinu þegar Bandaríkin finna upp kjarnorkusprengjuna. Hvað ef Jesús hefði notið verndar Rómarveldis? Því aftar sem við förum yfir söguna, því erf- iðara er að velta fyrir sér mögulegri útkomu við- burða. Harry Turtledove hefur stundum verið kallaður meistari sýndarsagnfræðinnar. Hann skrifaði bókaröðina Guns of the South, sem komið hefur út í fjórum hlutum. Þar fara Suð- urríkin með sigur af hólmi í bandaríska borg- arastríðinu, og segja sig úr Bandaríkjunum. Í fjórðu bókinni, sem nefnist Great War: Americ- an Front, berjast Norðurríkin, undir stjórn Theodor Roosevelts, við hlið Þýskalands, meðan Suðurríkin undir forystu Woodrow Wilson skipa sér í lið með bandamönnum. Bækur Turtledoves teljast kannski seint til fagurbók- mennta, en bæta það að einhverju leyti upp með ímyndunarafli, og má í því samhengi nefna bókaflokkinn World War: In the Balance, þar sem geimverur ráðast inn í miðja seinni heims- styrjöld og Hitler, Stalín, Churchill og Roose- velt verða að taka höndum saman við að stöðva þær! Í bókinni More What If? er farið enn aftar í tímann. Meðal möguleika sem þar er velt upp er að ef Kínverjar hefðu haldið flotauppbyggingu sinni áfram á 15. öld hefði það getað leitt af sér kínverskt heimsveldi frá Afríku til Ameríku (möguleiki sem Jón Ormur Halldórsson hefur einnig ýjað að í bókinni Löndin í suðri). Enn áhugaverðari möguleika er velt upp í grein Carlos M.N. Eire sem nefnist „Pontius Pilatus Spares Jesus“. Þar er Jesús ekki hengdur á krossinn, heldur þvert á móti nýtur hann vernd- ar Rómarveldis. Þessi mjög svo ögrandi lýsing er byggð á því að Rómverjar höfðu litla ástæðu til að óttast mann sem hvetur til að menn borgi skattana sína. Ef Nietzche hafði rétt fyrir sér, að kristin trú byggist á þrælslund, hefði þá Rómarveldi ekki haft fulla ástæðu til að vilja breiða hana út meðal þegna sinna, sem varð jú reyndin 300 árum síðar? Eire vill halda því fram að ef Rómverjar hefðu gripið tækifærið strax, fremur en að reyna að bæla trúna niður í fyrstu, þá hefði hún ef til vill getað sameinað Róm- arveldi í heildstæðara ríki en raunin varð, jafn- framt því sem hún hefði breiðst út til barbar- anna og fært þá undir keisarann. Róm hefði þá staðið til okkar daga. En enn og aftur færist sagan aftur í kunnuglegt horf, þegar rómverska heimsveldið þróast smám saman yfir í Evrópu- sambandið, þó með latínu sem sameiginlegt tungumál. Lýðveldi víkinga og móhíkana- indíána, að fyrirmynd Alþingis? Grein sem ætti að vekja sérstakan áhuga Ís- lendinga er grein Ceceliu Hollands, „Repulse at Hastings, October 14, 1066“. Þar tapar Vil- hjálmur bastarður orustunni, og England verð- ur áfram í höndum Saxa. Holland leggur til að ef England hefði enn verið á áhrifasvæði nor- rænna manna hefði þungamiðja vestræns afls ekki flust suður á bóginn, eins og varð á hámið- öldum og með endurreisninni, heldur hefði víð- tæku verslunar- og herveldi, sem náði frá Ís- landi til Miklagarðs getað verið haldið við, og þýskumælandi þjóðir hefðu litið norður á bóginn frekar en til suðurs. Einna áhugaverðust er sú hugmynd að norrænir menn, þá líklegast með Íslendinga í fararbroddi, hefðu haldið áfram ferðum sínum til Norður-Ameríku. Hernaðar- legir yfirburðir víkinga gagnvart frumbyggjum Ameríku voru ekki jafnmiklir og hjá Spánverj- um, Bretum og Frökkum 500 árum síðar, og hefðu þeir því þurft að starfa meira með indíán- um. Hún spáir því jafnvel að þetta hefði leitt af sér lýðveldi víkinga og Móhíkana-indíána, að fyrirmynd Alþingis. Það gæti verið áhugavert að velta fyrir sér hvernig Íslandssagan gæti hafa farið öðruvísi. Til dæmis má spá í hvernig hefði farið ef önd- vegissúlurnar hefði rekið annarsstaðar á land, ef Íslendingar hefðu ekki kristnast árið 1000, ef Íslendingar hefðu ekki gengið Noregskonungi á hönd, eða ef Jón Arason hefði ekki verið höggv- inn. Nýlegri möguleikar gætu verið eitthvað á þá leið að Jörundur hundadagakonungur hefði fengið þjóðina með sér og stofnað hér sjálfstætt ríki árið 1809, eða að Ísland hefði orðið hluti af Svíþjóð 1814 þegar krúna Noregs færðist til Stokkhólms. Jafnvel hefði svo getað farið að Danir hefðu fært Þjóðverjum Ísland ásamt Slesvig og Holstein eftir ósigur sinn í stríðinu 1864. Eða hvað ef Þjóðverjar hefðu komið hing- að fyrst árið 1940? Hefði það getað skipt sköp- um í stríðinu? Hefði hér verið öðruvísi umhorfs ef Íslendingar hefðu tapað þorskastríðunum, eða ef Ísland hefði ekki gengið í Nato? Hefði það jafnvel getað gerst að Pereatið 1851 hefði getað þróast út í byltingu, eins og hafði gerst víðs- vegar í Evrópu þremur árum áður, eða hefði getað orðið bylting á kreppuárunum? Erfitt er að segja til um hvað hefði getað orð- ið. En það rennir vissum stoðum undir gagn- semi slíkra vangaveltna, að einnig reynist erfitt að segja til um hvað muni verða. Ef allt sem ger- ist er á einhvern hátt óhjákvæmilegt eða afleið- ingar hægfara efnahagsbreytinga ætti að vera auðvelt að spá fyrir um framtíðina, en svo er þó ekki. Margir líta nú á hrun Sovétríkjanna sem óhjákvæmilegt, en fáir spáðu þó fyrir um þann atburð aðeins örfáum árum áður. Og víst er að enn færri sáu fyrir atburðina 11. september 2001. Sagan heldur víst áfram enn um sinn, til góðs en þó allt of oft til ills, og mennirnir eru bæði þolendur og gerendur, í senn leiksoppar örlaganna og áhrifavaldar þeirra. HVAÐ EF HITLER HEFÐI UNNIÐ? E F T I R VA L G U N N A R S S O N Ef Al Gore hefði orðið forseti Bandarí.kjanna, hefði þá verið gerð innrás í Írak? Hvernig hefði farið ef Bretar hefðu samið frið við Hitler? Og hvernig hefði sagan orðið ef Jesús hefði notið verndar Rómarveldis? Við slíkar spurningar fæst sýndarsagn- fræðin sem fjallað er um hér. Associated Press „Því eru sumir sem vilja velta því fyrir sér hvað hefði gerst ef Bretar hefðu samið frið við Hitl– er, en vitað er að margir innan bæði bresku og þýsku ríkisstjórnanna óskuðu eftir slíku.“ Höfundur er við MA-nám í skapandi skrifum (creative writing) í Belfast.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.